Tíminn - 02.04.1980, Blaðsíða 1
^Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392
Stjórn Verkfræðingafélags íslands:
Verkfræðingar „stræki” á Kópavog
HEI — Aöalstjórn Verk-
fræöingafélags islands sam-
þykkti á fundi sinum 17. mars aö
beina þeirri áksorun tii félags-
manna, aö þeir ráöi sig ekki til
starfa eöa sæki um stööu hjá
Kópavogskaupstaö án samráös
viö stjórn félagsins.
Tilefni þessarar samþykktar
er, aö bæjarstjóri Kópavogs
hefur i engu sinnt bréfi er stjórn
Verkfræöingafélagsins sendi
bæjarstjórninni 1. mars s.l., þar
sem stjórn VFÍ lét i ljós van-
þóknun á meöhöndlun bæjar-
ráös Kópavogs á umsókn
félagsmanns úr VFl um stööu
deildarverkfræöings hjá
kaupstaönum. En sú staöa haföi
veriö auglýst 2. des. s.l. og um-
sækjanda siöan hafnaö af
bæjarráöi meö þeim viöbárum
m.a. aö bæjarfélagiö heföi ekki
efniá aö ráöa I stööuna um sinn.
í bréfi VFI til bæjarstjórnar-
innar er sagt, aö vinnubrögö
opinbers aöila, sem veröi til
þess aö kasta rýrö á hæfni
manns og jafnvel stéttar, séu
vissulega ámælisverö og jafn-
framt til þess fallin aö rýra álit
þeirra stjórnenda, sem slikum
vinnubrögöum beita. Meöferö
bæjarráös beri tvlmælalausan
keim af valdbeitingu án
ábyrgöar. Þvi óskaöi stjórn VFl
eftir aö Kópavogskaupstaöur
endursköaöi afstööu sína i
þessu máli. En bréfi þessu, sem
undirritaö er af formanni og
framkvæmdastjóra VFl, þeim
Agli Skúla Ingibergssyni og
Hinrik Guömundssyni, hefur,
sem fyrr segir ekki veriösinnt af
stjórn Kópavogskaupstaöar.
Eins og viö sögöum frá fyrir skömmu var geysimikil veiöi I fyrri viku á Grundarfiröi I net og rak hver
metafladagurinn annan fram aö netaveiöibanninu sl. iaugardag. Frf var gefiö f skólanum til þess aö
bjarga afianum og hér sjáum viö ungan Grundfiröing, Rúnar aö nafni, sem er 14 ára gamall, klkja I
námsbækurnar f fiskmóttökunni, þegar stund gefst á millistriöa. (Ljósm. Arie Lieberman)
Takast samn ingar
um kaup á I hvammsland i’ífu- i?
Sjá nánar i Suð-Vesturlandsblaði bls. 9-12
Stjórnarflokkarnir breyta
orku j öf nunarf rum varpinu:
Söluskattur
hækkar um U%
— verður ekki afgreitt fyrir páska
JSG — Stjórnarflokkarnir komu
sér I gær saman um aö breyta
frumvarpi rikisstjórnarinnar um
orkujöfnunargjald. Náöist sam-
komulag um aö gjaldiö næmi ekki
tveimur söluskattsstigum, heldur
1 1/2%, enda lágu fyrir nýir út-
reikningar um þær tekjur sem af
gjaldinu fengjust á þessu ári. i
frumvarpinu var gert ráö fyrir aö
tvö söluskattsstig gæfu 7 mill-
jaröa þaö sem eftir er ársins, en
nú er taliö liklegra að þau gæfu
8,2 milljaröa. Hálft annaö sölu-
skattsstig er hins vegar taliö gefa
6 milljaröa tekjur. Af þessum 6
milljöröum er gert ráö fyrir aö 4
milljarðar fari beint til greiöslu
oliustyrks, 500 milljónir renni til
orkusparandi verkefna, en 1500
milljónir renni I rlkissjóð til
styrktar stööu hans.
