Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 4
stuttar fréttir M ■ Frá Fáskrúðsfir&i: Mikil samstaöa um bygg ingar fyrir aldraöa Byggt af öll- um fyrir alla FASKROÐSFJÖRÐUR: „Þaö má segja aö þetta sé það fyrsta sem gert er fyrir aldr- aða hér á staðnum i þá veru, að fólk geti búið hér alla sina ævi”, sagöi Gisli Jónatansson, kaupfélagsstjóri á Fáskrúðs- firði. En þar tók Einar Sig- urðsson, heiðursborgari Fú- skrúösfjarðar fyrstu skófhi- stungu að ibúðum fyrir aldr- aða sunnudaginn 27. septem- ber s.l. Við athöfn þessa fhitti sveit- arstjórinn, Jón B. Sigurðsson ávarp þar sem hann sagði m.a. að sllk samstaða hafi verið um þetta mál, að óhætt væri að segja, „aö byggt væri af öllum fyrir alla”. Gislisagði húsið, sem stend- ur skammt frá Heilsugæslu- stöðinni, verða 366 fermetra að grunnfleti, á tveim hæðum. Aefri hæðségert ráð fyrir 6 i- búðum en á neðri hæöinni 2 i- búðum ásamt félagslegri aö- stöðu. Þarna sé átt viö íbúðir sem fólk búi i út af fyrir sig. Reiknað sé með að húsiö verði fokhelt I ágúst á næsta ári og fullgert á árinu 1983. Aðspurður sagði Gísli geysi- lega þörf fyrir slikt húsnæði á Fáskrúðsfirði. Til þessa hafi aldrað fólk — sem ekki geti orðið hugsað um sig sjálft — þurft að fara burt af staðnum. Sumir hafi farið á elliheimili til Noröfjarðar enaðrirflutttil Reykjavikur. „Þetta er þvi mjög brýnt verkefni”, sagði Gisli. Hann tók fram að vonast sé eftir frjálsum framlögum fólks til þessa mikilsverða málefnis. I þeim tilgangi hafi verið opnaður sparisjóðs- reikningur nr. 2151 i Lands- bankanum á Fáskrúðsfirði, þar sem fólk geti lagt inn þær fjárhæðir sem það vill leggja fram. Fjármögnunina sagði hann hvila á sveitarfélaginu og Framkvæmdasjóði aldraðra. — HEI Skilvísustu útsvarsgreið- endur landsins HÚSAVÍK: „Ég þekki ekki annað en að HUsvikingar séu mjög skilvisir, þannig að við höfum í mörg ár verið alveg i toppi hvað varðar innheimtu gjalda til bæjarsjóðs. Þar kemur eflaust einnig til að hjá okkur hafa ekki veriö nein umtalsverð vandræðafyrir- tæki, sem viða hafa kannski gert útsvarsinnheimtu erf- iða”, sagði Bjarni Aöalgeirs- son.bæjarstjóri á Húsavik. En Timinn talaði við hann vegna þess að fram hefur k'omið i yfirliti hjá Sambandi sveitar- féiaga að innheimta sveitar- sjóðsgjalda var best á Húsa- vik á s.l. ári eða 95,7% af gjöldum greitt. fyrir áramót. Bjarni sagöi atvirmulifið á HUsavik að verulegu leyti byggt upp á félagslegum grundvelli, þar sem tiltölulega stór fyrirtæki hafi margt fólk i vinnu. Þau hafi staöið vel i skilum með opinber gjöld bæði fyrir sig og starfsfólk sitt. Er þetta ekki „árans SIS- valdið”? „Það má kannski segja það. Kaupfélagiö er hér veigamik- ill þáttur í atvinnulifinu. Fisk- iðjusamlag Húsavikur er t.d. stærsti atvinnurekandinn — með flest fólk I vinnu — og kaupfélagið er yfir 50% eign- araðili að þvi,” sagði Bjarni. Enda hefðu Húsvikingar ekk- ert á móti kaupfélögunum og Sambandinu. Þvf má bæta við að álögð Ut- svör á einstaklinga á Húsavik i ár nema 8.652.800 kr. íbúar um siðustu áramót voru rúm- lega 2.400 talsins. — HEI Um 6.000 fjár slátrað í haust FASKRCÐSF JÖRÐUR: „Sláturffðin hófst hjá okkur fyrir viku”, sagöi Gisli Jóna- tansson, kaupfélagsstjóri i samtali viö Timann hinn 28. september. Hann sagði áætl- að, að slátra um 6.000 fjár og um 80 nautgripum á þessu hausti, sem væri svipaður fjöldi og undanfarin ár. Spurður um vænleika fjár- inssagði hann það ekki komið svo vel i ljós ennþá, þar sem svolitluhafi verið slátraö enn. Menn byggjust þó við að dilk- arnir voti almennt heldur rýrir, forsem vorið var svo seint á ferðinni þetta áriö. — HEI Björgunar- sveitin Garðar fær hús að gjöf HÚSAVIK: Það hljóp heldur betur á snærið hjá Björgunar- sveitinni Garðari á Húsavik nýlega. Bærinn þurfti að f jar- lægja áhaldahUs Kitaveitu og Vatnsveitu af grunni sinum vegna annarra byggingar- framkvæmda og ákvað að gefa Björgunarsveitinni húsiö. Þetta er um 100 fermetra bárujárnshús á trégrind, þannig