Ísafold - 31.08.1925, Blaðsíða 4
4
I
Óeirðirnar í Kína.
Símað er frá Canton, að þar hafi
slegið í blóðugan bardaga meðal
innfæddra borgarbúa og Evrópn-
manna þar búsettra.
Eng-ström verður prófessor.
Símað er frá Stokkíhólmi, að
Engström hafi verið gerður pró-
fessor í teikningu við Listaháskóf-
ann.
Uppreistin í Sýrlandi.
Símað er frá París, að uppreist-
armenn í Sýrlandi færist í auk-
ana. '
Ný uppfynding.
Símað er frá New York, að tek-
ist hafi að smíða bifreiðamótor,
er taki langt fram öllum, sem
hingað til hafa verið gerðir.
1 stað bensíns er notað nýupp-
fundið vökvasamband.
Hræðilegur glæpur.
Símað er frá Brússel, að belg-
iskur trúboði í Congo hafi brent
inni 50 negra í hefndarskyni fyrir
það, að þeir sýndu honum mót-
þróa í starfi hans.
Hirkjufundurinn í Stokkhólmi.
Símað er frá Stokkhólmi, að 500
manna taki þátt í kirkjufundin-
um. Fulltrúar 37 þjóða taka þátt
í honum og 31 trúarbragðafje-
lag. Tilgangurinn með fundahöld-
nnpm er að ræða hvort kirkjan
skuli skifta sjer af þjóðmálum
alskonar, því aðskiftaleysi kirkj-
unnar í stjórnmálum o. fl. hafi
einangrað hana og gert hana ó-
tímabæra. Heillaóskaskeyti hafa
borist frá Coolidge Bandaríkja-
forseta, Englandskonungi, Mac-
Donald og fleirum.
. Heilsufarsfrjettir
vikuna 16. til 22. ágúst.
Jeg hefi átt tal við lækna í öll-
um landsfjórðungum. Er viðkvæð-
ið alstaðar það sama: Heilsufar
mjög gott. — Jeg gat síðast um
„rauða hunda“, að þeir gerðu
eumstaðar vart við sig. Hjeraðs-
læknir á Akureyri segir mjer nú
að þar hafi talsvert borið á þeim
kvilla og Mkist mislingum.
25./8. '25.
G. B.
Að norðan.
Akureyri 26./8. '25. FB.
Malaferli ritstjóra „Dags“
og Skagfirðinga.
Engin sætt.
Málaferli Jónasar Þorbergsson-
ar ritstjóra Dags og Sauðkræk-
inga eru í byrjun. Af um 80 er
undirskrifuðu andmælin gegn um-
mælum hans um Sigurgeir Dan-
íelsson hreppstjóra, hefir Jónas
stefnt 32.
Sáttafundur var haldinn á Sauð-
árkróki í gær, en varð árangurs-
laus. Málið kemur fyrir 14. okt.
Setudómari verður Bogi Bryn-
jólfsson sýslumaður Húnvetninga.
Meðal hinna stefndu eru sýslu-
maður Skagfirðinga, hjeraðslækn-
irinn og sóknarpresturinn á Sauð-
árkróki.
Sigurður Skagfeld.
»•
Sigurður Skagfeldt söngvari er
staddur hjer í bænum. Söng hann
í Nvja Bíó í gærkvöldi og þótti
mikið til söngs hans koma.
Akureyri, 30. ágúst. FB.
Síldveiðin síðustu viku.
Síldaraflinn síðustu viku varð
16215 tn. saltsíld, 9355 kryddsíld;
alls komið á land í öllum veiði-
stöðvum 206.329 tn. saltsíld og
31.547 kryddsíld. Á sama tíma í
fyrra 91.380 og 12.282.
(Símtal við Dalvík 29. ágúst).
Aflabrögð. ’
ÞorskafH hefir orðið hjer
í meðallagi á vjelbáta upp á síð-
kastið, en vorvertíð brást alveg.
Nú er landburður af fiski, t. d.
í Ólafsfirði, svo að fádæmi eru.
En flestir bátar stunda nú rek-
netaveiðar, og hefir gengið sæmi-
lega vel. Síldartunnuna hafa þeir
selt á 14 til 16 krónur. Munu þeir
nú, ef þessum mikla þorskafla
heldur áfram, hætta við síldina
og taka að stunda þorskveiðina.
Heyafli.
hefir orðið meiri hjer í sveit og
nærlendis en dæmi eru til áður.
