Tíminn - 09.09.1980, Síða 7

Tíminn - 09.09.1980, Síða 7
Þriðjudagur 9. september 1980 7 Gunnlaugur Pétursson: Fjórða bréf tíl formanns Landssambands veiðifélaga Heill og sæll, Þorsteinn minn. Ég þakka þér bréfin þrjú um veiBimálin og vona að þú mis- virðir ekki þó að ég þykist þurfa aö svara þeim nokkru. Þessi skrif okkar fara efalaust fyrir ofan garð og neðan hjá fjöl- mörgum, en vonandi tekst okk- ur að hafa þar eitthvaö bitastætt fyrir þá, sem áhuga hafa á veiðimálunum og þeim þjóðlifs- þáttum, sem þau snerta. Ætli ég feti ekki þina slóð i þvi, að byrja á „sögulegri” upp- rifjun, enda náum við þar sam- an i timanum að minnsta kosti, hvað sem málefnalegum á- greiningi liður. Sem sonur leiguliða á koti þarna I Borgarfirðinum á árun- um fyrirog um ferminguna sótti ég kýr og hesta að sumrinu eins og vera ber. Leið mín lá oft meðfram ánni og stundum sá ég laxinn stökkva. Mér var veiði- náttúran I blöð borin og mig langaði að sjálfsögðu til að renna, en þaö mátti ég ekki. Englendingar höfðu veiðina á leigu. Ég sá þá stundum koma riðandi að hyljunum ásamt fylgdarsveini, sem reiddi stöng- ina og gætti hestanna. Veiði- maðurinn fór af baki, tók stöng- ina,gekkniðuraðhylnum og fór að kasta. Mér hafði verið sagt, að ég mætti ekki trufla laxveiði- mennina, og gat þvi ekki fvlgst með nema úr fjarlægð aðeins skamma stund hverju sinni, þar sem ég átti störfum ab gegna. Aðstæður og umhverfi ollu þvi, að ég drakk i mig hlýhug til bænda með móðurmjólkinni ef svo mætti segja. En siðan á þessum áminnstu árum hefi ég haft samúð meö innlendum veiðimönnum, sem ekki fá löng- un sinni fullnægt, og raunar öll- um þeim, sem hafa það eitt af bestu gæöum þessa heims að segja aö sjá aðra njóta þeirra. Ég get því ekki að þvi gert að mér þykir mjög miður að venju- legur Islenskur veiðimaður skuli þurfa að sæta þvi að vera dreginn I eins konar úrkastsdilk þegar veiði á eftirsóknarverð- um tlma i góðri á er annars veg- ar. Þannig sýnist mér farið að þegar veiðiréttareigendur aug- lýsa besta timann I ánum erlendis áður en innlendir menn koma til álita. Þeim er að visu gefinn kostur á að kaupa þann veiðitima, sem útlendingar vilja ekki nýta. Þú getur auðvitað visaö þessu frá og kallað þaö rangsnúnar kröfur um „arfbor- inn” rétt, en það breytir engu um tilfinningar minar. En látum staðar numið I þess- um hugleiöingum: bréfin þin biða svars. Veiðiskirteinin Ég sé ekki ástæðu til aö byrja á fyrsta bréfinu og enda á þvi siðasta, en tek efnisatriðin i þeirri röö.sem „andinn inngef- ur”. Veiöiskirteinin verða þá fyrst fyrir valinu. Þú ert and- vigur þeim meöal annars vegna slæmrar reynslu af þeim I Noregi. Hún skiptir okkur ekki mikluaðminu viti. Laxveiðimál þar i landi eru ekki i góðu horfi, sem varla er von, þar sem meginveiðin fer fram i sjó. Veiðilöggjöf og öll stjórn veiði- mála er miklu betri á Islandi en i Noregi, þó að fjarri fari að við séum allir ánægðir og sumum okkar þyki sem margt mætti betur fara hér I þeim efnum. Vitanlega veröur að fara með gát þegar verið er að koma skir- teinaskyldunni á. Veiðibækur eru yfirleitt ekki færðar á silungsveiðisvæðum og þvi virð- ist einsýnt að sleppa silungs- veiðinni við skirteinaskylduna i bráð. Meginhluta nauðsynlegra upplýsinga verður auðvitað að vinna upp úr veiðbókunum en ekki skrám um sölu