Tíminn - 20.03.1981, Blaðsíða 3
Föstudagur 20. mars 1981.
3
Frekari umræðum um „leyui-
samninginn” var hafnað
— Finnbogi Hermannsson telur Alþýðubandalagið geta stöðvað varnarliðsframkvæmdirnar
JSG — Sighvatur Björgvinsson
kvaddisérhljóðs um þingsköp á
fundi i neðri deild Alþingis f
gær, og kvartaði undan þeirri á-
kvörðun forseta að leyfa ekki á-
framhaldandi umræður um
starfsregiur eða „leyni-
samning” rikisstjórnarinnar,
sem mjög var til umræðu f þing-
inu á þriðjudag. Sagði Sighvatur
að ástæða væri til að spyrja ráð-
herra frekar út úr vegna viðtals
við Dagblaðið átti við Finnboga
Hermannssonar varaþingmann
Framsóknarflokksins á mið-
vikudag.
Sighvatur las upp á fundinum
ummæli sem hann hafði eftir
Finnboga úr síma, og voru eftir-
farandi:
„Frétt Dagblaðsins um sam-
komulag stjórnarflokkanna
hefur verið lesin fyrir mig. Ég
staðfesti, að allt, sem þar ér
eftir mér haft er rétt eftir haft.
Astæðan fyrir þvi, að ég
skýrði frá samkomulaginu, sem
gert var milli oddvita hinna
þriggja aðila rikisstjórnarsam-
starfsins er sii, að ég tel fyrir-
hugaðar framkvæmdir á Kefla-
vikurflugvelli vera brot á þvi
samkomulagi i þeim anda, að
enginn einn aðili geti tekið á-
kvörðun um slikt stórmál, sem
rikisstjórnin þarf öll um að
fjalla.
Ég tel ótvirætt, að Alþýðu-
bandalagið geti stöðvað þessar
framkvæmdir með tilvisan til
samkomulagsins um, að engar
meiri háttar ákvarðanir verði
teknar i rikisstjórninni nema
með samþykki allra aðila
stjórnarsamstarfsins með sama
hætti og ég tel að aðrir aðilar
samstarfsins geti með sama
hætti stöðvað ákvarðanir, sem
þeir eru á móti og telja vera
meiri háttar, með visan til
þessa samkomulags.”
Sverrir Hermannsson forseti
neðri deildar kvað þaö hafa
verið sameiginlegt álit sitt og
Steingrims Hermannssonar,
sjávarútvegsráðherra, að þetta
mál hefði þegar hlotið ítarlega
umfjöllun i þinginu og ekki væri
ástæða til að hefja um þaö utan
dagskrár umræður að nýju
Rafiðnaðarmenn hjá Rarik sömdu i gær:
Kjarabætur þær sömu
og hjá öðrum raí-
iðnaðarmönnum
AB — Snemma i gærmorgun
náðist hjá sáttasemjara sam-
komulag i deilu rafvirkja og
linumanna annars vegar og
Rafmagnsveitna rikisins hins-
vegar, en eins og kunnugt er
höfðu rafiðnaðarmenn þessir
boðað til verkfalls frá og með
miðnætti sl. miðvikudag, sem
þeir frestuðu siðan tii sunnudgs-
kvölds nk.
Timinn náði tali af Magnúsi
Geirssyni, formanni Rafvirkja-
félags íslands og spurði hann
hvað þetta samkomulag fæli i
sér.
,,Ég tel ekki rétt að skýra frá
innihaldi samningsins i smá-
atriðum, þvi eftir er að halda
fundi með félagsmönnum viðs-
vegar um landið, nú um helgina,
en þá verður þeim kynntur
samningurinn og siðan gengið
Framhald á bls. 19.
Skipulagsnefnd Reykjavíkur samþykkir i tillögur um ný byggingarsvæði:
1 lei Isi tu I u-
ii ig ai rsvæð i ti 1
„Málmlog gjósa al hverri stó...”
