Tíminn - 09.04.1981, Side 13
Fimmtudagur 9. april 1981
17
,v Svalur ' C
• kémuraftur,
Marat! Þessi litli
^ kaller
lörugglega Tuxco!!
Ferðalög
Útivistarferðir.
Páskaferðir:
Snæfellsnes, göngur við allra
hæfi um fjöll og strönd. Gist á
Lýsuhóli, sundlaug. Fararstj.
Steingrimur Gautur Krist-
jánsson o.f.
Fimmvörðuháls,gengið upp frá
Skógum, gönguskiðaferð.
Fararstj. Styrkár Sveinbjarn-
arson.
Farseðlar á skrifstofunni
Lækjarg. 6a,simi 14606.
(Jtivist.
Félagslíf
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins i Reykjavik heldur afmælis-
fund 9. april fimmtudag. kl. 20
stundvislega. Girnilegur matur
og góð skemmtiatriði. Mætið nú
vel og njótið kvöldsins. Látið
vita i sima S.V.F.t. 27000 á
venjulegum skrifstofutima sem
allra fyrst.
Kvenfélag Kópsvogs.
Fundur verður haldinn i Félags-
heimili Kópavogs 9. april kl.
8.30. Spiluð veröur félagsvist.
Mætið stundvislega. Stjórnin.
Gigtarfélag íslands efnir til
Mallorkaferðar fyrir félags-
menn sina 16. júni n.k.
Upplýsingar um ferðina gefur
Guðrún Helgadóttir i sima 10956
á kvöldin.
Gigtarfélag tslands
Kynningarfundur um
málefni þroskaheftra
Ar fatlaðra er tækifæri, sem
ekki má láta ónotað til að vekja
athygli á málefnum fatlaðra.
Junior Chamber i Reykjavik
hefur ákveðið að efna til fundar
á Kjarvalsstöðum i Reykjavik,
um málefni þroskaheftra, föstu-
daginn 10. april n.k. kl. 20.00
Borgarstjórinn i Reykjavik,
hr. Egill Skúli Ingibergsson
hefur sýnt þessu máli sérstakan
velvilja, með þvi að eftirláta
okkur Kjarvalsstaði til þessa
fundar.
DAGSKRA:
1. Fundur settur af Andrési B.
Sigurðssyni, Landsforseta
J.C. íslandi.
2. Ávarp: Friðjón Þórðarson,
dóm smálaráðherra.
3. Atvinnumál þroskaheftra:
Egill Skúli Ingibergsson,
Borgarstjórinn i R.vik.
4. Uppbygging þjónustustofn-
ana: Eggert Jóhannesson.
5. Menntunarmál þroskaheftra:
Magnús Magnússon, sérkenn-
ari.
6. Pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Asgeir
Gunnarsson.
Er bað sérstök ósk okkar, að
þér f jáið yður fært að vera gest- .
ur okkar á þessum fundi.
J.C. DAGS-NEFNDIN
Tilkynnirigar
Kvenfélag Óháða safnaðarins.
A fimmtudagskvöldið 9. april kl.
8.30 verður félagsvist i Kirkju-
bæ. Verðlaun og kaffi. Allt safn-
aðarfólk velkomið, takið með
ykkur gésti.
Laugardaginn 11. april kl. 4,
opnar Rúna Þorkelsdóttir sýn-
ingu i Rauða Húsinu á Akureyri.
A sýningunni eru fjögur verk
sem unnin eru út frá sama tema,
vatninu. öll eru verkin unnin i
mismunandi efni, þráð, þrykk og
texta svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er önnur einkasýning
Rúnuhérheima en hún sýndi 1979
iGalleriSuðurgötu7, einnig hefur
hún tekið þátt i samsýningum
erlendis.
Sýningin stendur til sunnudags-
ins 19. april og er opin daglega frá
klukkan 4 til 10 e.h.
