Tíminn - 03.12.1980, Page 8

Tíminn - 03.12.1980, Page 8
8 Miðvikudagur 3. desember 1980 Baldvin Kristjánsson: í jöklanna skjóli SKAFTFELLINGUR Ritstj.og ábm. Friðjón Guðröðar- son Ctgef: Austur-Skaftafellssýsla bað trausta manndómsfólk, sem til sjávar og sveita byggir Austur-Skaftafellssýslu hefur nú þegar fengið að reyna það, hver fengur er að ungum og áhuga- sömum menntamanni á þeirra nýja sýslumannsstól „staðsett- um” heima i héraði. bótt embættisferill Friðjóns Guðröðarsonar sé ennþá ekki langur, hefur hann þegar sýnt ekki aðeins, hversu vakandi, ókvalrátt og röggsamt yfirvald hann er, heldur og — sem ég tel ekki minna um vert — hver lif- andi og athafnasamur áhuga- maöur hann er fyrir mannlifinu þar eystra i lögsagnarumdæmi sinu. Mætti nefna mörg dæmi þessu til sönnunar, þótt ekki verði gert hér og nú. Mér er til efs, að nokkur sýslumaður á landi voru hafi siðustu árin verið lausari við að einskorða lif og starf við strip- aðar embættisskyldur einar sam- an en Friðjón. Til nokkurs marks um þennan athafnasama sans, Friðjóns (þvi hann er frumskilyrðið), og íyrir- ferð hans i framkvæmd, nefni ég hér aðeins eitt tiltækið: útgáfu nýs ársrits þeirra Austur-Skaft- fellinga sem hann hratt úr vör 1978 og er sjálfur ritstjóri og ábyrgöarmaður að. Annað heftið kom svo út á s.l. vori. bessi nýi vorgróður á annars fjölskrúöugum akri héraðsrit- anna, ber ótviræðan vott menn- ingu, félagshyggju og ræktarsemi núlifandi heimamanna gagnvart fortiðinni, en samtimis einnig eigin mannlifi, sem i dag er lifað þar eyrstra milli hafs og jökla i faðmi einnar stórbrotnustu nátt- úrufegurðar, sem land vort neiur af að státa. Meðal annars fyrir ókunnug- leika sakir treysti ég mér ekki til að gera að umtalsefni einstaka efnisþætti i þeim tveim heftum „SKAFTFELLINGS” sem út eru komin, en allt er þetta bæði fróð- legur og skemmtilegur lestur, sem lofar góðu um framhaldið svo yfirgripsmikið og trúverðugt, sem þetta myndprýdda lesmál er Fyrra hefti ritsins, hafði ein- hvern veginn runnið mér um hendur fljótar en átt hefði að vera, en þegar hið siðara barst fannst mér það kalla á hitt, svo nú hefi ég bæði fyrir framan mig. barna kenniróneitanlega margra grasa svo enginn þarf að fara bónleiður til búðar. Efnið er margvislegt i um 25 greinum auk kvæðaflokka i báðum heftunum og annála allra hreppanna 6 og andlátsfregna prestanna i þvi seinna.um slokknuð mannslif að austan og vestan fljóta árin 1978 og 1979. bessi fjölþætti fróðleikur er yfirleitt settur fram i skýru og skiljanlegu máli, hvað alls ekki er unnt aðsegja um allt prentað mál I landinu þessi árin, þegar lang- skólagengnir moðhausar skera sig gjarnan úr sem methafar I þvælulegu og jafnvel óskiljanlegu orðbragði Vist hefði verið freistandi að vikja nánar að einstökum fróð- legum og skemmtilegum grein- um i „SKAFTFELLINGI” eftir hina merkustu menn og lands- kunna. Eg má þó til aö láta mér nægja aö staldra við eina, tvo þætti sem með vissum snerta mig persónulega öðrum fremur. Sá fyrri.grein ritstjórans, Frið- jóns sýslumanns: „KAUP- FELAGSSTOFNUN 1920 GRUNDVOLLUÐ Á FÉLAGS- HUGSJÓN." Sú grein er frá upp- hafi til enda byggð á nýlegu sam- tali greinarhöí. við þann gagn- merka öldung og heiðursmann Jón lvarsson sem var kaup- félagsstjóri þeirra Austur-Skaft- fellinga á óróa árunum 1922—1943 — og er af þvi sérstæð saga og raunar landskunn á þeim árum, en margt I henni er þess eðlis, að hún gerir miklu meira en aö „standa fyrir sinu”. bess vegna Jón tvarsson. er fengur að þessu langa samtali þeirra Jóns og Friðjóns sem nær yfir einar tólf siður i ritinu. Jón ivarsson sem nú er á 90. aldursári, byrjar á að lýsa för sinni austur 5. nóv. 1921, þá þri'tugur að aldri. Fyrir rás við- burðanna reyndist til að byrja með ekki i fögnuö aö flýta sér, heimskreppan hin fyrri að kom- ast I algleyming og afkoma hins nýstofnaða kaupfélags „langt undir núlli” i þó nýkeyptum stór- eignum af vinsælum kaupmanni. Allar hindranir uröu þó yfirstign- ar fyrir ábyrga og úthaldsgóða forsjá stjórnar íélagsins og þrautseiga samstöðu félags- mannanna. En svo þegar rétta tók út kútnum eftir nokkur ár reiö heimskreppan hin siðari og enn meiri yfir, sem m.a. gaf kaup- félagsstjóranum gamla ástæðu til að mæla þessi harla eftirminni- legu orð: „Sannleikurinn var sá, aö þeir (bændurnir) höföu I raun- inni ekki getu til að kaupa á sig fötin á þessum árum."bessi orð segja mikla sögu og