Tíminn - 18.01.1981, Síða 8

Tíminn - 18.01.1981, Síða 8
8 Sunnudagur 18. janúar 1981 Elías Davíðsson kerfisfræðingur hefur um árabil stundað rannsóknir á athöfnum erlendra stórfyrir- tækja á Islandi. Hann hefur skrifað margt um þau mál. I lok nóvember mánaðar 1979 birtist grein i Morgunblaðinu eftir hann. Þar er f jallað um full- yrðingar forráðamanna álversins í Straumsvík um að rekstur fyrirtækisins hafi gengið illa# og bendir Elias á að aðalforstjóri Alusuisse sé síður en svo ó- ánægður með rekstur ÍSAL. M.a. hafi fyrirtækið bjargað hag dótturfyrirtækja Alusuisse í Bretlandi um tima. Einnig greinir Elías frá þvi að Alusuisse hafi margóskað eftir stækkun álversins í Straums- vílo sem ekki bendi til þess að hér sé um taprekstur að ræða. Siðan segir Elias: „Astæður furir talnaleikjum ISALserueinkum tvær: tfyrsta lagi miðast skattlagning tSALs við framtalinn hagnað. Með þvi að minnka framtalinn hagnað má lækka skattgreiðsluna. 1 öðru lagi — og það er e.t.v. mikilvægasta atriðið i þessu máli — myndi almenn virneskja um raunverulegan hagnað ISAL koma af stað svo miklu umróti hér, að stjórnvöld yrðu tilneydd til að krefjast tafarlausrar endurskoðunar á raforkuverði og skattlagningu”. Þarsem nú virðist svo sem að einmitt þetta sé að gerast, sneri ég mér til Eliasar til að fá álit hans á skýrslu iðnaðarráðherra um mismun á súrálsverði i Astraliu og á tslandi, og um fleira varðandi stóriðju á ts- landi. Óháð rannsókn- arstarfsemi Elías Davfðsson kerfisfræðingur. „Mikilvægast, að íslendingar standi saman og og láti ekki póli- tík sundra sér” — Ert þú óháður aðili i þessu máli? — Ég tel, að fáir Islendingar, sem kynnt hafa sér áliðnaðinn og starfsemi erlendra fyrir- tækja á tslandi, geti talist jafnó- háðir og ég. Ég hef engra per- sónulegra eða viðskiptalegra hagsmuna að gæta i þessum málum, er ekki i neinum stjórn- málaflokki og fylgi engri fyrir- skipaðri pólitiskri linu. Sú starf- semi min að veita upplýsingar um starfsemi erlendra stór- fyrirtækja á tslandi er gerð fyrst og fremst af almennum áhuga fyrir velferð lands og þjóðar. Þannig að orðið óháður á liklega vel við. — Þú segist stunda rannsókn- ir á þessum málum. Hvernig ferð þú að þvi? — Ég er i sambandi við ýmsa aðila erlendis, sem sérhæfa sig i könnunum og rannsóknum á ál- iðnaðinum meðal annars. Þetta eru óháðir aöilar, sem starfa t.d. i tengslum við háskóla. Ég tel mig hafa mikið gagn af slik- um samböndum. Einnig fylgist ég með ýmsum timaritum, bæði almennum timaritum og fag- timaritum, og afla upplýsinga eftir ýmsum öðrum leiðum. Ég reyni að hafa allar upplýsingar sem réttastar, enda er mark- miðið ekki að klekkja á einum eða neinum, heldur að koma á framfæri sönnum upplýsingum. Hins vegar dreg ég ekki dul á það, að ég hef ákveðna afstöðu i málinu, og sú afstaða er að ég tel hagsmuni tslendinga sem þjóðar standa ofar hagsmunum einstakra fyrirtækja. Hagnaðurinn fluttur úr landi — Hvað viltu segja um upp- ljóstranir rikisstjórnarinnar? — Þarna virðast þeir loks hafa fundið út hvernig hluti þess hagnaðar, sem verður i Straumsvik, er fluttur úr landi. Ég hef lengi velt vöngum yfir þvi hvernig stæði á þeirri und- arlegu staðreynd, aö Alverið er rekið hér við mjög hagstæð skil- yrði, raforkuverðiö er u.þ.b. helmingur af þvi raforkuverði, sem flestar álverksmiðjur i heiminum þurfa að greiða, laun lægri en gerist i Evrópu, skatt- friðindi og fleira, en samt er ál- verið rekið annaðhvort með tapi, jafnvel stórtapi, eða i kringum núll. Eina árið, sem einhver hagnaður hefur komið fram er 1979, en þá var hagnað- urinn þó ekki meiri en 3% af veltu. — Hvernig getur það staöist að súrálsverðið hækki svo mikið i hafi? Er um að ræða að svindl- að sé á tslendingum? — Ég vil ekki taka mér slík orð i munn. Ég held, að lesendur ættu sjálfir að dæma um, hvað er svindl og hvað er ekki svindl. En ég get gefið nokkur dæmi um svipaðar aðferðir fjölþjóða- hringa. T.d. var kopar seldur frá Chile á lægra verði en heimsmarkaðsverði á árunum 1957-1971, og tapaði Chile þannig um 400 millj. dollara. Annað þekkt dæmi er athæfi United Fruit Company, sem keypti banana á of lágu verði af dóttur- Viðtal við Elías Davíðsson, kerfisfræðing um málefni álversins í Straumsvík fyrirtækjum sinum i Mið-Ame- riku, þannig að viðkomandi lönd töpuðu 359 milljónum dollara á árunum 1947-1951. Ef við tökum nýrri dæmi, þá hafa lyfjafyrir- tæki i Bretlandi selt dótturfyrir- tækjum sinum vörur á 4000% hærra verði en eðlilegt er, þann- ig að breskur almenningur tap- aði 32 milljónum dollara. Ég get nefnt fleiri dæmi, en þetta eru opinberlega viðurkennd dæmi Flutningaskip, sem kom meö súrálsfarm til Straumsvikur á siðast liönum vetri. — Timmynd: Tryggvi. 1

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.