Tíminn - 15.09.1981, Side 23
Þriöjudagur 15. september 1981
Námsflokkar
Kópavogs
Innritun i Verslunar- og skrifstofudeild fer
fram i sima 44391 miðvikudaginn 16. og
fimmtudaginn 17. september kl. 16.00-
19.00.
Innritun i almenn námskeið fer fram dag-
ana 21.-25. sept. isima 44391 kl. 16.00-19.00.
Kennslugreinar: enska, danska, norska,
sænska, franska, þýska, spænska, leður-
vinna, skrautskrift, bótasaumur, glermál-
un, myndvefnaður, trésmiði, leirmótun,
myndlist, hnýtingar, barnafata- og kjóla-
saumur og vélritun.
Forstöðumaður
Styrkir til náms i Sviþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra
styrki handa erlendum námsmönnum til
að stunda nám i Sviþjóð námsárið 1982-83.
Styrkir þessir eru boðnir fram i mörgum
löndum og eru öðru fremur ætlaðir til
náms sem eingöngu er unnt að leggja
stund á i Sviþjóð. Styrkfjárhæðin er 2.600
— sænskar krónur á mánuði námsárið,
þ.e. 9 mánuði. Til greina kemur að styrkur
verði veittur i allt að þrjú ár. — Nánari
upplýsingar um styrki þessa fást i
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, en umsóknir skulu sendar til
Svenska Institutet, box 7434, S-10391
Stockholm, fyrir 1. desember 1981 og lætur
sú stofnun i té tilskilin umsóknareyðublöð.
Menntamálaráðuneytið
10. september 1981.
Baðverðir
óskast til starfa i íþróttahúsinu i Keflavik.
Nánari upplýsingar veitir starfstjóri
iþróttahússins i sima 92-1771.
Bæjarritarinn i Keflavik.
Rafmagnshitatúpa
Til sölu er 1 árs gömul rafmagnshitatúba
3x6 kg wött með innbyggðum neysluvatns-
spiral ásamt öllum aukabúnaði.
Upplýsingar i sima 91-53824.
Austurland
Tómas Arnason, viöskiptaráöherra, og Halldor Asgrimsson,
alþingisma eftir töldum stööum:
Félagsheimilinu viö Kirkjuból. Fimmtudaginn
17. september kl. 20.30.
Reyöarfiröi föstudaginn 18.september kl. 21.00
Húnvetningar
Héraðsmót framsóknarmanna i Austur-Húnavatnssýslu
verður haldið i félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn
10. okt. n.k. og hefst kl. 21.
Skemmtidagskrá auglýst siðar.
Hljómsveitin Gautar frá Siglufirði leikur fyrir dansi frá
kl. 23-3.
Fjölmennið.
Framsóknarfélögin.
Launþegar Vesturlandskjördæmi
Launþegaráð framsóknarmanna Vesturlandskjördæmi
heldur fund i Snorrabúð Borgarnesi sunnudaginn 20. sept.
og hefst hann kl. 14.
Afundinum mætirSteingrimur Hermannsson ráðherra og
formaður Framsóknarflokksins og mun hann ræða um
efnahags- og atvinnumál.
Allt stuöningsfólk Framsóknarflokksins i launþegahreyf-
ingunni er velkomiö á fundinn.
iþróttir
23
eftir helgina
NewYork
Cosmos
til íslands
.1 Þaö er nú frágengið að hið
fræga lið New York Cosmos
mun koma hingað til lands
11. október næstkomandi og
leika við lið Vals á Laugar-
dalsvellinum. New York
Cosmos mun koma hingað
með allar sinar frægustu
stjörnur og má þar nefna
menn eins og Neskes og Al-
berto.
Að öllum likindum mun
kempan fræga, Pele, sem er
eins konar ambassador
félagsins verða i för með lið-
inu.
Valsmenn, sem nú eru
staddir i Englandi róa nú að
þvi öllum árum að fá hingað
til lands irsku knattspyrnu-
hetjuna George Best og fá
hann til þess að leika með
Valsliðinu gegn New York
Cosmos. Best er nú staddur á
Bretlandseyjum og nota
Valsarar þvi tækifærið á
meðan þeir eru erlendis til
þess að leita eftir samning-
um við hann.
röp — Birmingham/AB
Jón
Páll
Norður-
landa-
meistari
■ Jón Páll Sigmarsson,
lyftingamaður varð Norður-
landameistari i sinum
þyngdarflokk á Norður-
landamótinu i lyftingum sem
haldið var i Stokkhólmi nú
um helgina. Jón Páll keppir i
125 kilógramma flokki og þar
fyrir ofan.
Jón lyfti samtals 890 kg, en
það er nýtt Islandsmet i
samanlögðum árangri. Hann
lyfti mestu þyngd sem lyft
var á mótinu er hann lyfti 340
kg. i réttstöðulyftingum og
tryggði sér þar með titilinn.