gefa flestu öðru betur til kynna við hvern lifsvanda var að etja þótt nú sé flestum fjarlægt og gleymt. Kannski er frásögn Jóns fyrst og fremst órækt vitni um þann anda ábyrgðar og heiðarleika, sem hinir beztu menn samvinnu- hreyfingarinnar hafa jafnan leit- ast við að sýna, og er enda i fullu samræmi við hugsjón og kenning- ar hennar um ráðvendni og rétt- læti i viðskiptum. Áralöng barátta þeirra Austur-Skaftfell- inganna við fátækt og erfiðleika undir hraustmannlegum áratök- um Jóns Ivarssonar endaði með frægum sigri. En ekki var sú viðureign ámælislaus i garö hans meðan hún stóð yfir. Fáir menn munu hafa hlotið harðari né ósanngjarnari dóma. Samt — i sinu lengstaf vanþakkláta hlut- verki — varð Jón ekki óvinsælli en svo meðal sýslunga sinna, aö hann var kosinn þingmaður kjör- dæmisins.og sýnir það manndóm þessa dugmikla drengskapar- manns. Og ennþá eimir eftir af ádáun og virðingu fyrir Jóni þar eystra. Um það er mér persónu- lega kunnugt. Hann óx i minning- unni með árunum, eítir aðhann á sæmilegum aldri var svo kallaður Friðjón við fundarstjórn 1968, á fulitriiafundi Landssamtaka Klúbbanna ÖRUGGUR AKST- UR, þar sem hann er i stjórn. „suður” til viðtækari starfa fyrir land og þjóð á viðsjárveröum timum. Ég má svo að lokum til með að nefna seinni þáttinn og bæta við fáum orðum i þakklætisskyni fyr- ir ágæta minningargrein Svövu Kristbjargar Guðmundsdóttur á Höfn — prófritgerð úr Samvinnu- skólanum 1971 — um gamlan góð- vin minn Jón Eiriksson frá Vola- seli.Auk þess að sinna i áratugi margháttuðum trúnaöarstörfum fyrir sveit sina og sýslu, var hann einn fulltrúaráðsmanna Sam- vinnutrygginga frá upphafi þeirra til dánardægurs hans, 1945—1962 eða i 16 ár. Fyrir utan aðra góða eiginleika var Jón allra manna skemmtilegastur, og ekki hefi ég hlegið með neinum svo hjartanlega sem honum i Kvi- skerjastofunni forðum daga þeg- ar við sátum þar saman með mörgu ferðafólki I góðu yfirlæti Á einum stað I þessari prýði- legu ritgerð um Jón, er vitnað i visdómsorð, sem hann á banabeöi mælti við mig og ég hefi oft haft eftir honum bæði i ræðu og riti: „Mér finnst nú enginn hlutur vera orðinn eign fyrr en hann er tryggður." Ef svo heldur áfram sem horfir varðandi útgáfu „SKAFTFELL- INGS” má i framtiðinni búastvið eigulegu, fróðlegu og skemmti- !egu riti, sem tilhlökkunarefr.i er að eiga von á. Hafi Friðjón sýslu- maður og hans friða liö þökk og heiður fyrir mjög svo virðingar- vert lramtak. Baldvin b. Kristjánsson Frá aðalfundi sýslunefndar Austur-Skaftafeltssýslu 1980, höldnum I „Gömlubúð" á Höfn. Sýslumaður I ræðustóli. vinnsla landbúnaðarafurða vinnsla sjávarafurða allt í einu númeri 214 00 gefur samband viö allar deildir kl. 9-18 KAUPFELAG EYFIRÐINGA AKUREYRI Auglýsið í Timanum Ný skáldsaga eftir Jón Dan. Stj örnuglópar Ot er komin ný skáldsaga eftir Jón Dan. Nefnist hún Stjörnu- glópar. bettta er sjötta skáld- saga Jóns og auk þess hefur hann gefiö út eitt smásagnasafn og eina ljóðabók. Stjörnuglópar er kynnt þannig á kápu bókarinar. „Jón Dan er sérstæöur höf- undur og alltaf ýr. Nú verður honum sagnaminniö um vitring- ana þrjá að viöfangsefni — fært I islenzkt umhverfi bænda og sjó- manna á Suðurnesjum. bessir vitringar hafa reyndar ekkert Jesúbarn til að gefa gull, reykelsi og mirru, en þeir horfa á stjörn- umar eins og þeir austurlenzku, þó að þeir stari ekki eftir þeim. Og umhverfi meö álverksmiðju og kanavelli er andstætt þeim. Flestir aörir falla þar betur inn i og semja sig ð þvi, kannski ekki allir sársaukalust. En vitring- unum er þar ofaukið, sumum en ekki öllum finnst þeir þar eins og ankannalegar ójöfnur. Má vera að þeir jafnist út i umhverfið eins og aðrir, en þá verða þeir ekki lengur vitringar.” I kynmngunni er minnst á Suðurnes, en Jón Dan tekur fram i upphafi bókar aö allt það sem sagan segir frá sé tilviljun og tómur skáldskapur „sprottinn af hugmyndaflugi en ekki minnis- gáfu.” Ög hann varar viS þ’vl „að leggja annarlega merkmgu I þau undur sem öllum að óvörum birtast á himinhvelinu ellegar I ryskingarnar sem verða til þess aö tortima sólkerfi okkar.” Almenna bókafélagið gefur bókina Ut. Hún er 248 bls. að stærö I allstóru broti og unnin I Prent- smiðju Árna Valdimarssonar. Verður i Sigtúni við SUÐURLANDSBRAUT: Fimmtudaginn 4. desember. Húsið opnar kl. 19.30. Bingóið hefst stundvislega kl. 20.30. AÐGANGUR ÓKEYPIS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.