Tíminn - 14.12.1980, Page 17
Sunnudagur 14. desember 1980
17
Kirkjan
Kirkjuhvolsprestakall: Sunnu-
dagaskóli verður í Hábæjar-
kirkju á sunnudag kl. 10:30 og
guösþjónusta kl. 2.
Á mánudagskvöld kl. 21
verður bibliulesturá prestssetr-
inu og aðventukvöld i kirkjunni
á miðvikudagskvöld kl. 21 i um-
sjá barna i Þykkvabæ. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, sóknar-
prestur.
Atthagafélag Strandamanna i
Reykjavik heldur kökubasar að
Hallveigarstöðum sunnudaginn
14. des. kl. 14. Einnig verður á
boðstólum ýmis fat.naður.
Kvenfélag Neskirkju: Jólafund-
ur félagsins verður haldinn
mánudaginn 15. des. kl. 20:30 i
Safnaðarheimilinu. Fjölbreytt
dagskrá: Söngur, upplestur og
jólahugvekja. Frú Hrefna
Tynes.
Jólavaka við kertaljós í
Hafnarfjarðarkirkju
Þriðja sunnudag i aðventu, 14.
desember kl. 20:30 verður jóla-
vaka við kertaljós i Hafnar-
fjarða rkirkju.
Fyrir ári var haldin þar jóla-
vaka á þessum helgidegi. Og
geyma margir enn minningar
um hrifandi og hátiðlega stumd.
Að þessu sinni verður vakan
með áþekkusniði og fyrr, þó svo
það séu að sjálfsögðu aðrir sem
efnið flytja.
Hljóðfæraleikur verður nú
veigamikill þáttur. Strengja-
sveit undir stjórn Þorvaldar
Steingrimssonar skólastjóra
leikur sigilda tónlist og gömul
og ný jólalög. Hörður Agústsson
listmálari, sem hafði umsjón
með málningu kirkjunnar
sumar er leið, fjallar i fáum
orðumum Kirkju og byggingar-
list. Sigurður Björnsson óperu-
söngvari syngur einsöng. Hjört-
ur Pálsson dagskrárstjóri verð-
ur aðalræðumaður kvöldsins og
ræðir hann um Trú og mannlif.
Kirkjukórinn syngur valin kór-
verk og leiðir safnaðarsöng
undirstjórn organista kirkjunn-
ar Páls Kr. Pálssonar. Ein-
söngvari kórsins er Jóhanna
Linnet.
Við lok vökunnar verður
kveikt á kertum þeim, sem þátt-
takendur hafa fengið i hendur.
Gengur þá loginn frá helgu alt-
ari til hvers og eins, sem tákn
um það, að sú ljóssins hátið,
sem framundan er, er öllum
ætluð.
Aðventan er ti'mi undirbún-
ings og er til þess fallin að vekja
með mönnum rétta kennd gagn-
vart helgum jólum. Við verðum
aðfinna friðinn og helgina, sem
erhiðsanna einkenniþeirra. Til
þess að svo verði þurfum við að
gefa okkur einhvern tima til að
hugleiða erindi jóla, finna og
viðurkenna þörf okkar fyrir þá
blessun sem þau veita. Stund i
helgu húsi, þar sem andblær að-
ventu og jóla rikir i tónum og
talisvalar þessari þörf og nauð-
syn. Megi enn sem áður fjöl-
margir eiga góða og eftirminni-
lega stund á jólavöku í Hafnar-
fjarðarkirkju.
Gunnþór Ingason,
sóknarprestur.
Kirkjukvöld á aðventu
Frikirkjusöfnuðurinn i Hafnar-
firði efnir til kirkjukvölds á
sunnudagskvöldið kl. 20.30
krikjunni.
Jólasöngvar verða sungnir og
leiknir og Ömar Ragnarsson
ræðir meö tóndæmum um
kirkjusöng undir yfirskriftinni:
Syngiö Drottni nýjan söng.
Kór öldutúnsskólans, sem ný-
verið hélt upp á 15 ára starf sitt
syngur jólalög undir stjórn
Egils Friðleifssonar. Blásarar
úr LUÖrasveit Hafnarfjarðar
þeyta lUðra og fiðlukvartett
leikur jólatónlist.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik-
kona les jólaljóö. Að lokum
munu unglingarnir sem nú
undirbúa fermingu slna koma
meðsitthvaðúr fórum sinum er
snertir jólahátiðina.
Þorgerður Ingólfsdóttir kór-
stjóri hefur bent á þaö i tima-
ritsgrein hversu tónlistin geti
gegnt veigamiklu hlutverki viö
undirbUning jólanna. HUn segir
i jólahefti Kirkjuritsins i fyrra :
Tónlistin er glæsilegasta jóla-
skrautið. Það þykir sjálfsagt að
undirbúa jólin á allra handa
máta. Þvi ekki undirbúa jóla-
tónlistina, sem er einfaldasti
ódýrasti og einlægasti mátinn.
