Ísafold - 09.05.1927, Side 4
4
ÍSAFOLD
Jjett eins og alkunnugt er, um
land alt, að hætt er við að bændur
sjeu illa við því búnir að fá lang-
varandi vorkulda.
Samkvæmt skýrslu Gengis-
nefndar, er birtist í blaðinu í gær,
er aflinn, sem lcominn var á land
hjer 1. maí, nokkru meiri en tvö
ixndanfarin ár, 140 þúsund skip-
pund; var í fyrra 119 þúsund á
sama tíma og í hittiðfyrra 126
þúsund. Yertíðin í Vestmannaevj-
Tim rýr. Afli togaranna tiltöluiega
mikill, þegar tekinn er allur flot-
inn. Aflast hefir mjög mismun-
andi mikið á* togarana. Hafa sum-
ir fengið a.fbragðsafla.
Um þessar mundir er flotinn
•dreifður um öll helstu fiskimiðin,
að því er skrifstofa útgerðar-
manna sagði Morgunblaðinu í gæv.
Eru sumir togararnir austur á
Hvalbak, aðrir austur við Horn
á Selvogsbanka, í Jokuldjúpi og
norður á Hala. Vont veður hefir
hamlað veiðum síðustu viku fyr-
ir Austurlandi.
fislr, og væri fiskurinn reiknaður
óhæfilega lágu verði.
Sendiherraskrifstofunni hjer var
gert aðvart, og beðin að rannsaka
málið. Reyndist fregnin mjög orð-
um ajikin. Flugufótur þessirSalt-
ekla var hjer nokkra daga í apríl
byrjun. Saltverslanir áttu erfitt
með að fullnægja eftirspurn. Um-
boðsmaður Mortensens hjer, snýr
sjer til útgerðarmanna, sem hann
eigi hefir verslað við áður, og
biður um salt, en þeir færast und-
an, áttu ekki salt aflögu í bili.
Ut úr þesu spinnst sagan. En
leiðrjetting komst í gegnum skrif-
stofu sendiherrans hjer og ís-
iensku sendiherraskrifstofuna í
Kaupmannahöfn.
IWaltöl
Bajersktöl
Pilsner
Best. - Ódýrast.
Innlent.
„Brúarfoss“ kom hingað á
fimtudag með margt. farþega úr
hringferð. Mjög rómað hve skipið
sje gott sjóskip og þægilegur far-
kostur í alla stáði.
Af öðrum málum, sein tefja, er
helst stjórnarskráin og bankafrv.
Bankafrumvarpið ekki komíð
lengra en í fjárhagsnefnd Neðri
•deildar. Ef það á að hafa jafn
liægláta meðferð og liingað til, er
langt í land að útrætt verði. —
Stjórnarskrárbreytingin aftur á
móti afgreidd til Efri deildar,
•eftir þrár umræður í báðum deild-
um. Breytingin er nú þessi. —
Kosningarjettur og kjörgengi til
landskjörs, miðað við 25 ára ald-
ur, í staðinn fyrir 35 ár nú. —
Landskjörsþingmenn allir kosn-
ir í einu til 4 ára, og fara sem
aðrir þingmenn ef þing er rofið.
Regluleg þing annað hvort ár.
Með tíðindum má ef til vill
telja síðasta skrípaleik Jónasar
frá Hriflu, er hann fer fram á
nð fá sjerstaka dómara til að
dæma í málum kaupfjelaganna.
Eftir núverandi stefnu, ekki ó-
líklegt, að næsta spor yrði, að
dómarar þyrftu að vera iitslcrif-
aðir af „samvinnuskóla.“ Til-
gangur með tillögunni augljós, sá
einn, að fá tækifæri til að svala
mannskemdafýsn sinni einu sinni
enn í Sameinuðu þingi.
Ákveðið er nú, að dönskum og
íslenskum ríkisborgurum veitist
þessu sumri heimild til þess, að
nota fiskiveiðahöfn í Grænlandi
og stunda þar línuveiðar. Vafa-
laust athuga íslensltir útgerðar-
menn það mál, hvort ekki sje til-
tækilegt að gera þangað út. skip
til reynslu í sumar.
Gleðitíðindi eru það mikil, að
brátt verði hafist handa við foru-
minjagröftinn að Bergþórshvoli.
Mun enginn íslendingur sjá eftir
því, að til hans verði vandað sem
best. Það er skylda vor sem ljúft
er að uppfylla, að láta einkis
ófreistað til þess að rannsóknirn-
ar að Bergþórshvoli varpi sem
skýrustu ljósi yfir húsaskipun alla
á dögum Njáls. Hver smávægileg-
ur hlutur úr búi Njáls og Berg-
þóru sem finst, verður aldrei of
vel geymdur.
Skákþingið.
Tíðrætt hefir mönnum orðið hjev
í bænum um ófarir jafnaðarmanna
I. maí. Þátttaka kröfugöngunnar
ekki glæsilegt tímanna tákn fyr-
ir jafnaðarmenn og bolsa, svona
rjett undir kosningar. Bætir ekki
úr, ef rjett er, sem heyrst hefir,
að samlyndi sje ekki sem best
innan flokksins um framboð. —
Talið, að Ólafur Friðriksson hugsi
mjög til þingsetu. Væri jafn gott,
að liann kæmist þangað, Jónasi
fjelaga sínum til aðstoðar. Þá
mega bændur landsins sjálfuin
sjer um kenna, ef þeir skilja ekki
starf og stefnu Hriflu-Jónasar.
Akurej'ri, 4. maí.
TJrslit urðu þau, að Eggert varð
skákmeistari hafði 9 vinninga, Ari
8, Siguröur 6i/>, Stefán Ól. (i
Forseti sambandsins var kosinn
Pjetur Zophoníasson, Elís Guð-
mundsson skrifari. Einar Arnórs-
son gjaldkeri. Varastjórn Erlendur
Guðmundsson gjaldkeri formaður,
Pjetiu Sigurðsson bókavörður
skrifari, Guðmundur Bergsson,
póstmeistari gjaldkeri.
í dönskum blöðum, sem hingað
komu um helgina var, er getið
um úlfaþyt nokkurn, sem orðið
hefir fyrir skemstu, út af því, að
Mortensen, kaupmaður í Færeyj-
um skýrði frá því í Höfn, að
hann hefði orðið hjer fyrir megn-
ustu rangsleitni. Skútur hans
hefðu komið hingað til þess að
kaupa salt, en verið neitað um
kaup á salti, nema í býttum fyrir
FRJETTIR
Stefán Stefánsson, cand. juris.
frá Fagraskógi hefir nú látið af
fulltrúastarfi því hjá bæjarfógeta
hjer, sem hann hefir haft undan-
farandi ár, og fór norður með
Botníu síðast, ti] bús síns í Fagra-'
slcógi. Stefán hefir getið sjer hina
besta orðstír í starfi sínu hjerý
og hefir reynst hinn vinsælasti
maður. Við starfi hans hjá bæj-
arfógeta tekur Adolf Bergssou
lögfræðingur.
Að norðan er símað, að ágætur
fiskafli sje við Grímsey um þess-'
ar mundir, og liafa nokkrir vjel-
bátar af Eyjafirði farið þangað
til veiða.
íslenskan fána úr silki á fall-
egri stöng, hefir bæjarstjórn
Reykjavíkur gefið íþróttafjelagi
Reykjavíkur og kom hann hingað
með „Tjaldur“. Fáni þessi verður
með í Noregsför fimleikaflokk-
anna.
íslensku varðskipin og höfnin.
Eins og getið hefir verið um hjer
í -blaðinu, fór dóms- og kirkju-
málaráðuneytið fram á það við
bæjarstjórn, að gefa íslensku varð
skipunum eftir vatnsskatt, er nem-
ur 3050 kr. Hafði bæjarstjórn
þetta til meðferðar síðast, og sam-
þykti það eftir nokkurt karp. Var
það einkum Ó. Fr., sem maldaði í
móinn gegn eftirgjöfinni, og kvað
það ósvífni, að Reykjavíkurbær
færi að gefa ríkinu. Bæinn varð-
aði ekkert um varðskipin og rekst t
ur þeirra.
Kaupin á Elliðavatni. Bæjarstj.
samþykti 5. þ. m., að kaupa jörð-
ina Elliðavatn til handa rafveit-
unni, fyrir það verð, sem áður var
samið um, 135 þús. kr.
Tvö málverk eftir Jón Stefáns-
son, annað af Dyrhólaey og hitr
frá Þingvöllum, hefir íþróttafje-
lag Reykjavíltur keypt og lætur
fimleikaflokkana færa „Ósló Turn-
forening“ að gjöf.
Verkfræðingaleiðangurinn danski.
Þess var getið hjer í blaðinu fyrir
nokkru, að komið liafi til orða að
danskir verkfræðingar kæmu hing
til lands í sumar. Það er verk-
fræðingafjelagið danska er gengst
fyrir ferð þessari. Áskriftalisti til
þátttöku lá frammi hjá fjelaginu
til 1. maí. Búist við, að þáttakend-
ur yrðu um 30 er síðast frjettist.
