Tíminn - 29.04.1981, Page 1
.Síðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 ■ Kvöldsímar 86387 & 86392
Sérstök samþykkt þingflokks Framsóknarflokksins um efnahagsmál:
Lögð áhersla á viðbótar-
aðgerðir síðar á þessu ári
JSG — „Ég gerði rikisstjórn-
inni i morgun grein fyrir um-
ræðum i þingflokki Fram-
sóknarflokksins siðustu daga
um efnahagsmál, og niður-
stöðum sem samþykktar voru á
þingflokksfundi”, sagði Stein-
grimur Hermannsson i samtali
við Timann i gær.
Steingrimur var spurður hver
hefðu verið meginatriðin i sam-
þykkt þingflokksins.
„Þingflokkur samþykkti
stuðning við þær efnahagsað-
gerðir, sem rikisstjórnin hefur
undirbúið og lagt fram i frum-
varpi. 1 þvi sambandi taldi
þingflokkurinn að nota ætti þá
fjármuni sem sparast með
niðurskurði rikisútgjalda til
aukinna niðurgreiðslna land-
búnaðarvara. Jafnframt fjall-
aði þingflokkurinn i samþykkt
sinni um viðbótaraðgerðir i
efnahagsmálum, sem ætlað
væri að tryggja að við mark-
miðið um 40% verðbólgu á árinu
verði staðið. Við gerum ráð
fyrir þvi að vextir verði lækk-
aðir 1. júni, enda fer lánskjara-
visitala nú lækkandi. Við bind-
um einnig töluverðar vonir við
nýmæli i verðlagsmálum,
þ.á.m. verðkannanir og nýjar
álagningarreglur, sem ættu að
leiða til lækkunar vöruverðs”.
Steingrimur sagði að þing-
flokkurinnhefðiennfremur talið
að nauðsynlegt væri að hefja
strax viðræður við forustumenn
bænda um leiðir til að draga úr
áhrifum mikillar hækkunar
áburðarverðs á búvöruverði.
— En hvað með aðgerðir á
siðari hluta þessa árs og þvi
næsta?
„Við erum þegar farnir að
ræða nokkuð um framhaldsað-
gerðir, og aðgerðir á árinu 1982.
Þá á niðurtalningin skilyrðis-
laustað halda áfram og þarf að
hefja undirbúning að þeim
þegar”.
— Hvernig var samþykkt
þingflokksins tekið i rikisstjórn-
inni?
„Um hana var ekki ágrein-
ingur enda er alger samstaða
um markmið og leiðir i efna-
hagsmálum i rikisstjórninni.
Það má lita á þessa samþykkt
þingflokksins sem stuðning við
þessi markmið og þessar
leiðir”, sagði Steingrimur Her-
mannsson að lokum.
Glórulaus
snjókoma
um allt
Norðurland
AM-,1 gærmorgun brá til glóru-
lausrar snjókomu um allt Norður
land sem 1 gærkvöldi náði suður
undir Borgarfjörð að vestan, en
til Hornafjarðar suðaustanlands.
Þessu olli mjög litil lægð sem
dýpkaði skyndilega og olli hita-
skilum, sem liggja yfir landinu,
að sögn Páls Bergþórssonar,
veðurfræðings, i gærkvöldi.
Páll sagði að tilkynnt hefði ver-
ið i gær um 5 stiga frost, 7 vindstig
af NV og ákafa snjókomu á mið-
um úti af Húnaflóa og i Æðey, svo
og á Skaga og viðar, en allar
veðurstöðvar norðanlands til-
kynntu um nokkra snjókomu.
Þegar við ræddum við menn á
ísafirði og Sauðárkróki var jörð
orðin alhvit og á Isafirði töldu
menn Breiðdalsheiði orðna ófæra.
Umbótasinn-
ar höfnuðu
Kjartani
Leiguvél Arnarflugs:
Boeing
737 í
Reykjavík
FRI — í gærkvöldi lenti
á Reykjavikurflugvelli
flugvél af gerðinni Boe-
ing 737 en Arnarflug hf.
hefur tekið þessa vél á
leigu.
