Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 15

Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 15. september 1981 iþróttir Enska knattspyrnan: kílblVCl IKlHi f UNITED MATTI ÞAKKA FYRIR ANNAÐ STIGIÐ — á Villa Park — miðjutríó Liverpool og landsliðsins heillum horfið — West Ham með forystu Fyrsti sigur „Boro” N „Ég er ekki óánægður með leikinn hjá liðinu þetta er allt að koma en það tekur sinn tima” sagði Ron Atkinson fram- kvæmdastjóri Man. United eftir 1:1 jafnteflið gegn Aston Villa á Villa Park. En þrátt fyrir að Atkinson hafi verið ánægður með leik sinna manna þá mátti United þakka fyrir að ná jafntefli gegn Englandsmeisturunum. Aston Villa var yfirburðarlið á vellinum en þeir urðu að sætta sig við jafn- tefli er upp var staðið. Gordon Cowans skoraði fyrst fyrir Villa en áður hafði Donovan átt: skot i stöngina á marki United. Seint i siðari hálfleik jafnaði siðanFrank Stapleton metin fyrir United. West Ham efstir West Ham er nú efst i 1. deild eftir 3:2 sigur þeirra yfir Stoke. Paul Goddard var potturinn og pannan i leik West Ham. Hann skoraði tvö af þremur mörkum þeirra, þriðja markið gerði Ray Stewart. Það voru þeir Brendan O’Callaghan og Paul Maguire sem skoruðu mörk Stoke en það dugði ekki til. Tony Galvinskoraði sigurmark Tottenham er þeir léku við Wolv- es en Osvaldo Ardiles átti heiður- inn af þvi marki sendi góða send- ingu á Galvin sem skoraði. Swansea fékk góða byrjun i leiknum gegn Notts County þeir höfðu yfir i hálfleik með mörkum AlanCurtis og Leighton James og fljótlega i upphafi siðari hálfleiks skoraði Bob Latchford þriðja markiö. Ray O’Brien minnkaöi muninn á 65 min. úr vitaspyrnu og 5 min. fyrir leikslok skoraði Ian MacCulloch annað mark Notts County en timinn var of • skammur til þess að þeim tækist að jafna metin. „Bakkabræður” Landsliðsmiðjutrióið hjá Liv- erpool, Phil Neal, Phil Thompson og Terry MacDermott varð fyrir enn einu áfallinu á laugardaginn. 1 siðustu viku léku þeir með landsliði Engiands gegn Noregi og töpuðu 1:2 eins og kunnugt er og á laugardaginn voru þeir heill- um horfnir er Liverpool tapaði fyrir Ipswich. Phil Neal skoraði fljótt i leikn- um sjálfsmark, Thompson braut á John Wark og dæmd var vita- spyrna sem Wark skoraði sjálfur og þriðji bakkabróðirinn McDer- mott var skipt út af i seinni hálf- leik. Coventrynáöi fljótlega yfirtök- unum á miðjunni og þá var ekki að úrslitum að spyrja, er upp var staðið haföi Coventry skorað fjög- ur mörk en Leeds ekkert. Rudi Kaiser skoraöi fyrsta markið á 8. min og tveimur minutum siðar bætti Garry Thompson öðru marki við. Steve Whitton bætti þriöja markinu við og Thompson skoraði sitt annað og fjórða mark. Coventry sem hefur ungu og skemmtilegu liöi á að skipa. Tony Godden markvörður West Bromwich Aibion kom i veg fyrir að Nottingham Forest færi meö öll þrjú stigin af velli er hann i tvigang varði meistaralega frá Justin Fashanu og W.B.A. náði öðru stiginu i markalausu jafn- tefli. Fyrstisigur Middlesbro á þessu keppnistimabili