Tíminn - 13.09.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.09.1980, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. september 1980 3 AUGLYSINGABRELLUR HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGA „Svona barf að kæia í fæðingunni” — segir Öli H. Þórðarson, framkvstj. Umferðarráðs KL — „Ég hef enga trú á, aö þetta hafi verið gert með vitund lögreglunnar. Þaö hefur mikið veriö hringt hingaö út af þessu i dag, og ég hef svaraö fólkinu, aö ég telji þetta mjög óæskilegt. Svona þarf aö kæfa I fæöing- unni, aö vera meö leik á ak- brautunum”. Þannig fórust Óla H. Þórðar- syni framkvæmdastjóra Um- ferðarráðs orð, er hann var inntur eftir viðbrögðum við að- gerðum þeim, sem fram fóru á horni Miklubrautar og Kringlu- mýrarbrautar að morgni fimmtudags, er herstöðvaand- stæðingar brugðu þar á leik, eins og skýrt var frá i Timanum i gær. — Þetta var gert algerlega án nokkurs samráðs eða vitundar okkar. Ég lit þetta mjög alvar- legum augum og finnst, að svona háttalag eigi engan veg- inn við i umferð. Lögreglustjóri þarf að veita leyfi fyrir hvers konar atburðum, sem snerta umferðina. Hafi herstöðvaand- stæðingar haft leyfi frá lögregl- unni, hefði lögreglan verið með þeim, sagði Óli. — Sambærilegt þessu teljum við þann ósið krakka að selja dagblöðá götuvitum. Þar skjót- ast þeir á milli bila, jafnvel bila á ferð. Það verður slys af þessu, þvi miður. En gamall sannleik- ur segir, að betra sé, að byrgja brunninn áður en barnið er dott- ið ofan i. KL — „Við hvorki leyföum þetta né bönnuöuni.” Þetta er svar Williams T. Möller fulltrúa lög- reglustjóra viö þeirri spurn- ingu, hvort herstöövaandstæö- ingar hafi haft heimild lögregi- unnar fyrir núverandi aögerö- um sinum. —Þeir létu okkur vita af þessu og nefndu þetta útileikhús. Þeir kváðust ætla að aka um borgina á opnum bilum og stansa viða, en mjög stutt á hverjum stað. Okkur var ljóst, aö þeir ætluðu að klæöast einhvers konar her- mannabúningum, en að þeir hygðust bera eitthvaö, sem halda mætti að væri byssa, datt okkur ekki i hug. Við settum þeim 3 skilyröi. I fyrsta lagi, að þeir mættu ekki hegða sér þann- ig, að fólk yrði hrætt. I öðru lagi máttu þeir ekki valda um- feröartöfum, enda tóku þeir skýrt fram, að þeir myndu fylgja öllum reglum, þ.á.m. umferðarreglum. 1 þriðja lagi bentum viö þeim svo á, að ef þeir færu inn á einhverja staði, mættu þeir ekki viðhafa neina þá háttsemi, sem truflaö gæti. í gær var þó nokkuð um, að fólk hringdi til lögreglunnar og spyrði, hvað hér væri á feröinni, en engar lögregluskýrslur höföu verið teknar i sambandi við þessar aðgerðir herstöövaand- stæðinga. „Ulfaldi úr mýflugu,, — segir Jón Ásgeir Sigurösson „Herstöövaandstæöingar hafa ætið tilkvnnt lögreglunni um all- ar aögeröir á þeirra vegum. Lögreglan haföi fulla vitneskju um feröir „herflokks” her- stöövaandstæöinga á Miklu- brautinni á fimmtudag. Þar var i einu og öllu farið aö lögum og reglum. Fullyröingar um annaö eru rangar. Getsakir um „grátt gaman” og „umferðaröngþveiti” eiga sér enga stoö. Langar biðraðir bila mynduðust þarna af full- komlega eðlilegum ástæðum, „herflokkurinn” var á ferli á mesta