Var véllandi gras alstaðar og
nýting víðast ágæt. Er enginn
markaður hjer fyrir hey nú, þó
margir vilji selja bagga, því al-
staðar er nóg af heyi.
Frá Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjum, 27. ág. FB.
Maður drukknar.
Hallgrímur Guðjónsson formað-
ur á vjelarbátnum Emma, er var
á leið til Vestmannaeyja með síld
frá Reykjavík, fjell útbyrðis í
nótt, út af Sandgerði og drukkn-
aði. Líkið náðist ekki. Hallgrímur
sálugi var rúmlega þrítugur að
aldri, mesti myndarmaður og fiski
maður ágætur. Hann lætur eftir
sig konu og nokkur börn.
Frá Vestfjörðum.
(Eftir viðtali við Flateyri 29. ág.).
Síldveiðin.
Þessa síðustu viku hefir verið
treg síldveiði. Hafa hamlað vest-
an stormar. Eru aUir bátar inni á
ísafirði nú; í Vestfjarða umdæmi
er búið að salta um 15000 tunnur.
Tíðarfarið
er mjög óstilt nú, óþurkar undan-
farið, og eru úthey manna farin
ÍSA^OLD
að skemmast.. Hefir ekki komið
þurkur, sem heitið getur, síðasta
hálfan mánuðinn.
Að austan.
Seyðisfirði 31. ág. ’25. FB
fslenskur togari bjargar
færeysku skipi.
Togarinn „Glaður“ kom hingað
inn í gærmorgun, með færeyska
skútu, sem „Sigurfari“ heitir, í
eftirdragi. Hafði stórsiglan brotn-
að af henni. Togarinn fann skút-
una á reki 30 sjómílur aust-suð-
austur af Langanesi. Var þá skips-
höfnin kómin í aðra skútu.
Maður. hverfur.
Norðmaður hvarf í fyrrinótt af
síldarskipi, sem hjer liggur við
bryggju, og er ófundmn enn.
Erlend síldarskip.
Fjöldi erlendra síldarskipa hef-
ir komið hingað síðustu vikur. —
Þau hafa öll verið fullhlaðin og
á útleið. Norðmenn segja mikla
síldargöngu suður af Langanesi.
Miikill þorkafli.
Hlaðafli hefir verið af fiski
hjer og á Norðfirði síðasta hálfa
mánuðinn. Vjelbátar hafa stund-
im fengið 8—14 skippund í róðri.
Hæstur afli á vjelbáta er hjer
orðinn 220 skippund, en á róðrar-
báta 125.
}
Fyrsti snjór
fjell á þessu sumri á fjallatinda
í nótt. Rokveður í dag.
Austan úr MýrdaL,
(Símtal 29. ágúst).
Sífeldir óþurkar hafa verið í
Mýrdal alla sfðastliðna viku, þar
til í gær; var þá góður þurkur
fram eftir deginum, en dofnaði
með kvöldinu. Eru bændur í Mýr-
dal nú langt komnir með að slá,
og eiga feiknin öll af heyjum úti.
Er komin talsverð rýrnun í hey
vegna óþurkanna, og horfir til
Upp á Öræfajökul fór Englend-
ingur fyrir skömmu, Stuart að
nafni. Hafði hann mikinn og marg
háttaðan farangur með sjer. Er
mánaðartími síðan hann lagði af
stað hjeðan austur.
Námsstyrkur ísl. stúdenta til
náms erlendis, hefir nýl. verið
veittur 4 stúdentum, er útskrif-
uðust í vor, samkv. fyrirmælum
fjárlaganna. Stjórnarráðið úthlut-
ar styrknum. Þessir fengu styrk-
inn : Davíð Þorvaldsson, Gísli Hall
dórsson, Jóhann Áskelsson og
Steindór Steindórsson. Ætla þrír
þessara manna, Davíð, Jóhann og
Steindór að lesa náttúrufræði.
Langt sund. Fyrri sunnudag
synti Erlingur Pálsson yfirlög-
regluþjónn vír Viðey til Reykja-
víkur. Mun þetta ver,a hið lengsta
snnd sem synt hefir verið hjer
síðan í fornöld. Var hann 2 klst.
40 mín. 22 sek. á sundi.
Dánarfregnir. Sigurður Kristó-
fer Pjetursson rithöfundur and-
aðist 19. þ. m. — Jón Jónatansson
fyrv. alþm. andaðist 25. þ. m. —
Æfiatriða þessara mstnna verður
síðar minst hjer í blaðinu..
Námskeið.
