Tíminn - 27.05.1981, Blaðsíða 19

Tíminn - 27.05.1981, Blaðsíða 19
Miövikudagur 27. mai, 1981 fréttir flokksstarfid Bolungarvik Aöalfundur Framsóknarfélags Bolungarvikur veröur haldinn i fundarsal Vélsmiðjunnar Mjölnis sunnudaginn 31. mai kl. 16.00. Venjuleg aðalfundarstörf Félagar fjölmennið. Stjórnin. Laun lækna á ríkis- spítöl- um ■ Fjármálaráðuneytið telur að upplýsingar um laun lækna i starfi hjá rikinu sem birst hafa i fjölmiðlum hafi verið ónákvæm- ar, og hefur þvi sent frá sér yfirlit yfir laun þeirra. Þar kemur fram að heildarmeðaltal fastra mánaðar- launa er kr. 11.337 og heildarlaun á mánuði að yfirvinnu og gæslu- vöktum meðtöldum kr. 18.083. Yfirlæknar hafa á mánuði kr. 15.310 i föst laun og heildar- mánaðarlaun eru 21.008 krónur. Sérfræðingar hafa að meðaltali 12.632 krónur og með yfirvinnu og vöktum 19.487 krónur. Aðstoðar- læknar hafa föst mánaðarlaun að meðaltali kr. 8.925 og heildar- mánaðarlaun 15.770 krónur. Laun sérfræðinga og aðstoðarlækna -eru svo talsvert mismunandi og fara þau eftir starfsaldri, en eins og áður segir er meðaltalið það sem þegar hefur verið nefnt. Rétt er aö taka það fram að læknar i starfi hjá Reykjavíkur- borg eru meö 6% lægri laun en þau sem hér hafa veriö talin, þvi þeir höfnuðu á sinum tima 6% hækkun þeirri sem borgin bauð þeim upp á i kjölfar úrskurðar Kjaradóms um launahækkanir lækna i störfum hjá rikinu. Aðalfundur Sjómannadagsráðs: 1982 ár aldraðra? ■ Á aðalfundi Sjómannadags- ráðs Reykjavikur og Hafnar- fjarðar var samþykkt áskorun til allra félaga og hagsmunasam- taka sem vilja starfa að hags- munamálum aldraðra, að þeir vinni að þvi að árið 1982 verði sérstaklega helgað málefnum aldraðra. Stjórn Sjómannadagsráðs var ■ Velta Hafskips h.f. nam 9.088 milljónum króna á árinu 1980, sem var nær tvöföldun frá árinu 1979. Hefur velta félagsins rúm- lega sexfaldast á undanförnum falið að leggja fullan þunga á að hin nýja hjúkrunardeild i Hafnar- firði verði ibúðarhæf sem allra fyrst. Var stjórninni heimilað að gera nauðsynlegar ráðstafanir til fjáröflunar, þar á meðal með lán- tökum. Þá var samþykkt að unnið skuli aö samstöðu aöila um skipulegt heilbrigðiseftirlit og reglulegar þrem árum, að því er fram kemur i frétt frá aðalfundi félagsins. Rekstrartap félagsins nam 255 milljónum króna og afskriftir 448 milljónum. heimsóknir til aldraðra. Svo og að heildarsamtök launþega beiti sér fyrir námskeiðum meðal lifeyris- þega þar sem veitt verði tilsögn og fræðsla er stefni að þvi að aldraðir öðlist meiri lifsfyllingu og verði þvi betur i stakk búnir til að mæta eftirlaunaaldrinum. —HEI Um ástæður rekstrartaps þrátt fyrir nær 100% veltuaukningu eru þessar sagðar helstar: Þróun i gengismálum var þessari grein mjög óhagkvæm, en milli 75-80% skulda séu erlendar. Bandarikja- dollar hafi þannig hækkað um 58% gagnvart krónu á árinu. Gengistöp félagsins hafi rúmlega þrefaldast milli ára og aukist úr 8,7 i 13,6% af rekstrartekjum. Þá hafi kostnaðarhækkanir numið 15-20% á árinu, meðtalið i erlend- um gjaldeyri. En verðlagsyfir- völd hinsvegar heimilað aðeins um 4% meðaltalshækkun á flutningatöxtum. Hafskip h.f. rekur 7 skip, keypti tvö ný og seldi tvö gömul á tima- bilinu. Aætlunarkerfi félagsins hefur verið aukið og m.a. hafnar vikulegar ferðir á meginlandið og Bretland. Þá hefur skandinaviu- höfnum verið fjölgað úr þrem i fimm og fastar áætlunarsiglingar teknar upp til Ameriku. Hluthafar eru nú um 500 talsins og hafði fjölgað um 200 á árinu. Hlutafé nemur tæpum 900 millj. gkr. Hjá félaginu starfa um 240 starfsmenn og voru launagjöld tæpir 2 milljarðar gkr. á árinu 1980. —HEI ■ Vörugeymsluhúsnæði Hafskips undir þaki mun aukast um