skirteina. Silungsveiðin getur svo komiö til álita siðar, þegar stjórn þeirra mála hefir náð meiri festu en orðið er. Eins mætti undanþiggja laxár i frumrækt- un og veiðimenn á ýmsum öðr- um ámóta tilraunasvæöum. Ég er sannfærður um, að veiðiskirteinin koma fyrr eða siðar og tel nauösynlega þá skráningu nýtingar, sem þau gera mögulega. Hittermér orð- ið ljóst fyrir langa-löngu, að heimurinn verðurekki frelsaður á einni nóttu og þess vegna er ég ásáttur með aö fara hægt af stað. Ég gæti jafnvel sætt mig við að skirteinaskyldan gilti til að byrja með aðeins um þá, sem veiða I tilteknum ám, þ.e. án- um, sem útlendingar veiða I. En væri byjaö svo smátt yrðu skir- teinin að vera vel dýr. Hugsanleg fram- kvæmd Fyrirkomulag skirteinanna oggerð getur efalaust verið með ýmsum hætti. Ég minnist ekki Laxveiðar i Eliiðaánum. aö hafa séð neinar tillögur um það efni og ef til vill er þvi rétt að ég reyni að draga hér upp þá mynd af þessu, sem ég sé fyrir minum hugarsjónum á þessari stundu. Ég hugsa mér til dæmis, að hvert skírteini beri sitt númer og skírteini hvers fslendings fylgi ókeypis kort með þremur dagreitum. Það kort sé með tvöföldum haus og verðiannar eftir þegar kortið er rifið úr blokkinni til af- hendingar. Númer veiðiskir- teinis ber auðvitað að færa á báða hausa. Seljendur veiðileyfa kaupi birgðiraf slikum kortum við til- teknu verði og selji kaupanda veiðileyfis ef hann getur ekki sýnt kort með nægilega mörg- um dagreitum. Að loknum veiöitima fái hver veiðileyfa- seljandi endurgreidd þau kort, sem hann þá á óseld.Að sjálf- sögöu ber aö færa númer veiði- sklrteinis hvers manns á veiöi- leyfi hans. Eftirlitsmaöur við veiöiá veit- ir dagreitum af kortum veiöi- manna viðtöku .Hann færir dag' lega skrá yfir veiðiskirteina- númer þeirra veiðimanna, sem i ánni eru. I veiðibók skráist nafn veiðimanns og skirteinisnúmer. Ef til vill þarf að breyta veiði- bókunum vegna þessa, en það má heita aukaatriði. Sjálfsagt sýnist að heimila veiöimönnum að leyfa eiginkon- um sinum að renna og eins börnum undir ákveðnum aldri. Við megum ekki gleyma eöli- legum umgengnisháttum. Sómasamlegar reglur um þetta ætti að vera auðvelt að setja. Eðlilegt sýnist, aö skirteini útlendinga séu I öðrum lit en skirteini innlendra manna og eins aö þeim fylgi kort með 7 dagreitum, einnig i öðrum lit en kort innlendra manna. Þetta eru af minni hálfu afar lauslegar hugmyndir um væntanleg veiðiskirteini og meðferö þeirra. Ég hefi ekki hugsaö þetta gaumgæfilega og áskil mér þvi allan rétt til aö að- hyllast siðar eitthvað annað ef mér sýnist svo. Hvorugur okkar getur séð fyrir, hvaða leið hin- um visu landsfeðrum þóknast aöfeta þegar þar að kemur. En við skulum báöir reyna hvað við getum að stuðla að þvi, að fyrir- komulagið verði með þeim hætti, aö framkvæmdin geti oröiö sem léttust án þess að það komi niður á skynsamlegum og uppbyggilegum árangri. Þá má ekki gleyma hinni skráningarskyldunni, sem sjálf- sagt virðist að láta fylgja skir- teinunum, en það er söfnun og skráning allra árleigu- samninga. Þú nefnir þetta að visu ekki I svari þinu og veröur þvi ekki séð, hvort þér likar hugmyndin betur eöa verr. En þetta kemst vonandi i fram- kvæmd og mun þá þykja hand- hægt og nauðsynlegt fyrir alla aðila. Þama á engin launung við og opinber vitneskja er betri en allt annaö