Tíminn - 27.05.1981, Síða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR FYLGJA BLAÐINU í DAG
í NÝJUM
BUNINGI
Miövikudagur 27. maí 1981
117. tölublað— 65. árgangur.
Hcstar og menn i Nauthólsvikinni I gær.
SKORflÐ A LÆKNA AÐ
HEFJfl STÖRF STRAX
gegn því að athugun fari fram á ýmsum þáttum starfskjara lækna
Rikisstjórnin hefur beint
þeim alvarlegu tilmælum til
lækna, að þeir láti ekki óánægju
með starfskjör tefla i tvisýnu
heilsu sjúklinga, en hefji störf
að nýju nú þegar. Lýsir rikis-
stjórnin sig reiðubúna til að láta
fara fram athugun á ýmsum
þáttum starfskjara lækna með
hliðsjón af kjörum annarra
launþega með þvi skilyrði að
þeir láti af aðgerðum sinum.
Samtök læknanna, Lækna-
þjónustan, sendi frá sér bréf i
gærmorgun þar sem segir, að
hún muni hætta söluþjónustu til
sjúkradeilda árdegis f dag verði
ekki farið að undirrita verk-
beiðnir án fyrirvara. Yfirlækn-
ar á Borgarspitalanum og
Landakotsspitala munu hafa
verið hættir að undirrita verk-
beiðnir með fyrirvara, i gær, en
i kjölfar þess lýsti rikisstjórnin
þvi yfir, að það breyti engu
hvort verkbeiðnir einstakra yf-
irlækna eða annarra stjórnenda
sjúkrahúsanna væru eða yrðu
undirritaðir með fyrirvara eða
ekki.
Tlmamynd: Róbert
llla farid
Holmes
- bts. 22
— bls. 24
Landbún-
aðarspjall
- bls. 9
Tongabúi
á Islandi
íbúðaleigu-
markaðurinn:
J Slæmt
ástand
- bls. 5
Verðhækkunin í USA hefur úrslitaáhrif um ákvörðun fiskverðs:
MINNKAR ÞRfSTING
A G E NGISBREYTING U
I ,,Þessi verðhækkun á fryst-
uni fiökum á Bandarikjamark-
aði i dag iéttir auðvitað dæmið
við ákvörðun fiskverðs og
minnkar þrýsting á gengis-
breytingu samfara henni”,
sagði Steingrimur Hermanns-
son, sjávarútvegsráðhe^ra, i
samtali við Timann i gær.
Láta mun nærri að fiskverðs-
hækkunin i Bandarikjunum
leysi þann vanda sem freðfisk-
deild Verðjöfnunarsjóðs sjávar-
útvegsins var komin i, en tölu-
vert meira var búið að greiða úr
henni en fyrir var I henni. Hins
. vegar bæta hækkanirnar ekki
afkomu frystingarinnar nema
til komi hækkun á viðmiðunar-
verði Veröjöfnunarsjóðs.
Fyrir freðfiskhækkunina taldi
Þjóðhagsstofnun að frystingin
værirekin með 2.5% halla. Eftir
hækkun telur stofnunin hins
vegar að hallinn á frystingunni
sé um 1.9% miðað við að ekkert
sér greitl úr Verðjöfnunarsjóði.
Skreiðar- og saltfiskverkunin
standa mun betur, og er hagn-
aður af þeirri framleiðslu. I
heildina er þvi fiskiðnaðurinn
rekinn með hagnaði.
Samkvæmt þessu er svigrúm
til einhverrar fiskverðshækkun-
ar, þegar á heildina er litið, hjá
fiskvinnslufyrirtækjunum. Ekki
er þó vist að það svigrúm hald-
istlengi, þar sem öll laun i land-
inu hækka um 8% um næstu
mánaðamót, og þar með allur
tilkostnaður fiskvinnslunnar.
Sjómenn munu krefjast 8% fisk-
verðshækkunar i samræmi við
þá hækkun sem landverkafólk
fær um næstu mánaðamót.
Yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins fundaði i gær-
dag um nýtt fiskverð. Engin
niðurstaða varð af þeim fundi,
en Ólafur Daviösson, forstöðu-
maður bjóöhagsstofnunar,
oddamaður nefndarinnar, sagð-
ist vona að nýtt fiskverö liti
dagsins ljós, öðru hvoru megin
við mánaðamótin.
Kás
Kvikmynda-
þátturinn: