Ísafold - 07.06.1927, Blaðsíða 4
4
f S 4 g Q i B
Frambaö.
í Gullbr. og Kjósarsýslu bjóða
þric Björn Kristjánsson og Olafur
Thors sig fram af hálfu Ihalcls-
flokksins. Svo sem kunnugt' er,
hafði B. Kr. ákveðið að láta nú
af þingmensku og helga vísindun-
um alla krafta sína, en íbalds-
menn hafa sótt með einsdæma
kappi að tryggja flokknum enn
á ný hina miklu þekkingu og lífs-
reynslu B. Kr. Sendu allir flokks-
bræður hans á þingi honum mjög
eindregna áskorun um framboð,
en hitt mun þó hafa riðið bagga-
muninn, að nýverið áttu 34 menn
úr hóp helstu áhrifamanna í hjer-
aði fund með sjer í Hafnarf. og
beindu svo einróma óskum og á-
skorunum til B. Kr. um framboð,
að hann mun ekki hafa þótst geta
skorast undan svo ákveðnu traústi
og skýlausum vilja sinna gömlu
og góðu stuðningsmanna. Mun það
íhaldsmönnum um land alt ósk r-
að gleðiefni að svo er komið sám
komið er, því þótt B. Kr. sje m«tð-
ur við aldur, eru andl. kraf ar
hans með öllu óbilaðir og flokkn-
um ómetanlegur fengur að þvi a'i
njóta þeirra sem lengst,.
FRJETTIR
Pramboð á Eyjafirði. Fullvíst er
að þeir verða í kjöri í Eyjafjarð-
arsýslu af hálfu jafnaðarmanna,
Steinþór Guðmundsson barnaskóla
stjóri á Akureyri og Halldór Frið
jónsson ritstj. „Verkamannsins“.
Purstinn af Lichtenstein og fra
hans voru meðal farþega hingað
á Brúarfoss. — Furstinn fer
innan skams upp í Borgarfjörð til
laxveiða í Þverá, og mun hann
dvelja þar fram eftir mánuðinum.
Bær brennur. Á fimtudagskvöld-
ið kviknaði í bænum Forsæti í
Villingaholtshreppi í F'lóa, og
brann hann til kaldra kola. Á
bænum var lítið timburhús, og
var vátrygt hjá sveitatrygging-
unni. En innanstokksmunir voru
ótrygðir.
Eíkisráðsfundur var haldiun 31.
maí s. 1. og staðfesti konungur þar
lögin frá síðasta þingi.
Guðmundur Gíslason Hagalín og
fjölskylda hans voru meðal far-
þega á „Lyru“ hingað. — Hefir
Hagalín verið búsettur í Noregi
undanfarin ár, en mun nú vera
alfluttur heim.
Þýskur ræðismaður. Með Botn-
íu kom hingað þýskur greifi, von
Pfeil und Kleinellguth, sem gegna
á ræðismannsstörfum Þjóðv^rja
hjer fyrst um sinn. Aðalræðismað-
ur Þjóðverja, Sigfús Blöndahl, hef
ir sótt um og fengið nokkurra mán
aða orlof frá störfum sínum. Kunn
ugt er, að þýskir togaraeigendur
hafa fyrir nokkru ráðist í þýsk-
um blöðum á íslenskt rjettaffar
með hinum háðulegustu orðum, og
krafðist ræðismaður Þjóðverja
hjer að þýska stjórnin skifti sjer
af þessum málum. Með fullu sam-
lcomulagi milli hlutaðeigenda hef-
ir því þessi bráðabirgðaráðstöfun
verið gerð.
íslendingar og Færeyingar. Á
heimleiðinni frá útlöndum höfðu
leikfimisflokkarnir sýningu í
Þórshöfn á Færeyjum. — Ágóð-
inn af þeirri sýningu var lát-
inn ganga í sjóð þann, sem nú er
verið að safna í til endurreisnar
kirkjubyggingarinnar á Kirkju-
bæ í Færeyjum, og sagt hefir ver-
ið frá hjer í blaðinu.
Laxveiðin í Elliðaánum hefir
verið boðin út fyrir skömmu eins
og vant er. Hafa borist tvö tilboð,
annað frá Líiðvík Lárussyni, að
upphæð 4000 kr., en hitt frá
Stangaveiðafjelaginu, að upphæð
4600 kr. Rafmagnsstjórinn liefir
samþykt að taka tilboði Stanga-
veiðafjelagsins. Fyrsta laxveiða-
daginn veiddust 7 laxar vænir, 72
pund allir saman; sá þyngsti 15
pund.
Skipsflalc sprengt. Fylla hefir
verið undanfarna daga á Siglu-
firði, þeirra erinda að sprengja
gamalt skipsflak, sem lá á Siglu-
fjarðarhöfn, á siglingaleið, austur
og inn af eyrarodþauum. Sagt var
í símtali að norðan, að spreng-
ingin gengi heldur seint, væri
örðugt að fást við flakið.
