Tíminn - 05.02.1981, Síða 4

Tíminn - 05.02.1981, Síða 4
12 ± ■ Fimmtudagur 5. febrúar 1981 Bjarni Magnússon, forstöðumaður á Sólborg: Verðum að skapa hverjum þaa* aðstæður sem benta HV — Um nokkurra ára skeið hefur vistheimilið Sólborg á Ak- ureyri rekið sambýli, utan stofnunarinnar sjálfrar, fyrir þroskahefta, með það fyrir aug- um að einstaklingar þessir lifi eins sjálfstæðu llfi og þeim er mögulegt. Byggða-Timinn hafði samband við Bjarna Kristjáns- son, forstöðumann á Sólborg, og bað hann segja ofurlitið frá sambýlisformi þessu, tilgangi þess og árangri af þvi. Að eyða óæskilegum einkennum „Við byrjuöum á þessu sam- býli driö 1975”, sagöi Bjarni, ,,og höfum rekið þetta siðan. Forsaga þessa var eiginlega sú að ástandið hér inni á stofnun- inni hér var á þessum tima þannig, aö við vorum með geysilegan fjölda einstaklinga hér i plássi sem ekki var nærri nægilegt. Þetta voru einstakl- ingar á misjöfnum aldri og mjög misjöfnu getustigi og okk- ur fannst vera farið aö bera á ýmiss konar einkennum i fari þessara einstaklinga, sem rekja mátti beinli'nis til þess aö að- búnaöurinn var neikvæöur. Það lýsti sér i persónuleikabreyt- ingum og ýmiss konar geðræn- um kvillum. Þá vöknuðu þessar hugmynd- ir, að taka út Ur hópnum þá ein- staklinga sem voru sæmilega sjálfbjarga og búa þeim aðstæö- ur i ibúðahverfi úti i bæ, sem liktust þeim sem venjulegir menn gera kröfur um sér til handa. Niðurstaöan varð sú að keypt var húsnæði á Akureyri, sem siðan var breytt og endur- bætt, með þaö i huga aö flytja þarna inn þetta fólk. Vinna - heimili A þessum fyrsta stað bjuggu lengst af sjö til átta einstakling- ar. Með þeim bjó þar fólk, sem var þeim til aöstoðar og þjón- ustu. Þessir einstaklingar sóttu siðan þjónustu hingað á Sólborg, frá þessu sambýli.Þeirvoru hér I skóla eða vinnuþjálfun að deg- inum til, en fóru svo til baka til sins heimilis og dvöldu þar aö öðru leyti. Fyrir um þrem árum siöan seldum við svo þetta hús og keyptum þrjár ibúðir I fjölbýlis- húsi, þar sem þetta sambýli er rekið nUna. 1 þvi eru nú niu ein- staklingar. Þetta er rekiö þann- ig að eftir vinnu hér á Sólborg fara einstaklingarnir heim og þar er ein kona sem aðstoðar þá við heimilishald fram til ellefu aö kvöldinu, en þá kemur til næturvakt. Það er manneskja sem sefur þarna og er til staðar á nokkurs konar bakvakt. Við höfum ekkitaliö okkur fært ann- aö en aö hafa það. Mjög góð reynsla Við viljum halda þvi fram, mjög ákveðið, að þeir einstakl- ingar erfóru út I þetta sambýli á sinum tima, hafi þroskast mikið. Þau einkenni, neikvæð einkenni, sem við urðum vör viö hjá þeim og sem við gátum rak- iö til aðstæöna inni á stofnun- inni, hafa horfið. Það er augljóst aö hægt er aö veita þessu fólki mun eðlilegri Ufsskilyrði meö þessu móti heldur en iiini á stórri stofnun. Við vitum lika aö þeir einstaklingar sem eru van- gefnir eru mun viökvæmari fyrir öllum neikvæðari áhrifum en þeir sem heilbrigðir teljast og sérstaklega á þetta við um áhrif sem einstaklingar veröa fyrir I hóp inni á stórri stofnun, þar sem llfsskilyrðin eru allt öðruvisi en I eðlilegu umhverfi. Við höldum þvi fram ákveðiö að þessi einkenni hafi horfið. Svo bætist hitt við, að þetta gefur einstaklingunum mun meiri tækifæri til að taka þátt i þvi lífi sem lifaö er utan stofn- unarinnar. Þau eiga auðveldara með það á ýmsan hátt að ganga inn I margt af þvi sem samfé- lagið býður upp á og þau finna sig á allan hátt mikið frjálsari. Það er enginn vafi á þvi aö þess- ir einstaklingar, sem hafa átt kost á að búa i þessu sambýli, tel ja sig vera á allt öðru plani en þeir sem hér eru. Þau eru til dæmis frjálsari að þvi að fara I heimsóknir til ætt- menna og kunningja, sækja kvikmyndahús og dansleiki og svo framvegis, þótt þau hafi raunar litið gert af þvi að sækja slikt. Vissulega eru þeir ein- staklingar sem eru á sjálfri stofnuninni einnig frjálsir að þessu öllu, en sambýlisfólkið er óháðara. Vilja mikið á sig leggja Reynslan hefur lika verið sú, að þessir einstaklingar vilja mikið á sig leggja til þess að halda