Tíminn - 24.12.1980, Blaðsíða 10
10
Miðvikudagur 24. desember 1980
slagsmál
Olivia Newton John
Jólamynd Laugarásbiós er
að þessu sinni dans og söngva-
myndin Xanadu með Oliviu
Newton John i aðalhlutverki.i
Lög úr þessari mynd hafa
heyrst i diskótekum, útvarp-
inu, og viðar að undanförnu og
hafa notið nokkurra vinsælda.
Myndin gerist á diskóteki,
söguþráðurinn mun vera
nokkuð þunnur, en áhersla
lögð á söng og dansatriðin.
Leikstjóri er Lawrence
Gordon.
Gamla brýnið Gene Kelly
fer með hlutverk i myndinni
og hann ku vera bara nokkuð
léttur á fæti enn þótt kominn
sé vel á efri ár.
Lögin i myndinni eru flutt
af, auk Oliviu, hljómsveitinni
Electric Light Orchestra
(ELO), sem eins og margar
aðrar frægar sveitir hefur far-
ið út i diskóið, en þar munu
peningarnir vist liggja i tón-
listarbransanum.
Þrátt fyrir aö jólamyndirnar í ár séu óvenju f jölbreyttar, getur engin þeirra
talist skera sig úr eins og raunin hefur oft orðið a'ður. Kvikmyndaunnendur
áttu þó von á að nokkrar athyglisverðar myndir yrðu teknar til sýninga og má
sem dæmi nefna Apocalypse Now og Manhattan/ en af einhverjum orsökum
verða þær ekki sýndar nú um jólin.
Athyglisverðustu myndirnar að þessu sinni eru Alien (Nýja Bíó)/ //10“
(Austurbæjarbíó) og The Jazz Singer (Regnboginn) en auk þess má geta grín-
myndarinnar Airplane (Háskólabió) sem slegið hefur nokkur aðsóknarmet
vestra.
Vegna f jölbreytninnar að þessu sinni ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi i
kvikmyndahúsunum um þessi jól, en meðal myndanna má finna dans og
söngvamynd, grínmynd, hrollvekju, þriller o.sv.fr.
_J0L AMY N DI
Laugarásbíó — Xanadu:
Vinsæl lög
Austurbæjarbíó — „10”:
Kynbomba
komandi ára
Jólamynd Austurbæjarbiós
,,10” er leikstýrt af Blake
Edwards sem er þekktur fyrir
leikstjórn sina á myndunum með
Bleika pardusnum. Myndin fjall-
ar um Webber (leikinn af Dudley
Moore) sem er rúmlega fertugt
tónskáld en hann á vingott við
Sam (leikin af Julie Andrews).
Webber verður var við draum-
fagra stúlku er hann er á leið i af-
mælið sitt og eftir það slitnar upp
úr vinskap þeirra Sam. Hún held-
ur burt i fússi en Webber fer að
leita að stúlkunni fögru.
Hann hefur upp á henni en hún
reynist gift. Hann gefst þó ekki
upp og allt fer vel að lokum.
Stúlkan er leikin af Bo Derek en
hún hefur, eftir þetta hlutverk,
verið kölluð kynbomba niunda
áratugarins. Ekki er erfitt að sjá
hvers vegna af myndum af henni,
en hún er óneitanlega vel vaxin
og á mælikvarðanum 1 til 10
mundi hún fá 10 eins og titill
myndarinnar gefur til kynna.
Bo Derek
Stjörnubíó — Odds and Evens:
Hefðbundin
Stjöriiubió sýnir enn eina af
slagsmálamyndunum ineð þeim
félögum Bud Spencer og Terence
Ilill. Sergio Corbucci leikstýrir,
en flestir aðstandendur myndar-
innar eru italskir eins og i fyrri
myndum þeirra félaga.
Héreiga þeir i höggi við frægan
fjárglæframann. Eins og i fyrri
myndunum, er inikið um slags-
mál i myndinni og þeir sem gam-
an hafa haft af fyrri myndum
þeirra „bræðra” ættu ekki að
verða sviknir af að sjá þessa.
Dæmigert atriði úr myndinni.
Borgarbíó —
Night Moves:
Flókið mál
Jólamynd Borgarbiós er Night
Moves, sem leikstýrt er af gömlu
kempunni Arthur Penn, en hann
hafði ekki gert mynd lengi er
hann gerði þessa. Með aðalhlut-
verkið fer Gene Hackman en
hann leikur einkaspæjara sem
fær það verkefni að hafa uppi á
ungri stúlku.
Það reynist ekki eins auðvelt og
i upphafi var haldið, þvi inn i mál-
ið fléttast eiturlyf og skuggalegir
karakterar.
Myndin hefur viðast hvar feng-
ið ágæta dóma, en Penn er ekki
vanur aö senda frá sér lélegar
myndir og áöur hafa verið sýndar
hér m.a. Little Big Man og Alice’s
Restaurant geröar af honum.
Þeir sem gaman hafa af pott-
þéttum þrillerum, ættu ekki aö
láta þessa mynd fara framhjá
sér.
Gene Hackman og Jennifer Warren I hlutverkum slnum.
Hafnarbíó — The Border:
Mikill hasar
Jólamynd Hafnarbiós er aö
þessu sinni The Border með
þeim Telly Salvalas og Eddie
Albert i aðalhlutverkum. Þetta
mun vera ein af þessum hefö-
bundnu hasarmyndum með
miklu af skotbardögum, kapp-
akstri og ofbeldi. Sögusviðið er
landamæri Bandarikjanna og
Mexikó og söguefnið ólöglegir
flutningar af ýmsu tagi um þau
landamæri.
Salvalas hefur varla fengið
hlutverk af viti i kvikmyndum
eftir að hann hætti þátttöku
sinni i lögguþáttunum Kojak, en
þessi mynd er sennilega sam-
nefnariyfir það sem honum hef-
ur boðist.
Eddie Albert hefur maður
ekki séð lengi á hvita tjaldinu,
en þar með er ekki sagt aö þaö
sé miður.
Einn annar er titlaður i aðal-
hlutverk, en það er Danny De la
Paz og leikur hann sennilega
einhvern „grease-ball”
Telly Salvalas