Tíminn - 22.04.1980, Page 6
6
Þriðjudagur 22. april 1980
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdástjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfuli-
trúi: Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiriksson. Aug-
iýsingastjóri: Steingrimur Gislason.
Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar
Sióumúla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562,
86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 240.
-Askriftargjald kr. 4.800 á mánuöi. Blaöaprent.
Er valdið í
réttum höndum?
Skólamál eru eitthvert mikilvægasta svið þjóð-
málanna i nútimasamfélagi. Á siðustu árum hafa.
miklar breytingar orðið i islenskum skólamálum og
standa þær reyndar enn yfir.
Meginatriðið i þessum efnum er vitaskuld að ekki
verði nein stöðnun, heldur samfelld og jöfn þróun.
Stöðnun verður aðeins til þess að breytingarnar
verða allt of hraðar og gjörtækar þegar stiflan loks
brestur, en með þvi eykst hættan á alvarlegum mis-
tökum i mótun stefnu og framkvæmd.
Eins og háttað er um þjóðlifið i samfélagi okkar
fer það ekki á milli mála að fóstrur, forskólakenn-
arar og grunnskólakennarar taka að séræmikilvæg
ara hlutverk i almennu uppeldi. Það er þess vegna
mjög mikilvægt frá menningarlegu og þjóðernis-
legu sjónarmiði hvernig að þessum málum öllum er
staðið. Sérstaklega hlýtur það þá að koma til skoð-
unar hvort ekki er unnt að tryggja eðlileg og
nauðsynleg áhrif foreldranna með einhverjum
nýjum hætti, eftir að ljóst er að mikilvægir þættir
uppeldisins hafa færst út af heimilunum inn i opin-
berar stofnanir.
Spurningin i þessu efni er fyrst og fremst sú hvort
tilteknir hópar sérfræðinga, sem svo nefna sig, eru
ekki orðnir of áhrifarikir i uppeldismálum, hvort
ekki væri réttara að fela kjömum fulltrúum foreldr-
anna meiri völd yfir skólunum og uppeldis-
stofnunum en einstökum hópum sérfræðinga, sem
þvi miður hafa sifellda tilhneigingu til að lita á
börnin sem tilraunadýr fyrir einhverjar fræði-
kenningar.
En reynslan hefur aftur og aftur sýnt það að allar
slikar „fræðikenningar” eru meira eða minna úr
lausi lofti gripnar, og heilbrigð skynsemi almenn-
ings og reynsla kynslóðanna hefur jafnan reynst
traustasti gmndvöllurinn.
Það er enn fremur stórmál, fyrir þróun mann-
réttinda og frjálsræðis, að fóikið sjálft hafi bein og
milliliðalaus áhrif á starfsemi uppeldisstofnana, en
að rikisvaldið og sérfræðingar geti ekki tekið sér
nein yfirráð i þeim efnum. Fólkið á börnin, og það
verður að hafa möguleika á þvi að koma i veg fyrir
hugsanlega misbeitingu valds af hálfu annarra
aðila.
Það væri fyllilega ástæða til þess að stjórnmála-
menn veltu þeirri spurningu sérstaklega fyrir sér
hvort valdið i þessum málum sé i réttum höndum,
hvort ekki beri að auka vald skólanefndanna og
jafnvel að láta kjósa þær almennum kosningum til
þess að tryggja sem best völd fólksins yfir uppeldis-
stofnunum. í þessu sambandi er það enn fremur
álitamál hvort ekki er hægt að auka hlutverk og
áhrif foreldrafélaganna þar sem þau hafa tekið til
starfa.
Með þessu er ekki verið að segja að „sérfræð-
ingar” megi hvergi koma nærri uppeldismálum.
Slikt væri fásinna. En það er eitt að sérfræðingur sé
til ráðuneytis og aðstoðar,og allt annað að sérfræð-
ingur fái i hendur vald, til að ráða og ákveða.
Samtiminn er orðinn troðfullur af alls kyns kjaft-
æði sem kallað er „fræðilegar kenningar,” um
mannlegt lif, mannlega brey tni og það sem æskunni
sé hollt eða óhollt. Það þarf venjulega heilbrigða
kynsemi til að halda ýmsu af þessu dóti i nægilegri
í^rlægð frá æskunni, og aðeins fólkið sjálft, for-
eldramir, eru færir um þetta.
JS
Erlent yfirlit
Skilaboð ísraelsstjórnar til Frakklandsforseta:
„Herra forseti,
þér eruð
friöarspillir”
„Þessar yfirlýslngar Frakk-
landsforseta eru ögrun viö friöinn
og þær stefna framtfö israelsrlkis
i hættu”, sagöi hinn nýi utanrlkis-
ráöherra ísraels, Yitshak
Shamir, I samtali viö franskan
fréttamann, nokkru eftir afdrátt-
arlausar yfirlýsingar Giscard
d’Estaing forseta um þaö, aö
Palestinumenn ættu fullan rétt á
sjálfstjórnarsvæöi, þar sem þeir
gætu búiö óáreittir. Orö Shamirs
eru fyrstu opinberu viöbrögöin i
Jerúsalem viö yfirlýsingum
Frakklandsforseta, en hann hefur
alltaf veriö hliöhollur Palestlnu-
mönnum.