áfram sambýlinu. Þeir vita að þeir þurfa aö uppfylla ákveðin skilyrði i sambandi við umgengni og getu og það vilja þeir gera. Það hefur komið i ljós aö þeir hafa meiri getu en ætlað var, meðan þeir dvöldu i þessu umhverfi hér, sem miðar fyrst og fremst að þvi aö þjóna þeim, án þess aö þaö reyni mikið á þá sjálfa. Þegar þeir fluttust út i aðrar aöstæður og þurftu að fara að reyna á sig, þá reyndust margir færir um aö gera meira en ætlað var. Ég er ekki i nokkrum vafa um að þetta sambýlisform er æski- legt fyrir mjög stóran hluta þeirra sem vangefnir eru og hafa verið vistaðirá stofnunum alveg fram á þennan dag. Margir þeirra hefðu aldrei lent inn á stofnanirnar sjálfar, ef þetta fyrirkomulag hefði verið til og væru mun meiri þátttak- endur i daglegu lifi þjóöfélags- ins I dag ef svo hefði verið. Margir þeirra, sem i dag hafa verið jafnvel mörg ár inni á stofnunum, eru ekki orðnir færir um að taka þátt I svona sam- býli. Stofnanir nauðsynlegar Við komumst hins vegar aldrei fram hjá þeirri stað- reynd, að stofnanir eru jafn- framt nauðsynlegar fyrir aðra einstaklinga. Þess vegna meg- um viö aldrei stilla stofnunum upp sem einhverju slæmu, á móti einhverju ööru, svo sem sambýlinu. Það veröa aö vera ákveðnir valkostir fyrir hendi. Stofnunin er nauðsynleg og góð fyrir þá einstaklingar, sem eru Bjarni Magnússon vond fyrir þá sem geta lifað nokkuð sjálfstæðu lifi. A sama hátt er sambýlið vondur hlutur fyrir þá einstakl- inga, sem eru ósjálfbjarga, og gæti aldrei staðist fyrir þá. Bætt við húsnæði Við höfum uppi áætlanir um að vikka út þessa starfsemi. Við gerum okkur vonir um að geta keypt húsnæði nú á þessu ári og erum raunar binir að gera tilboð i ákveðið hús. Þangað myndum við flytja sex eða átta einstakl- inga I viðbót, af þeim sem nú eru enn innan stofnunarinnar sjálfrar. Þá væru fimmtán eða seytján einstaklingar komniri sambýli, af sextiu og einum, sem hér eru vistaðir i fulla vist. Ég gæti trúað að svo sem tuttugu af okkar vismönnum, þessum sextíuogeinum (þeir sem þegar eru i sambýli eru taldir með i þeim fjölda) gætu búið i sam- býli. Þar af er nokkuö af gömlu fólki, til dæmis, sem ef til vill er vafasamt að gæti tekiö þátt i sambýlinu, eða öllu heldur sem ekki myndi sækja svo i sam- býlisformið, ef hægt væri að skapa þvi góða þjónustu hér inni á stofnuninni sjálfri. Um leið og rýmkar hér, við það að fleiri fara I sambýlið, aukast auðvitað möguleikarnir til að þjóna þvl fólki sem eftir er á betri hátt en verið hefur. Svo verður auðvitað einnig að meta þaö hver áhrif viðkomandi einstaklingar hefði á sambýlið. Þetta verður að vera á þann veg að sambýlisfólkið geti.. liðið hvert annað. Þaö er alveg eins hjá þessu fólki og bara annars staðar, að einstaklingur sem er félagslega vanþroska og af- brigðileguri hátterni verður illa liðinn og skaðar sambýlið sjálft. Slikir einstaklingar eru alls staðar illa liðnir. Þannig að þarna verður aö fara ákveðna millileið. Við getum ekki leyft okkur að setja inn i sambýli ein- stakling, sem kannske eyði- leggur þar allt sem áunnist hefur i' gegn um einhver ár. Við höfum þegar þurft að taka til baka einstaklinga, vegna þessa, en hinsvegar kynnu þeir einstaklingar aö geta gengið út i sambýli núna, þótt þeir gætu það ekki á sinum tlma. Að flýja inn i geðveik- ina Þegar við ræðum svona mál, verðum við að gera okkur grein fyrir þvi að þessir einstaklingar eru miklu viðkvæmari fyrir nei- kvæðum áhrifum og neikvæðum aðstæðum I umhverfinu, heldur en þeir einstaklingar, sem eru heilbrigðir. Þess vegna er mikilvægt að skapa þeim þær aðstæður sem hæfa þeim. I þessu sambandi er talað um primer skaöa og sekunder skaða. Einstaklingar sem er vangefinn frá fæðingu hefur það sem primer sköðun, eða fötlun, en siðan getur hann orðið fyrir ýmiss konar sekunder sköðum. Vegna þess að þeir geta ekki varið sig. Vangefinn einstakl- ingur, sem lendirinn i neikvæðu umhverfi, á ef til vill ekki aðra vörn en þá að verða geðveikur. Hann kann ekki að bregðast við þvi neikkvæða i sinu umhverfi, kljást við það að aðlagast þvi á