Skó/ar
samþykkir að frá og meö skóla-
árinu 1981-’82 skuli skólahverfa-
skiptin milli grunnskólanna i
Reykjavik vera sem hér segir:
I. VESTURBÆR:
Hagaskóli
Melaskóli
Vesturbæjarskóli
II. AUSTURBÆR:
Austurbæjarskóli
Hliöaskóli
Æfingaskóli K.H.I.
III. NORÐAUSTURBÆR:
Langholtsskóli
Laugalækjarskóli
Laugarnesskóli
Vogaskóli.
IV. SUÐAUSTURBÆR:
Alftamýrarskóli
Breiðagerðisskóli
Fossvogsskóli
Hvassaleitisskóli
Réttarholtsskóli
V. ARBÆJARHVERFI:
Arbæjarskóli
VI. BREIÐHOLT I.:
Breiðholtsskóli
VII. BREIÐHOLT II:
Seljaskóli
ölduselsskóli
VIII. BREIÐHOLT III:
Fellaskóli
Hólabrekkuskóli.
Hvert ofantalinna 8 skóla-
hverfa er eining þar sem starf-
andi eru einn eða fleiri grunn-
skólar. Innritun nemenda I
skólahverfinu er sameiginleg en
séu þar fleiri en einn skóli skipt-
ir Fræðsluskrifstofa Reykja-
vfkur nemendum á skólana I
samráði við skólastjóra.
Þegar foreldri eöa forráöa-
maður barns innritar það I skóla
skal merkt við hverfisskólana
Veröa skal við óskum foreldra
að svo miklu leyti sem fjöldi i
bekkjardeildum viðtökuskólans
leyfir. Geti skóli ekki tekið við
öllum þeim börnum sem þar var
sótt um skólavist fyrir, skal
flytja i annan skóla nemendur
sem eiga tiltölulega auðvelda
skólasókn þangað að mati
Fræðsluskrifstofu Reykjavikur
og skólastjóra I hverfinu. Sé um
að ræöa til muna lengri leið eða
erfiðari umferðaraðstæður fyrir
börn sem sækja verða annan
skóla en óskað var eftir, geta
þau fengið greitt strætisvagna-
fargjald með hliðsjón af gild-
andi reglum um greiðslu
strætisvagnafargjalda fyrir
nemendur i grunnskóla.
Reglur þessar koma til fram-
kvæmda við undirbúning skóla-
halds fyrir skólaárið 1981-’82.
Innritun skólaskyldra
Innritun skólaskyldra barna
og unglinga sem þurfa að flytj-
ast milli skóla fyrir næsta vetur
fer fram i fræðsluskrifstofu
Reykjavikur, Tjarnargötu 12,
n.k. fimmtudag og föstudag, 9.
og 10. april, kl. 10-16 báöa dag-
ana.
Þetta gildir jafnt um þá nem-
endur sem flytjast til borgar-
innar eða koma úr einkaskólum
eða þurfa að skipta um skóla-
vegna breytinga á búsetu innant
borgarinnar.
Það er mjög áriöandi vegna
nauösynlegrar skipulagningar
og undirbúningsvinnu að öll
börn og unglingar sem svo er á-
statt um veröi skráö á ofan-
greindum tima.
Þá nemendahópa sem flytjast
i heild milli skóla þarf ekki að
innrita, en það eru börn er ljúka
námi i 6. bekk Breiðagerðis-
skóla sem flytjast i Lauga-
lækjarskóla og börn úr 6. bekk
Melaskóla og Vesturbæjarskóla
sem flytjast I Hagaskóla.
Lesendabréf
Opið bréf til stjórnar
SVR og orkusparn-
aðarnefndar.
Flestir ungbarnaforeldrar
hafa orðið áþreifanlega varir
við hversu ómögulegt er að
ferðast með barnavagna og
kerrur i strætisvögnum borgar-
innar. Strætisvagnarnir eru
ekki útbúnir með tilliti til þarfa
barnafólks (barnafólk á e.t.v.
bara að halda sig heima við)! ?
