Tíminn - 27.05.1981, Síða 8
8
utgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur
Gislason. Skri fstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sig-
urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson. Elias Snæland Jóns-
son. Jón Helgason. Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Olafsson.
Frettastjóri: Páll Magnússon. Umsónarmaður Helgar-Tímans: lllugi Jökuls-
son. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir. Atli Magnússon. Bjarghildur Stefáns-
dóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason. Friða Björnsdóttir (Heimilis-Tim-
inn). Heiður Helgadóttir, Jónas Guömundsson (þingfréttir), Jónas Guð-
mundsson, Kjartan Jónasson. Kristinn Hallgrimsson (borgarmál), Kristin
Leifsdóttir. Ragnar Orn Pétursson (iþróttir). útlitsteiknun: Gunnar Trausti
Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson. Guðjón Róbert Agústsson.
Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þor-
bjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir.
Ritstjórn. skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300.
Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausasölu 4.00 .
Áskriftargjaldá mánuði: kr. 70.00— Prentun: Blaðaprent h.f. •
11^11)101111111$. Miövikudagur 27. maí, 1981
á vettvangi dagsins' ZZZI
Hver er munurinn
á innflutningi
togara og sófasetta?
eftir Heiði Helgadóttur, blaðamann
Árangur
stjórnarstefnunnar
■ Nýlokið þing einkenndist af miklu málþófi og
pappirsflóði. Það verður ekki haft af stjórnar-
andstöðunni, að hún sýndi mikinn dugnað á sviði
málæðis og skriffinnsku. En þá er lika hlutur
hennar allur tiundaður.
En hver voru þá afrek rikisstjórnarinnar? Það
er eðlilegt að spurt verði á þá leið.
Fyrst ber þá að nefna efnahagsmálin. Þau eru
nú mál málanna. Nokkur lög voru sett á nýloknu
Alþingi, sem fjölluðu um efnahagsaðgerðir. Flest
bendir nú til, að það markmið rikisstjórnarinnar
muni nást að koma verðbólgunni niður i 40% á
þessu ári. Miðað við allar aðstæður væri það góð-
ur árangur niðurtalningarstefnunnar.
í öðru lagi ber að nefna afgreiðslu fjárlaganna,
sem mótaðist af þeirri stefnumörkun, sem sett
var i fjármálaráðherratið Tómasar Árnasonar,
að þau væru tekjuhallalaus og ekki safnað skuld-
um hjá Seðlabankanum. Þetta tókst að mestu á
árunum 1979 og 1980.
1 þriðja lagi má telja það, að stjórn peninga-
mála hefur verið hagað á þann veg undir forustu
Tómasar Árnasonar, að sparifjársöfnun hefur
haldið áfram að aukast og að hægt mun verða að
lækka vexti innan tiðar i trausti þess að niður-
talning beri árangur.
í fjórða lagi er þess að geta, að niðurtalning-
unni hefur verið hagað með þeim hætti, að ekki
hefur dregið úr atvinnu, en viða annars staðar
hafa ráðstafanir til að draga úr verðbólgu leitt til
verulegs atvinnuleysis. Island er nú eitt fárra
landa i heiminum, þar sem atvinna er næg.
í fimmta lagi ber að nefna, að við allar aðgerðir
i efnahagsmálum hefur verið höfð hliðsjón af þvi,
að kaupmáttur launa héldist sem stöðugastur, en
viðast um heiminn hefur dregið úr kaupmætti
launa að undanförnu.
1 sjötta lagi má telja þann árangur, sem hefur
náðst á sviði atvinnumála. Landbúnaðarstefnan,
sem Steingrimur Hermannsson mótaði, meðan
hann fór með landbúnaðarmálin, hefur borið
þann árangur, að offramleiðsla landbúnaðarvara
er úr sögunni og skapar það landbúnaðinum
traustari grundvöll en áður, jafnframt eflingu
nýrra búgreina. Þá hefur skipulag fiskveiða verið
bætt á ýmsan hátt undir forustu Steingrims Her-
mannssonar sem sjávarútvegsráðherra og eru
góðar horfur á, að friðunaraðgerðir beri þann
árangur, að fiskveiðar geti verulega aukist á
komandi árum.
