Tíminn - 30.07.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.07.1981, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 30. júll 1981 5 fréttirl Astæðan fyrir skemmdu mjólkinni í byrjun júlí: KÓLfGERLAR VEGNA BILUN- AR í GERILSNEYÐINGARTÆKI II í gær gaf „samstarfshópur um mjólkurmál”, sem skipaöur var um miðjan þennan mánuö, Svav- ari Gestssyni, heilbrigöisráö- herra, skýrslu um ástand mjólkur á sölusvæði Mjólkursamsölunnar i Reykjavik. 1 henni eru gefnar hugsanlegar skýringar á astæö- um fyrir hinni skemmdu mjólk sem barst frá Samsölunni i byrj- un þessa mánaðar. Samstarfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að ýmsu sé ábótavant i framleiðslu og vinnslu mjólkur á Samsölusvæð- inu. Hið sérstaka ástand sem skapaðistf byrjun þessa mánaðar og stóð fram i miðjan mánuðinn telur hann hins vegar að stærst- um hluta mega leiða til bilunar i gerilsneyðingartæki Mjólkur- samsölunnar, en „tækinu var haldið i gangi megin hluta mán- aðarins, þrátt fyrir að fyrir lægju upplýsingar um bilun”, eins og segir i skýrslunni. Skýrsla samstarfshópsins er itarleg og löng. Verður hér getið helstu efnisatriða. 1 upphafi er tekið fram að þótt ekki séu liðin nema átta ár frá gildistöku reglu- gerðarinnar um mjólk og mjólk- urvörur, þá hafa á þeim tima orð- ið verulegar breytingar á fram- leiðslunni, og einnig dreifingu og sölu mjólkur. „Er svo komið, að illmögulegt virðist að framfylgja vissum ákvæðum reglugerðar- innar. Þær breytingar, sem hér skipta höfuðmáli, eru breyttir viðskiptahættir, t.d. lokanir verslana á laugardögum og sunnudögum á stórum hluta sölu- svæðisins, sem hefur i för með sér, að ekki er lengur unnið yfir helgar i mjólkurstöðvum, að sögn forráðamanna stöðvanna.” Ástand og búnaður fjósa slæmur 1 þeirri miklu umræðu sem átt hefur sér stað undanfarið um gæði mjólkur hefur litið verið komið inn á sjálfa framleiðslu- staðina, þ.e. fjósin. Segir i skýrsl- unni að „misbrestur þar verði ekki bættur i vinnslunni.” Er bent á það að gæði mjólkur eins og hún kemur frá bændum sé miklu betri i Noregi en á íslandi, þrátt fyrir að aðstæður séu mjög svipaðar i báðum löndunum. „Fer ekki milli mála að gæði mjólkur við innviktun eru til muna betri i Noregi en hér á landi. Það er skoðun samstarfs- hópsins að orsaka gæðarýrnunar mjólkur sé að verulegu leyti að finna i slæmu ástandi og búnaði fjósa, skorti á þrifum og aðhalds- leysi hjá litlum hluta framleið- enda, sem þó hafa veruleg áhrif vegna blöndunar mjólkur i mjólk- urflutningum.” ...„Samstarfshópurinn er enn- fremur þeirrar skoðunar að stór- lega vanti á fræðslu um gildi og nauðsyn góðs hreinlætis við mjólkurframleiðslu en það er frumskilyrði til þess að unnt sé að tryggja góða og holla mjólk og mjólkurvörur.” Auk þess gagnrýnir samstarfs- hópurinn mjólkurflutninga frá framleiðendum til mjólkur- stöðva. Aðalreglan i þvi sam- bandi mun vera að mjólk sé sótt þrisvar i viku. __ Hins vegar kom i ljós að i viss- um tilvikum er mjólk eingöngu sótt tvisvar i viku. „Með þessu fyrirkomulagi verður mjólk miklu eldri en reglur leyfa áður en gerilsneyðing fer fram.” Allar stöðvarnar forhita mjólkina — sem er þó bannað Þá er minnst i skýrslunni á þannháttsem mjólkurstöðvarnar hafa allar tekið upp, sem er að forhita mjólkina, sem samkvæmt núgildandi reglugerð er ekki leyft. Leggur samstarfshópurinn til að framvegis verði framfylgt banni við forhitun mjólkur, og engar undanþágur gefnar, „nema mjólkurstöðvar sanni gildi og nauðsyn forhitunar.” Næst er fjallað um dagstimplun mjólkurinnar. Samkvæmt reglu- gerð er heimilað að dagstimpla mjólk þrjá daga fram i timann, eftir að gerilsneyðing hefur átt sér stað. Mjólkursamsalan hefur þó i sumum tilfellum