Tíminn - 29.04.1981, Síða 6
6
Miðvikudagur 29. aprll 1981
(Jtgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Steingrfmur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhanns-
dóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. — Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson, Glias Snæland Jónsson, Jón Helgason,
Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. ólafsson. Blaða-
menn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur
Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir
(Heimilis-Timinn) Heiöur Helgadóttir, Jónas Guðmundsson
(þingfréttir), Jónas Guðmundsson, Kjartan Jónasson,
Kristinn Hallgrimsson (borgarmál), Kristin Leifsdóttir, Ragn-
ar örn Pétursson (iþróttir). Ljósmyndir: Guðjón Ginarsson,
Guðjón Róbert Ágústsson. Myndasafn: Gygló Stefánsdóttir.
Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria
Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300.
Kvöidsimar: 86387, 86392. — Verð i lausasölu 4.00. Áskriftar-
gjald á mánuði: kr. 70.00. — Prentun: Blaðaprent hf.
Maður gegn ófreskju
Sú svivirðilega afstaða stjómarvalda Ráð-
stjórnarrikjanna að meina fjölskyldu Viktors
Kortsnoj, skákmeistara, að hverfa þaðan úr landi
og sameinast er skýrt dæmi um þá ólýsanlegu, —
og að mörgu leyti illskiljanlegu —, kúgun og niður-
lægingu sem tiðkast i rikjum kommúnismans.
Þessi svivirðing mun mega heita allt að þvi dag-
legt brauð i lifi þegnanna austur þar, en er senni-
lega óskiljanleg i augum flestra Vesturlanda-
manna. Og af þeim sökum er eins og fólk hafi jafn-
vel ekki fyllilega áttað sig á þvi hvað um er verið
að tala þegar þetta mál ber á góma.
Við erum vönust þvi að rikisvaldið viðurkenni að
fjölskyldan er undirstaða samfélagsins, að hún er
bæði eldri stofnun og miklu mikilvægari en rikis-
valdið, að hún hefur helgun af hæðum sem rikinu
ber að virða, og enda þótt rikið sé stöðugt að teygja
arma sina á einn eða annan hátt inn i einkalif okk-
ar og heimilishagi, er það þó enn viðurkennt að
rikið á að lúta fjölskyldunum en ekki öfugt.
Stjórnarhættir Ráðstjórnarmanna hvila á allt
öðrum og villimannlegum forsendum. í baráttu
skákmeistarans Kortsnojs höfum við skýrt merki
þess hversu langt er frá þvi að allir jarðarbúar lifi
við einföldustu grundvallarréttindi manna nú á
dögum. Án friðhelgi heimilisins er auðvitað ekki
um nein mannréttindi að ræða yfirleitt, ekkert
skjól sem menn geta leitað i, engin grið eða vé i
samfélaginu yfirleitt. Og ef rikið virðir ekki fjöl-
skyldubönd, er öllum mannlegum tengslum, öllu
siðuðu samfélagi, rutt úr vegi. Þetta er ekki aðeins
svivirða, — það er ógeðslegt.
Ofan á þetta bætist að fréttir herma, að alræðis-
jötnarnir austur þar séu að niðast á eiginkonu og
syni skákmeistarans.
Vitanlega er það rétt sem Friðrik ólafsson, for-
seti Alþjóðaskáksambandsins, hefur sagt að
meðan þessu fer fram verður ekki unnt að halda
heimsmeistaraeinvigi með skaplegu móti, þar
sem fyrir liggur að annar keppandinn er i öngum
sinum vegna fjölskyldu sinnar, og jafnvel má ætla
að hinn keppandinn sé miður sin fyrir að vera tal-
inn fulltrúi viðbjóðsins holdi klæddur.
Og allir munu skilja það sem Friðrik Ólafsson
hefur sagt i nafni Alþjóðaskáksambandsins að
,,það getur valdið óbætanlegum skaða fyrir FIDE
ef þetta mál verður ekki leyst. Ella get ég ekki
ábyrgst að heimsmeistaraeinvigið gangi áfalla-
laust fyrir sig”.
Nú vekur þetta tiltekna mál athygli vegna þess
að dáður skáksnillingur á i hlut. En það er þó ekki
beinlinis skákmaðurinn sem á i þessu striði. Það er
maðurinn, mannveran, Viktor Kortsnoj, sem á i
þessari baráttu og hann á óteljandi þjáningar-
bræður og þjáningarsystur bæði fyrr og siðar i
þessari mannréttindabaráttu. Þar eru margir og
margar sem engin nöfn hafa hlotið i heimsfréttum,
en eiga þó nákvæmlega sama rétt og þola ná-
kvæmlega sömu þjáningar.
Viktor Kortsnoj er ekki siður að berjast fyrir allt
þetta ónefnda fólk. Hann gerir strið þess lika að
sinu. Og þess vegna einnig ber öllum sem virða sið
og menningu, mannréttindi og mannhelgi, að taka
einum rómi undir kröfur hans.
Þðrarinn Þórarinsson:
Erlent yflrlit
Fór Suslov erindis-
leysu til Varsjár?
Mikilvægur fundur hefst i Varsjá i dag
i DAG kemur miðstjórn
Kommúnistaflokks Póllands
saman til fundar og verður þar
rætt um breytingar á reglum
flokksins við kjör fulltrúa á
flokksþing, en ráðgert er að
halda flokksþing i júlimánuði i
sumar.