svipaöan hátt og svokallaðir heilbrigðir einstaklingar geta. Niðurstaðan verður sú að hann verður geðrænt miður sin, það er flýr inn i geðveikina. Sérstaklega á þetta við um einstaklinga sem hafa dvalist lengi á stofnunum, sem ekki hafa getað komið til móts við þeirra þarfir. Ég held viö verðum að gera okkur grein fyrir staðreyndum i þessu sambandi og beina kröftum okkar að þvi að þeir einstakiingar, sem nú eru að alast upp, lendi ekki inni I þessum vitahring. Við verðum að reyna að búa þeim viöunandi skilyrði. Þeir einstaklingar, sem þegar hafa dvalist á þessum stofnunum, eru ef til vill ekki meir en svo færir um aö vera úti lengur og þvi held ég að við verðum að fórna þeim fyrir hina. Það hljómar ef til vill kuldalega, en ég tel að við eigum að minnsta kosti kosti ekki að ýta þeim út i sambýli og taka inn I staðinn einstaklinga, sem koma utan að en eru ef til vill færir um aö vera áfram úti. Hins vegar eru margir á stofnunum, bæði hér og annars staöar, sem væru færir um að flytjast I sambýli strax á morgun. Virfna úti Nú, tveir af þeim sem vistaðir eru hjá okkur hafa starfað utan stofnunarinnar, almenna verkamannavinnu. Nú er það aöeins einn að visu það er einn af þeim sem búa i sambýlinu. Þama eru fleiri einstaklingar, sem geta unniö úti, þótt mis- jafnlega gangi að finna vinnu handa þeim. Þeir hafa fengið full laun, hafa klætt sig sjálfir og getað keypt ofurlitiö af hús- gögnum I ibúðir sinar og haft einhverja vasapeninga. Þegar mest var sóttu fimm einstaklingar vinnu út fyrir stofnunina. Hagkvæmur rekstur Fjarhagur sambýlanna fer allur I gegn um stofnunina og til fróðleiks má nefna hér nokkrar kostnaðartölur, sem eru ákaf- lega sláandi. Kostnaður við sambýlið, utan fæðiskostnaðar og þjónustukostnaðar sem kemur i dæmið að deginum til hér á stofnuninni sjálfri, var i fyrra fimmtán milljónir rúmar en daggjaldatekjur fyrir þennan hóp voru sjötiu og fimm milljónir. Þetta er þvi mjög hagkvæmt rekstrarform. Ef við göngum lengra i þessum samaburði, má benda á að örorkullfeyrir og tekju- trygging fyrir þennan hóp hefði oröið i fyrra tuttugu og fimm milljónir. Ef þau heföu greitt um áttatiu prósent af sinum líf eyri til reksturs sambýlisins, hefðu þau samt átt eftir þægi- lega vasapeninga. Það bendir náttúrlega til þess fyrir þjóð- félagið, að þetta sé hagkvæmt rekstrarform. Þá verðuraö visu að gera ráö fyrir þvi að þau sækja ákveöna þjónustu hingað, sem ekki er inni I þessum kostnaöi. Að losna frá Þegar að þvi kemur i vor, að viö tökum við vernduðum vinnustað fyrir þetta fólk, þá opnast möguleikar til þess að útskrifa alfarið héöan af stofn- uninni þá einstaklinga sem geta veriö i sambýli. Þegar þar að kemur munu þeir njóta þjónustu frá þessum verndaða vinnustað. Þeir sækja þangaö sina vinnu og búa i sam- býli úti i' bæ og þar með eru þeir lausir frá stofnuninni. Hugmyndin er sú aö þeir sem flytja i' sambyiið útskrifist ein mitt héðan þegar þeir flytja. A þann veg veröur kominn mögu- leiki á ákveðnu gegnumstreymi i stofnuninni, sem er ákaflega nauösynlegt, en hefur ekki verið. Þannig getur einstakl- ingur sem kemur hingaö inn hlotið ákveðna þjálfun, hugsan- lega náð þroska til að geta búiö i svona sambyii, flutt sig þá þangaö og sótt þaðan sina vinnu, hvort heldur er á vernduöum vinnustað eða úti á almennum vinnumarkaði. Það myndi breyta dæminu mikið fyrir þetta fólk, þvi það veröur að hafa eitthvaö fyrir stafni. Við leysum ekki þessi vandamál fólksins öðru vlsi en það fái aö gllma við einhver verkefni. Allt annað eru gerfi- lausnir. Við getum ráðið sæg af sálfræðingum og geðlæknum og látið meðhöndla fólkið, en það breytir engu ef fólkið fær ekki að fálst viö eitthvað sem það hefur jafnvel áhuga á og sér ein- hvern tilgang með. Það er ef til vill gallinn viö okkar kerfi, að okkur hættir til að einblina á sérfræðinginn og það sem hann hefur fram að færa, en gleymum þvi sem okkur er næst i umhverfinu, að hann fái að glima við eðlileg verkefni.” Vistheimillö Sólborg á Akureyri.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.