Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 4
4
MILWARD
• Hringprjónar
• Fimmprjónar
• Tvíprjónar
• Heklunálar
MiLWARD
Ckcuí«íí Knrttfny Pms
AioíjrtStí C*cuiawe
Ftejníís.rJCKfiafJírtn
Framleitt úr
lóttri álblöndu
Heildsölubirgðir:
Davíö S. Jónssonsco.hi.
Sími 24-333.
H R H Lausar stöður við
II Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
Stöður hjúkrunarfræðinga við barnadeild,
heilsugæslu i skólum og heimahjúkrun.
Bæði er um hlutastarf og heilt starf að
ræða. Einnig siðdegisvakt kl. 16-20 á
heimahjúkrun.
Heilsuverndar/ félagshjúkrunarnám
æskilegt.
Staða sjúkraþjálfara við heimahjúkrun.
Staða ljósmóður við mæðradeild, hálf
staða.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i
sima 22400.
Stöður tannlækna við öskjuhliðarskóla —
skóli fyrir börn með sérþarfir — hluta
starf, einnig ýmsa aðra skóla i borginni.
Upplýsingar gefur skólayfirtannlæknir i
sima 22400.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast fyrir
20. september.
Umsóknareyðublöð fást á Heilsuverndar-
stöð Reykjavikur.
Heilbrigðisráð Reykjavikur
Borgarspítalinn
Lausar stöður
Staða deildarstjóra á dagdeild.
Staða deildarstjóra á göngudeild.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sér-
menntun i geðhjúkrun.
Stöður hjúkrunarfræðinga á geðdeild A-2.
Stöður hjúkrunarfræðinga i Arnarholti.
2 stöður aðstoðardeildarstjóra á hjúkrun-
ar- og endurhæfingardeild (Grensás) eru
lausar til umsóknar nú þegar.
Staða deildarstjóra á lyflækningadeild (A-
6).
Staða aðstoðardeildarstjóra á lyflækn-
ingadeild.
Stöður hjúkrunarfræðinga á skurðlækn-
ingadeild, hjúkrunar- og endurhæfingar-
deild i Hafnarbúðum, Grensás og á
hjúkrunardeildina við Barónsstig.
Stöður sjúkraliða á öllum deildum.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu hjúkrunarforstjóra i sima 81200
(207, 201)
Reykjavik, 11. sept. 1981.
BORGARSPÍTALINN
Þriöjudagur 15. september 1981
■ Þyrla Landhelgisgæslunnar Gná hrapar viö Skálafell i október 1975
9 af 12 þyrlum sem hingad hafa verið
keyptar hafa farist:
„Óvenjuhátt
hlutfall miðað
við önnur lönd'’
segir Leifur Magnússon formaður Flugráðs en það
hefur látið gera tillögur til úrbóta í þyrlurekstrinum
■ Af 12 þyrlum sem hingaö hafa
veriö keyptar, hafa 9 farist, ein
veriö send úr landi aftur og ein-
ungis 2 eru enn i rekstri. Þessar
uppiýsingar koma meöal annars
fram i' skýrslu sem þriggja
manna nefnd hefur sent td Flug-
ráös en Fiugráösetti þessa nefnd
á laggirnar tilaö gera tiliögur um
úrbætur f þessum máium.
1 skýrslunni eru raktar orsakir
þyrluslysanna og þar kemur fram
aö enginn einn samnefnari er til
fyrir slysin. 1 þremur tilfellanna
var um hreyfilbilun að ræða, i
tveimur um bilun i stélskrúfu aö
ræöa, í tveimur tilvikum flaug
flugmaöur á hindrun og i tveimur
tilvikanna er misvindur, eöa veö-
ur sögö orsök slyssins.
„1 skýrslu er lagt til að heröa
heldur á þeim kröfum sem nií eru
gerðar til þyrluflugmanna en ó-
hætt er aö segja aö þær kröfur
sem geröar eru til þessara manna
hér i' dag eru heldur i' hærri
kantinum miöað viö þaö sem
gerist annarsstaöar en á móti
kem ur aö aöstæöur til þessa flugs
hérlendis eru oft erfiöari en á
mik-gum öörum stööum” sagöi
Leifur Magnússon formaður
Flugráös i samtali viö Timann.
,,i skýrslunni er einnig komiö
inn á viöhaldsmálin en tillögur
skýrslunnar eru þess eölis aö
vinna veröur betur úr þeim og á
þvi stigi er máliö núna.”
„Loftferöaeftirlitinu var faliö
aö gera nánari tillögur um
breytingar á reglugerö og búast
má við aö þeim veröi lokiö á
næstu vikum og málið siðan sent
ráöuneytinu til umfjöllunar”.
Aöspuröur um hvort þetta væri
ekki óvenjuhátt hlutfall aö 9 af 12
þyrlum hefðu farist, sagöi Leifur
aö þeir heföu aö vfsu ekki form-
legan samanburð en þetta væri
samt örugglega óvenju hátt hlut-
fall miöaö viö þaö sem geröist
annarsstaöar.
Þá sagöi hann einnig að komiö
hefði fram i skýrslunni aö meöal-
endingartimi þessara tækja hér
væri um 4 ár og taldi Leifur aö
þar væri styttri timi miöaö við
endingartima annars staöar.
Upphaf þessa máls er fyrir-
spurn sem borin var fram á Al-
þingi af Eið Guðnasyni um þyrlu-
rekstur hérlendis, hve margar
væru skráðar, hve margar heföu
farist og hvort ekki væri ástæöa
til aö gera Uttekt á þessu.
Samgönguráöherra svaraði
þessari fyrirspurn og þá kom
m.a. fram hiö háa hlutfall slysa á
þyrlum en i framhaldi af þessari
umf jöllun ákvað Flugráö aö set ja
á laggimar nefnd til aö gera til-
lögur til úrbóta i þessum málum.
Nefndina skipuöu þeir Grétar
óskarsson framkvæmdastjóri
Loftferöaeftirlitsins, Páll Hall-
dórsson fhigstjóri og Ragnar
Karlsson flugvirki sem jafnframt
var formaöur nefndarinnar.-jrRj
■ Eir önnur þyria landhelgisgæslunnar brotlenti viöRjúpnafeil október 1971,