Tíminn - 02.08.1980, Blaðsíða 6
6
laiiíiiií
Laugardagur 2. ágúst 1980.
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Heigason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason.
Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sföu-
múla 15. Slmi 86300. — Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495.
Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 250. Askriftargjald kr.
5000ámánuöi. Blaöaprent.
Mesta hagsmunamál
launastéttanna
Það er ekki úr vegi á þeim tima, þegar unnið er
að nýjum kjarasamningum, að rifja upp hver séu
helztu kjaramál launamanna um þessar mundir.
Afstaða launþegasamtakanna og stefna stjórnar-
valda hljóta framar öðru að mótast af þvi.
Mikilvægasta hagsmunamál launástéttanna er
tvimælalaust atvinnuöryggið. öryggisleysi i þeim
efnum brýtur menn niður andlega og likamlega,
jafnvel þótt einhverjar atvinnuleysisbætur séu i
boði. Þetta er viðurkennd staðreynd i öllum þeim
löndum, þar sem atvinnuleysi hefur rikt á siðastl.
árum.
ísland er i hópi örfárra landa, þar sem atvinnu-
öryggi hefur verið traust á þessum tima. Þegar
menn gagnrýna islenzkt stjórnarfar, mega þeir
ekki láta sér gleymast, að tekizt hefur að ná þvi
mikilvæga takmarki að gera atvinnuleysið útlægt.
Það markmið þarf að vera áfram leiðarljós stjórn-
arvalda og stéttasamtaka.
Annað mikilvægasta hagsmunamál launastétt-
anna er að halda verðbólgunni i skefjum. Engar
stéttir tapa meiru á óðaverðbólgu en launastéttirn-
ar. Þeim tekst verst að halda hlut sinum, þegar
óðaverðbólga ræður rikjum. Einkum gildir þetta þó
um iáglaunafólk. Það á þvi að vera sameiginlegt
baráttumál launþegasamtaka og stjórnarvalda að
leitast við eftir megni að ráða niðurlögum óðaverð-
bólgu.
Þótt baráttan fyrir hækkuðum launum sé mikil-
væg, er hún gagnslitil eða gagnslaus, ef verðbólgan
eyðir stöðugt launahækkunum og jafnvel meiru til.
Kauphækkanir koma þvi aðeins að gagni, að það
takist að halda verðbólgunni hæfilega i skefjum.
Þau tvö mál, sem nú hafa verið nefnd, atvinnu-
öryggið og hjöðnun verðbólgunnar, eru tvimæla-
laust mestu hagsmunamál launafólks um þessar
mundir. Afkoma þess á næstu misserum og árum
mun mjög ráðast af þvi, að vei takist til i þessum
efnum.
Til viðbótar þessu er það að sjálfsögðu hags-
munamál launafólks að fá kjör sin bætt eftir þvi
sem aðstæður leyfa. í kjarabaráttunni má ekki ein-
blina um of á kaupgjaldið eitt. Kjarabótum er hægt
að koma fram með öðrum hætti og stuðla jafnframt
að meiri jöfnuði og réttlæti.
Hér er átt við svokallaðar félagslegar umbætur,
þ.e. ráðstafanir i húsnæðismálum, heilbrigðismál-
um, tryggingamálum o.s.frv. Það hefur verið van-
rækt i kjarabaráttu launastéttanna að gefa þessum
málum nægan gaum, en þeim mun meiri áherzla
lögð á kaupgjaldsbaráttuna.
Sú leið hefur einnig verið nefnd að nota skatta-
lækkun sem kjarabót. Sé sú leið valin, verður i stað-
inn að fórna félagslegum umbótum. Það er þetta,
sem Margaret Thatcher er nú að framkvæma. Bar-
átta Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins að
undanförnu bendir til þess, að þeir séu sammála
Margaret Thatcher. Það getur þvi orðið fróðlegt
fyrir íslendinga að fylgjast með þvi, hver reynslan
verður hjá Bretum að þessu leyti.
Á siðasta aðalfundi miðstjórnar Framsóknar-
flokksins var samþykkt ályktun, þar sem lögð er
áherzla á, að vinnutilhögun verði breytt þannig, að
foreldrar eigi þess kost að vera sem mest með
börnum sinum. Undir þetta myndi m.a. heyra leng-
ing á fæðingarorlofi, sem eins vel mætti kalla for-
eldraorlof.
Hér er um mjög mikilvægt félagslegt málefni að
ræða, ef til vill eitt hið þýðingarmesta i nútimaþjóð-
félagi. Samtök launafólks þurfa að sinna þessu máli
miklu meira en hingað til. Þ.Þ.