Hestamenn halda vöku sinni
þessa dagana sem jafnan. Eitt-
hvað viröist „Suðrið sæla” láta
biða eftir sér og Kári konungur
sendir þóttaiegar gusur af norðri
yfir Esjuna. Þá gildir náttúrlega
að hafa hesthúsin klár, þótt ekki
sé það til annars en að geta teygt
flugvakra gæðingana á svella-
lögðum vötnunum. Þessa kempu-
legu tvfmenninga hittum við upp i
Víðidal, hesthúsahverfi Reykvik-
inga, um daginn, þar sem þeir
voru að ganga frá hesthúsinnrétt-
ingum. Til vinstri beitir Karl Ingi
Rósenkjær, tæknifræðingur hjá
Blikk og Stál, rafsuöuvirnum af
hinni mestu kúnst meðan Valdi-
mar Karl Guðlaugsson, mennta-
skólanemi, sker með logsuðu
niður járnrörin i mátulegar
lengdir. Gneistaflugið sjendur af
þeim félögum, hvort sem þaö er
nú eins mikilfenglegt og við Tíni
forðum daga.
G.T.K.
G/obusi
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Svæðiö noröan og austan Rauðavatns sem er uppistaðan I hinum nýju byggingarsvæðum Reykjavikur
fram til næstu aldamóta, samkvæmt hinni nýju skipulagstillögu. TImmynd:G.E.
v/í/j/.
V///^.
V/M7.
V/vi
V/v/
Vw?.
V///^r.
BRUVIK
LOFTRÆSTIKERFI
fyrirliggjandi i ýmsar stæröir gripahúsa.
Getum einnig útvegað loftræstikerfi I
kartöflugeymslur og iðnaðarhúsnæði.
Margs konar aukabúnaður fáaniegur t.d.
sjálfstilltur inntaksventill, sjálfvirkur raf-
knúinn snúningshraðastillir og handstýrð-
ur 6 þrepa hraðastillir.
Kás — Skipulagsnefnd Reykja-
vfkur samþykkti á siðasta fundi
sinum tillögur Borgarskipulags
Reykjavikur um breytingu á
þeim þætti aðalskipulags Reykja-
vikur frá árinu 1977 sem fjallar
um ný byggingarsvæði. Sam-
kvæmt tillögunum verða helstu
byggingarsvæði Reykjavfkur
fram til næstu aldamóta á svo-
kölluðu Rauða vatnssvæði, en ekki
á Keldnasvæðinu eins og upphaf-
legt aðalskipulag gerði ráð fyrir.
Þau svæði sem hér um ræðir
eru Ártúnsholt og Selás, sem þeg-
ar hefur verið samþykkt að hefja
deiliskipulagsvinnu á, Norðlinga-
holt, og svæðin norðan og austan
Rauðavatns.
Rauðavatnssvæðið er i rökréttu
framhaldi af þeirri byggð sem
risið hefur hin siðari ár i Árbæ,
Selási og Breiðholti. Samgöngu-
lega séð liggur það vel við, og
ljóst er að útþensla SVR-leiða og
veitukerfa verða i algjöru lág-
marki. Að auki er Rauðavatns-
svæðið eina svæðið i nágrenni
Reykjavikur sem býður bæði upp
á hæga og hraða uppbyggingu,
eftir þvi sem efni og ástæður gefa
tilefni til.
Eitt veigamesta atriði er þó
það, að Reykjavikurborg á sjálf
mestan hluta þess lands sem
skipulagstillagan kveður á um,
gjörólikt þvi sem á við um
Keldnasvæðiö, en um afhendingu
þess hafa farið fram árangurs-
lausar viðræður i um tiu ár.
Þegar tillaga að aðalskipulagi
var gerð á sinum tima, þar sem
Keldnasvæðinu var stillt upp sem
fyrsta áfanga nýrrá byggingar-
svæða, var Rauðaýatnssvæðið
aldrei fyllilega tekið til greina,
sem hugsanlegur valkostur, þar
sem þvi var slegiði föstu fyrir-
fram, að vatnsvefndunarmörk
settu skipulagi á þvi |væði stólinn
fyrir dyrnar.
Nú hefur hins ve|;ar sérfræð-
inganefnd með Þórodd Th. Sig-
urðsson, vatnsveitustjóra i
Reykjavik, i broddi fylkingar,
skilað áíiti sinu, eitis og greint
hefur verið frá i Timanum, þar
sem segir að „ekki þurfi að taka
tillit til verndunarsvæðisins við
Framháld á bls.. 19.
aldamóta víð Rauðavatn