Aflinn norðanlands. Frá 3—8
þúsund pund fá bátar í róðri a
Siglufirði þessa dagana, eða hafa
fengið nndanfarið. — Beita hefir
fengist nægileg, smásíld á Akur-
eyri, kostar tunnan 35 kr., komin
til Siglufjarðar, og þykir dýr.
í atvinnuleit er nú fjöldi fólks
kominn til Siglufjarðar, og mun
þó síðar meira. En svo segir í
frjett að norðan, að óvenjulega
margt sje komið á þessum tíma,
Ennþá er lítið um atvinnu
á Siglufirðí, stórbyggingar eng-
ar, nema sjúkrahúsið, en nokkur
einstakra manna hús í smíðum,
flest smá.
Aflabrögð vestra. Þaðan er sím-
að, að afli sje sæmilegur á fsa-
firði, eh tregur á Ontmdarfirði.
Tíð. er hin ágætasta og gott næði
til sjósókna.
Ðánarfregn. Nýlega er látinn á
Flateyri, Ragnar Hinriksson, ung-
ur efnismaður um tvítugt.
Verslun keypt. Kaupfjelagið á
Flateyri hefir nýlega keypt versl-
un Sameinuðu ísl. verslananna á
Flateyri, og hefir þegar tekið við
henni til reksturs.
Pramboð. Heyrst hefir að vest-
an, og talið sannleilcanum sam-
kvæmt, að Finnur Jónsson póst-
meistari á ísafirði ætli að bjóða
sig í Norður-ísafjarðarsýslu, af
hálfu jafnaðarmanna, móti Jóni
A. Jónssyni. En það fyígir fregn-
inni, að aldrei muni þingmanns-
efni hafa lagt út í meira vonleysi
en Finnur, og þykir mönnum hann
kjarkgóður.
Kaup við síldveiðar. Nýlega
hafa útgerðarmenn kosið þriggja
marina nefnd til þess að semja v.ö
fulltrúa sjómanna um kaup við
síldveiðar á togurum þeim, e:
kunna að verða gerðir út á þæ.:
veiðar í sumar. Eiga sæti í nefnd-
inni af hálfu útgerðarmanna:
Kjartan Thors, Páll Olafsson og
Ólafur Gíslason.
j Fræðslumálastjóra-embættið er
nú auglýst laust til umsóknar. —
Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k.
4
Prófi í forspjallsvísindum lauk
í Háskólanum hjer á föstudág. I
ágætiseinkunn hlutu þessir: Júlíus
Sigurjónsson stud. med., Kristinn
Stefánsson stud. med., Jón Blön-
dal stud. med., Jósef Einarssor.,
Hallgrímur Björnsson stud. med.,
Konráð Kistjánsson stud. theol.,
Ólafur Þorsteínsson stud. med.. I.
eink. hlutu: Guðrún Guðmunds-
dóttir, Freymóður Þorsteinsson
stud/jur., Jóh. Sæmundsson stud.
med., Jón Stefánss. stud. med., Jóu
jJakobsson stud. theol., Magnús
Finnbogason stud. mag., Sveinn
Benediktsson stud. jur., Ragnar
Ólafsson stud. jur., Sveinn Pjfet-
ursson stud. med., Sverrir Ragn-
ars stud. jur.; II. eink. fengu : Tnf-
ólfur Gíslason stud. med., Jón Sig-
urðsson stud. med. II. eink. 1.:
Fríða Proppé. Aðeins einn stúd-
ent stóðst ekki prófið.
„Ameta“. Fyrir henni eru tvenn
ir tímarnir. — Munu menn reku
minni til þess, að hún slitnaði
aftan úr norsku skipi á leið frá
Grænlandi, lenti í hinum mestu
hrakningum og volki, og strand-
aði loks vestur í Breiðafjarðar-
eyjum. Fvrir nokkru síðan átti
að fara með hana hingað suður,
og slitnaði hún þá enn aftan úr
dráttarbátnum og týndist um hríð,
en fanst þó aftur Og komst hicigaö.
Nú liggur hún í fjörunni við stein
bryggjuna, og hefir einhvern-
tíma væst meira um hana. Norsk-
ur maður keypti hana á strand-
staðnum vestra, og mun hann ætla
að dubba hana upp hj’er.
50 ára 'afmæli Isafoldarprent-
smiðju er nú í sumar. Er ákveðið
af eigendum og stjórn prentsmiðj-
unnar að gefa út vandað minn-
ingarrit með fjölda mynda og
Iielstu dráttum úr starfssögu prent
smiðjunnar.
