Tíminn - 24.03.1981, Side 16
Slmi: 33700
A NÖTTU OG DEGI.ER VAKA A VEGI
abriel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Ármiíla 24
Sími 36510
Nútíma búskapur þarfnast
BAUER
haugsugu
Guöbjörn Guðjónsson
heildverslun, Kornagarði 5
Simi 85677
Þriðjudagur 24. mars 1981
mm aaaai <m BBB
Samið beint við Nigeríumenn um sölu á 180 þús. pökkum af skreið:
Fyrsta skipið leggur
af staö til Nigeríu
Kás — i gærdag var unnið viö
lestun á skreið I leiguskip á veg-
um Skipadeildar Sambandsins
sem heldur utan tilNigeriu með
farm sinn. Hér er um að ræða
fyrsta farminn upp I stóra
samninga sem Sjávarafuröa-
deild Sambandsins og Samlag
skreiðarframleiðenda hafa gert
við um tiu mismunandi aðila I
Nigeriu.
Alls hafa þessir aðilar samið
um sölu á 180 þús. pökkum af
skreiö til Nigerlu, og er sölu-
verömæti þeirra nálægt 52 mill-
jónum bandarikjadollara. Er
hér um að ræða 10% verðhækk-
un i erlendri mynt, miðað við
það verö sem fékkst fyrir skreið
á sl. ári.
Þegar hefur verið samiö um
sölu á töluvert meira magni en
þessir tveir aðilar, þ.e. Sjávar-
afurðadeild Sambandsins og
Samlag skreiðarframleiðenda,
fluttu út á siðasta ári, en búast
má við þvi að nokkur aukning
verði á skreiðarverkun i ár,
miðað við árið i fyrra.
1 byrjun þessa árs kom hingað
til lands sendinefnd frá Nigeri'u
sem óskaöi eftir þvi að hér eftir
yrði samið beint við Ni'geri'u-
menn um sölu á skreið þangað,
en á siðasta ári var mest öllum
viðskiptum um sölu á skreið frá
Islandi til Nigerfu beint i gegn-
um milliliði i Evrópu. Sjávaraf- lag skreiðarframleiðenda hafa og samið beint við þá, milliliða-
uröadeild Sambandsins og Sam- oröið við óskum Nigeriumanna laust.
Unnið aö lestun á skreiö I Nfgerlufarkostinn I gær. Vegna mikillar veöurhæöar gekk Iestun iila, og
þvlljóst aðeinhver töf veröur á aö skipið haldiutan. Tímamynd: G.E.
Mun heróín-
innflutning-
ur hingað
tií lands
aukast?
FRI— Undanfarið hafa
fregnir borist af þvi að
fyrirsjáanleg sé of-
framleiðsla á ópium,
sem er undirstaða
h eróinf ra mleiðs lu,
m.a. á þvi svæði sem
nefnthefur verið Gullni
þrihyrningurinn og við-
ar.
Guðmundur Gigja lögreglu-
fulltrúi i fikniefnalögreglunni
sagði I samtali við Timann aö
það væri spurning um hvort bú-
ast mætti við aukningu hingað
til lands af þessum sökum en
ljóst væri að þetta efni mundi
flæða yfir Evrópumarkaöinn i
sumar, en þaðan kemur megnið
af þeim eiturlyfjum sem hér er
neytt.
Guömúndur kvað erfitt um að
segja hve viðtæk áhrifin yrðu
hér og nefndi sem dæmi að svip-
uö staða hefði komið upp i hitt-
eðfyrra á Evrópumarkaðinum
en þá varofframleiösla á ópium
i Austurlöndum. Það hefði ekki
haft áhrif hér enda væri litið um
innflutning á heróini hingað til
lands.
„Stjórnvöld að eyðileggja
skreiðarviðskipti til NígeríiT
— segir Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri BÚR
Kás — ,,Ég tel að nú hafi verið
vegið mjög alvarlega að skreið-
arframleiðslunni, og henni verið
svivirðilega mismunað. Sérstak-
lega möguleikunum á þvi að
versla við Nigeriu”, sagði Einar
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Reykjavikur, i
samtali við Timann.
„Viðverðum nú að greiða 4.5%
hærra Utflutningsgjald en i fyrra,
sem er nærri þvi tvöföldun. A
sama tima er okkur einni greina
gert að greiða stórfé I verðjöfn-
unarsjóö, þar sem viðmiðunar-
verð var samþykkt það sama og i
fyrra”, sagöi Einar.