gengið lengra og stimplað mjólkina fimm daga fram i timann. Leggur samstarfshópurinn til að allar undanþágur verði felldar úr gildi, og ákvæði reglugerðarinnar verði haldin. Kóligerlar og bilun i gerilsneyðingartæki Að svo búnu fjallar samstarfs- „Adalskað- valdurinn er 3ja flokks mjólk” — segir Gudlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar ■ ,,Ég legg mikla áherslu á, að þaö sé ekkert sem bendi til aö þetta eina atriöi skýri allt máliö. En bilunin i gerilsneyöingartæk- inu er aö einhverjum hluta skýringin. Aöalskaövaldurinn er 3. flokks mjólk sem okkur berst”, sagöi Guölaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar i Reykjavik, i samtali viö Timann i gær, þegar bornar voru undir hann niöurstööur samstarfshóps um mjólkurmál sem nú hefur skilað áliti slnu. „Miðað við það að við fáum gott hráefni, þá getur slik bilun skemmt gott hráefni. En hins vegar er á það aö lita, að þó tækin séu góð og engin bilun I þeim, þá getur það ekki bætt lélegt hrá- efni.” Sagðist hann geta fallist á að e.t.v. hefði veriö ástæða til að taka hið bilaða gerilsnéyðingar- tæki fyrr úr notkun. Hins vegar hefði allt verið gert til að komast fyrir bilunina. Tækið hefði verið margrifið i sundur, en hið sanna hefði ekki komið i ljós fyrr en um siðustu helgi, þegar sérfræðingur frá framleiðendum vélarinnar hefði komið hingað til lands. —Kás hópurinn sérstaklega um skemmdu mjólkina i júli. Telur hann einkum þrjár megin ástæð- ur fyrir henni. Aðalorsökin er þó bilun i gerilsneyðingartæki Sam- sölunnar, sem minnst var á hér að framan. Kemur fram að kóligerla varð fyrst vart i Mjólkursamsölunni i Reykjavik þegar i marsmánuði s.l. „Endurteknar ræktanir i april til og með júni úr gerilsneyðing- artæki sýndu jákvæða ræktun á kóligerlum, auk þess sem heild- argerlafjöldi jókst. Verst var ástandið á timabilinu 1.-14. júli Lá ljóst fyrir, að viðkomandi ger- ilsneyðingartæki var bilað og var reynd viðgerð á þvi fyrri hluta mánaðarins, sem ekki tókst. Hefði verið nauðsynlegt að taka tækið strax úr notkun þegar ljóst var að um var að ræða eftirsmit, en slikt var ekki gert fyrr en 19. júli”, segir i skýrslunni. Það var ekki fyrr en um siðustu helgi að bilunin fannst eftir að er- lendur sérfræðingur frá framleið- endunum kom hingað til lands. Aðrar ástæður sem nefndar eru: „Minnkandi geymsluþol vegna þess að á heitari árstimurp verða öll vaxtarskilyrði gerla í mjólk og mjaltabúnaði mun betri og þá sérstaklega vaxtarskilyrði hitaþolinna gerla, sem yfirleitt lifa gerilsneyðingu.” Einnig: „Mannleg mistök.” Er upplýst að 2. júli hafi tveimur bil- förmum frá Selfossi með 3. flokks mjólk, sem fara hefðu átt i annað, verið blandað saman við nýja mjólk. Fleiri mistök af svipuðum toga eru nefnd. Eftirlit verði hert Að endingu leggur starfshópur- inn til að eftirlit verði stórlega hert með öllum þáttum mjólkur- vinnslunnar. Bæði i sjálfum mjólkurstöðvunum, og einnig i fjósum bænda, mjólkurflutninga- bilum og viðar. „Komið verði á föstu samstarfi opinberra eftir- lits- og rannsóknaraðila annars vegar og mjólkurstöðvanna hins vegar með það fyrir augum að tryggja virkara mjólkureftirlit bæði á vegum mjólkurstöðvanna sjálfra og á vegum hins opin- bera.” 1 lokaniðurstöðum segir: „Framangreindar niðurstöður má ekki túlka svo, að ástæðna fyrir gallaðri mjólk sé eingöngu að leita hjá framleiðendum og vinnsluaðilum. Hér eiga opin- berir eftirlitsaðilar lika hlut að máli vegna aðhaldsskorts, sem brýnt er að bæta úr.” —Kás Skoðið SNÆFELLSNES sem erjrœgtfyrir stórbrotið og fagurt landslag a\\an dagin*1- , har sem *P1 Þ*g»eg setusto P vatp* SJÓBÚÐIR H/F Ólafsvík Stmar (93)6300 og 6315

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.