liölega helming og verða nálægt 24.000 fermetrum viö yfirtöku nýrrar hafnar og vörugeymsluaðstöðu i Austur-höfninni I Reykjavik. Velta Hafskips tvöfaldaðist 1980 Fyrsta konan í Verð- lagsráði sjávarútvegsins ■ ,,Ég var að frétta þetta rétt i þessu. Ég vil ekki segja að ég sé alveg ókviðin, en ég hef hins vegar lengi verið -i tengslum við þessi mál „ sagði Ragnhildur Kristjánsdóttir á Eskifirði, þegar við ræddum við hana i gær, en hún var nýlega skipuð i sildar- söltunardeild Verðlagsráðs sjávarútvegsins og er fyrsta konan sem þar tekur sæti. Ragnhildur hefur um árabil verið i framkvæmdastjórn og séð úm fjármálin hjá fiskverkun- arstöðinni Friðþjófur h.f. Hún hefur búið á Eskifirði i 25 ár og er gift Arna Halldórssyni, en hann er einn eigenda Friöþjófs h.f. og framkvæmdastjóri. Ragnhildur kvaðst ekki hafa fylgst mjög náið með störfum Verðlagsráðsins á undanförnum árum, en kvaðst hafa verið i það náinni snertingu við þessimál að sú reynsla mundi vonandi duga sér. Sex kaupendur sitja i sildar- söltunardeildinni og átti Félag sildarsaltenda á Norður og Austurlandi þrjá þeirra. Þar sem þeir Jón Þ. Árnason og Guðmund- ur Björnsson frá Stöðvarfirði lét- ust fyrir nokkru, þurfti að skipa menn i þeirra stað og er sú ástæð- an fyrir þvi aðRagnhildur er skip- uð á þessum tima ásamt Hall- grimi Jónassyni á Reyðarfirði, en venja er að skipa i deildina þann 1. október annað hvert ár og verð- ur það gert næst nú i haust. ■ ,,Ég er ekki bjartsýnn á að Air Bahama muni halda áfram starf- semi sinni,” sagði Björn Theódórsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða i viðtali við okkur i gær, en Flugleiöir hafa nú tilkynnt að félagið muni hætta flugrekstriá flugleiðum Air Bahama frá 24. mai n.k. til hins 14. júni 1981, vegna rekstrar- erfiðleika. Flugleiðir hafa haft tvær DC-8 vélar i flugi fyrir Air Bahama, sem eru þó jafnframt notaöar fyrir Flugleiðir og munu þær ein- göngu fljúga fyrir Flugleiðir úr þessu. Hafa verið flognar ein og tvær ferðir i viku fyrir Air Bahama a* flugleiðinni Luxem- bourg-Nassau. Ástæöur þess að reksturinn hefur gengið svo treglega eru þær Deildin kemur saman til fundar um það bil sem sildveiðar hefjast, liklega i ágúst. að ferðakostnaður fyrir evrópska ferðamenn hefur hækkaö mikið i ferðum til svæða sem nota banda- rikjadollar sem gjaldmiðil, eftir að (Jollar hefur styrkst á almenn- um fjármagnsmarkaði. Þá er og mikið framboð af ódýrum ferðum frá Evrópu beint til Florida. Loks er eldsneyti hátt skattað á Ba- hamaeyjum og er þar mun dýr- ara en á Florida, sem er sam- keppnisstaður við Bahamaeyj- ar. Þess skal getið aö Lufthansa hætti flugi til Bahamaeyja fyrir skömmu af þessum sökum. Þegar DC-vélarnar losna úr verkefnum fyrir Air Bahama munu þær notaðar m.a. til þess að anna fleiri ferðum yfir N-Atlapts- haf, en þeim hefur veriö fjölgað um eina á viku. —AM. AM Air Bahama hættir liklega starfsemi sinni 23 skrifað og skrafað Albert Guðmundsson. Halldór Blöndal. ,,Þaö er sorglegt, þaö er meira en það vegna þess aö viö erum flokksbræður, það er átakanlegt”. Hver sló hvern undir beltið? ■ Ágreininguri nn i Sjálf- stæöi sflokknum hefur oft komið fram i karpi Sjálf- stæöisþingmanna á milli á • fundum i Alþingi i vetur. Um- ræðurnar hafa þá ekki alltaf verið þátttakendunum til mik- ils sóma. Á næturfundi nú fyrir skömmu lenti þeim Albert Guðmundssyni og Hallddri Blöndal nokkuð saman i um- ræðum um Framkvæmdasjóö aldraðra. Umræðurnar sner- ust þó minnst um málið sjálft, heldur gáfu þeir félagar hvor öðrum einkunnir. Krataþing- mennimir Vilmundur Gylfa- son og Karvel Pálmason tóku einnig þátt f þeim leik. Til þess að gefa nokkra hug- mynd um, hvernig sumir