1 sjöunda lagi má telja, að haldið hafi verið uppi
miklum orkuframkvæmdum og að samþykkt var
á nýloknu þingi löggjöf um meiri orkufram-
kvæmdir en áður er dæmi um. Með þvi er lagður
grundvöllur að stórauknum iðnaði.
Þannig mætti halda þessari upptalningu
áfram, t.d. miklar framkvæmdir i samgöngu-
málum. Þá má ekki gleyma utanrikismálunum,
þar sem fylgt hefur verið óbreyttri stefnu i
varnarmálum og samkomulag hefur náðst við
Norðmenn um Jan Mayen-málið á þann hátt, að
það mun siðar verða öðrum þjóðum til fyrir-
myndar.
Þ.Þ.
■ Sjálfsagt finnst mörg-
um fyrirsögnin fáran-
leg, en þó er það nú svo,
að ýmsar hliðar eru á
herju máli.
Samkvæmt innflutn-
ingsskýrslum voru á ár-
inu 1980 flutt til landsins
húsgögn og innréttingar
fyrir um 7.5 milljarða
gkr. cif. verð miðað við
þáverandi meðalgengi.
IYliðað við núverandi
gengi þýddi sami inn-
flutningur um 10
milljarða gkr. Fáum
virðist hafa fundist
nokkuð athugavert við
þetta, nema þá hús-
gaganasmiðum þeim
sem misst hafa vinnuna
eða óttast að missa
hana.
Aftur á móti kæmi liklega ann-
að hljóð i strokkinn ef einhver
vogaði sér að fara að ræða um að
kaupa i ár togara erlendis fyrir
þessa sömu upphæð, sem lætur þó
nærri að duga fyrir svo sem þrem
„Þórshafnartogurum ”.
Togarakaup hneyksli
Vegna kaupa á einum slikum
hafa þingmenn og ráðherrar
skammast og verið skammaðir
mánuðum saman. Ótal fundir
verið haldnir i helstu stofnunum
þjóðarinnar. Hvað eftir annað
verið gripið til striðsleturs i blöð-
um, þar sem hundruð dálksenti-
metra hafa verið skrifaðir af
vandlætingu, vegna kaupanna
og efnt til sjónvarpsþátta og út-
varpsviðtala. Jafnvel hefur legið
við brestum i rikisstjórnum. Ótal
stjórnir stofnana og félaga hafa
komið saman og samþykkt harð-
oröar ályktanir þar sem m.a. er
lögð áhersla á að allir okkar tog-
arar verði smiðaðir innanlands
vegna atvinnusjónarmiða og það
jafnvel talið hagkvæmt þótt þeir
verði kannski allt að 30—50% dýr-
ari en erlend skip. Allt á það að
borga sig vegna atvinnusjónar-
miðanna og ekki má gleyma að
islenskir smiðir borga skatta til
rikis og bæjarfélaga.
En af hverju hefur þá enginn
skammað neinn og litið verið
skrifað um atvinnusjónarmiðin —
nema smávegis af smiðunum
sjálfum — þegar fluttir eru til
landsins stólar og sófasett fyrir
u.þ.b. eitt togaraverð á ári, hillur
og skápar fyrir um hálft togara-
verð og hjónarúm fyrir um hálfan
milljarö gkr. svo nokkuð sé nefnt.
