Tíminn - 27.05.1981, Side 2
Miðvikudagur 27. mai, 1981
OLL ÞARFNAST
ÞAU UMHYGGJU
OG JlSTAR
■ í dýragörðum verða
oft hálfgerð vandræði
með ungviði það sem sér
dagsins ljós i búrum og
stium dýragarðsins. Þar
sem dýrin lifa i svo óeðli-
legu umhverfi, þá kemur
fyrir að þau vilja litið sem
ekkert skipta sér af af-
kvæmum sinum. Það var
t.d. reynslan með litla
giraffann sem Andrea
Bignell, dýragæslukona i
Marwelldýragarðinum á
Englandi, er að gefa að
drekka úr flösku.
Mamma hans vildi ekki
sjá hann, en þar sem
Andrea hefur að mestu
leyti hugsað um hann frá
fæðingu, þá iitur giraffinn
á hana sem móður sína og
er einhver ósköp hændur
að Andreu.
Svo sjáum við nokkrar
myndir af hvernig ung-
viðinu I öðrum enskum
dýragarði reiðir af. Þar
hafa orðið erfiðieikar
með uppeldið hjá flestum
nema hinni stoltu móður
sjimpansanum frú Prim-
rose. Hún var strax frá
fæðingu sonar sins hin
ástúðlegasta og um-
hyggjusamasta móðir, og
honum fer vel fram og
dafnar vel. Litli sjimp-
ansinn hefur fengið nafn-
ið Panco. Umsjónarmað-
ur apanna segir að
móðurástin sé þarna
óþægilega áköf, þvi að
erfitt er að fá að þrifa i
kringum þau mæginin,
eða skoða og mæla ung-
ann hennar Primrose.
Hún sleppir ekki af hon-
um hendinni nótt né dag.
—BSt
H Nú er giraffinn orðinn
það hár, að fósturmóðir
hans verður að nota stiga
til að gefa honum pelann.
H Litla munaðarlausa kaninan fékk gott athvarf hjá
hundinum Bamba, og þar villhún helst halda sig.
Tvíburar með
H Apamamman Primrose hugsar vel um Panco sinn.
aðeins tvo fætur
Litlu stúlkurnar, sem
eru bandariskar, urðu
óvenju illa úti. Þær hafa
aðeins eina mjaðmagrind
og 2 fætur. En þrátt fyrir
þennan alvarlega sköp-
unargalla, hafa foreldr-
arnir ekki misst alla von.
Þau elska glöðu dæturnar
sinar, bláu augun og lifs-
lyrsta forvitni þeirra. Þær
eru orðnar 7 mánaða
gamlar.
Tviburarnir voru teknir
með keisaraskurði, sem
tók 30 minútur. Það var
ekki vitað fyrir fæðing-
una, að þær væru sam-
vaxnar, en móðir þeirra
lét ekki hugfallast. Hún
tók litlu stúlkurnar i
arma sina og sagði blátt
áfram: — Guð mun
hjálpa okkur.
Nú leita foreldrarnir
logandi ljósi að skurð-
læknum, sem treysta sér
til að skilja systurnar
tvær að.
■ Þær eru kátar og bros-
mildar, gripa i það, sem
fyrir er, i kringum þær
eru alltaf uppstoppuð dýr.
En þessár litlu stúlkur
gera sér heldur ekki enn-
þá grein fyrir þvi, hvern-
ig er ástatt með þær. Frá
mjaðmagrind og niður
eru þær samvaxnar, si-
amskir tviburar. Náttúr-
an á þessa hrekki til.
H Foreldrarnir, Arlim
og Kim Beaver, giftust,
þegar hann var 19 ára og
hún ekki nema 14. Að von-
um varð það þeim mikið
þegar i Ijós kom að
Kim hafði alið siamska
tvibura. En þau hafa yfir-
unnið fyrsta höggið og
gera sér vonir um að báð-
ar stúlkurnar lifi af
skurðaðgerð, sem skilji
þær að.
H „Mér finnst ég vera amma iitlu púmakettlinganna,
þvi að ég hugsaði um móður þeirra, þegar hún var lftil,
en mamma hennar vildi ekkert af henni vita”, sagði
Rita Jones, sem er einn af eigendum dýragarðsins.
„Peeples, móðir kettlinganna , sem frú Rita heldur á,
cr hér að byrja að sleikja þá og vonandi verður sam-
búðin góð.