Skúli Óskarsson varð að
láta sér nægja silfriö i sinum
flokki, 75 kg, og lyfti hann 705
kg. sem hann var siður en
svo ánægður með.
Fjórir aðrir Islendingar
kepptu á mótinu, og höfnuðu
þrir þeirra i 4. sæti, hver i
sinum þyngdarflokki, en það
voru þeir Kári Eliasson,
Hörður Magnússon og Guð-
mundur Eyjólfsson.
Mótið þótti heppnast vel og
veraspennandi. —AB
Valur æfir
á Villa Park
nú í kvöld
Frá Ragnari Erni Péturs-
syni — Birmingham — Eng-
land/AB
■ Knattspyrnulið Vals, sem
mun leika við Aston Villa á
Villa Park i Birmingham
annað kvöld, var við létta æf-
ingu i gærmorgun. 1 kvöld
fær liðið að æfa á Villa Park i
fljóðljósunum, og verður sú
æfing eins konar lokaundir-
búningur fyrir leikinn annað
kvöld.
Búist er við að á milli 30 og
40 þúsund manns komi til að
horfa á leikinn og reiknað er
með þvi að Bretarnir muni
taka leikinn af fullri alvöru
og tefla fram sinu sterkasta
liði, enda eru flestir knatt-
spyrnuunnendur i Bretlandi
þess minnugir hvernig fór
fyrir enska landsliöinu á
móti Noregi nú i siðustu
viku.
■ Við gengum hægt i sólar-
bliðunni á Eyrarbakka. Kart-
öflugrasið var fallið eins og
krónan og gengið og saltið á
rúðunum minnti okkur á
storminn sem nýverið gekk
yfir, sem einskonar forleikur
að nýjum vetri, og i daufu
brosi sólarinnar ókum við af
stað i bæinn. Já það var komið
haust og ekki unnið i frysti-
húsinu, en i staðinn unnu
menn i görðum sinum hér og
hvar og tóku upp rauðar kart-
öflur og gulrætur úr mjúkum
sandinum, þvi á þessum stað
eins og fleirum, fer lifsbarátt-
an fram beggja megin við sjó-
varnargarðinn, hvað sem
menn annars hafa að segja um
breytta tilhögun i þjóðfélag-
inu.
Þegar við ókum heim, sem
leið liggur undir háspennulin-
unum til Reykjavikur, fundum
við að þetta var mikill dagur.
Fyrir fáeinum dögum lagði
forseti Islands hornstein að
Hrauneyjarfossvirkjun og i
dag vigði Halldór E. Sigurðs-
son Borgarfjarðarbrúna.
Mestu brú landsins i marga
áratugi og fjöllin stóöu á önd-
inni.
Þetta var falleg athöfn i
heiðrikjunni, þótt ekki viti ég
upp á hár hvaða ritúall á við
stórar brýr, en eftir einu tók
maður i umfjöllun rikisfjöl-
miðlanna, að ekki var minnst
einu orði á þá sem unnu fyrir
þessari brú, sumsé þjóðina,
réft eins og brúin hefði verið
smiðuð niðri þingi, sett þar
saman og sett niður eins og
sólstafur og gefinn::þjóðinni til
eilifrar varðveislu. Þvi i dag
er það meira virði að kunna að
smiða brú, en að borga hana.
Já, og það sama skeði raun-
ar við Hrauneyjarfoss lika.
Yfirmenn peninga héldu ræð-
ur. Þingið hafði virkjað, en
Reykvikingar hafa liklega
tekið eftir þvi, að borgarstjóri
þeirra fékk aðeins að sitja á
öðrum bekk i vigslu Hrauneyj-
arfossa og er þó virkjun þessi
sameign rikis og Reykjavik-
urborgar, allt eins vel þótt
tengivirkin standi i Hvalfirði
og virkjunin inn á miðhálend-
inu, og borgarsjóri okkar fékk
ekki að halda neina ræðu á
þessari 210 megavatta náðar-
stund miðstýringarinnar.
Maður austan af fjörðum
gerði það.
En kannski má bæta úr þvi.
Einnig getur borgarstjórn
Reykjavikur minnst þessa á-
fanga i rekstri borgarinnar
sérstaklega.
Þegar komið var niðrundir
Gullbringur blasti nýlendan
Reykjavik við, og það glamp-
aði á spegilsléttan hafflötinn.
Þarna varhöfuðborgin með öll
sin vandræði, Esjan staröi
fram blýgrá með lokuð augun
i sólinni. Enn einn dagur var
að liða, og mér komu i hug orð
Lása kokks, þegar maöurinn
spurði hvað þetta fjall héti nú,
og benti á Esjuna. — Ég véit
það ekki. Það hefur alltaf ver-
iö þarna.
Og maður fann að það
sama gilti um þjóðina, sem
enginn skilur. Hún hefur alltaf
verið svona og við það situr,
hversu oft sem nýr dagur opn-
ar augun.
Jónas Guðmundsson.
Jónas Guðmundsson,
rithöfundur, skrifar
Maður
austan af
fjörðum
*