Þeir ætla að koma hingað þ. 12.
júní og vera li.jer í eina 10 daga.1
Aöalfundur
Búnaðarfjelags Islands verður haldinn að Þjórsártúni, laugarda^inn
25. júní næstkomandi og hefst. kl. 5 e. h.
Dagskrá fundarins :
1. Skýrt frá, störfum fjelagsins og fjárhag.
2. Flutt erindi um búnaðarmál.
3. Kosinn einn fulltrúi á Búnaðarþing til 4 ára, og annar til vara.
4. Rædd ýms búnaðarmál, sem upp kunna að vera borin.
IðrnvOrudeild les Zlmsen
Reykjavik.
Með síðustu skipum höfum við fengið miklar og fjöl-
breyttar birgðir af allskonar Járnvörum, Búsáhöldum,
Garðyrkjuverkfærum, Málningavörum, Rúðugleri, Kítti og
Saum; ennfr. Stunguskóflur, Steypuskóflur, Stungukvíslar,
Heykvíslar, Höggkvíslar, Arfagref, Ristuspaðar, Malarskófl
ur, allskonar sköft. — Ljáblöðin fíllinn. Ljábrýni, Brún-
spónn, Hnoð, Hnoðhamrar, Klöppur, Steðjar, Hamrar,
Axir, Naglbíta, Bora, Sporjárn, Hefla, Sagir, Hefiltann-
ir, Maistokka, Hóffjaðrir, Ullarkamba, Hverfisteina,
Zinkhvíta, Fernisolía, Blýhvíta, Þurkefni, Terpentína,
Bronce-Tintura. Allskonar þurrir litir. Hlóðarpottar og
allar vanalegar tegundir af pottum, emanl. og alum.
Katla, Kaffikönnur, Skólpfötur, Þvottaföt, Pönnur, Mál,
Allskonar Aluminiumvörur. Þvottavindur, Rullur, Þvotta-
potta, Þvottabala. Vatnsfötur, Þvottabretti, Kofforts-
skrár, Skápskrár, Kjallaraskrár, Klinkur, Húna, Tippi,
Lamir allsk., Hurðarskrá, Kíttisspaðar. Violett og Gilette
rakvjelablöð1, Rakkústa, Raksápu, Rakvjelar og Rakhnífa,
Peningabuddur og Veski, og margt, margt fleira. —
Verðið hvergi Iægra. —
JáruYðrndeild Jes Zimsen.
Vatnsleiðslutæki:
svo sem galv. pípur og pípnafellur,
botnspjöld, handdælur 6 stærðir, vatn-
kranar, stoppkranar alskonar, eldhús-
vaskar, skolprör og alt tilheyrandi,
vatssalemi og m. m. fl.
— Vandaðar og ódýrar vörur. —
Á. Etnarsson & Fnnk. ReyMavík.
Hún: Viltu nú ekki reykja einn af
þessuin vindlum, sem bróðir minn
sendi þjer í afmælisgjöf'?
Hann: Dettur það ekki í hug! það
eru sömu vindlarnir, sem jeg sendi
honum í jólagjöf! . (Nagels Lustige
Welt, Berlin).
(Einar BjKrnsson)
| Símn. Sportvöruhús. Box 384.
| ZEISS-IKON ljósmyndavjelar, efni
og áhöld til myndasmíða, fjölbr.
úrval og’ lægst verð á landinu.
Haglabyssur, rifflar og skotfæri,
alskonar. Lax- og silungs veiðar-
færi, sport- ög íþróttavörur.
NÝTT.
Mauser-fjárbvssur eru þær örugg-
ustu, sem til landsins hafa flutsf,
eiunig sem stórgripabyssur. Hlaup
lengd 30 cm„ taka allar lengdir
af slíotum, cal. 22.
---- Biðjið um verðskrár. -----
Byggingarefni
□g eldfæri.
Hefi altaf fyrirliggjandi:
Bárujárn 24 óg 26, 5—10 f.
Sljett járn 24 og 26, 8 f.
paksaum og alsk. saum.
Pakpappi nr. 1 og 2.
Ofnar og eldavjelar.
Skipsofnar og þvottapottar.
Ofnrör, steypt og úr smíðajárni.
Eldf. stein 1 ”—114 2 ’ ’
og eldf. leir. •
Vörur sendar út um land gegn
eftirkröfu.
G. Behrens
REYKJAVÍK.
Sími 21.