leit dagsins ljós á laugardaginn er þeir sigruðu Birmingham 2:1. Heini Otto skor- aði fyrra mark Middlesbro og stuttu siðar bætti Dave Hodgson öðwi marki við. Neil Whatmore minnkaði muninn fyrir Birming- ham, en leikmenn „Boro” vörð- ust vel i seinni hálfleik og þaö var ekki sist markveröi þeirra Jim Plattað þakka að þeir deildu ekki stigunum með Birmingham. Kevin Keegankom Dýrlingun- um á bragðið er hann skoraöi mark fyrir þá úr vitaspyrnu á 22. min. fyrri hálfleiks i leiknum gegn Man. City. Keegan hefur skoraðfjögur mörk i fjórum leikj- um fyrir Southampton tvö þeirra úr vitaspyrnum. Mark Keegans dugði Dýrlingunum samt ekki til sigurs, þvi að rétt fyrir hálfleik jafnaði Kevin Reeves metin fyrir City. Billy Wrightskoraði mark Ev- erton gegn Brighton beint úr aukaspyrnu á 47. min. leiksins. Lengi vel leit úr fyrir að Everton myndi fara með sigur af hólmi en er stundarfjórðungur var til ■ Kevin Keegan kom Dýrlingun- um á bragðiö er hann skoraði mark fyrirþá úr vitaspyrnu gegn Man. City. leiksloka náði Mick Robinson að jafna metin. Gary Rowell jainaði metin á 80. min. fyrir Sunderland gegn Ar- senal en áöur hafði Alan Sunder- land skorað fyrir heimaliöið. Heldur hefði veriö ósanngjarnt ef Arsenal hefði farið með sigur af hólmi þvi Sunderland hafði átt sist minna i leiknum og jafntefli voru þvi nokkuð sanngjörn úrslit. Röp-. ÍA sigr- aði FH 3:1 ■ A laugardag áttust við á Akranesi fyrstudeildarlið t.A. og F.H. i knattspyrnu, og lauk leiknum með sigri Í.A. 3-1, i fremur lélegum leik.Staðan i hálfleik var 0-0. Fyrsta hættulega mark- tækifærið kom á 13. rnfnútu, er Sigurdór Þorleifsson átti gott skot að marki. Bjarni hélt ekki boltanum, sem barst til Pálma Jónssonar, en hann skaut rétt yfir. Á 43. minútu gaf Kristján Olgeirs- son á Sigurö Lárusson, hann skallaöi yfir Hreggvið, en Ingi Björn bjargaði á linu. Ekki var mikið um mark- tækifæri fyrr en á 58. min. er Pálmi Jónsson átti fast skot fyrir innan vitateig, sem var óverjandi fyrir Bjarna. En Adam var ekki lengi i Paradis, þvi l.A. jafnaði tveimur minútum siöar er Guðjón Þórðarson gaf á Sigurð Lárusson, sem skall- aði i þverslá. Þaðan hrökk boltinn til Júliusar Péturs- sonar, sem skaut i höfuð Sig- urðar Halldórssonar og i mark F.H. A 78. mi'nútu skoraöi Jón Alfreðsson, gamla kempan eftir mikla þvögu við mark F.H. Á 88. minútu átti Siguröur Lárus- son hörkuskot að marki, en Hreggviður varöi meistara- lega. Þaö var svo á 90. minútu sem Július Pétursson innsiglaði sigur Skaga- manna, erhann skoraði eftir hornspyrnu frá Kristjáni. Það var ekki góð knatt- spyma sem liðin sýndu á laugardaginn. Þó að lið l.A. væri lélegt, þá var lið F.H. enn lélegra. Menn nenntu þessu einfaldlega ekki. Ef á að nefna einhverja sem skör- uöu fram úr, þá voru þeir Jón Alfreðsson, Gunnar Jónsson og Björn Björnsson hjá l.A. bestir og hjá F.H. voru þeir Hreggviöur, Viöar Halldórsson og Pálmi Jóns- son bestir. — Daniel Ólfasson/AB ■ Aðaisteinn markvörður norðanmanna ver hér skot frá Frömurum. Timamynd: Ella Framarar höfdu bet- ur í leikleysurmi ■ Þau voru ekki mikil tilþrifin sem lið Fram og KA sýndu á Laugardalsvellinum sl. laugar- dag. Leikurinn átti meira skylt við leikleysu en nokkurt annað, enda knattspyrnan ekki á háu plani sem sýnd var. Liöin báru það ekki meö sér aö þau voru i toppbaráttunni i 1. deildinni. Fram varð að vinna þennan leik,með góðu eða ilíu, ef það átti að eiga nokkra von um tslands- meistaratitilinn. Varö raunin sú aö þeir unnu leikinn meö tveimur mö’kum gegn engu. Þar með voru þeir komnir jafnfætis Vik- ingum. Ef Vikingar hefðu siðan tapað leiknum á mótiKR þá hefði Fram unnið mótiöá betra marka- hlutfalli, en þvi var ekki aö heilsa eins og kemur fram hér annars staöar á siöunni. Þá er það sjálfur leikurinh. 1 fyrri hálfleik var fátt uppi á teningnum sem gladdi augað, og ekki hin minnstu tilþrif hjá hvorugu liöanna að skora mörk. Enda staðan i hálfleik 0:0. Framarar friskuðust aöeins i seinni hálfleik. Þaö var þó ekki fyrr en á 27. min. þess hálfleiks sem markagáttinn opnaöist. Þaö var Marteinn Geirsson sem var þar að verki, og skoraöi örugg- lega Ur vitaspyrnu eftir að Guömundi Torfasyni haföi óumdeilanlega verið brugðiðinni vitateig KA-manna. Eftir þetta mark var sem allt loft væri úr noröanmönnum, og var það þó ekki mikið fyrir. Upp frá þessu urðu hlutverkaskiptin þvi þannig að Framarar voru yfirleitt i sókn, en KA-menn i vöm. A 35. mín. seinni hálfleiks áttu Framarar tvö dauðafæri. I fyrra skiptiö lét Lárus Grétarsson, Aðalstein markvörð noröan- manna, verja frá sér annars ágætt markskot, eftir aö hann hafði komisteinn inn fyrir. Missti Aðalsteinn knöttinn frá sér til Guömundar Torfasonar sem skaut framhjá, fyrir nær opnu markinu. Strax þar á eftir áttu KA-menn sitt eina marktækifæri sem eitt- hvert bragð var af, eftir slæm varnarmistök hjá Marteini Geirs- syni. Komst Gunnar Gislason inn i sendingu sem ætluö var Guömundi Baldurssyni mark- verði, en skaut yfir. Þaö var siöan á 41. min. seinni hálfleiks sem Framarar ráku endahnútinn a' leikinn. Þá er þaö að Sighvatur Bjarnason kemst yfir knöttinn rétt utan viö sinn eiginn vitateig og leikur rétt fram yfir miðju. Gefur knöttinn siðan áfram aö Lárusi Grétarssyni, sem leikur áfram nokkur skref. en sendir hann siðan rakleiöis i markiö, framhjá Aöalsteini markverði norðanmanna. Staðan 2:0. Sviplitill leikur, sem bó var nauösynlegt aö færi fram, til aö fá úr þvi skoriö, hvort Framarar næðu Vikingum aö stigum fyrir leikinn á móti KR. En sem sagt Framarar unnu, og fengu annað sætið i 1. deildarkeppninni að launum. —Kás. Borg tapaði ■ Tennisleikarinn frægi, Björn Borg tapaði i úrslita- leiknum i einliðaleik karla á Opna bandariska mótinu i tennis nú i fyrrakvöld, fyrir Bandarikjamanninum John McEnroe. Borg vann aðeins fyrstu lotuna, en McEnroe hinar þrjár. Þetta er þriðja árið i röð sem McEnroe fer með sigur af hólmi i þessu móti. AD/DAS íþróttaskór SP0RTVAL Hlemmtorgi * Simar (91) 1-43-90 & 2-66-90

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.