Nýi utanrlkisráöherrann i Isra-
el er baráttuglaöur maöur, og ævi
hans er samofin baráttunni fyrir
stofnun israelsrikis. Hann var að-
eins 22 ára þegar hann gekk i
hryöjuverkasamtökin „Irgún”,
sem stjórnaö var af núverandi
forsætisráöherra I Israel, Mena-
chem Begin. Og áriö 1941 geröist
hann foringi I hryöjuverkasam-
tökunum „Stern”, sem einnig
böröust fyrir ísrael. 1943 tóku
Bretar Shamir höndum og héldu
honum I búöum I Erltreu, en þaö-
an strauk Shamir til Djibúti og
komst undir náöarvæng Frakka.
Þaö var áriö 1946. Viö stofnun
ísraelsríkis 1948 hvarf Shamir aö
mestu af sjónarsviöinum þar sem
hann haföi gengiö I leynilögreglu
Israels. Hann varö svo þingmaö-
ur 1970 og forseti þingsins 1977.
„Enginn harðlinumaður
hvorki i stjórnmálum né
einkaiifi”
Yitshak Shamir er lágur maöur
vexti, heröabreiöur og ljúfmann-
legur, þrátt fyrir aö hann hafi orö
fyrir aö vera haröur I horn aö
taka. Hann tók á móti frétta-
manninum 1 þeirri skrifstofu, sem
fyrirrennari hans I utanrlkisráö-
herraembætti, Moshe Dayan,
hafði áöur haft. Shamir var fyrst
spuröur um þaö, hvernig honum
félli sá orörómur, aö hann væri
haröur I horn aö taka, enda
hryöjuverkamaöur fyrrum.
„Ég er bara steinhissa’,’, sagöi
Shamir, „Frakkar og Bretar
þekkja þaö þjóöa best, aö fyrir
nýfrjálsum rfkjum eru oftast
menn, sem tilheyrt hafa þjóö-
frelsishreyfingum. Og aö ég sé
einhver sérstakur haröllnumaö-
ur, er þvæla. Ég er ekki þannig,
hvorki i stjórnmálum, né I einka-
llfi”.
Shamir var þá minntur á, aö
hann heföi veriö andvlgur Camp
David samkomulaginu. „Eg hef
aldrei verið á móti friöi viö
Egypta, þvert á móti. Hins vegar
voru mörg atriöi I Camp David
samkomulaginu, sem ég gat ekki
sætt mig viö”.
Shamir segir, aö yfirlýsingar
Frakklandsforseta, séu honum
sár vonbrigöi, einkum. þar sem
hann liti á Frakkland sem leiö-
andi þjóö I Evrópu. Hann segist
ekki vilja aögreina þjóöina sjálfa
og stjórnina, — er jafnsárreiöur
báöum, en telur, aö almennings-
álitiö I Frakklandi gæti verið
ísraelsmönnum hliöhollara en
fram kemur I yfirlýsingum
Frakklandsforseta. ,,Stjórnin á
hagsmuna aö gæta hjá Aröbum.
Það er allt og sumt”. En væri svo
hættulegt fyrir Israelsmenn, ef
Palestinumenn fengju sjálf-
stjórn?
„Við ísraelsmenn vit-
um, hvað „sjálfstjórn”
Palestinumanna þýðir”
„Það er auöveldara um aö tala
en I aö komast”, segir Shamir.
„Sjálfstjórn Palestlnumanna
myndi þýða stofnun Palestlnurlk-
is á Israelsku landsvæöi, þ.e.a.s. I
Júdeu, Samaríu og á Gazasvæö-
unum. Þaö er ætlast til þess aö við
gefúm eftir sex þúsund ferkfló-
metra landsvæöi undir öfgahreyf-
ingu, sem hefur á opinberri
stefnuskrá sinni aö leggja Isra-
elsrlki I rúst. Landsvæðiö yröi
ekki annaö en ákjósanlegur vett-
vangur fyrir árásir á ísraels-
menn I framtlöinni. Og ekki má
gleyma þvi, aö efst á stefnuskrá
palestinskra skæruliöa er aö ná
allri Palestlnu undir sig, Arafat
hefur margendurtekiö það. Nú
ekki alls fyrir löngu talaöi hann
enn um aö ná undir sig Jerúsal-
em, Tel Aviv og Jaffa. Viö Isra-
elsmenn vitum vel hvaö „sjálf-
stjórn” Palestlnumanna heföi I
för meö sér”.
En ef ísraelsmenn samþykktu
aö ganga aö samningaboröi meö
PLO-hreyfingunni, er þá ekki
möguleiki á, aö skæruliöarnir
drægju I land?
„Ég þekki þennan söng”, segir
Shamir. „Hvernig dettur nokkr-
um manni I hug, aö Palestinu-
menn dragi I land, nú eftir aö
Frakklandsforseti hefur tekiö svo
dyggilega undir kröfur þeirra um
sjálfstjórn? Hann býöur þeim
rlki. Giscard d’Estaing hefur
spillt fyrir þvi, að PLO-hreyfingin
samþykki friöarstefnu Sadats
Egyptalandsforseta. Allt þar til
Sadat tók samningamálin i sínar
hendur, var einhliöa gengiö á rétt
ísraelsmanna. Sadat rauf þann
vltahring. En nú eru málin aftur
komin I strand vegna þess, aö
þjóöarleiötogi I Evrópu er aö
skipta sér af okkar málum.
Ef ég stæöi andspænis Frakk-
landsforseta á þessu augnabliki,
myndi ég segja viö hann: „Herra
forseti, þér eruö friöarspillir”.”
Flþýddi.
Yitshak Shamir, utanrlkisráöherra ísraels, biöur þarna eftir kaffisopanum helma hjá konu sinni.
Hann segir Frakka ekki hika viö aö fórna Israel fyrlr olluna og er mjög þungt I honum hljóöiö.