Aö visu hefur sú gleðifregn
borist um að von sé á nýjum
vögnum sem gera ráð fyrir
barnafóki og er það vel, — en
þeir nýju og finu vagnar komast
ekki i almennt brúk, skilst
okkur, fyrr en eftir nokkur ár,
1985 eða siðar. Við, með barna-
vagna og kerrur, höfum ekki
þolinmæði til að biða svo lengi.
Við þurfum að komast ferða
okkar, með allt okkar hafur-
task, börnin og það sem þeim
fylgir og einatt lika matarbjörg
til heimilisins. Oft er það enginn
hægðarleikur og barnafólkið þvi
komist að þeirri niðurstöðu að
eina leiðin til lausnar á umferö-
arvandamálunum, sé að kaupa
einhverja bildruslu. Þær eru svo
oft misjafnlega vel gangfærar,
og eyða ógrynni af bensini.
Við viljum beina orðum okkar
til Orkuusparnaðarnefndar og
stjórnar SVR. Væri ekki hag-
kvæmara að gera lagfæringar á
þessum blessuðu gömlu strætis-
vögnum, þannig að við getum
nýtt þá? Við höldum þvi fram að
ekki þyrfti að gera svo stórkost-
legar breytingar, til aö koma til
móts við þarfir barnafólks. Að-
allega eru það dyrnar, sem eru
okkur Þrándur i Götu, þ.e. súl-
urnar sem standa við miöjar
afturdyrnar. Við sjáum ekki
betur en vel mætti færa þær ör-
litið, eða sem þvi nemur að
venjulegur barnavagn komist I
gegn. Sömuleiðis þyrftu vagn-
stjórar að fá tima til að aðstoða
fólk við að lyfta farartækjum
barna okkar i og úr strætisvögn-
unum.
Með kveðju:
Nokkrir foreldrar.
(Auður Oddgeirsdóttir
0880-7728)
(Þóra Sigurðardóttir, 9389-3093)
Sýningar
Gunnar Hjaltason við eitt verka sinna. Tímamynd GE.
Máiverkasýning.
ÞAÞ —Gunnar Hjaltason sýnir
i Norræna húsinu 4—12 april.
A sýningunni eru 92 myndir
unnar meö akryllitum, pastel-
litum og vatnslitum, einnig
myndir unnar með bleki að jap-
anskan rispappir.
Gunnar er fæddur 21. nóvem-
ber 1920að Ytri Bakka við Eyja-
fjörö. Fluttist til Hafnarfjarðar
1952 og hefur búið ar siðan.
Stundaði nám i teikniskóla
Björns Björnssonar og Marteins
Afmæli
Guðmundssonar 1933—42 og tók
einnig þátt i nokkrum nám-
skeiðum á vegum Handiðaskól-
ans. Sýningar: Einkasýningar i
Hafnarfirði að mestu árlega
1964—1978, i Bogasal 1969, Vest-
mannaeyjum 1965, i Mokkakaffi
1973—75 og 80, Eden Hveragerði
1975 (Borgarnesi 1976, Norræna
húsinu 1978, Akureyri 1977, þátt-
taka i samsýningum hafn-
firskra málara 1970, 1922, og
1974. Sýningu á Hvammstanga
1979.
Gull & silfur 10 ára
Skartgripafyrirtækið Gull &
silfurh.f. aðLaugavegi 33átti 10
áraafmæli föstudaginn 3ja april
s.l..
I þvi tilefni gaf fyrirtækið 10%
afslátttil viðskiptavina sinna og
að auki var i gangi ofurlitið af-
mælishappdrætti og var dregið i
þvi á laugardag. Heppnum við-
skiptavinum verður afhentur 14
karata hvitagullshringur með
perlu og demöntum að verð-
mæti um 4 þúsund nýkrónur.
Eftir fimmtiu ára
frumskógardvöl hef séð nýlegar|
muntu sjá miklar^ flugvélar, svo'
breytingar. ) ég get
imyndaö
Ég 29 iBiddu þangaö V" Þaðer
f séis nvieuarl til húsérð /nafniðá
skipinu
V okkar.
Skólahverfi i Reykja-
vik
Fræðsluráð Reykjavikur
í Þviþaðer' \
1 ekki nóg af þeim.