Tíminn - 27.05.1981, Qupperneq 18
22
íML
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Nemanda-
sýning List-
dansskóla
Þjóðleikhúss-
ins
Frumsýning i
kvöld kl. 20
2. og siöari sýning
uppstigningardag
kl. 15. Ath. Sér-
stakt barnaverð á
siðari sýninguna.
Gustur
5. sýning upp-
stigningardag kl.
20
6. sýning föstudag
kl. 20
7. sýning sunnudag
kl. 20
Sölumaður
deyr
laugardag kl. 20
Þrjár sýningar
eftir.
La Boheme
þriðjudag kl. 20.
Miðasala 13.15 —
20.
Simi 1-1200.
Fame
Ný bandarisk
MGM-kvikmynd
um unglinga i leit
að frægð og frama
á listabrautinni.
Leikstjóri: Alan
Parker: (Bugsy
Malone)
Myndin hlaut i vor
2 ,,Oscar”-verð-
laun fyrir bestu
tónlistina.
Sýnd kl. 5, 7.15 og
9.30.
Hækkað verð.
eHASKDUBIDi
2S“ 2-21-40
Konan sem
hvarf
Had she vantshed LA
nthinaii
OrwasslK'
neverreallythwv' , < '
/v
il&>
harla spaugi-
á köflum og
n d u m æ r i ð
nnandi” SKJ
ir.
menn geta haft
a skemmtan
AÞ Helgar-
turinn.
d kl. 5, 7 og 9.
Vitnið
L\f
Ll
Splunkuný, (mars
’81) dularfull og
æsispennandi
mynd frá Century
Fox, gerð af leik-
stjóranum Peter
Yates.
Aðalhlutverk:
Sigourney Weaver
(úr Alien) Wiliiam
Hurt (úr Altered
States) ásamt
Christopher
Plummer og Jam-
es Woods.
Mynd með gifur-
legri spennu i
Hitchock stil. —
Rex Reed, N.Y.
Daily News.
Bönnuð börnum
innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slmsvari sími 32075.
Táningur í
ei nkatímum
Svefnherbergið er
skemmtileg skóla-
stofa... þegar
st jarnan úr Emm-
anuelle myndunum
er kennarinn.
Ný bráðskemmti-
leg hæfilega djörf
bandarisk gaman-
mynd, mynd fyrir
fólk á öllum aldri,
þvi hver man ekki
fyrstu „reynsl-
una”.
Aðalhlutverk: Syl-
via Kristel, How-
ard Hesseman og
Eric Brown.
íslenskur texti.
Sýnd kl.5 - 7 og 9.
Bönnuð innan 12
ára.
Eyjan
Sýnd kl.ll
Bönnuð innan 16
ára.
lonabíó
S 3-1 1 82
Lestarránið
mikla
Ekki siðan „THE
Sting” hefur verið
gerð kvikmynd,
sem sameinar svo
skemmtilega af-
brot, hina djöful-
legu og hrifandi
þorpara, sem
framkvæma það,
hressilega tónlist
og stilhreinan kar-
akterleik.
NBCT.V.
Unun fyrir augu og
eyru.
B.T.
Leikstjóri: Michael
Crichton.
Aðalhlutverk: Sean
Connery
Donald Sutherland
Lesley-AnneDown
Islenskur texti.
Sýnd kl.5, 7.10 og
9.15.
Myndin er tekin
upp i Dolby sýnd i
EPRAT sterió.
Sýnd kl. 5, 7.15 og
9.20
Síðustu sýningar.
a* 1-13-84
Vændiskvenna
morðinginn
(M urder by
Decree)
Hörkuspennandi
og vel leikin, ný
ensk-bandarisk
stórmynd I litum.
| Aðalhlutverk:
Christopher
| Plummer
JamesMason
Donald Sutherland
Íslenskur texti
Bönnuð börnum
innan 16 ára
Sýnd kl.5, 7, 9 og 11
SMtOJUVEGI I. KOI> SIMI AUðO
Lokað
vegna
breytinga
S 1 89 36
Kramer
Kramer
vs.
tslenskur texti
Heimsfræg ný
ameri'sk verð-
launakvikmynd
sem hlaut fimm
öscarsverðlaun
1980
Besta mynd ársins
Besti leikari Dust-
in Hoffman
Besta aukahlutverk
Meryl Streep
Sýnd kl.5, 7 og 9
Hækkað verð.
| Siðustu sýningar
Við skulum
kála stelpunni
| Bráðskemmtileg
bandarisk gaman-
| mynd með Jack
Nicholson.
Sýnd kl.ll.
íGNBOGII
Cf 19 OOO
Salur A
Convoy
S'
>01111 M SHfBMAH
All
KRISIDFÍERSON MacGRAW
Hin afar vinsæla,
spennandi og bráð-
skemmtilega gam-
anmynd, mynd
sem allir hafa
gaman af.
KRIS KRISTOF-
FERSON - ALI
MacGRAW
lslenskur texti
Sýnd kl.3 - 5 - 7 - 9
og 11,10
SalurB
Punktur,
punktur,
komma strik.
PUNKTUR
PUNKTUR
K0MMA
STRIK
kl. 3,05-5,05-7,05-
9,05-11,05
Salur C
THC
ELEPHAMT
MAM
Fflamaðurinn
Hin frábæra, hug-
ljúfa mynd, 10.
sýningarvika
Sýnd kl. 3.10 6.10
og 9.10
Salur D
IDI AMIN
RlSEAíJDFALLOI
Sdiami
Hörkuspennandi
litmynd, um hinn
blóði drifna valda-
feril svarta ein-
ræðisherrans.