Kjartan Jónasson:
Erlent yfirlit
ísland í hita
vígbúnaðarins
Fljúgandi radarstöö varnarliösins finnur og gerir sovéska kaf-
báta aö auöveldum skotmörkum meö hjálp njdsnadufla og
fullkomins tölvubúnaöar.
Aö undanförnu hefur vopna-
kapphlaup stórveldanna og
bandamanna þeirra veriö nokk-
uö til umræöu á erlendum sem
innlendum vettvangi og hér inn-
anlands hefur herstööin á Kefla-
vikurflugvelli blandast inn I þá
umræöu svo sem vonlegt er.
Meðal annars hafa fréttamenn
útvarpsins leitað til hernaöar-
sérfræöinga frjálsra og óháöra
upplýsingastofnana eftir upp-
lýsingum er siöur væru litaöar
áróöri viökomandi stjórnvalda,
hvort heldur þáu eru fyrir aust-
an eöa vestan járntjald. Ekki
alls fyrir löngu geröist það aö
dómsmálaráðuneytiö banda-
riska neyddist til aö staöfesta
upplýsingar einnar slikrar
stofnunar, enda þótt þær gengju
mjög á sniö viö þann áróöur
vestrænu hernaöarmaskinunn-
ar aö hún væri aö verða undir i
kapphlaupinu viö Sovétmenn.
Upplýsingarnar sem dóms-
málaráöuneytiö bandariska
staðfesti voru á þá lund aö
Bandarikin heföu siöustu árin
variö meira fjármagni til
hernaöaruppbyggingar en
Sovétmenn — og hver heföi
ætlaö þaö miöaö viö áróöurinn
siöastliöin tvö til þrjú ár.
Aö tslandi sérstaklega I um-
ræöu þessari hefur þaö snúiö, aö
hérá landi er útvaröstöö banda-
riskra landvarna og Banda-
rikjamenn meöganga aö hlut-
verk stöövarinnar hefur vaxið
fremur en hitt hin slðustu ár.
Hér heima hefur umræöan af
einhverjum orsökum, sem
kenna má vib vanþekkingu,snú-
ist um þann möguleika hvort
hér kunni aö vera kjarnorku-
vopn. I raun er þaö afar óliklegt
þar sem ekkert er meö þau aö
gera og Bandarikjamenn tæp-
lega reiöubúnir aö veröa fyrir
þeim hnekki aö upp um þau
komist. Þó er ekki útilokaö að
Bandarikjamenn hafi hér á aö
skipa einhverjum kjarnorku-
vopnabúnaöi, um þaö veröur
ekkert fullyrt.
Hvert mikilvægi bandarisku
herstöövarinnar hér er sker i
augun þegar þess er gætt, aö hér
er flugvöllur undir flotastjórn.
Þar er hættunnar sem af banda-
risku herstöðinni stafar einnig
aö leita. Samkvæmt ritum al-
þjóölegu sænsku friðarrann-
sóknarstofnunarinnar er Island
oröiö lykilstöð bandarisku
kjarnorkuvopnaáætlunarinnar,
án þess aö þaðan veröi beitt
kjarnorkuvopnum. Aftur á móti
dreymir Bandarikjamenn ekki
um aö geta notaö flugvöllinn
þegar og ef kjarnorkustyrjöld
skellur á. Um þaö tala neðan-
sjávareldsneytisbirgöastöövar
þieirra viö landið skýru máli.
Þegar flugvélar þeirra, einkum
radarflugvélarnar hafa komist
á loft er tilgangi Keflavikurflug-
vallar lokið og Islenskt þéttbýli
hjúpaö dauöageislum
kjarnorkusprengju austanjárn-
tjaldsmanna.
En hver er þá tilgangur þess-
arar stöövar og hvers vegna er
hún svona mikilvæg? Svariö er
aöfinna á landgrunninu i kring-
um landið og þvi hlutverki eftir-
iits og njósna sem hún gegnir
fram aö þvi aö ósköpin dynja
yfir. Milli Islands og Skotlands
annars vegar og Grænlands hins
vegar hafa Bandarikjamenn
komið fyrir á hafsbotni kerfi
njósnadufla sem i tengslum viö
radarogtölvumiöstöðvar i landi
og um borð i hinum nýju og full-
komnu radarflugvélum þeirra,
stjórnstöövum gereyðingar-
síriðsins, finna og greina og
stilla sovéskum kafbátum upp
sem auðveldum skotmörkum.
