Tíminn - 09.04.1981, Síða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392
Heitt í kolunum í efri deild Alþingis vegna flugstöðvarmálsins:
Lánsheimild til flugstöðvar-
innar féll á jöfnum atkvæðum
Utanríkisráðherra greiddi atkvæði með tillögunni, en aðrir stjórnarsinnar á móti
JSG — Breytingatillaga viö
frumvarp til lánsfjárlaga, um
að heimild verði veitt til er-
lendrar lántöku á þessu ári tii
byggingar flugstöövar á Kefla-
vikurflugvelli, oili töluverðu
umróti á Aiþingi i gær. Tillagan
var felld við atkvæðagreiðslu i
efri deild, en á jöfnum atkvæð-
um, þar sem ólafur Jóhannes-
son, utanrikisráðherra, fylgdi
tillögunni. Þeir Ólafur, og
Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, deildu hart um þetta mál
Flugmannadeilan:
Leysir ný
sáttatil-
laga máJið?
AM — Blaðið hefur fregnað að i
deiglunni sé ný sáttatillaga Guð-
laugs Þorvaldssonar i flug-
mannadeilunni, sem byggist á þvi
að skipuð verði ný sáttanefnd,
sem skuli fá i hendur úrskurðar
vald um þau atriði, sem ekki nást
sættir um. Er talið að hún eigi
hljómgrunn hjá báðum aðilum,
FlA-mönnum og Flugleiðum.
Þykir mönnum sem slik nefnd
hafi kosti fram yfir sáttanefnd og
siðan gerðadóm, þar sem miður
þætti að kynna þeim mönnum
málin frá grunni, sem eiga að
dæma i þvi.
Hóta að
skrúfa fyrir
fjármagn
Kás — Alþýðubandalagið og fjár-
málaráðherra virðast vera farin
að skipta sér að viðræðum um
myndun meirihluta i stjórn Stú-
dentaráðs, samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Timans. Nú
standa yfir viðræður milli Um-
bótasinnaðra stúdenta og Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúdenta,
eftir að slitnað hafði upp úr við-
ræöum milli Umbótasinna og
vinstri manna.
Til að eyðileggja fyrir þeim við-
ræðum sem nú standa yfir hafa
útsendarar Alþýðubandalagsins
m.a. stjórnarformaður Félags-
málastofnunar, komið að máli viö
forsvarsmenn Umbótasinna og
hótað þvi að náist samkomulag á
milli Vöku og þeirra um myndun
meirihluta i Stúdentaráði, þá
muni það hafa þær afleiðingar að
framkvæmdir við stúdentagarða
og barnaheimili frestist um eitt
ár, þar sem menn á réttum stöð-
um muni skrúfa fyrir f jármagn til
þeirra.
Umbótasinnar eru mjög óá-
nægðir með þessi viöbörgð, og
gætu þau allt eins virkað i þveröf-
uga átt, þ.e. stuðlað aö samkomu-
lagi milli Vöku og Umbótasinna.
við umræðuna i efri deild, og
kvaðst Ragnar lita svo á að
stuöningur ráðherra við þessa
tillögu táknaði brot á stjómar-
sáttmála rikisstjórnarinnar.
Ólafur Jóhannesson gerði hins
vegar grein fyrir stuðningi sin-
um við tillöguna og sagði að þótt
hún yröi samþykkt gilti eftir
sem áður ákvæöi stjórnarsátt-
málans þannig að framkvæmdir
við flugstöðina gætu ekki hafist
nema fyrir lægi samþykki allra
ráðherra. Hér væri aðeins um
heimildartillögu að ræða. ,,Ég
tel þvi að samþykki þessarar
tillögu brjóti ekki i bága viö
stjórnarsáttmálann,” sagöi
Ólafur.
Utanrikisraðherra sagði frá
þvi að þegar lánsfjáráætlun var
til meöferðar i rikisstjórn, hefði
hann áskilið sér rétt til að fylgja
tillögu um lántökuheimild til
flugstöðvarbyggingar, ef hún
kæmi fram á Alþingi.
Ragnar Arnalds kvaðst i
framhaldi af þessari bókun hafa
lýst þvi yfir að gengju einstakir
ráðherrar I lið með stjórnarand-
stöðunni til að knýja fram mill-
jarða útgjöld sem rikisstjórnin
heföi ekki öll samþykkt, þá
heföu þeir brotið stjórnarsátt-
málann.
Aðrir þingmenn Framsóknar-
flokksins I efri deild greiddu I
gær atkvæði gegn flugstöövar-
tillögunni, — en hún var flutt af
Lárusi Jónssyni og Karli Stein-
ari Guðnasyni og hljóðar fyrst
upp á 20 milljóna lántökuheim-
ild en siðar upp á 5 milljóna
heimild, — með þvi að visa til
samþykktar miöstjórnar
flokksins um að flugstööin skuli
byggö. „Hins vegar hefur komiö
fram”, sagði I yfirlýsingu sem
Guðmundur Bjarnason las upp,
„að undirbúningur að bygging-
unni sé ekki svo langt kominn,
að framkvæmdir geti hafist á
þessu ári. Þvi er ekki ástæða til
að auka nú heimildir til lántöku
i þessu skyni.”
Þingmenn fylgjast spenntir með atvkæöagreiöslunni um breytingartil- I mannsson, Páll Pétursson, Helgi Seljan, forseti deildarinnar, Davfð
lögu stjórnarandstöðuþingmanna um flugstöðvarbygginguna á Kefla- I Aðalsteinsson, Gunnar Thoroddsen, Alexander Stefánsson, ólafur Jó-
vikurflugvelli í efri deild Alþingis I gærkvöldi. F.v. Steingrímur Her- I hannesson og Ragnar Arnalds. Timamynd: Róbert.
Mikill kostnaðarmunur á uppbyggingu við Rauðavatn eða á Keldnasvæðinu:
4.
Munurinn allt að
180 mílljónir króna
MikiII munurer á kostnaði við
uppbyggingu annars vegar
Rauðavatnssvæðisins og hins
vegar Keldnasvæðisins sam-
kvæmt þeim áætlunum, sem
gerðar hafa verið.
Ef tekinn er ódýrasti kostur-
inn i uppbyggingu Keldna-
svæðisins, en sá dýrasti i upp-
byggingu Rauðavatnssvæðisins,
munar t.d. um 180 milljónum
króna (18 miHjöröum gkr.)
hvað sá siðarnefndi er dýrari.
Sé dæminu hins vegar snúið
við og tekinn ódýrasti kostur viö
uppbyggingu Rauðavatns-
svæðisins, en sá dýrasti viö upp-
byggingu Keldnasvæðisins, er
niðurstaðan nokkurn veginn
jafn kostnaður.
Annars ber útreikningum
Borgarskipulags, annars vegar
og embættis borgarverkfræð-
ings hins vegar, ekki saman og
er samstarfið þar á milli mjög
stirt um þessar mundir, eins og
nánar er skýrt frá I frétt á bls. 2.