Frá 15. nóvember til 1. apríl 1926 verður kensla veitt
hjer í Reykjavík í að prjóna á prjónavjel. Kenslukona frú
Valgerður Gísladóttir frá Mosfelli.
Kenslugjald fyrir þá, sem eiga, eða ætla sjer að
kaupa Claes-vjel kr. 50.00. Fyrir kenslu á aðrar vjelar
kr. 100.00. Kenslutími 110 tímar, sem má taka eftir sam-
komulagi á lengri eða skemri tíma. Vinnu og verkefni á
nemandinn sjálfur.
Einnig verður námsskeið haldið í Vestmannaeyjum,
er byrjar 1. október í haust. Kenslutími 110 tímar. —
Kenslugjald sama og í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar þessu viðvíkjandi gefur
undirritaður og tekur á móti umsóknUm. — Einnig má
senda umsóknir um Vestmannaeyja-námsskeiðið til Guð-
ríðar Jónsdóttir, Heiði, Vestmannaeyjum.
Sem stendur eru fyrirliggjandi hinar viðurkendu
Claes-prjónavjelar, sem af margra ára reynslu hafa get-
ið sjer almennt lof hjer í landi.
Hefi einnig altaf fyrirliggjandi góðar birgðir af
ýmsum varahlutum og nálum í þær, og aðrar prjóna-
vjelar.
Fiskikaup.
Vjer erom kanpendur að fiaki fullTerkuð'um, h&lfverkuðum o|
■pp úr galti á ðllum útskipunarhöfnum í kringum landið.
GJÖRH) OSS TILBOÐ.
Útvegum með stuttum fyrirvara heila kolafarma með lægstf'
verði hvert sem er & landinu.
Ðræðurnir Proppé
Reykjavík.
Byssur til slátrunar
hefi j«<g af ýmsum gerðum, frá þektri verksmiðju í Danmörku, eftir
tilvísun dýraverndunarf j elagsins danska. — Sent eftir pöntun og-
móti póstkröfu á einstök heimili, til kaupmanna og kaupfjelaga.
Hjálpumst öll með að gamla eðferðin (hálsslcurðurinn) hverfi
úr landinu. — Allar pantanir afgreiddar fljótt.
*
Samúel Olafsson,
söðlasmiður. — Laugaveg 53 B.
Bjarni Jónsson alþm. hefir leg-
ið í Khöfn undanfarið, veiktist
skömmu eftir að hann kom þang-
að, og gat ekki setið nema einn
fund ráðgjafanefndarinnar. Sjúk-
dómurinn var brjósthimnubólga.
Síðast þegar frjettist var hann á
batavegi.
Prestafjelagsritið, sjöundi árg.,
er nýlega komið út. Hefst það á
fallegum sálmi til kirkju íslands,
eftir Valdimar V. Snævarr; auk
hans skrifa í ritið prófessor Sig-
urður Sívertsen, sjera Ragnar
Ófeigsson, sjera Árni Sigurðsson,
Jón Helgason biskup; skrifar
hann m. a. um sjera Skúla Gísla-
son prófast; sjera ÁsmundurGuð-
mundsson skólastjóri og sjera
Magnús Jónsson dósent. Sumir
þessara manna eiga fleiri en eina
ritgerð í heftinu. Það er hið fjöl-
breyttasta og læsilegasta.
Samsæti var sjera Þórarni Þór-
arinssyni presti á Valþjófsstað
haldið í byrjun þessa mánaðar.
Gerðu það söfnuðir hans, og í
minningu um 30 ára prestskapar-
afmæli hans. Var samsætið fjöl-
ment mjög, og var sjera Þórarni
fært að gjöf málverk eftir Ás-
grím Jónsson.
»
ÞEIM, sem kynnu að ætla sjeí'
að flytja til bæjarins næsta haustr
vil jeg benda á, að jeg hefi jafo'
an til sölu eða get útvegað til
kaups, smærri og stærri hús meS
lausum íbúðum. Gerið svo vel aó
láta mig vita, hvað yður hentaf
og hvernig þjer getið greitt, mu»
jeg þá benda yður á þær eignúV
sem sýnast best svara til óska yS'
ar og kaupgetu.
Reykjavík, Aðalstræti 11,-
þ. 9. júlí 1925.
HELGI SVEINSSON-
Þeir
sem ætla að gerast kaup-
endur
ÍSAFOLDAR
geri syo vel og tilkynni
afgreiðslunni það hið fyrsta
tsafold kostar ei»*“
ar 5 kr. árgangurinn
111