umferðartimanum að morgni dags. Aðrar sýningar á götum úti hafa ekki hingaö til þótt tiltöku- mál. En þeir sem fylgja NATO og hersetu gera auðvitað úlf- alda úr mýflugu i þessu viðviki. „Herflokkurinn” á að minna á tónleikana i' Laugardalshöll á laugardagskvöld. Fyrir hönd miönefndar Sam- taka herstöðvaandstæðinga, óska ég eftir að þessar leiðrétt- ingar birtist á sama stað og get- gátur á forsiðu Timans á föstu- dag”. Jón Ásgeir Sigurösson. Engu er likara en að Reykvikingar séu farniraö venjast „hernám- inu". Þessir góöu borgarar láta ckki nærvcru einbeitts hermanns meö mundaöa byssu eyöileggja ánægjuna af þvi aö njóta íssins i góöa veörinú i Reykjavik I gær. Kannski lita þeir á hann sem vernd- s.ra sinn? (Timamynd Róbert) „HVORKI LEYFÐUM NÉ BÖNNUÐUM” — segir fulltrúi lögreglustjóra Fyrirhugað að stækka eldhús Flugleiða á Keflavíkurflugvelli: Frihafnarbarinn og kaffiterían sameinuð? Kás— Nú á næstu dögum eða vikum/ má búast við að tekin verði ákvörðun um stækkun eldhúss Flugleiða á Keflavikur- flugvelli og ýmsar aðrar skipulagsbreytingar sem þ'eirri ákvörðun fylgja. M.a. munu uppi hug- myndir um að sameina barinn sem Fríhöfnin rekur á ,/transit"-svæði f lughaf narinnar og kaffitéríuna sem Flug- leiðir reka. Það sem fyrst og fremst vinnst meö þessum tilfærslum er stækkun eldhússins, sem þýð- ir að hægt verður að framleiöa þar mat i allar flugvélar Flug- leiöa, hvort sem þær eru á leiö til eða frá landinu. Þetta þýðir m.ö.o. aö Islenskt hráefni, þ.e. lambakjöt og fiskur, verður á boðstólum I vélum Flugleiða á öllum leiðum þess, sem getur haft verulegan gjaldeyrissparn- að I för með sér, aö ógleymdri þeirri kynningu sem þetta getur haft fyrir islensk matvæli. Hingað til hefur eldhúsiö að- eins getað annað matseld fyrir þær flugvélar sem fljúga héöan, en ekki á heimleiðinni. Vegna samdráttar á flugleiöum Flug- leiöa I vetur mun eldhúsið þó geta annað þessari starfsemi I vetur. Þegar sumaráætlun tek- ur hins vegar gildi næsta vor veröur eldhúsið aftur of litið, og þvi er nauðsynlegt aö fara út i framkvæmdir i vetur, sem þá yröi lokið áður en sumaráætlun gengur i gildi, þ.e. stækkun þess til að auka afköst. Rætt hefur verið um aö eld- húsiö taki undir sig þaö húsrými sem kaffiterian hefur haft hing- að til, en hún verði siðan ásamt barnum flutt upp á loft. Nú fer fram könnun hjá Frl- höfninni i Keflavik á arðbærni barsins, og hvaða fjárhagslega þýðingu það hafi fyrir Frihöfn- ina verði hann afhentur Flug- leiðum til umsjár i framtiöinni. Það má telja hreint ótrúlegt ef Frihöfnin lætur barinn af hendi til Flugleiða fritt, nema ein- hverjar duldar ástæður liggji þar að baki. Ef af sameiningu kaffiteriu og barsins verður gefst gestum kostur á þeirri sjálfsögðu þjón- ustu að fá vin og öl með mat og koniak meö kaffinu, en hingað til hafa þeir mátt hlaupa úr kaffiteriunni inn á barinn til að kaupa guöaveigarnar. Sem fyrr segir hefur endanleg ákvörðun enn ekki verið tekin i þessu máli, en Flugleiðir hafa lýst sig mjög fýsandi þess aö út I framkvæmdir verði farið, og mun utanrikisráðherra hafa tekiö vel I það.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.