að ekkert vandamál er með flutning þess. Þeir björg- unarsveitarmenn ætla að flytja þaö i heilu lagi út á Höföa þar sem sveitin hefur sina aðstöðu og nota það sem áhalda- og tækjageymslu. „UTUT FYRIR AD NÆG HEY SÉU í LANDINU” — segir Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri ■ „Það litur út fyrir að hey séu næg i landinu, en aftur höfuðmál- ið hvernig tekst að miðla þeim. Það geta orðið viss svæði sem erf- itt verður að koma heyjum til, fyrst og fremst vegna fjarlægð- ar”, sagði Jónas Jónsson, búnað- armálastjóri er Timinn leitaði frétta af þvihvernig bændur væru búnir undir veturinn varðandi heyfeng. „1 stórum dráttum má segja að á svæðinu frá Meðallandi, suður og vestur um, allt til Skagafjarð- arsýslu, sé ástandið mjög mis- jafnt og jafnvel milli einstakra bæja”,sagði Jónas. Erfiðast sé á- standið á sunnanverðu Snæfells- nesi og i Barðastrandarsýslum. A þessu svæði séu sum sveitar- félög þó vel stödd t.d. i Borgar- firði sunnan Skarðsheiðar og yfir- leitt I Kjósarsýslu. Jafnframt sé þokkalegt ástand viðast hvar i Mýrdal, undir Eyjafjöllum og i Landeyjum, a.m.k. A-Landeyj- um. A erfiðleikasvæðum sagði Jón- as ástandið einnig ákaflega mis- jafnt milli bæja. Á þeim bæjum sem kalið var mest og sprettan þar af leiðandi lélegust framan af sumri lentu menn verst út úr ó- þurrkunum siðari hluta sumars. Þetta sagði Jónas einnig eiga við um stöku bæi i Skagafirði og jafn- vel i Svarfaðardal og út með Eyjafirði. Þetta yfirlit er fengið sam- kvæmt svörum 50 sveitarstjórna við bréfum sérstakrar nefndar er send voru öllum sveitarstjórnum á landinu. Hún hefur i framhaldi af þvi sent tillögur til landbúnað- arráðherra og er nú beðið eftir á- kvörðun um þær. Ekki telur Jónas að koma þurfi til niðurskurðar bústofns, nema þá að menn velji þann kost frem- ur, eða treysti sér ekki til hey- kaupa. Hann tók fram, að á kalsvæðun- um hafi margir sýnt mikinn dugnað við grænfóðurrækt i sum- ar. „Hefðuþeirekkigert það væri ástandið örugglega miklu verra”, sagði Jónas. —HEI ■ Gisli Rúnar Jónsson hefur nú tekiö viö hlutverki því, sem Kjartan Ragnarsson fór meö f Skornum skömmtum f vor. Hér er hann aö styöja Gisla Halldórsson, sem virðist eiga eitthvaö erfitt meö aö fóta sig á lifsins refilstigum. „Skornir skammtar” á midnætursýningum í Austurbæjarbíó ■ Nú eru að hefjast að nýju sýn- ingar Leikfélgs Reykjavikur á reviunni Skornir skammtar og hefur hún tekið ýmsum breyting- um yfir sumarið. Verður hún nú sýnd i Austurbæjarbió um mið- næturskeið, kl.23.30. Höfundar reviunnar, Þórarinn Eldjárn og Jón Hjartarson, hafa endurskoðaö og endursamið ýms atriði með tilliti til breyttra að- stæðna og ýmissa þjóðlifsat- burða, svo að segja má, að hér sé að nokkru leyti um nýtt verk að ræða. Jón hefur einnig annast leikstjórn i haust i fjarveru Guð- rúnar Asmundsdóttur sem dvelst i Finnlandi um þessar mundir á- samt manni sinum, Kjartani Ragnarssyni vegna uppsetningar þar i landi á leikriti Kjartans, Blessað barnalán. Kjartan fór með stórt hlutverk i Skornum skömmtum i vor, en við hlutverki hans nú hefur tekið Gisli Rúnar Jónsson. Er hann ný- kominn frá framhaldsnámi i Lon- don og leikur nú sitt fyrsta hlut- verk meö Leikfélagi Reykjavik- ur —KL Flugleidir bjóða helgarferðir til 5 höfuðborga ■ Flugleiðir bjóða nú lands- mönnum helgarferðir til fimm höfuðborga i Evrójbu, innifalið i verðinu er f lugfargjald, gisting og morgunverður. Dvalið verður á góðum hótelum og munu Flug- leiðir annast pöntun á bilaleigu- bilum og/eða skoðunarferöum sé þess óskað. Borgirnar sem helgarferðirnar eru til eru: Kaupmannahöfn, London, Luxemburg, Osló og Stokkhólmur. Verðið á helgarferðunum er sem hér segir: Kaupmannahöfn frá 3.374.00 til 3.968.00 kr. Til Oslóar frá 2.133.00 til 2.846 kr. Til Luxemburg 2.466.00 til 2.631.00 kr. Til Stokkhólms 2.647.00 til 2.949.00 kr. Flugvallarskattur er ekki inni- falinn i uppgefnu verði. Sjó

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.