Tíminn - 20.03.1981, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.03.1981, Blaðsíða 16
— 1 f éS ^Tabriel <0 ^ Simi: 33700 f* . Tl HÖGGDEYFAR A NOTTU og degi er vaka a vegi I W GSvarahiutir s/Tilesio f Nútíma búskapur þarfnast BflUER haugsugu Guðbjörn Guöjónsson heildverslun, Kornagarði Simi 85677 Föstudagur 20. mars 1981 Borgarstjórn skorar á rlkisstjórn og Alþingi að taka ákvörðun strax um næstu stórvirkjun Vill næst virkj • un Sultartanga Kás — Borgarstjórn samþykkt á fundi sinum i gærkveldi meö niu samhljóða atkvæðum að skora á rikisstjórn og Alþingi að taka sem fyrst ákvörðun um næstu stórvirkjun. „Jafnframt lýsir borgarstjórn Reykjavikur yfirþvi, að hún telur að Sultar- tangavirkjun eigi að verða næsta verkefni i orkumálum. svo hægt verði að forða vand- ræðaástandi i orkumálum i ná- inni framtið, segir i samþykkt borgarstjórnar. Tillagan sem borin var upp af Sjöfn Sigurbjömsdóttir var sem fyrr segir samþykkt með niu samhljóöaatkvæðum, þ.e. sjálf- stæðismanna og alþýðuflokks- manna, en fulltrúar Fram- sóknarflokksins og Alþýðu- bandalagsins sátuhjá. Nokkurs konar eldhúsdags- umræða um orkumál fór fram i borgarstjórn i gærkveldi þegar rætt var um tillöguna. Sýndist þar sitt hverjum. Sjálfstæðis- menn töldu nauðsynlegt að vekja orkumálaráðherra upp af þeim Þyrnirósarsvefni sem hann svæfi nú i orkumálum. Alþýðubandalagsmenn töldu hins vegar að borgarstjórn gerði sig að athlægi með þvi að mæla meö virkjun Sultartanga. Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins, sagði við umræðuna, að hann teldi hana ákaflega innihaldslausa og einkennast af yfirborðsmennsku, sem best kæmi fram i þekkingarleysi ræðumanna á þeim málum sem þeir ræddu þ.e. orkumálunum. Sagði Kristján að efeitthvert mark ætti að taka á tillögu eins og þeirri sem lægi fyrir fund- inum, þá væri það forsenda að eitthvert vit væri i henni. Taldi hann öll tormerki á að svo væri, og sagði að með samþykkt til- lögunnar væri borgarstjórn að fylgja i kjölfar bændakórsins sem komið hefði suður heiðar i Framhald á bls. 19. 1 Reykjavfkurhöfn er nú staddur sovéski isbrjóturinn Otto Schmidt, nýkominn af norðurslóðum. Skvld- um við islendingar ekki getað notað einn slikan á hafisárum? (Timamynd GE) Námsgagnastofnun vantar 2.480.000 kr. viðbótarfé: Fjárlögin áætla 200 kr. á hvem nemanda Nýjasta stöðutáknið? — Eins hreyfils flugvélum fjölgaöi um þriöjung árið 1980 HEI — Eru litlar flugvclar að verða nýjasta stöðutáknið, eða tómstundaleiktæki velferðar- borgaranna? Sú spurning vaknaði við lestur loftfarskrár um flugvélaflota landsmanna, þar sem fram kemur að eins hreyfils flugvélum hér á landi fjölgaði um þriðjung á s.l. ári. Skráin nær aftur til ársins 1950. Þá — fyrir 30 árum — voru 23 eins hreyfils flugvélar skráð- ar. Næstu 20 árin hefur þeim fjölgaðum 1-2 á ári, voru 52 árið 1970. Arið 1975 voru þessar vélar 58, árið 1977 voru þær 68 og árið 1979 voru þær orðnar 87. Arið 1980 hoppar talan hins vegar upp i 116 slikar flugvélar, þ.e. fjölgaði um 29 á einu ári. 1 þessum 116 flugvélum eru samtals 373 farþegasæti sem var fjölgun um 109 sæti frá ár- inu áöur eða um 41% fjölgun á einu ári. HEI — Við munum ekki koma út þeim námsbókum sem á þarf að halda fyrir næsta skólaár, ef Námsgagnastofnuninni verður Forsetinn i opinbera heimsókn til Noregs Forseti islands Vigdís Finn- bogadóttir fer i opinbera heim- sókn til Noregs dagana 21.-23. október 1981 i boöi Noregskon- ungs. Að afstaðinni hinni opin- beru heimsókn mun forseti dvelj- ast i einkaerindum i Noregi dag- ana 24. og 25. október. ekki séð fyrir viðbótarfjármagni, sögðu forsvarsmenn Náms- gagnastofnunar á fundi með fréttamönnum i gær. Tekið var fram, að þetta væri hreint ekki nýtt vandamál hjá stofnuninni, t.d. hafi það komið upp á s.l. ári, að kennarar höfðu ekki nauðsynleg námsgögn til kennslu þegar á þurfti að halda. í slikum tilvikum sé gripið til að útbúa námsgögn til að bjargast við. ,,En fjölritunarútgáfa i skól- um er dýr útgáfa”, sagði Asgeir Guðmundsson, framkvæmda- Framhald á bls. 19. Aðalfundur Kaupmannasamtaka íslands: Vara við auk- inni ásælni hins opinbera FRI — „Kaupmannasamtök is- lands vara við aukinni ásælni hins opinbera, með sifellt meiri skattheimtu og álögum á versl- unarfyrirtæki, sem fyrr eða sið- ar leiðir af sér stöðnun og at- vinnuleysi.” Þetta kemur ma. fram i á- lyktun aðalfundar Kaupmanna- samtaka tslands sem haldinn var á Hótel Sögu i gær. Ennfremur lýsir fundurinn fullum stuðningi við samþykkt Verðlagsráðs frá 3. des. s.l. um heimildtil handa verslunum að selja vörubirgðir sinar á raun- virði og skora á rikisstjórnina að heimila framkvæmd sam- þykktarinnar nú þegar. Kaupmannasamtökin: krefjast þess að verzlanir fái greiddan þann kostnaö sem þarf að leggja út vegna innheimtu söluskattsfyrir hið opinbera, og að verzlunum verði ekki gert skilt að skila söluskatti fyrr en greiösla hefur borist, sé um af- borgunar- og reikningsviðskipti að ræöa, fara fram á það við yfirvöld bankamála landsins að Verzl- unarbanka tslands h/f, verði nú þegar veitt réttindi til sölu á er- lendum gjaldeyri, þvi telja verður óeðlilegt að viðskipta- menn bankans, sem,flestir eru kaupmenn, og margir stunda innflutning, þurfi að fara i aðra banka til þess að fá þessa þjón- ustu, vekja athygli á slæmri stöðu landsbyggðarverzlunarinnar og gera þá kröfu til stjórnvalda, sem hafa þá stefnu að byggð dragist ekki frekar saman en orðið er, að þau búi svo um hnútana að fært sé að halda uppi nauðsynlegri verzlunarþjónustu i hinum dreifðu byggðum lands- ins. Fleiri og fleiri fá sér TIMEX Þessir komu með Rikisskip til Reykjavikur i gær. Bilarnir voru fluttir á dekki og hafði nokkuð þyngst i þeim pundið á leiðinni. (TimamyndGE) mest selda úrið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.