Fornleifagröfturinn að Berg-
þórshvoli. í „Berl. Tidende“ hefir
Hans Kjær, fornminjavörður, sá er
ætlar að taka.þátt í ■fornminja-
greftinum að Bergþórshvoli í þess
um mánuði, skrifað langa grein
um helstu drættina í Njálssögu,
og hve Bergþórshvoll sje minn-
ingaauðugur staður. Gerir hanu
sjer miklar vonir um, að margt
merkilegt finnist við rannsókn í
rústunum og að það verði til þess,
að varpa skýru ljósi yfir ýmislegt
í háttum og fari forfeðra vorra.
Jarðarför Valgerðar Jónsdóttur
prestsekkju fór fram á Þingeyri
á þriðjudaginn var, eins og sagt
var frá hjer í blaðinu. Ræðu flutti
Þórður prófastur Ólafsson heima
og í kirkjunni, auk þess talaði
Friðrik Hjartar kennari í kirkj-
unni og Snorri Sigfússon kennari
söng með undirspili kvæði, er ort
var hjer syðra. Var mikið fjöl-
menni viðstatt jarðarförina og
víðar að en úr Dýrafirði.
Tímarit iðnaðarmanna, 2. hefti
I. árg. er nýlega komið út. Flyt-
ur það ýmsar greinar, er lúta, að
iðnaðarmálum þjóðarinnar. M. a.
er þar ein „um iðjuframtíð þjóð-
arinnar", eftir Guðm. landlækni
Björuson, eftirtektaverð á ýmsa
lund, og verður nánar sagt frá
efni liennar lijer í blaðinu.
FRAH
8KILVINDUB
eru nú þjóðkunnar á ís-
landi, því yfir 800 bændur
nota þær.
Þær hafa alla þá kosti sem
bestu skilvindur þurfa að hafa,
skilja mjög vel, sterkar ending-
argóðar, einfaldar og eru eink-
ar þægar í notkun. Á seinni
árum hefir engin skilvinda út-
breiðst jafnmikið og jafnfljótt
og FRAM-SKILVINDAN. Hún
er búin til i 50 stærðum, skil-
magn frá 40 til 160 litrar á kl.st.
O A H Ll A-strokkarnir eru
úr málmi, mjög handhægir og
fljótlegt að hreinsa þá, eru eink-
um viðurkendir fyrir hve mikið
smjör næst með þeim. Þeir eru
af ýmsum stærðum frá 5—60 lítra
Fyririrggjandi ásamt varapörtum hjá
Krisljáni 6. SkagfjörC
Talsími 647.
Reykjavík.
Pósthólf 411.
BænðaskÉlinn í Hðlum.
Með því að það er ákveðið, að byggja á Hólum í sumar, nýtt
hús i stað þess sem brann í haust, tilkynnist hjer með að skólinn>
starfar að vetri eins og að undanförnu.
Jafnframt tilkynnist að alt sumarið milli skólavetranna geta nokkr-
ir piltar fengið tækifæri til að stunda verklegt nám við nýjyrkju?
eingöngu.
Páll Zóphóniasson.
Hurðir og gluggar
úr úrvals efni; smíðað eftir pöntun. Sent hvert á land sem er .
VÖNDUÐ VINNA!
SANNGJARNT VERÐ!
Trjesmfðavinnustofa Hrna jðnssonar
Sími 917.
Nýlendugötu 21.
Reykjavík.
Slari
sauðfjárræktarráðuiiautai' Búnaðarfjelags Islands er laust tii um-
sóknai’. Byrjunarlaun 3000 kr. á ári, auk dýrtíðaruppbótar. sem er
sú sama og annara starfsmanna ríkisins. Lanniii hækka á þriggja ára
fresti um 300, 300 og 400 kr. upp í 4000 kr.
Umsóknarfrestur^ til 1. september n. k.
Búnaðarfjelag Islands.
Frá nkranesi.
Akranesi, FB. 4. júní
•
Stærri bátar eru nú að hætta,
Ólafur Bjarnason, gufubátur-
inn, lcom inn í gær eftir hálfs-
mánaðarferð og hafði líka rúm
100 skpd. Hrafninn kom í
morgun eftir rúma viku með ca.
40—50 skpd. Afli yfirleitt í
meðallagi upp á síðkastið, en
góður á smábáta, en smærri
fiskur. Smábátar hafa verið að
veiðum vestur undir pormóðs-
skeri.
Frambjóðendur til þings hafa
boðað til fundar hjer þ. 24. þ.
m. og halda svo hjeðan til
frekari fundahalda víðar um
sýsluna.
Alþingishátíðarnefndin þingskip-
aða fór til Þingvalla á annan •
hvítasunnu til skrafs og ráðagerða
um ýmislegt fyrirkomulag hátíoar-
innai'1.930.
Maltðl
BajersktSI
Pilsner.
Best. - Odýrast.
Innleut.
Hestar til sölu.
Tljer fást keyptir reiðhestar, .
vagnliestar og e.innig kynbótahest-
ur, sem lilotið hefir verðlaun á
hjeraðssýningu. Verð sanngjarnt
Lundi í Lundarreykjadal
69. maí 1927.
Sigurður Jónsson. .