Tíminn - 27.05.1981, Síða 3

Tíminn - 27.05.1981, Síða 3
Miðvikudagur 27. mai, 1981 3 fréttir „Málafjöldinn hefur aldrei verid meiri” — segir Jón Helgason, forseti Sameinaðs alþingis, um þinghaldið f vetur ■ „Án þess að ég hafi athugað það nákvæmlega, þá held ég að þingsályktanir hafi aldrei verið fleiri heldur en nú. Fjöldi mála hefur aldrei verið meiri”, sagði Jón Helgason forseti Sameinaðs alþingis i samtali við Timann i gær. A 103. löggjafarþinginu, sem slitið var á mánudag, voru sam- tals 336 mál tekin til meðferðar. Alls voru 97 frumvörp samþykkt sem lög. Þá voru 47 þingsályktan- ir samþykktar, og 100 fyrirspurn- um var svarað. Ráðherrar lögðu fram 10 skýrslur. Fjöldi prentaðra þingskjala varð áður en yfir lauk 1978, og sagði Jón Helgason að aðeins árið 1944 hefðu þau orðið fleiri. „Það má segja að æskilegt hefði verið að fleiri mál hefðu leg- ið fyrir fyrr á þinginu, þannig að komist hefði verið hjá þeim önn- um sem varð siðustu dagana. En ég held að flest þau mál, sem menn óskuðu eftir að yrðu af- greidd, hafi fengið afgreiðslu. Við getum þvi verið bærilega ánægð með þingstörfin,” sagði Jón Helgason aö lokum. — JSG. ■ Flugleiðaþota. Skýrsla um áframhald Atlantshafsflugsins verður afhent á þriðjudaginn. Áframhald Atlantshafsflugs Flugleiða: Skýrsla afhent f Lux eftir helgi ■ Verulegar likur eru á að fram- hald Atlantshafsflugs Flugleiða ráðist i byrjun næstu viku, en þá skilar bandariskt ráðgjafafirma, sem kannað hefur hagkvæmni þess og rekstrargrundvöll, skýrslu sinni i Luxemborg. Samgönguráðherrar Islands og Luxemborgar og forráðamenn Flugleiða munu hittast nk. þriðjudag i Lux. Þar sem skýrslan verður kynnt þeim. Steingrimur Hermannsson, sam- gönguráðherra, sagði i samtali við Timann i gær, að hann saknaði þess að islenskir sér- fræðingar á sviði flugmála hefðu ekki verið hafðir með i ráðum við vinnu þessarar skýrslu, en bandariska ráðgjafafirmað hefði alfarið haft það verk með höndum.Hinsvegarsagðihann að engar upplýsingar hefðu borist um hver væri niðurstaða skýrsl- Aðalfundur Sambandsins í næstu viku: Stefnuskráin adalmál hans ■ Aðalfundur Sambands is- lenskra samvinnufélaga verður haldinn að Bifröst i Borgarfirði, dagana fjórða og fimmta júni næstkomandi. Rétt til fundarsetu eiga hundr- að og þrettán fulltrúar frá fjöru- tiu og fimm kaupfélögum, svo og stjórn og framkvæmdastjórar SIS og framkvæmdastjórar fyrir- tækja Sambandsins. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður tekin til umræðu á fundinum stefnuskrá Sambands islenskra samvinnufélaga, sem verið hefur i undirbúningi frá sið- asta aðalfundi. Verður stefnuskráin raunar aðalefni fundarins. Undanfarna 115 lóðum ■ 1 gær fór fram úthlutun á 115 lóðum i borgarráði. Hér var um að ræða úthlutun á þremur ein- býlishúsalóðum i Suðurhliðum, 60 raðhúsalóðum i Suðurhliðum, 42 raðhúsalóðum i Fossvogshverfi, og 10 raðhúsalóðum i Nýjum Mið- bæ II. áfanga. Þeir umsækjendur sem hlotið höfðu 90 stig fengu sjálfkrafa út- hlutun, en dregið var milli þeirra mánuði hafa kaupfélögin haft til skoðunar og umfjöllunar drög að stefnuskrá, sem unnin voru siðastliðið haust. Hafa mörg þeirra gert tillögur um viðbætur og breytingar frá þeim drögum, svo búast má við liflegri