Tíminn - 26.06.1980, Qupperneq 4
4
Fimmtudagur 26. júni 1980.
W;
mm
í spegli tímans
Hlaupandi maður
Það er'vlðar en á Islandi, sem ber-
stripaðir karlmenn á almannafæri
vekja athygli og deilur. Nú er á opin-
berri sýningu i Bretlandi höggmynd
eftir frægan breskan myndhöggvara,
Elizabeth Frink. Myndin ber nafniö
Hlaupandi maöur og þeir, sem hafa
athyglina hjá sér, segja, að einkenn-
andi fyrir hana sé sú einbeitni, sem
kemur fram i andlitssvipnum. En
mörgum áhorfendum hættir til að
missa augnagoturnar á aðra likams-
hluta. Viðbrögð kvenna, þegar þær
reka augun I styttuna, eru mismun-
andi. Haft er eftir einni 68 ára ömmu,
að vist sé maöurinn vel byggöur að
ööru leyti en þvi, að fótleggirnir séu
alltof grannir. Það sé nóg til þess, að
hann veki engar tilfinningar hjá henni,
hún vilji hafa menn meö sterkbyggða
fótleggi, eins og maðurinn hennar.
Listamaðurinn segir, að slikir áhorf-
endur misskilji myndina algerlega.
Hún heiti, sem áður sagöi, Hlaupandi
maöur og eigi aö tákna mann, sem sé
að hlaupa undan ofsóknum.
Varð að gjalda
nafna sins
Nú hafa samtök í Bandarikjunum,
sem berjast fyrir borgaralegum rétt-
indum, höfðað mál á hendur FBI og er
vonandi, aö málavextir séu einstakir i
sinni röð.
Það var áriö 1943, að James Calvin
Johnson, sem upprunninn var úr
svertingjahverfi i Los Angeles, út-
skrifaöist með hárri einkunn frá kvik-
myndadeild Kaliforníuháskóla. En
þrátt fyrir Itrekaöar tilraunir, tókst
honum ekki að komast 1 neina vinnu
innan kvikmyndaiðnaðarins. Johnson
komst að þeirri niðurstööu, aö hann
væri enn eitt fórnarlamb kynþáttamis-
réttis og gaf upp alla von um aö verða
nokkurn tima kvikmyndatökumaöur.
Johnson var ókunnugt um, að J.
Edgar Hoover, þáverandi yfirmaður
alrlkislögreglunnar, haföi móttekiö
skýrslu um, aö Johnson væri
kommúnistiskur áróöursmaöur. Svo
krossgáta
3336.
Lárétt
1) Krókur. 5) Leiöi. 7) Utast. 9) Svik. 11)
Lita. 12) Númer. 13) Sjó. 15) Fæöu. 16)
Ómarga. 18) Hrópar.
Lóðrétt
1) Sikring. 2) Op. 3) Varðandi. 4) Faröa.
6) Hlákur. 8) Andi. 10) Kindina. 14)
Þjálfa. 15) Poka. 17) Fisk.
Ráðning á gátu No. 3335.
Lárétt
1) Æöurin . 5) Lón. 7) 111. 9) Nýr. 11) Ná.
12) Kú. 13) Gný. 15) Bik. 16) Sóa. 18)
Vaskra.
Lóörétt
1) Æringi. 2) Ull. 3) Ró. 4) Inn. 6) Þrúkka.
8) Lán. 10) Ýki. 14) Ýsa. 15) Bak. 17) Ós.
ótrúlegt sem það er, höfðu starfsmenn
FBI ruglað Johnson saman við nafna
hans, sem hafði verið forgöngumaður
um verkfall i bilaverksmiöju i hverf-
inu, þar sem hinn óheppni Johnson bjó.
Þessum óhróöri var laumaö að yfir-
mönnum kvikmyndaiönaðarins i
Hollywood, sem voru alræmdir Ihalds-
seggir. Skýrslan um „rauða áróðurs-
manninn” hefur siöan veriö I skjala-
safni kvikmyndaforstjóranna. En svo
var þaö nýlega, að Johnson, sem nú er
kominn á eftirlaun, ákvaö að reyna að
komast að þvi, hvaö hefði valdiö þvi að
honum var alltaf neitað um vinnu á
kjörsviði sinu. Studdist hann þar við
ný bandarisk lög, sem gera ýmis skjöl,
sem til þess hafa veriö leyniskjöl, að-
gengileg almenningi. Má nærri geta,
hvernig honum varð viö, þegar hann
komst að hinu sanna. Hann ákvað að
láta ekki kyrrt liggja.
Þegar núverandi yfirmenn alrikis-
lögreglunnar komust að raun um,
hvernig I pottinn var búið, buöust þeir
til aö eyöileggja gögn I sinni vörslu um
James Calvin Johnson um leið og þeir
báðust opinberlega afsökunar á mis-
tökunum. Johnson afþakkaði gott boð.
Hann segir: — Ég vil að skýrslurnar
geymist til að minna á þau mistök,
sem hafa verið gerð og geta aftur verið
gerð. Mér finnst ekki eins hörmulegt
aö vita til þess, hvernig mitt llf hefur
verið eyðilagt, ef þær gætu komiö i veg
fyrir, að einhver annar hljóti þessi
sömu örlög.
— Tarkmark mitt er
að vinna mér inn eins
mikla peninga og kon-
an mln heldur að ég
vinni mér inn.
— Hefur þú tekið eftir
þvi, að foreldrar þinir
skilja okkur aðeins ein
eftir heima þegar eitt-
hvað svakaspennandi
er i sjónvarpinu?
— Hvað á ég að þurfa
að segja þér það oft,
kona... skólpiö á að
fara útbyrðis á skjói-
borða en ekki á kul-
borða.
bridge
Nr. 128.
Þegar spiluð er vörn er æðsta boðorðið
að halda uppi góðri samvinnu við félaga.
Vestur.
S. 5
H.G8732
T. D104
L. A754
Noröur.
S. KG72
H. 6
T. AK98
L. KD83
Austur.
S A4
H. AD1095
T.G6532
L. 9
Suöur.
S. D 1098632
H.K4
T. 7
L. G1062
Vestur Norður Austur Suöur
1lauf 1 hjarta 1 spaði
3hjörtu 4spaðar allir
pass.
Vestur spilaöi út litlu hjarta gegn 4
spöðum suðurs og austur tók á ásinn. Eina
vonin fyrir vörnina virtist sú að vestur
ætti laufásinn og austur spilaöi þvl laufnl-
unni til baka, eftir að hafa komist að
þeirri niðurstöðu. En aumingja vestur sá
ekki öll spilin og þar sem AV notuöu
venjulegar lengdarmerkingar, reiknaði
hann með þvi að austur ætti tvispil I laufi.
Hann gaf þvi laufið og vonaðist eftir að
austur ætti spaöaásinn og gæti spilaö
seinna laufinu þegar hann kæmist inn á
hann.
Þetta virðist kannski vera fiftí fifti
sjens hvort vestur eigi að stinga strax upp
laufásnum eöa ekki. Og þaö er i raun rétt
meðan austur gerirekkert til að hjálpa fé-
laga. En ef austur hefði séö þessi vand-
ræði vesturs fyrir, sem eru ekkert svo
fjarlæg frá honum séð, hefði honum
kannski dottið I hug að taka á spaðaásinn
áöur en hann spilaöi laufinu. Þá hefði
vestur ekki veriö i vafa um hvað hann ætti
aö gera.
með morgunkaffinu
— Trúir þú mér núna,
þegar ég segi, að hún sé I
baði?
— Sendið sjúkrabil
fljótt!