Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 5
Laugardagur 3. október 1981
5
erlent yfirlit
bridge
■ EITT riki virðist að mestu
sleppa við þá efnahagskreppu,
sem er ríkjandi i heiminum og
þrengir jafnt að þjóðum, sem búa
við kommúmskt kerfi og kapital-
iskt.
Þetta riki er Japan. Þar er ekki
nema 5% verðbólga og 2% at-
vinnuleysi og hagvöxturinn
verður um 5% á þessu ári. Ot-
flutningurinn vex jafnt og þétt.
Iðnaðarveldin vestrænu standa
ráðalitil i samkeppni við Japan á
sviði rafeindatækni og sjálf-
virkni, því að framfarimar á
þessu sviði eru svo miklu hraðari
hjá þeim.
Japanskar stofnanir, sem fást
við spádóma um efnahagsmál,
telja að ekkert lát verði á þessari
framsókn Japana. Ein þeirra,
sem nefnist á ensku Research
Institute of National Ecmiomy,
hefur nýlega spáð, að árið 1990
verði Japan komið fram Ur
Bandarikjunum, þegar miðað er
við þjóðartekjur á mann.
Samkvæmt tölum stofnunar-
innar voru þjóðartekjur á mann
árið 1980 10.577 dollarar i Banda-
rikjunum, en 8.990 dollarar i
Japan. Arið 1990 verða þær orðn-
ar 27.730 dollarar i Bandaríkj-
unum en 29.100 dollarar i Japan.
Stofnun þessi reiknar með þvi,
að árlegur hagvöxtur verði til
jafnaðar 4.5% i Japan, 2% i
Bandarikjunum og 1% i Bret-
landi. Vestur-Þýzkaland þykir
liklegast til að hafa mestan hag-
Japan að verða
mesta iðnríkið
Fer fram úr Bandaríkjunum 1990
vöxt af vestrænu iðnaðarveld-
unum eða 2.1%.
1 þessum útreikningum er m.a.
byggt á þvi, að ekki verði óeðli-
lega miklar hækkanir á oliuverði
og oliunotkun aukist ekki að ráði
frá þvi, sem hún er nú.
Stofnunin reiknar með þvi', að
Japanir hafi áfram tök á verð-
bólgunni, en hins vegar kunni að
verða varið meira fjármagni til
varnarmála og það geti veikt
fjárhagsstöðuna.
FRAMAR öllu öðru virðist
þessi spá byggð á þvi, að Japan
hafi si'fellt meiri forustu á sviði
tæknilegra framfara, einkum þó
á rafeindasviðinu.
Japönsk fyrirtæki leggja fram
gifurlega mikla fjármuni til
margvfslegra rannsókna á þessu
sviði. Mest munar þó um þátt
MITI, en þannig skammstafast á
ensku nafn utanrikis-, verslunar-
og iðnaðarráðuneytis, Ministry of
International Trade and
Industry. Þetta ráðuneyti, sem er
risavaxið, greiðir ekki aðeins
fyrir utanrikisviðskiptum Jap-
ana, jafnt á sviði innflutnings og
útfhitnings, heldur annast sjálft
eða styrkir margvislegar rann-
sóknir i þágu iðnaðarins.
Sem dæmi um þetta má nefna
það, að nýlega hefur MITI lagt
fram 150 milljónir dollara til sér-
stakrar tölvurannsóknar, sem
hefur það markmið að framleiða
nýja tölvu,sem á að vera 66 sinn-
um fljótvirkari en sú tölva, sem
rní þykir fljótvirkust, svonefnd
Gray-One.
í mörgum tilfellum, þegar
einkafyrirtæki hafa gefizt upp við
tilraun sem vafasamt þótti að
myndi svara kostnaði, hefur
MITI gripið inn i og lagt fram
fjármagn til að ljúka tilrauninni
til fullnustu. Fyrirtækin hafa að
sjálfsögðu verið fús til að halda
tilraununum áfram, þegar þau
gátu gert það þeim að kostnaðar-
lausu.
Undir handleiðslu MITI er um
þessar mundir verið að fram-
kvæma margar rannsóknir og til-
raunir á hinum margvislegustu
sviðum. í vissum tilfellum efnir
MITI til alþjóðlegra funda vis-
indamanna i viökomandi grein og
fær þá til að bera saman bækur
sinar.
Japanir telja sig þannig fúsa til
að miðla öðrum af tækniþekkingu
■ Hirohito Japanskeisari
sinni. Aðrir gizka á, að hér liggi
oft sá fiskur undir steini, að þeir
telji sig ekki vita nógu mikið og
vilji þvi fræðast af öðrum.