Þeim má auöveldlega eyöa meö
venjulegum djúpsprengjum enn
sem komið er og eftir fram-
tiöaráætlunum Bandarikja-
manna utan úr geimnum, meö
laservopnum. Aö þessum mögu-
leika sitja Bandarikjamenn ein-
ir, og er aðeins um timaspurs-
mál aö ræöa, samkvæmt upp-
lýsingum friðarrannsóknar-
stöövarinnar sænsku, hvenær
þeir veröi,ólikt Sovétmönnum, I
stakk búnir til að vinna kjam-
orkustriö aö þvi tilskildu aö þeir
hefji þaö. Þar meö yröi úr sög-
unni ,,ógn friöarins”, sú er felst
i þeirri fullvissu aö kjarnorku-
striö veröur ekki unniö.
Eina svariö sem Sovétmenn
hafa haft var þegar þeir ekki
alls fyrir löngu juku langdrægni
kafbátaeldflauga sinna svo þeir
þyrftu ekki nauösynlega aö fara
fram hjá Islandi. A Vesturlönd-
um var þaö túlkaö sem enn eitt
skref Rússanna framúr I kjarn-
orkukapphlaupinu. Þaö getur
veriö gott aö hafa frjálsa fjöl-
miöla. Staðreyndin er sú aö
Rússar eru langt á eftir I þessu
eilifa kapphlaupi, yfirburöir
þeirra eru einungis á þvi sviði
aö renna skriðdrekum inn i
landamærariki.
En þaö er ekki aðeins viö ís-
land sem þessi njósnadufl
standa I vegi Rússanna. Þau eru
einnig viö Afriku, I Miöjaröar-
hafi, viö Japan og nú mega
Bandarikjamenn væntanlega
vænta náinnar samvinnu Kin-
verja. Og þaö er einmitt Kina,
sem allir þeir er fylgjast grannt
með hernaöarbrölti, renna nú
sjónum til. Kinverjar eru um
þessar mundir aö búa sig undir
stórfellda hernaöaruppbygg-
ingu og er hætt viö aö þaö rugli
enn samanburð i vopnakapp-
hlaupinu. Ein vitleysan er aö
bera saman Sovétrikin og
Bandarikin en gleyma Evrópu i
þeim samanburði. Vopna-
búnaöur Sovétmanna skiptist ef
svo má segja, milli Evrópu,
Bandarikjanna og Kina á sama
tima og Evrópa og Bandarikin
geta, aö minnsta kosti um þess-
ar mundir, stefnt vopnabúnaöi
sinum næsta eingöngu gegn
Sovétrikjunum og bandamönn-
um þeirra i Evrópu. Og þó tala
kort sem bandarisk vikufrétta-
rit birta raunar skýru máli um
ástandið þegar yfirburöastaöa
Bandarikjanna gagnvart vöm-
um er höfö I huga. A meðfylgj-
andi korti koma fram yfirburöir
Sovétmanna i skriödrekakosti
og langdrægum eldflaugum.
Þær eru hins vegar aðeins hluti
þess kjamorkuvopnabúnaöar
sem kemur undir „kjarnorku-
hausa” (Nuclear warheads) og
þar eru yfirburöir Bandarlkj-
anna heima fyrir augljósir og
veröa enn meiri þegar Evrópa
ogherstöövar þeirra koma inn I
dæmiö. Sovétmenn hafa eftir
ófarirnar i Kúbudeilunni aukiö
mjög flotastyrk sinn en eru þó i
vonlausri aöstöðu aö þvi leyti aö
Bandarfkin sitja alls staöar fyr-
irhafnakjöftum þeirra meðher-
stöövar og fullt upp af flugvél-
um til aö eyöa þessum flota.
Auk þess eiga Sovétmenn aöeins
tvöflugmóöurskip en Bandarik-
in 13, en flugmóöurskip eru ein-
mitt talin helsta árásar og
ihlutunarvopn af þeim sem
fljóta á sjónum. Þó fer ekki hjá
þvi aö sú fullyrðing vestrænna
hemaöarsérfræöinga aö Sovét-
menn séu að si'ga fram úr á
þessu sviöi er rétt i meginat-
riöum, aöeins veröur aö hafa i
huga hafnleysi þeirra.
BALANCING ACT
^Lpr-1 Armed forces on active duty U.S. 2 million U.S.S.R. 3.7 million CHINA 3.6 mitlion
i Nuclear warheads 9,200 5,000 350
.A. Long-range MmL. missiles 1,710 2,426 2
Warpianes 6,015 5,879 5,500
— Tanks 12,675 50,000 11,000
Aircraft carriers 13 2 0
•xA.lt-- 167 273 25
Other major surface warships
Submmdne^^^^ 73 nuclear 87 nuclear 1 nuclear
Source Intemjhonal inslitule lo» Stralegic Siudies and Gewgeiown Ceniei tor Slrategic and Intemational SÍudæs 7 diesel 162 diesel 91 diesel