Tíminn - 05.09.1980, Qupperneq 6

Tíminn - 05.09.1980, Qupperneq 6
6 Föstudagur 5. september 1980 Ctgefandi Framsóknarfiokkurinn. Framkvœmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurftsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiriksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvsmdastjórn og . auglýsingar Siftumúla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaftamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð f lausasölu kr. 250 Áskriftargjald kr. 5000 á mánufti.. Blaftaprent. v--------------------------------------------' ______J Lýðræði Lýðræðisleg stjórnskipan og frelsi fólksins er ekki aðeins fögur orð i stjórnarskrá og lögum. Lýð- ræði og frelsi fylgir ábyrgð, og hún er m.a. i þvi fólgin að fólkið notfæri sér réttindi sin. Það lýðræði og það frelsi sem fólkið nýtur sér ekki er öfugmæli, og reynsla sýnir að öll forráð og stjórn lenda innan tiðar i fárra höndum ef fólkið hirðir ekki um að taka þátt i lýðræðislegum ákvörðunum. Flestir þeir sem vinna að félagsmálum hér á landi eru þeirrar skoðunar að fálæti og áhugaleysi almennings sé eitthvert mesta vandamál i störfum samtaka og félaga. Þeir halda þvi fram að æ ofan i æ séu forystumenn félaga og samtaka i vafa um raunverulegan vilja félagsmanna vegna þess að þeir fáist ekki til að láta til sin heyra, sæki fundi og virði atkvæðagreiðslur að vettugi. Nú má að visu segja að fálætið beri þvi vitni að fólki þyki ástand mála nokkuð gott, — eða að minnsta kosti nógu gott til þess að ekki þurfi að leggja á sig þá litlu fyrirhöfn sem þátttöku i ákvörð- unum fylgir. En þarna er sá hængur á að fjölmarg- ar og mikilvægar ákvarðanir velta gersamlega á þvi hverjir og hve margir sýna þeim áhuga og láta til sin taka. Þegar slikar ákvarðanir eru teknar hefur það komið fyrir, að fámennur minnihluti, jafnvel brot félagsmanna, hefur knúið fram vilja sinn eða sér- skoðanir sinar, jafnvel þótt fyrir hafi legið sjónar- mið alls þorrans. Með fálæti og áhugaleysi afsalar meirihlutinn sér þannig lýðræðislegum rétti sinum i hendur fámennis, — stundum i hendur öfgahópa eða forréttindamanna. Og fálætið verður að vana. Með áhugaleysi slitna menn úr tengslum við félag sitt og eiga siðan i erfið- leikum með að tengjast þvi aftur þegar þeim þykir henta að gripa i taumana. Á sama hátt venjast hinir á að ráða og beita valdi sinu að geðþótta. Frjálst þjóðfélag einkennist ekki aðeins af þvi að þar fara fram frjálsar og leynilegar almennar kosningar til þings eða sveitarstjórna. Það ein- kennist alls ekki siður af lifandi lýðræði i hvers kyns samtökum. Af þessu leiðir að lýðræði getur verið ábótavant vegna doða i félögum og samtökum, enda þótt ekki skorti á þátttöku i þingkosningum. Þetta á reyndar við hér á landi. Hér er jafnan mikil og góð þátttaka i almennum kosningum til þings og sveitarstjórna, en félög og samtök starfa við fálæti alls þorrans. Verst er þetta varðandi hagsmunasamtökin. Það er verst þau varðandi vegna þess að þeim er falið mikið vald i þjóðfélag- inu og þau hafa tekið á sig mikla ábyrgð á velferð þjóðarinnar. Þessi félagslegu vandamál lýðræðisins komast i brennidepil þegar ákvarðanir stéttasamtaka um kjaramál og vinnufrið eru teknar. Þessa dagana ganga starfsmenn hins opinbera til atkvæða um kjaramál sin, og skal þess óskað samtökum þeirra til handa og íelagsmönnum sjálfum að niðurstaðan verði by ggð á vil ja raun verulegs meirihluta. J S Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Verkföll gætu orðið Ceausescu hættuleg Hann styrkir nú tengslin við Brésnjef ALLMIKIÐ er nú rætt um þau áhrif, sem sigur verkfalls- manna I Póllandi kunni aft hafa I öörum kommúnistaríkjum austantjalds. Þaft er spurt um, hvort sigur póisku verkíallsmannanna.. muni ýta undir hliöstæðar hreyfingar verkamanna í hinum ausjantjaldslöndunum eða’ hvort rlkisstjórnir þeirra muni heröa tökin til þess aö koma i veg fyrir, aö sllkar hreyfingar rlsi á