Vélin er af sömu gerð og Arnar-
flug hf. hefur pantað og væntan-
leg er til félagsins 1982. Vélin mun
verða hérna i nokkra daga og
flugmenn Arnarflugs munu fara
æfingaflug á henni hér en siöan
fer hún út til Bretlands þar sem
áhafnir frá Arnarflugi munu
fljúga henni fyrir breskt flugfé-
lag.
-----------«K
Boeing 737 vélin á Reykjavíkur-
flugvelli.
Timamynd Róbert
Kás — 1 samræmi við fyrri yfir-
lýsingar slnar hafa fulltrúar stú-
denta i stjórn Félagsstofnunar
stúdenta nú sagt af sér, en þeir
eru þrir að tölu og allir frá Félagi
vinstri manna, eftir að nýr meiri-
hluti tók við völdum I Stúdenta-
ráði.
1 gær kaus Stúdentaráð nýja
fulltrúa I stjórn Félagsstofnunar.
Þeir eru Pétur J. Eiriksson,
framkvæmdastjóri Frjálsrar
verslunar, og Sverrir Ólafsson,
verkfræöinemi, frá Vöku, og
Ólafur Ólafsson, viðskiptafræði-
nemi frá Umbótasinnum. Tveir
siöarnefndu eru fulltrúar
stúdenta sem enn eru i námi, en
Pétur J. Eiríksson er fulltrúi
stúdenta sem lokið hafa námi, og
verður hann jafnframt formaöur
stjórnar Félagsstofnunar stú-
denta.
Samkvæmt málefnasamningi
meirihlutaflokkanna i Stúdenta-
ráöi kemur staða formanns
stjórnar Félagsstofnunar i hlut
Vöku. Höfðu þeir áhuga á að
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins tæki þá stöðu aö sér, en
Umbótasinnar munu hafa komið
i veg fyrir það, og hótað allt að þvi
samstarfsrofi, yrði af þvi.
Góð rekstrarafkoma hjá Mjólkurbúi Flóamanna i fyrra:
Bændur fá fullt grund-
vallarverð fyrir 1980
Fjórar nýjar G-vörur væntanlegar á markaðinn i ár
HEI — „Rekstrarlega kom
Mjólkurbú Flóamanna ákaflega
vel út á síðasta ári. Bændur á
framleiðslusvæði búsins fá þvi
greitt fullt grundvallarverö
fyrir mjólkurinnlegg s.I. árs,
sem ekki var reiknað með,
vegna minnkaörar framleiðslu
á árinu”, sagöi Agnar Guðnason
i gær, þá staddur á aðalfundi
Mjólkurbús Flóamanna að flúð-
um.
Búið tók á móti um 39 milljón-
um litra af mjólk, sem var
6.34% minna en árið áður. Þar
af voru 23 millj. litra seldir sem
nýmjólk, en 16 millj. fóru til
vinnslu. Mjólkurframleiöendur
á svæði MBF eru 773 og fækkaði
um 11 á árinu. Kúm fækkaði um
319 og eru nú 12.571. Meöalinn-
legg hvers framleiðanda var
50.475 litrar og minnkaöi um
2.663 litra. Meðalfjöidi kúa á
framleiöanda var rúmlega 16 og
meöalnyt 3.104 litrar eftir
hverja kú.
Kúabúin eru þó misjafnlega
stór, sem m.a. sést á þvi að
meðaltekjur (brúttó) á fram-
leiðanda fyrir innlagða mjólk
voru 17.1 millj. i Arnessýsiu,
15.7 millj. i Rangárvallasýslu,
9.9 millj. i V-Skaftafellssýlsu og
8,4 millj. gkr. austan sands.
Agnar sagði þær nýjungar
helstar hafa komiö fram, að
fjórar nýjar G-vörur eigi að
koma frá búinu á árinu. Sú nýj-
ung sem flestir eiga senmlega
eftir að fagna, er G-þeytirjómi,
sem væntanlegur er á maricaö á
næstunni. Tilraun var gerð i
fyrra og komiö hefur i ljós að
rjóminn er jafn góður eftir 5
mánaða geymslu. Þá hefur
verið ákveöið I sambandi við
ostaframleiöslu, aö MBF eigi að
sérhæfa sig I framleiðslu á-
bætisosta.