umfjöll- un á aðalfundinum. Vonast er til að stefnuskráin hljóti endanlega afgreiðslu á aðalfundinum, en ef svo verður ekki, mun stefnt að þvi að halda aukafund um hana siðar á árinu, þannig að hún geti orðið tilbúin til útgáfu á næsta ári, þegar Sam- bandið verður áttrætt og fyrsta kaupfélagið á landinu, Kaupfélag Þingeyinga, verður hundrað ára. — HV. úthlutað sem höfðu 88stig. Þeir voru sam- tals 123, en aðeins 53 löðir voru þá eftir til ráðstöfunar. Útdrætti var þannig háttað, að nöfn umsækjenda, sem jafnir voru að stigum, voru vélrituð á litla miða, þeir brotnir og settir i kassa. Borgarlögmaður stjórnaði útdrætti en skrifstofustjóri borg- arverkfræðings dró út nöfn. —Kás ■ Ýmsir urðu frá að hverfa, sem ætluðu að njóta sólarinnar i sund- laugunum i Laugardalnum i gær, en frá þvi á mánudag hafa laugarnar verið lokaðar vegna viðgerða. Þar er nú verið að kitta í holur og rifur sem komið hafa i laugarbakkana undan saltinu, sem á þá var stráð i vetur og þá er verið að mála pottana og dytta að ýmsu innan dyra og utan. Ragnar Steingrimsson, sund- laugarstjóri, sem við hittum i gær, þar sem hann var að fylgjast með framkvæmdunum, sagði að á góðum sólardegi kæmu stund- um allt að 3600 manns i laugina. 1 gær varð hins vegar að beina straumnum annað, og var mikil þröng i þeim laugum sem opnar voru. „Sjálfsagt segir fólk að nú höfum við ekki nennt að hafa op- ið, vegna góða veðursins,” sagði Ragnar. En þvi fór greinilega fjarri, þvi enginn sást i sólbaði i laugunum i gær, nema nokkrir smiðir, múrarar og málarar, sem höfðu brugðið sér úr að ofan við vinnu sina i steikjandi hitanum. 1 sundlaugunum i Laugardaln- um þurfa lika allir hlutir að vera i góðu lagi, þvi kröfur til góðrar þrifnaðaraðstöðu eru strangar. Tildæmisþarf að dælai gegn um hreinsivirki sundlauganna þeim 2200 tonnum af vatni sem i þeim eru, þrivegis á hverjum sólar- hring! Skemmdir vegna alkalivirkni i steinsteypu hafa komið fram i ■ Stúlka á sjöunda ári varð fyrir bfl, þar sem hún var að leika sér á reiðhjóli á Hjallabraut i Hafnar- firði i gær. Var bifreiðin að aka austur veginn, þegar litla stúlkan ætlaði að sveigja yfir götuna og lenti fyrir henni miðri. Meiddist hún nokkuð á höfði en ekki alvar- legar en svo að hún fékk að fara sundlaugunum og við spurðum Ragnar hvernig gengið hefði að ráða bót á þeim. Sagði hann að þvi miður hefði það ekki gengið nógu vel og um þessar mundir hafa staðið yfir tilraunir til þess að komast fyrir skemmdirnar með nýju epoxylakki, sem notað hefur verið á veggi i stúkunni. Þetta er þriðja árið i röð, sem reynt er að komast fyrir skemmdirnar, sem alltaf vilja taka sig upp aftur. — AM heim að athugun lokinni. Jóhannes Jónsson, rannsóknar- lögreglumaður i Hafnarfirði, sagði að þvi miður væri svo að sjá sem börnum væru fengin reiðhjól of snemma i hendur oft á tiðum og að ekki væri nægt eftirlit haft með ferðum þeirra. — AM Telpa fyrir bfl BÆNDUR RZ.SLÁTTUÞYRUJRNAR KOMNAR 2 STÆRÐIR VINNSLUBREIDD 135og165sm Margra ára reynsla tryggir gæðin. Mestselda sláttuþyrlan í áraraðir. Fullkomin varahlutaþjónusta. ^sVÉIADEILD CAMRANM SAMBANDSINS Ármúla 3 Reykjavik S. 38 900 (HALLAPMl l{.AMEGIN)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.