Tíminn - 30.07.1981, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 30. júli 1981
7
erlent ytirlft
■ FÁTT gerðist eftirminnilegra
tiðinda á fundi æðstu manna sex
rlkustu vestrænu rikjanna og
Japans,sem haldinn var f Ottawa
i fyrri viku. Sum blöðin höfðu að
fyrirsögn eftir fundinn: Tiðinda-
laust á vesturveldafundinum.
Sennilega hafa fyrirsagnahöfund-
arnir þá haft i huganum bókar-
heitið alkunna: Tiðindalaust á
vestur vigstöðvunum.
Aðalumræðuefni fundarins
voru efnahagsmál og sameigin-
legar aðgerðir þessara rikja til að
hamla gegn efnahagskreppunni,
sem m.a. veldur þvi, að saman-
lögðtala atvinnuleysingja i þeim
er nú talin milli 20-25 milljónir.
Tilkynning frá fundinum ber þess
merki, að ekkert samkomulag
var um sameiginlegar aðgerðir.
Kanslari Vestur-Þýskalands,
forseti Frakklands og forsætis-
ráðherra Italiu og Kanada lögðu
Schmidt og Reagan á Ottawafundinum.
Schmidt fékk
langþráð bréf
Reagan lofaði bréflega að hefja viðrædur
fast að Bandarikjaforseta að
lækka vextina, þvi að þeir ættu
verulegan þátt i óhagstæðri efna-
hagsþróun i' löndum þeirra.
Reagan sat hins vegar fast við
sinn keip og sagði háu vextina
nauðsynlega enn um sinn, en þeir
yrðu lækkaðir strax og fært þætti,
ef til vill fyrir næstu árslok. Hann
gaf þó ekkert ákveðið loforð um
* það.
1 yfirlýsingu, sem birt var eftir
fundinn, kemur fram þessi af-
staða Bandarikjanna og jafn-
framt gagnrýni Vestur-Þjóðverja
og Frakka á henni.
Samkvæmt þvi, sem hefur hler-
ast frá fundinum, hófu Helmut
Schmidt og Mitterrand umræður
um þetta mál, en Reagan svaraði
með ræðu,sem sérfræðingar hans
höfðu undirbúið og vandað sig
við. Reagan fluttiræðu sina vel að
vanda og var i senn mjúkmáll og
ákveðinn. Haft er eftir Regan
fjármálaráðherra, að þrátt fyrir
snjallan málflutning hafi Reagan
bersýnilega talað fyrir daufum
eyrum.
Einn stuðningsmann átti Reag-
an á fundinum i efnahagsmálum,
Margaret Thatcher. Hún er sögð
hafa komið honum hvað eftir ann-
að til hjálpar, þegar þjóðarleið-
togarnir ræddust við, án þess að
sérfræðingar þeirra væru við-
staddir.Reaganbarlika mikið lof
á Thatcher eftir fundinn.
1 stuttu máli sagt, breytti fund-
urinn engu i éfnahagsmálum.
Þau haldast áfram í sama fari og
áður. Sérfræðingar spá auknu at-
vinnuleysi i hinum vestræna
heimi.
Næsti fundur, sem er hinn átt-
undi i röðinni slikra funda verður
haldinn að ári i Paris. Margir
vænta þess, að þá hafi Mitterrand
eitthvað nýtt að segja.
ANNAÐ aðalmál fundarins var
að ræðaumaðstoörikra þjdða við
þróunarlöndin svonefndu. Trud-
eau forsætisráðherra hafði unnið
kappsamlega að undirbúningi
þessa máls og lagt áherslu á, að
frá fundinum kæmi fyrirheit um
aukna aðstoð. Mitterrand hafði
snúist eindregiðá sveif með hon-
um.
Helmut Schmidt og forsætis-
ráðherra Italiu og Japans voru
einnig jákvæðir, en létu Trudeau
og Mitterrand hafa forustuna.
Reagan var mjög tregur til að
gefa nokkurt fyrirheit um þessi
mál, enda fyrirætlun rfkisstjdrn-
ar hans að draga frekar úr um-
ræddri efnahagsaðstoð Banda-
rikjanna enað auka hana.Eins og
áður fékk hann stuöning frá
Margaret Thatcher.