„Það undarlegasta er þó að
sömu fisktegundum er stórlega
mismunað eftir þvi hvort þær
fara til Italiu eða Nigeriu. Ég sé
ekki annað, þrátt fyrir að náðst
hafi mjög þjóðhagslega hagstæðir
samningar við góða viðskipta-
þjóð, sem Nigeria er, þá séu opin-
berir aðilar að vinna að þvi að
eyðileggja þau viðskipti”, sagði
Einar.
Bæjarútgerð Reykjavikur
framleiðir töluvert i skreið og
hefur undanfarið skipt við fyrir-
tækið Associated Services i Lon-
don um sölu á skreið til Nigeriu.
Nú nýlega hefur fyrirtækið gengið
frá samningum um sölu á
skreiðarframleiðslunni sinni i
april-júnink., sem mun vera um 3
þús. pakkar.
Árangurslaus leit
AM — Leitin að vb. Þernu AR-22
frá Stokkseyri hefur engan
árangur borið. Um tuttugu skip
leituðu að bátnum fram i myrkur
á föstudag og á laugardag voru
leitaðar fjörur, bæði af fótgang-
andi mönnum og mönnum sem
fóru á gúmbátum Ut meö strönd-
inni. Þá tóku þyrla og varðskip
þátt I leitinni og enn var leitað á
sunnudag og i gær.
Með Þernu voru tveir menn,
þeir Þorsteinn Björgúlfsson,
skipstjóri, Steinsbæ, Stokkseyri
og Viðir Þór Ragnarsson,
Fannarfelli 4, Reykjavik, 16 ára
gamall. Þorsteinn lætur eftir sig
konu og fjögur börn.
Leitarbátur.Hásteinn AR-8,kemur til hafnar á Stokkseyri sl. laugar-
dag, eftir árangurslausa leit.
(Timamynd Róbert).
Sigurbára
komin á
flot að
nýju
AM — Kl. sjö i gærmorgun
tókst loks að ná Sigurbáru VE
á flot, en skipið strandaði á
Skógarsandi þann 6. mars sl.
Það var Björgun hf. i Reykja-
viksem keyptiskipið og sá um
björgunina, en Goðinn dró
skipið út.
Unnið hefur verið að björg-
unartilraunum i um það bil
hálfan mánuðoghafa jarðýtur
unnið við að moka sandi frá
skipinu og mikill timi hefur
farið i að setja bætur á botn
þess, en botinn var mikið lask-
aður, að sögn Jóhannesar
Guðmundssonar verkstjóra
hjá Björgun.
Sigurbára kom til Vest-
mannaeyja nokkru fyrir há-
degi, þar sem enn frekar verð-
ur dyttað að skipinu, áður en
það verður dregið tií Reykja-
vikur.
Sigurbára er tveggja ára
gamalt skip, smiðað á Eski-
firði. Hún er 126 lestir.
Baujur
afvelta á
Breiðafirði
vegna
ísingar
AM — NU eru þrjár baujur af-
veltá á Breiðafirði, vegna Is-
ingar og veldur þetta talsverð-
um erfiöleikum fyrir siglingar
þar vestra, að sögn Tómasar
Sigurðssonar, forstöðumanns
viðhaldsdeildar vitanna.
Þetta eru stórar baujur,
hver þeirra vegur fimm tonn.
Eru ekki að sinni tök á aö
koma þeim á kjöl að nýju
vegna kulda og sjógangs.
Þetta eru baujurnar við Öl-
afsboöa og Vesturboða og
Rifsdufl. Þá má ekki tæpara
standa að svonefndu Tösku-
dufli hvolfi, en það er einnig
við Rifshöfn.
Gasluktimar á baujunum
munu ónýtar eftir veltuna, þar
sem þær fyllast af sjó.
Ölvaður
ökumaður ók
utaní bfla
AM — ölvaður ökumaður olli
miklum usla á leiö sinni um
austurborgina i gær, en
kl.18.05 var lögreglunni til-
kynnt um feröir stórs jeppa-
bíls, sem ekið hafði utan i
nokkra bila.
Maöurinnók m.a. um Skeið-
arvog, Langholtsveg og
Sunnuveg og tókst loks að
handsama hann inni i húsa-
garði við Sunnuveginn. Þang-
að hafði hann hlaupið, er hann
varð var við eftirför lögregl-
unnar. Ekki var vitað hvort öll
kurl væru til grafar komin,
hvað þá bfla varöaði sem hann
hafði lent utan i en þeir voru
þó a.m.k. þrir.