til þess að komast hjá getsökum og grunsemdum. Verð á fiskmjöli og inn- lent verðlagskerfi Trúlega er komið nóg i dag, en ef til vill fyrirgefst mér að bæta við fáeinum orðum, þó um annaöefni sé en veiðiskirteinin. Þú getur þess i ööru bréfi þinu, að þú hafir ekki heyrt islenska stangarveiðimenn kalla það ó- réttlæti aö verð á fiskmjöli til bænda hækki þegar heims- markaðsverðið hækkar: „Þeim viröist islenskt markaðssvæði aðeins áhugavert þegar það get- ur lækkaö verð á veiðileyfum til ykkar,” segir þú siöan. Tónninn virðist gefa til ;;ynna, aö þarna hafi þér tekist aö ómerkja þá kröfu stanga- veiðimanna, að veiðileyfin lúti innlendu verölagskerfi. Ég kem satt aö segja ekki auga á að svo sé. Ég hefi fyrir satt, að hækkað verð á fiskimjöli hækki verð á fóðurblöndum, sú hækkun valdi aftur hækkun á búvöruverði til ykkar laxveiðimanna eins og annarra neytenda. Þetta trúi ég að kallist að lúta innlendu verð- lagskerfi. Bændastéttin sem slik lýtur eðlilega þessu kerfi og þegar búvaran er annars vegar nýtur hún þess en við neytendur gjöldum. Ef veiðileyfaverðiö lyti þessu kerfi nytum við stangaveiðimenn þess en eig- endur jaröa aö fáeinum ám gyldu. Ég kann svo að koma aö þvi sföar, hvernig þetta snertir þá bændur, sem ekki hafa að- stöðu til að leigja útlendingum veiðirétt. Mig grunar raunar, aö þú hafir skotið þessarri athuga- semd um fiskmjölið inn i svar þitt til þess að reyna að sýna bændum fram á, að samúöar i þeirra garð sé slst að vænta hjá stangaveiðimönnum. Fóður- bætir er nefnilega eldfimur um þessar mundir. Laus staða Staða deiidarstjóra við freðfiskdeild Framleiðslueftirlits sjávarafurða er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar sjá- varútvegsráðuneytinu fyrir 1. október 1980. Sjávarútvegsráðuneytið, 3. september 1980. Við þökkum þér innilega fyrir hugulsemina að stööva við gang- brautina UMFERÐAR RÁÐ HDapartasalan Höfðatúni 10 simi 11397. Höfum notaða varahluti I flestar geröir blla, t.d. vökvastýri, vatnskassa, fjaðrir, rafgeyma, vélar, felgur ofl. I Volvo ’73 Austin Mini ’75 Morris Marina ’74 Sunbeam ’72 Peugeot 504, 404, 204, ’70-’74 Volvo Amazon ’66 Willys jeppi ’55 Cortina ’68-’74 Toyota Mark II ’72 Toyota Corona ’68 VW 1300 ’71 Fiat 131 '73 Fiat 131 ’73 Fiat 125 ’72 Fiat 128 ’72 Dodge Dart ’72 Austin Gipsy ’66 Opel Record ’71 Skoda 110 L’74 M. Benz 230 ’71 Benz 220 diesel ’71 Citroen Pallaz ’73 Citroen Ami ’72 Hilman Hunter ’71 Trabant ’70 Höfum mikið úrval af kerruefn- um. BÐapartasalan, Höfðatúni 10, simar 11397 og 26763. Opið kl. 9-7, laugardaga kl. 10-3. Höfum opið I hádeginu. Bllapartasalan, Höfðatúni 10. Tilkynning til nemenda í sænsku og norsku til prófs í stað dönsku Nemendur mæti til viðtals i Miðbæjar- skóla sem hér segir: 10 og 11 ára. . miðvikudag 10. sept. kl. 16.00 12 ára.....miðvikudag 10. sept. kl. 17.00 13 ára.....miðvikudag 10. sept. kl. 18.00 I4ára......fimmtudag 11. sept. kl. 17.00 15 ára.....fimmtudag 11. sept. kl. 18.00 Framhaldsdeildir . fimmtudag 11. sept. kl. 19.00 Áríðandi er, að nemendur mæti með stundaskrá sina. Kennara vantar að barnaskóla Ólafsfjarðar. Þarf að geta kennt handavinnu og leikfimi stúlkna. Umsóknarfrestur er til 15. september n.k. Uppl. gefur skólastjórinn i sima 96-62245 og heima i sima 96-62358.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.