Niðurstaðan varð sú, að í yfir-
lýsingunni frá fundinum segir, að
þjóðarleiðtogarnir væru þvi fylgj-
andi aö viðræður færu fram um
þessi mál milli fulltrúa rikra
þjtíða og fátækra.en ekkert fyrir-
heit var gefið um aukna aðstoð.
Þeir Trudeau og Mitterrand
munu hafa talið þetta hálfan sig-
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
ur og vonast til, að þetta haii
heldur jákvæð áhrif á fund þróun-
arrfkjanna, sem haldinn verður i
Mexikó i' haust.
Reagan hefur lrfað að ávarpa
þann fund, en hliðstættloforð hef-
ur enn ekki fengist frá Brésnjef.
Þótt niðurstaðan af Ottawa-
fundinum yrði i stórum dráttum,
eins og hér hefur verið rakið, er
hann talinn hafa haft heppileg
áhrif að þvi leyti, að þjóðarleið-
togarnir kynntustog yfirleittmun
hafa farið vel á með þeim. Þetta
getur átteftir að hafa talsvert að
segja.
MARGIR þekktir fréttaskýr-
endur,einsog Henry Brandon hjá
Sunday Times, telja aö merkasti
atburðurinn i' sambandi við fund-
inn, hafi gerst utan hans. Fyrir
fundinn fékk Helmut Schmidt
sérstakt bréf frá Reagan, en það
var ekki birt fyrr en eftir fundinn.
Aðalefni þessa bréfs var á þá
leið, að hann hefði ákveðið að
hafa alit tilbúið af hendi Banda-
rikjanna til að hefja viðræður við
Sovétrikin um takmörkum með-
aidrægra eldflauga i Evrópu á
timabilinu frá 15. ndvember til 15.
desember. Eftir það myndi ekki
standa á Bandarikjamönnum að
hefja viðræður.
Af hálfu Bandarikjastjörnar
hefur ekki verið gefið áður ná-
kvæmlega timasett loforð um að
hefja þessar viðræður.
Það hefur valdið mikilli d-
ánægju i Vestur-Evrtípu hversu
mjög þessar viðræður hafa dreg-
ist á langinn og Bandarikjastjórn
verið kennt um, þvi að Rússar
hafa sagst vera tilbúnir.
Þessi dráttur hefur reynst góð-
ur reki á fjörur svonefndra frið-
arhreyfinga i Vestur-Evrópu.
Það er mat ýmissa fréttaskýr-
enda,að þetta bréf Reagans muni
heldur styrkja erfiða stöðu Schm-
idts I þessum málum. Það sýni ,
að Reagan haf i látáð undan þrýst-
ingi frá honum.
■ . Leiðtogarnir á Ottawafundinum sátu boð kanadiska landstjór-
ans. Hér sést Schmidt vera að sýna honum, Reagan og Thatcher
likamsæfingar.
Bani-Sadr flú-
inn til Parísar
I Frakkar höfnuðu i gær
þeirri kröfu iranskra stjórn-
valda, að Bani-Sadr, fyrrver-
andi forseti tran, yrði fram-
seldur til heimalands si'ns.
Bani-Sadr kom i gærmorgun
tilherfhigvallar skammtfyrir
utan Paris, i iranskri herflug-
vél, og baðst hann hælis, sem
pólitiskur flóttamaður, i
Frakklandi.
Frönsk stjórnvöld hafa veitt
honum landvistarleyfi, meö
þvi skilyrði, að hann blandi
sér ekki i stjórnmál.
Bani-Sadr tókst að flýja frá
tran i gær, með aðstoð stuðn-
ingsmanns sins úr íranska
flughernum, sem tók herflug-
vél traustataki, til þess að
flytja forsetann fyrrverandi.
Viðkomandi flugmaður fór á
loft undir þvi yfirskyni, að
hann væri að fara i reglu-
bundið æfingarflug.
t viðtali, sem fréttamaöur
átti við Bani-Sadr, í ibúðhans i
einu af úthverfum Parisar,
sagði hann að flottinn hefði
reynst mögulegur vegna að-
stoöar vinstri-manna I tran.