JAPANIR gera sér ljóst, að
margt þarf til, ef þaö takmark á
að nást, að þeir fari framúr
Bandarikjunum hvað snertir
þjóðtekjur á mann, þar sem
Bandarfkin eru miklu auðugra
land en Japan og Bandarikja-
menn hafa ekki staðið öðrum að
baki i tækniþekkingu.
Það skiptir ekki minna máli i
þessu sambandi, að tryggja
nógan markað fyrir framleiðsl-
una. Þrengt getur að þeim mark-
aði,sem Japanirhafa núIEvrópu
og Bandarfkjunum. Þess vegna
er Japönum nauðsynlegt að leita
markaðar á nýjum stööum.
Þessar slóðir eru þróunarlöndin
svonefndu.
Japanir hafa undanfarið stór-
aukið efnahagsaðstoð sina við
þróunarlöndin, einkum þó i Asiu.
Að verulegu leyti hefur hér verið
um óendurkræf framlög aðræða.
Þá hafa þeir unnið markvisst að
þvi aö auka viðskipti við þessi
lönd.
Bersýnilegt er, að Japanir
stefna að þvi að vinna markað
fyrirvörur sinar iþessum löndum
og verða þar fyrri til en keppi-
nautarnir i Vestur-Evrópu,
Bandarikin og kommúnistarikin.
Vissulega bendir margttil þess,
að Japan verðiorðið 1990 það riki
i heiminum, þar sem þjóöartekj-
urnar eru mestar á mann. Hvað
verður þá um aldamótin?
Hvað gerist svo þegar hinn guli
risinn, sem er margfalt stærri,
Kina, hefur tD fulls risið úr ösku-
stónni?
Þá fyrst fara Evrópumenn og
Amerikumenn að finna fyrir
samkeppninni.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Bikarkeppnin:
Undanúrslitin í dag
— Haustkeppnir í fullum gangi
■ I dag kl. 13.00 hefst spila-
mennska i undanúrslitum
bikarkeppni B.S.I. og verður
spilað i kjallarasal Hótels
Heklu við Rauðarárstig. Tveir
hörkuleikir verða i boði fyrir
áhorfendur, enda eru i sveit-
unum f jórum, margir af bestu
bridgespilurum landsins.
Annars vegar eigast við
sveit Guðmundar Hermanns-
sonar, þ.e. kjarni unglinga-
landsliðsins þeir Guðmundur,
Sævar Þorbjörnsson og Þor-
lákur Jónsson auk Islands-
meistaranna i tvimenning
Jóns Baldurssonar og Vals
Sigurðssonar og sveit Egils
Guðjohnsens (núverandi Is-
landsmeistarar i sveita-
keppni), en i henni eru þeir
feðgar. Egill og Stefán svo og
Þórarinn Sigþórsson, Óli Már
Guðmundsson, Sigtryggur
Sigurðsson og Guðmundur
Pétursson. Hins vegar glimir
sveit Tryggva Bjarnasonar
(Jakob Möller, Hrólfur
Hjaltason, Runólfur Pálsson
ogSteinberg Rikharðsson) við
hina margreyndu kappa i
sveit Arnars Arnþórssonar
(Guðlaugur Jóhannsson, Jón
Asbjörnsson, Simon Simonar-
son, Höröur Amþórsson og
Jón Hjaltason). Spilaðir verða
48 leikir i f jórum lotum og eins
og fyrr segir verður spilað i
Hótel Heklu,en úrslitakeppnin
mDlisigurvegaranna i dag fer
fram að Hótel Loftleiðum n.k.
laugardag.
önnur meiri háttar keppni
fer einnig fram i' dag, en það
er úrslitakeppnin um Reykja-
nesmeistaratitilinn. Sam-
kvæmt áætlun eiga 20 pör að
spila um titilinn i dag, en
undanúrslit fóru fram um sið-
ustu helgi. Spilað verður i
Þinghóli i Kópavogi og er
ætlunin að ljúka keppninni i
dag.
Haustmótin hafin
Flest bridgefélög og deildir
á höfuðborgarsvæðinu eru nú
komin i gang með hausttvi-
menningskeppnir sinar.
A.m.k. 10 félög starfa reglu-
lega á svæðinu, þannig að
fjöldi spUara skiptir fleiri
hundruðum.
T.B.K.