Þetta aðventukvöld á að vera
vettvangur fyrir mikla þátttöku
kirkjugesta I söng jólasálmanna
ogsöngvanna, sem þeir vonandi
halda áfram að syngja heima
með fjölskyldu sinni við annan
jólaundirbúning, t.d. við
baksturinn eða skriftir jólakort.
Fri'kirkjusöfnuðurinn í Hafnar-
firði býður alla velkomna á að-
ventukvöldið á sunnudaginn til
að syngja inn jólin saman.
Safnaðarstjórn.
THkynningar
Kveikt á Oslóartrénu í
dag
Sunnudaginn 14. desember
verður kveikt á jólatrénu á
Austurvelli. Tréð er að venju
gjöf Oslóborgarbúa til Reykvik-
ing, en Oslóborg hefur I rúman
aldarfjórðung sýnt borgarbúum
vinarhug með þessum hætti.
Að þessu sinni hefst athöfnin við
Austurvöll um kl. 15.30 með leik
Lúðrasveitar Reykjavi'kur.
Sendiherra Noregs á Islandi,
Annemarie Lorentzen, mun af-
henda tréð, en Sigurjón Péturs-
son, forseti borgarstjórnar,
mun veita trénu viðtöku fyrir
hönd borgarbúa. Athöfninni lýk-
ur með því að Dómkórinn syng-
ur jólasálma.
Athygli er vakin á þvi, aö eftir
aðkveikt hefur verið á jólatrénu
verður barnaskemmtun við
Austurvöll.
Sunnudaginn 14. desember nk.
kl. 16.00 verður kveikt á jóla-
trénu i Kópavogi. Tréð er gjöf
frá Norrköping vinabæ Kópa-
vogs I Svlþjóð.
Sænski sendiráðunauturinn
Esbjörn Rosenblad mun af-
henda Kópavogsbúum tréð og
tendra ljós þess, en forseti
bæjarstjónar Rannveig
Guðmundsdóttir veitir trénu
viðtöku.
Af þessu tilefni mun Horna-
flokkur Kópavogs leika nokkur
lög.
Trénu hefur verið valinn staður
sunnan til á Borgarholtinu við
borgarholtsbraut.
Ymis/egt
Ferðaiög
Sunnud. 14.12. kl. 13.
Með Leiruvogi, létt ganga á
stuttum degi. Farið frá B.S.I.
vestanverðu.
Aramótaferð i Herdlsarvik, 5
dagar, góð gistiaðstaða. Farar-
stj. Styrkár Sveinbjarnarson.
Uppl. og farseðlar á skrifst.
Lækjarg. 6A.
tltivists. 14606
Dagsferð 14. des. kl. 13
Asfjall og nágrenni.
Fararstjóri: Hjálmar Guð-
mundsson.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farm. v/bil.
Ferðafélag Islands.
Kiwanisklúbburinn Hekla. Jóla-
dagatalahappdrætti.
Dregið hefur verið hjá Borgar-
fógeta um vinninga frá 8-14. des.
upp komu þessi númer:
8. desember 1317
9. desember 0499.
10. desember 0017.
11. desember 1432.
12. desember 0690.
13. desember 1220.
14. desember 0066.
Allar upplýsingar hjá Ásgeiri
Guðlaugssyni Urðarstekk 5. I
sima 74996 eftir kl.18 daglega.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar
eru til sölu á eftirtöldum stöö-
um:
Reykjavik:
Skrifstofa Hjarta verndar,
Lágmúla 9, Simi 83755.
Reykjavikur Apótek, Austur-
stræti 16. Ski-ifstofa D.A.S.
Hrafnistu.
Dvalarheimili aldraðra viö
Lönguhlið. Garðs Apótek, Soga-
vegi 108. Bókabúðin Embla, við
Noröurfel!, Breiðholti.
Arbæjar Apótek, Hraunbæ 102a
Vesturbæjar Apótek, Melhaga
20-22.
Keflavlk:
Rammar og gler, Sólvallagötu
11.
Samvinnubankinn, Hafnargötu
62.
Hafnart jörður: Bókabúö
Olivers Steins, Strandgötu 31.
Sparisjóöur Hafnarf jaröar,
Strandgötu 8-10.
Kópavogur:
Kópavogs Apótek, Hamraborg
11.
Akranes:
Hjá-Sveini Guðmundssyni, Jaö-
arsbraut 3.
tsafjörður:
Hjá Júliusi Helgasyni rafvirkja-
meistara.
Siglufjörður:
Verslunin ögn.
Akureyri:
Bókabúöin Huld, Hafnarstræti
97.
Bókaval, Kaupvangsstræti 4.
Aldraðir þurfa líka
að ferðast — sýnum
þeim tillitssemi.
IUMFEROAR
RÁÐ