Heyrzt hefur, að i undirbún-
ingi séu mjög róttækar breyt-
ingar á reglum flokksins. M.a.
hafi komið til orða, að kjör full-
trúanna verði leynilegt og að
öllum flokksmönnum verði
heimilt að vera i framboði.
Veröi slikar breytingar gerö-
ar yrði það eins konar bylting i
skipulagi kommúnistaflokk-
anna aústantjalds, en i raun eru
flokksþingsfulltrúar nú valdir af
flokksstjórninni, þótt kosningar
fari fram til málamynda i
flokksdeildunum.
Það hefur verið talið, að
valdamenn I Moskvu litu fram-
annefndar breytingar óhýru
auga, þar sem þess kynni m.a.
að verða krafizt, að þær yrðu
teknar upp viðar austantjalds,
ef Pólverjar riðu á vaðið.
Vegna þessa orðróms vakti
það aukna athygli,þegar sú frétt
barst frá Varsjá siðastliðinn
fimmtudag, að Michail Suslov,
hinn 78 ára gamli hugmynda-
fræöingur Kommúnistaflokks
Sovétrikjanna, hefði komið
þangað um morguninn og hafið
strax viðræður við Kania, leið-
toga pólska Kommúnistaflokks-
ins, og fleiri forustumenn hans.
Það vakti einnig sérstaka at-
hygli, að ásamt Kania tóku á
móti Suslov á flugvellinum
Olszowski og Grabshi, en þeir
eru taldir mestir harðlinumenn
imiðstjórn pólska kommúnista-
flokksins og Rússum þvi helzt
að skapi.
YFIRLGITT er talið, að við-
ræöur Suslovs og pólsku komm-
únistaleiðtoganna hafi snúizt
um fyrirhugaðar breytingar á
skipulagi og starfsháttum
pólska kommúnistaflokksins.
Af hinni sameiginlegu yfirlýs-
ingu, sem birt var eftir viðræð-
urnar, verður litið ráðið. Þar
segir, að m .a. hafi verið rætt um
undirbúning flokksþingsins og
samkomulag hafi verið um, að
nauðsynlegt væri að sameina öll
þjóðleg öfl um að tryggja sósial-
ismann og vinna gegn öllum
þeim öflum, sem reyna að grafa
grunninn undan hinu sósialiska
riki.
Þá segir, að Kania og Suslov
hafi báðir fordæmt tilraunir
heimsvaldasinna, sem vinni að
þvi aö auka spennuna i Póllandi,
m.a. með stuðningi við óvini
sóslalismans i landinu.
Margir fréttaskýrendur
Michail Suslov
draga þá ályktun af þessari
sameiginlegu yfirlýsingu, að
einhugur hafi ekki verið eins
mikill og látið er i veðri vaka og
erindi Suslovs til Varsjár hafi
ekki borið þann árangur, sem
valdhafarniri Kreml hafi ætlazt
til.
Suslov hélt heim strax daginn
eftir, þ.e. á föstudaginn. Næsta
dag eða á laugardaginn birti
Tass, fréttastofa Sovétrikjanna,
grein um endurskoðunarsinna,
sem starfi innan Kommúnista-
flokks Póllands og reyni að
spilla milli flokksstjórnarinnar
og flokksfélaganna. Mjög itar-
lega er varað við starfsemi
þeirra.
Af þessari grein Tass er m.a.
dregin sú ályktun, að Suslov,
hafi ekki haft erindi sem erfiði.
Það þykir einnig benda til
þess, að á laugardaginn hófust
viðræður milli pólsku rikis-
stjórnarinnar og fulltrúa óháðu
verkalýðssamtakanna, og náð-
ist samkomulag um þau ákvæði
sem rætt var um.
Sumir fréttaskýrendur telja
þetta merki þess, að Suslov hafi
veitt samþykki sitt til hinna
fyrirhuguðu breytinga á skipu-
lagi Kommúnistaflokks Pól-
lands og Rússar sætti sig þannig
við, að nýjar leiðir verði reynd-
ar i Póllandi.
MGÐAN Suslov dvaldi i Var-
sjá, gerðist sá atburður i Wash-
ington, að Reagan forseti lét til-
kynna, að hann hefði aflétt
banninu á kornsölu til Rúss-
lands, en Carter fyrirskipaði
það, þegar Rússar réðust með
her inn i Afganistan.
Reagan lofaði þvi i kosninga-
baráttunni að fella þetta bann
niður, þvi að það væri mest til ó-
hags bandariskum bændum.
Hann dró þó að framfylgja
þessu loforði eftir valdatöku
sina og var það talið stafa af
þvi, að hann vildi ekki afnema
það meðan rússnesk innrás
voföi yfir Póllandi.
Ýmsir fréttaskýrendur draga
þá ályktun af afnámi bannsins
nú, að Bandarikjastjórn telji
innrásarhættuna minni en áður.
Fyrir Rússa kann einnig að vera
örðugra að gripa til innrásar,
þegar Vesturveldin sýna, að þau
geti verið fús til slökunar, ef
Sovétmenn sýna hið sama.
Kania að taka á móti Suslov ó fimmtudaginn
JS