Bani-Sadr hefur verið i fel-
um i tran, allt frá þvi honum
var steypt af stdli fyrir meir
en mánuði
Hann sagði i gær, að óeirð-
irnar i tran undanfarið, sýndu
að iranska þjóðin væri ákveðin
i að koma Khomeini og stuðn-
ingsmönnum hansfrá völdum.
Sagðist forsetinn fyrrverandi
ákveðinn i að dvelja i Frakk-
landi, þar til lýðræði heföi
verið endurreist i heimalandi
hans.
Loftbardagar
yfir Líbanon
I gær kom til loftbardaga
milli israelskra og sýrlenskra
orrustuþota yfir norðanveröu
Libanon og báðir aðilar segj-
ast hafa skotið niður eina af
flugvélum andstæðingsins.
Báðir aðilar halda þvi hins
vegar fram, að allar þeirra
vélar hafi komiðtilbaka, heilu
og höldnu.
Sýrlendingar viðurkenndu i
gær, að ein flugvéla þeirra
hefði orðið fyrir skoti.
Israelar halda þvi fram, að
vélar þeirra hafi verið á könn-
unarflugi yfir Lfbanon, þegar
sýrlenskar herþotur hafi ráð-
ist á þær.
Á þriðjudag gáfu Sýrlend-
ingar út þá yfirlýsingu, aö ef
tsraelar ekki hættu könnunar-
flugi sinu yfir Libanon, væru
þeir reiðubúnir til þess að
skjóta flugvélar þeirra niöur.
tsraelar segja þessi könn-
unarflug si'n ekki vera bönnuð
i þvi vopnahléssamkomulagi,
sem komst á milli tsraela og
Palestinumanna i Libanon i
siðustu viku.
Begin, forsætisráðherra
tsrael, sagði i gær, að það sem
gerðist hefði verið sjálfsvöm
af hálfu tsraela og hann bætti
við, að hann hefði gert Banda-
rikjamönnum það ljóst, að
þessi könnunarflug myndu
halda áfram.
Jarðskjálfti
í íran
tranir sendu i gær frá sér
hjálparbeiðni, þar sem sér-
staklega er farið fram á send-
ingar á björgunarliðum, lyfja-
vörum og tjöldum til landsins,
eftir að miklir jarðskjálftar
gengu yfir suð-austurhluta
landsins og ollu miklu tjóni.
Fregnir af jarðskjálfta-
svæöinu eru enn óljósar, en
talið er aö um sjö hundruð
manns, að minnsta kosti, hafi
týnt lifi i skjálftanum. útvarp-
ið i Teheran hafði i gær eftir
háttsettum embættismanni,
að liklega væri tala látinna á
milli fjögur og fimm þúsund.
Franska fréttastofan sagði i
gær, að björgunaraðgerðir
gengju treglega á jarð-
skjálftasvæðinu, þar sem það
væri bæði fjöllótt og að auki
eyðimerkursvæði. Birgðir
væri hins vegar unnt að flytja
þangað meö þyrlum.
PÓLLAND: Stutt verkföll áttu sér stað I Varsjá og viðar i Pól-
landi, en þau eru liður I mótmælum launþega I Póllandi gegn
hertri skömmtun á matvælum.
BRETLAND: Prinsinn af Wales, rikisarfi Bretlands, gekk I gær
að eiga lafði Diönu Spencer, I dómkirkju heilags Páls I London.
Um þrjú þúsund manns voru viðstödd athöfnina i kirkjunni
sjálfri, en talið er að hálf milljón manna hafi staðiö meöfram leið
brúðhjónanna milli Buckingham-hallar og kirkjunnar og að um
milljarður manna hafi fylgst meö i útvarpi og sjónvarpi.
AFGANISTAN: Fregnir frá Kabúl, höfuðborg Afganistan, segja
að nemar i þjálfunarsveitum stjórnarhersins I Afganistan hafi
efnt til mótmæla I borginni, vegna þess að þeir hafi verið notaðir
i bardögum við skæruliða stjórnarandstöðu landsins.