Eru islensk húsgögn svona léleg
eða ljót? Eru þau svo miklu dýr-
ari? Eða er það kannski gamla
sagan um að sjá flisina i auga
bróöurins en ekki bjálkann i eig-
in auga. Húsgögn kaupum við
nefnilega flest og látum okkur þá
hafa það að gleyma atvinnusjón-
armiðum og blessuðum þjóðar-
hagnum vegna unaðarins sem
það veitir að sitja i sænskum sófa
og svifa inn i draumalandið i
dönsku rúmi. En togarakaupend-
ur og þeir sem um þau mál fjalla
eru svo fáir og þvi auðvelt að ná
til þeirra til að skamma þá.
500 erlendir húsgagna-
smiðir í vinnu hjá okkur
Starfandi húsgagnasmiðir hér-
lendis eru nú um 500 talsins og
hefur að sjálfsögðu sifellt verið að
fækka i kjölfar aukins húsgagna-
innflutnings. Nærri lætur að inn-
fluttu húsgögnin séu um helming-
ur af seldum húsgögnum hér á
landi. Þvi litur út fyrir aö við i
góðsemi okkar, hégómaleika eða
einhverju ennþá háleitara mark-
miði höfum i vinnu um 500 er-
lenda húsgagnasmiði — flesta á
hinum Norðurlöndunum — við að
mennSngarmál
■ Fra sýningu Katrinar H. Agústsdóttur aö Kjarvalsstöðum.
Kjarvalsstaðir
Katrin H. Ágústsdóttir
Batik/myndlist
16.-31. mai 1980
Einkasýning
Batik — aðflutt myndlist
■ Það er dálitið sérkennileg upp-
lifun að koma á Kjarvalsstaði
þessa dagana, þvi þar sýna, auk
annars, tvær listakonur er hafa
upp á að bjóða list, sem ekki er til
i fornmenningu okkar og upp-
runavitund, en það er leirlista-
sýning Steinunnar Marteinsdótt-
ur og batiksýning Katrinar H.
Ágústsdóttur.
Fornmenn höfðu glutrað niður
allri kunnáttu i leirmunagerð, áð-
ur en þeir fluttust i sósialinn, eða
stjórnleysið á Islandi, höfðu týnt
kunnáttu sinni i heimalöndunum,
Noröurlöndum, áður en þeir undu
upp segl til Islandsferðar.
Um batik gegnir öðru máli. Þar
er hreinlega verið að móta i is-
lenskt, eða evrópskt form litunar-
aðferö, er fundin var upp á Jövu
Batik
fyrir um þaö bil 3000 árum. Koma
henni i sauðájiti, i islenskt um-
hverfi og gera hana hluta af vit-
und okkar og munaði.
Orðið batik, þýðir á slæmri is-
iensku „vaxprent”. Blanda af
parafinoliu og býfluguvaxi er
borin á fleti er mynda „bak-
grunn”, en siöan er myndin lituð.
Vaxið er siðan afmáð með
bensini.eða meö hita. Efnafræöin
meinar sem sé aðgang að einum
fleti en ekki öðrum. Og það sem
gerir batikmyndir oft svo heill-
andi, er að vaxið brotnar og brot-
mynstrin birtast i „auðum”
grunni.
Aherslum og nýrri teikningu er
siöan náð, ásamt með litbrigðum,
og með siendurteknum böðum og
vaxáburöi.
Hin þjóðiega batik
Katrinar
Katrln H. AgúStsdóttir reynir
að gjöra batik sina þjóölega,
a.m.k. i minjagripalegu sam-
hengi. Hennar batik er i sauða-
litunum og sérislensk mótif eru
notuð.
Þetta fellur ekki ávallt að
angurværð Indlandshafsins og
Jövu, þvi aðferðin aðlagast svo
misjafnlega. Sami Tekst Katrinu
þetta býsna vel á stundum, og
sterkt formskyn hennar veldur
þar mestu.
Þó hygg ég aö aðrar leiðir yröu
henni greiðfærari i þessari grein,
að leyfa efninu eða tækninni njóta
sin betur i frjálsu spili lita og
forma. Þessa möguleika greinum
við i einstöku mynd.
Um dugnað frúarinnar efast
enginn, en háspennuvirar njóta