28 pör taka þátt i hausttvi-
menningskeppni félagsins og
verður spilað i tveimur riðl-
um, fimm umferðir alls. 1.
umferð var spiluð i Domus
Medica i fyrrakvöld og uröu
úrslit i A-riðli þessi:
1. Sigtryggur Sigurðsson —
Sverrir Kristinsson 183
2. Sigfús Sigurhjartarson —
Geirarður Geirarðsson 181
3. Steingrimur Sigurðsson —
Gisli Sigurðsson 172
4. Gisli Hafliðason — Sigurður
Þorsteinsson 170
I B-riðli var meira um
sveiflur, en þar urðu úrslit:
1. Guðmundur Páll Arnarson
— Þórarinn Sigþórsson 207
2. Guðmundur Eiriksson —
Þórhallur Þorsteinsson 204
3. Sólveig Kristjánsdóttir —
Óskar Karlsson 188
4. Kristján Jónasson — Guðjón
Jóhannsson 172
Meöalskor i báðum riðlum
var 156. Næstu tvö fimmtu-
dagskvöld verður slöngurað-
að, en sfðustu tvö kvöldin
verður raðað eftir árangri.
Bridgedeild
Breiðf irðinga
Tveimur kvöldum af fimm
er nú lokið i tvimennings-
keppni félagsins. Staðan að
þeim loknum er þannig:
1. Oskar Ingimarsson —
Sverrir Jónsson 395
2. Magnús Halldórsson — Þor-
steinn Laufdal 394
3. Kristján Ólafsson— Runólf-
ur Sigurðsson 381
4. Jón Guðmar Jónsson -
Magnús Oddsson 380
5. Ólafur Valgeirsson —
Ragna ólafsdóttir 375
6. Gisli Viglundsson — Þórar-
inn Arnason 362
7. Óskar Þór Þráinsson —
Sveinn Helgason 361
8. Benedikt Björnsson —
Magnús Björnsson 358
9. Albert Þorsteinsson — Sig-
urður Emilsson 356
10. Jón Pálsson — Kristin
Þórðardóttir 350
Miðlungurinn er 330. Spilaö
er i' þremur 12 para riðlum,
alls 33 spil á kvöldiog er spilað
i Hreyfilshúsinu við Grensás-
veg.
B.R.
Aðaltvimenningur Bridge-
félags Reykjavikur hófst s.l.
miðvikudag i Domus Medica
og spila 42 pör i þremur
riðlum. Helstu úrslit i 1. um-
ferð urðu:
A-riöilI
1. Jónas P. Erlingsson — Þórir
Sigursteinsson 188
2. Georg Sverrisson — Rúnar
Magnússon 184
3. Einar Guðjohnsen — Gylfi
Baldursson 182
4. Guðmundur Pétursson —
Hörður Blöndal 174
B-riðill
1. Sævar Þorbjörnsson — Þor-
lákur Jónsson 192
2. Agúst Helgason — Hannes
Jónsson 182
3. Guölaugur R. Jóhannsson —
örn Amþórsson 172
4. Gestur Jónsson — Sverrir
Kristinsson 168
C-riðill
1. Asmundur Pálsson — Karl
Sigurhjartarson 192
2. Stefán Pálsson — Ægir
Magnússon 179
3. Jón Baldursson — Valur
Sigurðsson 171
4. Gylfi Sigurðsson — Sigur-
berg Elentinusson 167
önnur umferð verður spiluð
n.k. miðvikudag 7. okt i
Domus Medica kl. 19.30 stund-
vislega.
Næstu tvö kvöld verður
slönguraðað i riðlana, en
fjórða og siðasta kvöldið
verður raðað eftir árangri.
Bridgefélag
kvenna
Tveimur kvöldum af þrem-
ur I yfirstandandi keppni fé-
lagsins er nú lokið. Siðasta
umferðin verður spiluð n.k.
mánudag, en staðan fyrir
hana er:
1. Alda Hansen — Nanna
Agústsdóttir 541
2. -3. Guðrún Einarsdóttir —
Guðriður Halldórsdóttir 500
2.-3. Ester Jakobsdóttir —
Erla Sigurjónsdóttir 500
4. Júlianna Isebarn—Margrét
Margeirsdóttir 485
5. Steinunn Snorradóttir —
Þorgerður Þórarinsdóttir 476
Meðalskor er 420, en spilað
er I tveimur 16 para riðlum.
Stórmót á Selfossi
Að lokum viljum við minna
bridgespilara á stórmótið,
sem verður haldið á Selfossi
laugardaginn 17. október n.k.
Höföingleg peningaverðlaun
eru i boði (fyrir þá sem sigra)
og nema þau a.m.k. 10.000 kr.
Skrásetning fer fram um þess-
ar mundir hjá keppnisstjórum
bridgefélaganna.
Magnús Ólafsson
skrifar um bridge