þingmenn tala saman i þing- inu, skulu hér birtar glefsur Ur ræöum ofangreindra þing- manna. ,/ Frábið mér allt" Albert Guðmundsson fjall- aöi nokkuð um ummæli, sem Halldór Blöndal (7. landskjör- inn þingmaður) hafði áður lát- ið falla um málið: ,,Það getur vel verið aö vandamál aldraðra hafi ekki brunniðá honum persónulega, en ég get fullvissað hann um það, að vandamál aldraöra brennur einhverntfmann á hverjum okkar sem er, hvort sem það er okkur persónulega eðaá nánum ættingjum. Og ég frábið mér það, sem hann hef- ur þegar sagt f þessu máli, og ég get næstum þvf sagt fyrir- fram, að ég frábið mér allt þaö, sem hann á eftir að segja! Hann talar þar ekki fyrir mina hönd sem Sjálf- stæðismanns”. Siðar i ræðunni, þegar Halldór Blöndal greip frammi fyrir honum, sagði Albert m.a.: „Ég öska eftir þvl, herra forseti, að i eitt skipti fái ein- hver ræöumaöur að tala án framígrips frá hv. 7. lands- kjörnum þingmanni. Það er kominn tími til að hann læri slna lexiu og kunni siðan mannasiöi á sama hátt og hann gerir kröfur til annarra þingmanna”. //í öörum jurtagarði..." Halldór Blöndal svaraði flokksbróöur sinum fullum hálsi, og sagði m.a.: „Ég kann ekki við það I um- ræðum um mál eins og þetta hér, þegar þvi er kastaö fram- ani einstaka þingmenn að ein- hverjir þeirra séu þannig gerðir aö það hlakki yfir þeim út af þvi að ellihrumleiki sæki suma menn heim og sum heimili liði undan þvllíku. Ég kann ekki við það. Mér finnst aðdróttun af þvi tagi vera af þvílikum rótum að ég vil eig- inlega halda mig I öðrum jurtagaröi en þar, sem sllk tré //Slá undir belti..." Vilmundur Gylfason, þing- maður Alþýöuflokksins, brá sér nú i' leikinn og sagði m.a.: „Mér er kunnugt um það að Albert Guömundsson var hér á árum áður mikill iþrótta- maður. Ég held að hann hafi reyndar ekki stundað hnefa- leika, en sjaldan hef ég heyrt hann slá eins undir belti og hann gerði hér I ræðu sinni áö- an. Og mér er nær að æda að honum sé ekki alveg ljóst, hvaö þaö var, sem hann raun- verulega var aö segja”. Og siöan sagöi Vilmundur um Albert: „Ég segi að sú ræða, sem hv. þingmaöur flutti hér áðan, hún var ekki einasta ósmekk- leg, hún var ódrengileg I alla staði”. // Enginn slegið oftar og harðar..." Albert Guömundsson svar- aði Vilmundi og sagði m.a.: „Enginn hefur slegið oftar og harðar undir helti á þeim þingum, sem við höfum setiö saman, en einmitt hann. En þegar hann fékk svo tækifæri til þess að fylgja slnum stóru orðum eftir sem dómsmála- ráðherra þessa lands, hvað gerði hann þá? Akkúrat ekki nókkurn skapaðan lilut. FuII- yrðingarnar eru eins og allt annað, bæði sagt þá og sagt hér, og þá sérstaklega til min, vindhögg. Ég var íþróttamaður, hef “ verið það alla mina tiö, og tel mig bera þess merki, bæði að skapgerð, hugsunarhætti og framkvæmd, og kannski ekki siður kjark, þvi þaö er það sem iþróttir byggja I einum manni. Ogég telmig ekki hafa slegið undir belti neins staðar og aldrei og mun ekki byrja á þvi á gamals aldri”. Og um Halldór Blöndal sagði hann m.a.: „1 hvert skipti sem hv. 7. landskjörinn þingmaður kem- ur hér i ræðustól heldur hann sömu ræðuna um almenn ‘efnahagsmál og kemur ein- staka sinnum að þvi, sem á dagskrá er I sinu langa máli. Og kemst aldrei úr ræðustól án þess að slá undir beltið I málflutningi slnum. Og það er sorglegt, það er meira en það vegna þess að við erum flokksbræöur, þaö er átakan- ■ legt”. Karvel Pálmason veitti Halldóri nokkra aðstoö siðar i umræðunum, auk þess sem Albert og Halldór töluðu nokkrum sinnum i viðbót, en rýmis vegna veröa þessi örfáu sýnishorn að nægja. —ESJ. Elías Snæland Jóns- son, ritstjóri skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.