Tíminn - 27.05.1981, Síða 10

Tíminn - 27.05.1981, Síða 10
Miðvikudagur 27. mai, 1981 10 heimilistíminn Breska eldvarnareftirlitid spyr: Situr þú á eldsprengju? ■ Hér á landi hefur verið bann- að að nota einangrunarplast i hús, hvort sem er í þök eða ann- ars staðar, þar sem eldur getur náð til þess. Sé piastið notað, verðurað vera þannig um hnút- ana búið, að eldur komist ekki að þvi, að sögn Þóris Ililmars- sonar brunamálastjóra. Hann tjáði Heimilis-TImanum, að senn yrði hafizt handa um und- irbúningu lagasetningar varð- andi fram leiðsluhætti hús- gagna, þar sem nt.a. er notaður svampur. Slik lög hafa verið sett I Englandi og tóku þau gildi i janúar s.l. að hluta til en eiga að hafa tekið gildi til fullnustu árið 1982. Bretareru mjög áhyggjufullir út af þvi, að þar i landi láta stöð- ugt fleiri lifið af völdum elds- voða, og þá ekki vegna bruna- sára heldur frekar vegna gas- tegunda, sem leysast úr læðingi, þegar t.d. húsgögn sem bólstruð eru með svampi úr ákveðnum gerviefnum, brenna. Blaða- grein, sem nýlega birtist i ensku blaði hófst á þessum orðum: Situr þú á eldsprengju? Var þar átt við stólinn eða sófann á heimilinu, sem ef til vill er bólstraður með þessum hættu- legu efnum. 1 brunanum mikla i Dublin á trlandi i febrúar siðastliðinn létu 47 ungmenni lifið i diskótek- inu, eftir aðeldur hafði læst sig i svamphúsgögn og loftklæðning- ar. Fyrir tveimur árum fórust 10 manns i bruna i Manchester, þegar kviknaði i svamp- bólstruðum húsgögnum i Wool- worths-verzlun þar. Það voru ekki eldtungurnar, sem ollu dauða þessa fólks held- ur eiturgufurnar, sem stigu upp af húsgögnunum. Vilja banna notkun svamps i húsgögn Nú er svo komið, að Ron Brown þingmaður Verka- mannaflokksins i Hackney og Shoreditch í Englandi hefur krafizt þess, að bönnuð verði notkun svamps i húsgögnum. Hann segir i blaðagreininni, að á 30 sekúndum myndist 650 stiga hiti á Celcius, þegar kviknar i húsgögnunum, sem hér um ræð- ir. Þá myndast blásýrugufa (hydrogen cyanide) og þykkur svartur reykur. Svampurinn springur, að sögn Browns og eldurinn breiðist út á örskots- stund. Þar með lokast allar út- gönguleiðir. Fórnarlömbin anda að sér eiturgufunum og ofsa- heitu gasi og lungun brenna. Polystyrene-loftklæðning hef- ur þegar verið bönnuð á al- mennum skemmtistöðum, nema þvi aðeins hún sé undir múrhúðun, eða hafi verið úðuð með eldvarnarefnum. A stöku einkaheimilum er enn hægt að finna þessa tegund loft- klæðningar. HUn er mjög eld- fim, og það sem verra er hún bráðnar og lekur niður á hús- gögn, sem eru undir henni, og eldur kviknar um leið. Einnig veldur þessi bráðnun hættuleg- um brunasárum. t skýrslum brezka innanrikis- ráðuneytisins kemur fram, að gas eða gufur og reykur, frá brennandi húsgögnum hafa valdið fleiri dauðsföllum undan- farin ár en áður. Arið 1969 lést 861 i eldi i Bret- landi. Þar af dóu 343 af bruna en 468 vegna eiturgufanna og reyksins. Dauðsföllunum fjölgar Arið 1979 dóu 1096 manns i eldi — 293 af brunasárum, en 503 af völdum eiturgufa og reyks. Mest af þeim svampi, sem notaður er i húsgögn er búinn til úr oliuuppistöðu, sem geysileg- ur hiti stafar af við bruna. Einn- ig myndast banvænar gufur á örfáum minútum. Yfirvöld halda þvi fram, að fólk ætti að gera sér ljóst, að svampurinn getur verið jafn eldfimur og þá um leið hættu- legur og sprengiefni og oliur. — Það þýðir að ílestir sitja hrein- lega á eldsprengju heima hjá sér, segir talsmaður öryggiseft- irlits i Bretlandi. Eftir eldsvoðann i Manchest- er hafa verið settar strangar reglur um, að öll húsgögn, sem i er polyurethanesvampur, verði að merkja sérstaklega fólki til viðvörunar, og þar á að standa að gáleysileg meðferð sigaretta og eldspýtna geti valdið i kveikju. 1 blaðinu segir, að i Skandi- naviu og I Bandarikjunum sé bannað að nota þetta efni i hús- gögn nema það hafi verið sér- staklega meðhöndlað svo það verði ekki eins eldfimt. 