Islenskur texti
Bönnuð 16 ára
Sýnd kl.3,15 - 5,15 -
7,15 - 9,15 - 11,15
(•
i
' - - -t » > \ i i’ \ ( V
Miðvikudagur 27. mai, 1981
kvikmyndir
■ Félagarnir dr. Watson (James Mason) og Sherlock Holmes
(Christopher Plummer) ræða um morðin i Whitechapel.
Sherlock Holmes
sviptir hulunni af
„Jack the Ripper”1
Vændiskvennamorðinginn (Murder by degree)
Sýningarstaður: Austurbæjarbió
Leikstjóri: Bob Ciark.
Aðalhlutverk: Christopher Plummer (Sherlock Holmes), Jaines
Mason (Dr. Watson), David Hemmings (Foxborough lögreglu-
foringi), Anthony Qualy (Sir Charles Warren), Genevieve Bujoid
(Annie Crook), Susan Clark (Mary Kelly), Donald Sutherland
(Robert Lees).
Handrit: John Hopkins.
Framleiðendur: Réne Dupond og Bob Clark.
■ Söguþráður: — Hryllileg morð eru framin i Whitechapel-
hverfinu i London um aldamótin. Vændiskonur eru myrtar og
limlestar. Lögreglan er ráðþrota. Fulltrúar kaupmanna I hverf-
inu leita hjálpar hjá einkaspæjaranum Sherlock Holmes, sem
kannar málið ásamt félaga sinum, dr. Watson. Þrátt fyrir and-
stöðu Scotland Yard. Hann kemst brátt á rétta slóð, afhjúpar
morðingjana og þá, sem að baki þeim standa, og er þá komið inn
á æðstu staði i Bretaveldi. Holmes lofar breskum ráðamönnum i
lokin þögn sinni i málinu gegn vissum skilyrðum.
Margir hafa velt fyrir sér
Whitechapel-morðunum i
London sem framin voru um
siðustu aldamót. Þau voru
kennd við „Jack the Ripper”
en hver eða hverjir voru þar
að verki hefur aldrei verið
upplýst. Þó vantar ekki kenn-
ingar, og ritaðar hafa verið
bækur, þar sem nafngreindir
menn jafnvel breskur prins,
hafa verið sakaðir um morðin.
Þar sem engar sannanir liggja
fyrirhlýtur allt slikt að kallast
tilgátur.
Þessi kvikmynd byggir
augsýnilega að verulegu leyti
á bók eftir Stephen Knight er
nefnist „Jack the Ripper: The
Final Solution”. Þessi bók
kom út árið 1976 og var mjög
umtöluð. Þar er þvi haldið
fram, að orsaka morðanna sé
að leita i spillingu á æðstu
stöðum, og samsæri, þar sem
við sögu koma æðstu stjórn-
málamenn landsins, aðilar i
bresku konungsfjölskyldunni
og svo frimúrarar sem eru
mjög áberandi i kvikmyndinni
„Vændiskvennamorðinginn”
og reyndar potturinn og
pannan i þvi samsæri, sem
Sherlock Holmes er látinn af-
hjúpa.
Ekki er ástæða til að lýsa
þeim söguþræði nánar hér til
þess að draga ekki úr ánægju
þeirra, sem eftir eiga að sjá
myndina, en að sjálfsögðu
verður stundum harla litið úr
spennu myndarinnar fyrir þá,
sem lesið hafa þessar
samsærisbókmenntir og vita
þvi nokkurn veginn söguþráð-
inn fyrirfram.
Kostir myndarinnar eru
fyrst og fremst þeir hversu
sviðsmyndin er vel heppnuð,
og hvað Reginald Morris, sem
annaðist kvikmyndatökuna
tekst að nýta þessa mögnuðu
sviðsmynd til hins itrasta.
Hann skapar oft verulega
spennu á þröngum illa upp-
lýstum og þokufylltum öng-
strætum Whitechapel-hverfis-
ins.
Hinsvegar er það misráðið
að minu áliti að flækja Sher-
lock Holmes inn i þessi
vændiskvennamorð með þeim
hætti sem gert er. Og ekki
bætir úr skák hvernig
Christopher Plummer fer með
hlutverk spæjarans snjalla. Sá
Holmes, sem birtist I þessari
mynd, er nefnilega ekki einu
sinni fjarskyldur ættingi hins
eina og sanna Sherlocks, sem
Conan Doyle gerði ódauðlegan
og sem Basil Rathbone lék svo
vel á hvita tjaldinu á sinum
tima.
1 meðförum Plummers
verður Holmes oft að sjálf-
birgingslegum kjána, sem lit-
ið þarf að aðhafast, og enn
minna að hugsa, til þess að
leysa málin. Og svo eyðir hann
löngum tima i lokin i að út-
skýra það, sem áhorfendur
vita þegar að mestu leyti.
En þótt illa sé farið með
þessa gömlu kempu, þá verð-
ur það sama ekki sagt um dr.
Watson, þvi James Mason
gerir honum frábærlega góð
skil. ,
Þótt mér sem aðdáanda
Sherlock Holmes þyki hlutur
hans ekki góður i „Vændis-
kvennamorðingjanum”, þá er
myndin engu að siður ýmsum
kostum búin, sem áður segir,
og vel einnar kvöldstundar
virði.
Elias Snæland Jónsson.
Vændiskvennamorðinginn ★ ★
Eyjan *
Konan sem hvarf ★ ★
Kramer gegn Kramer ★ ★ ★ ★
Lestarránið mikla ★ ★ ★
Filamaðurinn ★ ★ ★
STJÖRNUGJÖF TIMANS
★ ★ ★ ★: frábær, ★ ★ ★ mjög góð,’■* góð, ★ sæmileg, 0 léleg.