Tíminn - 09.09.1980, Qupperneq 2
2
Þriöjudagur 9. september 1980
Samtök Herstöðvaandstæöinga
munu gangast fyrir hljómleikum
i Laugardalshöllinni, laugardag-
inn 13 sept. 1980, kl. 21.
Yfirskrift hljómleikanna verð-
ur ,,ROKK GEGN HER”.
Er þar ekki aðeins visaö til
ameriska hersins á Miðnesheiði,
'heldur hvers kyns vígamennsku
og hernaðarbrölti.
A tónleikunum koma fram
hljómsveitirnar Mezzoforte,
Þursaflokkurinn, Utangarðs-
menn og rokleikhúsið Túragas.
Allar þessar hljómsveitir standa
á tímamótum.
Mezzoforte, sem gefur út plötu
um næstu mánaðamót, mun
meöal annars frumflytja efni af
henni á þessum hliómleikum.
Þursaflokkurinn hefur nýlega
sent frá sér breiðskifu og vinnur
nú af fullum krafti að söngleikn-
um Gretti. Þeir munu nú m.a.
verða með splunkunýtt og hressi-
legt rokkprógram i anda kvölds-
ins.
Þetta verða siðustu hljómleikar
Utangarðsmanna á þessu hausti.
Þeir verða m .a. með efni af vænt-
anlegri breiðskifu sem koma á út
i haust. Táragas, sem er rokk-
leikhús, flytur dagskrá, unna upp
úr „gasbardaganum” 1949 á
Austurvelli.
Inn i alla þessa dagskrá fléttast
siðan óvænt leikatriði er undir-
strika andstöðuna gegn hernaði.
Þorlákur Kristinsson, Guðjón Petersen, og Karl Ingvarsson eru i forsvari fyrir rokktónieikunum um
næstu helgi.
Flytjendur þeirrar dagskrár
eru hópur leikara og fjöldi áhuga-
fólks. Fyrir þessa hljómleika hef-
ur myndlistafólk og annað hag-
leikslið unnið að gerð sviösmynd-
ar og veggskreytinga, og verða
meðal annars tvær veggmyndir
upp á 100 fermetra hvor.
Hljómleikar þessir veröa tvl-
mælalaust að teljast stórviðburð-
ur I sögu islenskrar alþýðumenn
ingar þar sem „Rokkmúsik”,
leiklist og myndlist, sameinast i
einum brennipunkti „andstöðunni
gegn hernaði”.
Orkusparandi
frystikista
Bræöurnir Ormson sýna
splunkunýja tegund af
AEG frystikistum á sýn-
ingunni Heimiliö80. ,,Þetta
er orkusparnaðarkista og
eyðir aðeins helmingi af
því rafmagni sem sam-
bærilegar kistur eyða,"
sagði Erla sölustjóri hjá
Ormson okkur um nýju
kistuna.
„Þessi frystikista er ríf-
lega hundrað þúsund krón
um dýrari en sambærileg-
ar kistur, og náttúrlega
sparast rafmagnið á löng-
um tíma, en hún hefur
annan mikilvægan kost
sem vegur þarna á móti. I
kistunni helst frost í 54
klukkustundir eftir að
rafmagn fer af henni en
það mun vera 80% lengri
timi en í öðrum kistum.
Fólk verður einmitt oft
fyrir áföllum með matvæl-
in þegar rafmagn fer af í
stuttan tíma," bætti Erla
við.
• Nýja AEG kistan.
Stjóm Blaðamannafélagsins:
„Mótmælir
harðlega
handtöku
Guðlaugs”
A fundi stjórnar Blaða-
mannafélags tslands i gær var
fjallaöum handtöku Guölaugs
Bergmundssonar blaöamanns.
á Helgarpóstinum, er hann
var aö störfum f miöbæ
Reykjavlkur aöfaranótt
laugardagsins 6. september,
vegna mikils mannfjölda, sem
þar haföi safnast saman. t
áiyktun stjórnarinnar segir:
„Stjórn Blaöamannafélags
tsiands mótmælir harölega
ástæöuiausri handtöku Guö-
laugs Bergmundssonar blaöa-
manns.
Eftir aö hafa kynnt sér
málavöxtu telur stjórnin ljóst,
aö lögregluþjónar hafi vitaö,
aö Guölaugur Bergmundsson
var þarna aö störfum fyrir
blaö sitt.
Stjórn Bt lltur þaö mjög
alvarlegum augum, aö blaöa-
maöur skuli hafa veriö hand-
tekinn og hindraöur I starfi.”
V
Blaðamannafélagið furðar sig
á framkomu KSÍ:
„Gróft brot á
viðteknum
venjum”
„Stjórn Blaða-
I; mannafélags tslands
I; lýsir furðu sinni á
■; framkomu forráða-
;l manna Knattspyrnu-
í sambands Islands
í miðvikudaginn 3.
I; september, er þeir
!!; reyndu að hindra eðli-
■; lega fréttaöflun Sjón-
■: varps á landsleik
tslands og Sovétrikj-
anna. Er þetta gróft
brot á viðteknum
venjum, innanlands
og utan, varðandi
fréttaöflun á iþrótta-
mótum.
Stjórn BI treystir
þvi, að slikir atburðir
endurtaki sig ekki,”
segir i ályktun
stjórnarinnar sem
gerð var i gær.