1 Eng- landi er talið of kostnaðarsamt að banna notkun þess i hús- gagnaframleiðslu. Húsgögn yrðu þá allt of dýr, að þvi er sagt er. ÍEnglandi er hægt að fá Uðað yfir svamphúsgögn ákveðnu efni, sem kemur i veg fyrir skyndiikveikju. Er talið að ein- mitt það hafi komið i veg fyrir fjöldadauða á barnaheimili i Kingstrandin i Birmingham ár- ið 1979. Þar hafði efninu verið úðað yfir svamphúsgögn, og i langan tima hafði eldur verið að búa um sig i sófa, þar sem siga- retta hafði verið skilin eftir, áð- ur en eldurinn náði sér verulega á strik. 1 London varar eldvarnareft- irlitið fólk við notkun svamp- fylltra húsgagna og teppa með svampundirleggi. Gætið vel að sigarettum. Ef kviknar i skuluð þið ekki reyna að ráða niðurlögum elds- ins. Flýtið ykkur út, vegna þess að þið hafið aðeins fáar sekúnd- ur til umráöa. Farið aldrei inn i logandi hús til þess að ná i eitthvað sem gleymdist. Þið eigið ekki þaðan afturkvæmt. Þfb ORSAKI R DAUÐA I ELDI I BRETLANDI , 196? TlL 1979 600-v ___ BB Bruniog brunasár 500- 200- DauSi af völdum gas og reyks o! >- ¥ ui o o u. o o h* ~I 75 Hátidasalat og súkkulaðiterta ■ Aleggspylsur er hægt að fá á kynningarverði alltaf af og til að minnsta kosti, og kaupi maður pylsurnar i stykkjum en ekki niður- skornar i lofttæmdum umbúðum, eru þær seldar með 10% afslætti eins og við sögðum frá hér á siðunni. Nú ætlum við að birta uppskrift að há- tiðasalati, sem ekki er borið fram með mat heldur eitt sér, og i þvi eru smábitar af alls konar pylsum. Hvernig væri að notfæra sér kynningar- verðið, eða bitaafsláttinn og fá sér lettan hádegisverð sem aðallega er úr grænmeti, en auk þess úr pylsum og osti. Hátiðasalat handa sex 250 grömm af skinku eða tungu, 300 grömm af einhverri annarri reyktri pylsu, til dæmis spægi- pylsu, 300 grömm af osti. (Nú er alltaf að fjölga osttegundunum, bæði Búri og Króksostur eru nýir og afbragðsgóðir.) Hálf agúrka, 1 avocado-ávöxtur, cf hann er fáanlegur, hálft isbergshöfuð, 1 pakki af djúpfrystu blönduðu grænmeti, t.d. baunum og mais. Allt eins vel má fá sér smádós af baunum og aðra af maiskorni og hella bara soðinu af áður en þessu er hlandað saman við salatið. 600 grömm af papriku 1/2 til ein nið- urskorin púrra. Með salatinu er gott að bera fram sósur og hér eru tvær hug- myndir. Rjómasósa 3 dl rjómi, þreyttur, 1/2 dl chillisósa, koniak, ef vill. Edikssósa 3 msk eplaedik, 1 dl matarolia, 2 tsk italskt salatkrydd, 1 rif úr hvitlauk, smátt skorið. Nú er komið að þvi að búa til salatið sjálft. Skerið skinkuna og það annað, sem i það á að fara niður i teninga. Skerið isbergs- salatið niður i strimla. Látið djúpfrysta grænmetið, eí þið not- ið það, þiðna. Blandið nú öllu saman i stóra skál. Búið til sósurnar. Bezt er að láta bæði salatið og sósurnar standa á köldum stað i nokkra stund, áður en þið berið það fram. Berið það fram með volgu snittubrauði, sem skorið hefur verið niður i hæfilega stóra bita. Gott er að drekka öl með þessum rétti, og krakkarnir geta fengið gosflösku, ef mikið á að hafa við. Súkkulaðiterta á eftir Ef einhver er svangur, þegar hann er búinn að borða þetta fyrirmyndarsalat getið þið gefið honum smá súkkulaðitertubita á eftir. í tertuna þarf 3 egg, 1 1/2 dl sykur, 1 dl kartöflumjöl, 1 tsk lyftiduft, 2 msk kakó. Fylling og skreyting 250 grömm af dökku súkkulaði, 2 msk kaffiduft (frystiþurrkað), 1 msk vatn, 3 eggjarauður, 4 dl rjómi, 1 dl saxaðar hnetur. Stillið ofninn á 250 stig, áður en þiðbyrjiðaðhræra tertuna. Setjið smjörpappir innan i aflangt form, 30x40 cm að stærð. Þeytið nú eggin og sykurinn. Setjið kartöflumjölið út i og einn- ig lyftiduftið og kakóið. Hrærið vel saman. Bakið kökuna i miðj- um ofninum i ca. 5 minutur. Stráið nú sykri yfir kökuna og takið hana úr forminu, en látið hana standa og kólna á smjör- pappirnum. Bræðið súkkulaðið yfir vatni, leysið kaffið upp i vatni og þeytið það saman við eggjarauðurnar. Hrærið eggjablöndunni út i bráðið súkkulaðið. Þeytið rjómann. Blandið rjómanum saman við súkkulaðiblönduna og hrærið vel saman. Kakan ætti að vera orðin köld, svo þið megið taka hana og skera hana i þrjá jafna parta. Leggið þá saman með súkku- laði á milli og einnig er súkkulaði látið ofan á kökuna. Stráið hnet- unum yfir. Bezt er kakan, ef hún hefur fengið að standa á köldum stað næturlangt, áður en hún er borðuð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.