legg. Vitanlega eru allir spádómar um þessi efni mest byggðir á likum og framvindan tekur oft aðra stefnu en þá, sem liklegust kann aö viröast I svipinn. Þess vegna verður að hafa fyrirvara I sambandi við spádóma varö- andi þessi efni. Af blaðaskrifum I þessum löndum síöustu dagana verður það ótvlrætt ráðið, að forustu- menn kommúnistaflokkanna hafa fyllzt nokkrum ugg og munuþvlreyna aðgera ráðstaf- anir til þess, að svipaðir atburð- ir og gerzt hafa I Póllandi endurtaki sig ekki hjá þeim. Sennilega verða þessar gagn- ráðstafanir einkum fólgnar I ýmsum lagfæringum til að draga úr óánægju og reyna að koma I veg fyrir verkfallshreyf- ingar á þann hátt. Hitt myndi mælast verr fyrir, ef gripið yrði til harkalegra varúðarráðstaf- ana, a.m.k. að sinni. Áþennan hátt getur sigur pólsku verk- fallsmannanna haft óbeint veruleg áhrif I þessum löndum. Þá mun áróður vera hertur gegn verkföllum og þau talin rekja rætur til annarlega fram- andi áhrifa. Þannig verður reynt að veita verkamönnum viðvörun. MARGT þykir benda til, að for- dæmi pólskra verkfallsmanna verði slzt fylgt I Austur-Þýzka- landi. Þar eru lifskjörin lika bezt austantjalds. Hin opinberu verkalýðssamtök fylgjast einn- ig allvel með ástandi og hugar- fari á vinnustöðum og reyna að sýna I verki að þau hafi áhrif til ýmissa úrbóta. Ég minnist þess, að fyrir nokkrum árum átti ég tal við einn erindreka austur-þýzku verkalýðssamtakanna, sem hafði þaö verkefni að mæta á vinnustaðafundum. Hann kvaðst gera sér ljóst, að ef fund- armenn væru áberandi kvefaðir Nicolae og hefðu mikinn hósta, væri eitt- hvað að á vinnustaðnum, sem þeir væru ekki ánægðir með. Þá væri reynt að komast að þvi, hvað það væri, og reynt að bæta úr þvi. I Ungverjalandi er einnig tal- inn minni jarðvegur fyrir verk- föll en iPóllandi. Þar eru verka- menn meira hafðir I ráðum á vinnustöðum. Sama gildir um Tékkó- slóvakiu, þótt af öðrum ástæð- um sé. Þar hefur enn ekki myndzt teljandi mótspyrna hjá verkamönnum. Hennar hefur fyrst og fremst gætt hjá menntamönnum. Búlgaria er það fylgiriki Sovétrikjanna, þar sem minnstrar óánægju hefur gætt með stjórnarfarið. Það er m.a. talið stafa af langri vináttu Búlgara og Rússa, en Búlgarar telja Rússa hafa hjálpað þeim til að komast undan oki Tyrkja. ÞÁ er komið að þvi austan- tjaldsriki, þar sem sennilega er mestur jarðvegur fyrir verkföll I líkingu við það, sem gerzt hefur I Póllandi. Það er Rúmenía. Astæðan er I fyrsta lagi sú, að þar eru langverst lifskjör aust- antjalds. Ceausescu, sem verið hefur einræðisherra þar siöustu 15 árin, hefur lagt mikla áherzlu á iðnvæðingu, en hún hefur á ýmsan hátt mistekizt, likt og I Póllandi. Þetta hefur bitnað á Ceausescu. llfskjörum almennings. Fyrir þremur árum var all- langt verkfall námumanna I Rúmenlu, sem um 30 þús. námumenn tóku þátt i. Þeim tókst að fá fram nokkrar bætur. í seinni tið hafa verið háð smærri skæruverkföll vlða um landið. Þetta hefur gerzt, þótt beitt sé meiri harðstjórn i Rúmeniu en I nokkru öðru austantjaldsriki. Til að draga úr óánægju al- mennings hefur Ceausescu gripið til þess ráðs að látast ó- háðari Rússum I utanrikismál- um en aðrir leiðtogar austan- tjalds. Þetta hefur óneitanlega styrkt hann nokkuð i sessi. Að undanförnu hefur sambúð hans við Rússa þó batnað. Ástæðan er m.a. sú, að dregið hefur úr oliuframleiðslu i Rúmeniu. Rúmenar eru þvi i vaxandi mæli háðir oliuvið- skiptum við Rússa. Eftir að verkföllin hófust i Póllandi i sumar, hittust þeir Ceausescu og Brésnjef á Krim- skaga og er talið, að þetta hafi verið vinsamlegasti fundur þeirra um langt skeið. Báðir hafa haft áhyggjur af ástandinu i Póllandi. Það vakti svo athygli, að stjórnarmálgagnið i Rúmeniu, Scinteia, varð fyrst blaða aust- antjalds til að gagnrýna pólska verkfallsmenn og vara við þvi, að ekkert gæti áunnizt með verkföllum. Brésnjef og Ceausescu hittust nýlega.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.