Nokkur ágreiningur kom I gær
og fyrradag upp innan stjórnar-
flokkanna um orkujöfnunarfrum-
varp rlkisstjórnarinnar. Töldu
sumir þingmenn stjórnarflokk-
anna of langt gengiö meö að
leggja á tvö söluskattsstig til
orkujöfnunarinnar, enda var þá
gert ráö fyrir aö stór hluti tekn-
anna rynni til annarra aögeröa en
þeirra sem varöa jöfnun húsahit-
unarkostnaöar. óttuöust nokkrir
þingmenn áhrif söluskattshækk-
unarinnar á vlsitölu og laun, og
einnig á fyrirliggjandi kjara-
samninga.
Þessi uppákoma með orkujöfn-
unarfrumvarpiö stefndi af-
greiöslu mála fyrir páskaleyfi I
nokkra tvisýnu, og var á timabili
ekki séö hvaö yröi um fjárlaga-
frumvarpiö, þar sem aöeins átti
eftir aö fara gegnum þriðju um-
ræöu. Gera þurfti breytingar á
fjárlagafrumvarpinu til sam-
ræmis viö breytingar á tekjum af
söluskatti. Þegar samkomulag
haföináöst um breytingar á orku-
frumvarpinu, og séö var aö þaö
nyti öruggs stuönings i þinginu,
þá gat meirihluti fjárveitinga-
nefndar lagt til viöeigandi breyt-
ingar á fjárlagafrumvarpinu.
Meö þessum breytingum veröur
fjárlagafrumvarpiö afgreitt, og
þaö þó orkufrumvarpiö biöi, enda
munu mörg fordæmi fyrir aö
tekjuöflunarfrumvörp sem liggja
óafgreidd fyrir Alþingi, séu tekin
meö óbeinum hætti inn I fjárlög.
Engar llkur eru taldar á að
orkujöfnunarfrumvarpiö veröi
afgreitt fyrir páska. Reyndar
munu engin þingmál utan fjár-
iaga hljóta afgreiöslu, en hug-
myndir höföu veriö uppi um aö
afgreiöa einnig ollugjald til fiski-
skipa, og frumvarp um skatt-
stiga. Fjárlögin veröa afgreidd
formlega I dag meö atkvæöa-
greiðslu.
Nýjar reglur um gjaldeyrisviðskipti:
Ferðagjaldeyrir
hækkar í 430
þús.
HEI —í gær tóku gildi nýjar regl-
ur um gjaldeyrisviöskipti, sem
veita gjaldeyrisbönkunum víö-
tækar heimildir til afgreiðslu
allra venjulegra yfirfærslna. En
Samstarfsnefnd um gjaldeyris-
mái —sem skipuö var í jan. s.l. —
fjallar siöan um erindi sem fara
út fyrir heimildir bankanna og
berast henni fyrir milligöngu
þeirra. Hinsvegar leggst Gjald-
eyrisdeild bankanna niöur, en
hana þekkja sennilega fiestir
vegna uinsókna um feröamanna-
gjaldeyri.
1 frétt frá viöskiptaráöuneytinu
segir, aö vonir standi til að með
þessu móti fái gjaldeyriserindi
skjótari afgreiöslu en veriö hefur.
Bankarnir fá viöari heimildir til
afgreiðslu á þjónustu — og fjár-
magnsgreiðslum, enda liggi
f»umrit skjala, reikninga, far-
seöla og annarra heimilda fyrir.
Tekiö er fram aö feröagjaldeyrir
miðist viö jafnviröi 1000 Banda-
rikjadollara, eöa nú tæp 430 þús.
Isl. krónur. En 10% sérstakt gjald
af þeim gjaldeyri er óbreytt.
Ráöuneytið vill vekja athygli á
reglugerð og auglýsingum um
þessi mál, sem veriö er aö birta
um þessar mundir en þaö eru:
Reglugerö um innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi og auglýsingar
um greiöslufrest, um gjaldeyris-
viðskipti viö erlenda feröamenn
og um yfirfærslu vinnulauna til
útlendinga. Aö ööru leyti er visaö
á gjaldeyrisafgreiöslur Lands-
bankans og Útvegsbankans um
alla daglega framkvæmd.