Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.10.1981, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 3. október 1981 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gistason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiöslustjóri: Sig, urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jóns son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Úlafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaöur Helqar-Timans: llluoi Jökulsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriöason, 'Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Hálldór Valdimarsson, Heiöur Helga- dóttir, Jónas Guömundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. útlits- teiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnsson. Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guö- jón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verö i lausasölu 5.00. Askriftargjald á mánuöi: kr. 85.00-Prentun: Blaöaprent h.f. á vettvangi dagsins Hundamat fyrir köttinn! eftir Einar Frey Ummæli Einars Ágústssonar ■ Vorið 1973 þegar Einar Ágústsson þáv. utan- rikisráðherra, flutti á Alþingi skýrslu um utan- rikismál, vék hann m.a. að hinni nýbyrjuðu Vinarráðstefnu, sem átti að fjalla um samdrátt herafla i Mið-Evrópu. Ráðstefnan hafði þá hafizt fyrir tveimur mánuðum. Eftir að hafa rætt um þá hættu, sem stafaði af stöðugri aukningu og fullkomnun vigbúnaðarins, sagði Einar Ágústsson orðrétt: ,,Ber þvi að vona, að tilætlaður árangur verði af þessum viðræðum og að ekki verði látið þar við sitja. Hef ég þá einkum i huga hinn sivaxandi vig- búnað stórveldanna á höfunum, ekki hvað sizt við bæjardyrnar hjá okkur á Norður-Atlantshafi, sem að minu áliti ber að stemma stigu við.” Einar Ágústsson vék aftur að þessu máli, þegar hann flutti ræðu á öryggismálaráðstefnunni i Helsinki i júli 1973. Hann sagðist vona, að viðræð- urnar i Vinarborg leiddu til þess, að hafnar yrðu viðræður um samdrátt vigbúnaðar á öðrum hættusvæðum. Enn vék Einar Ágústsson að þessu málefni á ráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn var 12. desember 1974. Orð hans þar féllu á þá leið, að íslendingar fylgdust vel með við- ræðunum i Vinarborg um samdrátt herafla i Mið- Evrópu. Von þeirra væri sú, að viðræðurnar bæru jákvæðan árangur og samdráttur herafla i Mið- Evrópu yrði ekki til þess að auka öryggisleysi á hinum hernaðarlega þýðingarmikla norðurhluta varnarsvæðisins (Norður-Atlantshafi) heldur styddi einnig að samdrætti herafla þar. Þannig var það strax 1973 augljóst framsýnum mönnum eins og Einari Ágústssyni að ekki væri siður aðkallandi að vinna að samdrætti vigbún- aðar á Norður-Atlantshafi en i Mið-Evrópu. Vid bæjardyrnar ■ Siðan ráðstefnan i Vinarborg hófst fyrir átta árum, hefur aðstaðan á margan hátt breytzt til hins verra. Ekkert samkomulag hefur náðst um samdrátt vigbúnaðar, heldur hefur hann haldið áfram að aukast. Sennilega hefur þó aukningin orðið mest við bæjardyrnar hjá okkur, svo að notuð séu orð Einars Ágústssonar, þ.e. á Norður-Atlantshafi. Fyrir átta árum var ekki óeðlilegt, að Islend- ingar biðu eftir árangri af Vinarfundinum og gerðu sér vonir um, að hann gæti einnig leitt til samdráttar vigbúnaðar á Norður-Atlantshafi. Þvi miður hefur þessi ekki orðið raunin. Fyrir íslendinga er þvi ekki öllu lengur hægt að biða, þegar þeir sjá vigbúnaðinn vera að aukast við bæjardyrnar. Þeir hafa að visu ekki bolmagn til að sporna gegn þvi, en þeir geta samt hafið við- nám, sem kynni að geta borið einhvern árangur. Einn áfanginn i þessa átt væri að beita sér fyrir viðræðum rikjanna við Norður-Atlantshaf um samdrátt vigbúnaðar þar. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi til slikra viðræðna. Þá ber að hagnýta. Þ.Þ. 1. ■ 1 hinum frjálsu og viröulegu Bandarfkjunum fer þa6 i vöxt þessa dagana, að litil börn komi i gamaldags matvælabUÖ og biðji um „matfyrirköttinn”. „Viðeig- um að kaupa mat fyrir köttinn”, segja þau. Og þegar ein litil stúlka komnýlega i eina af þess- um búöum og baðum „hundamat fyrir köttinn” varð afgreiöslu- stúlkunni á að spyrja: Hefur verið stofnað kattabú heima hjá þér? Það sanna var, aö foreldrar þessara barna höfðu blátt áfram ekki ráð á þvi að kaupa venjuleg- an mat eins og kjöt og fisk fyrir alla fjölskylduna og urðu þvi að Iáta sér nægja að drýgja matinn með hundamat til að koma i veg íyrir vannæringu. Matvæli fólksins hafa hækkað mikið siðustu mánuði og atvinnu- leysið erenn I örum vexti. Iíiö al- menna atvinnuleysi i Bandarikj- unum er milli 7 og 8%. Atvinnu- leysi hjá ungu fólki er 50% hjá hinum svörtu en 20% meöal hvitra unglinga. Jafnvel meðalmenn i hagfræði kalla slika þróun „frjálshyggju”. 2. Þá almennu skoðun að vöru- verð lúti framboði og eftirspum þarf nú á dögum aö taka með var- úö. Þessi klassiska kenning um hækkaniroglækkanirer iraun og veru alveg rétt og hefur verið réttiaöaiatriðum.En nú er þetta að breytast að minnsta kosti á sumum vörum. En hvað kemur i staöinn fyrir framboö og eftir- spum? Nokkrum árum eftir siðari heimstyrjöldina sagöi fram- kvæmdarstjórinn William A. Ir- vin, að stórfyrirtækiö U.S. Steel stjómaði markaðsverðinu á stáli. Núviröist röðin vera komin að matvælunum. Hin stóru mat- vælafyrirtæki reyna aö einoka , söluá matvælum og I gegnum þá aðstööu sina stjórna markaös- verðinu. Reynslan sýnir aö slik fyrirtæki reyna einnig að skipu- leggja atvinnuleysiog siðan berja niöur verkalýðsféiög. Stórfyrir- tækin reyna að velta ábyrgöinni á hinu hækkaöa verði á matvælum yfir á starfsemi verkalýösfélag- anna þótt sannað sé aö vöruhækk- animar stafi af einokun stórfyrir- tækja og rentukröfum stórbank- anna. Verksmiðjur sem framleiða hundamat reyna einnig að skipu- leggja vöruverð á framleiöslu sinni, þóekki eins grimmt og þau fyrirtæki sem framleiöa matvæli til manneldis. Samkvæmt nýjum skýrslum hefur hunda- og kattamatarát fólks f Bandarikjunum aukist I kringum 13% á 10 mánuðum. Eins og á kreppuáíunum má nú sjá fátækt og soltið fólk viða i Bandarikjunum ganga á sorp- hauga og keppa við rotturnar um matarleifarnar. Þar sem hunda og kattalff er á- ætlaö frá 5 til 15 ár, hafa fram- leiðendur tilbúins dýramatar séð sér fært að nota meira af lifs- hættulegum rotvarnarefnum I þá fæöu en i matvæli til manneldis. En þrátt fyrir þaö, að meöalaldur fólks i Bandarikjunum er i kring- um 65 ár, er látiö meira af eitur- efnum f matvæli til manneldis en nauðsynlegt er. Þetta er gert vegna þess að matvæli eru fram- leidd til að geymast á lager I lengri eða skemmri tlma. Það er nefnilega um meiri gróða að vænta að framleiöa mikiö magn af matvælum á einu bretti. Það væri synd aö segja það, að hin stóru alþjóðlegu matvæla- fyrirtæki starfi eftir hinum góöu og gömlu grisku spakmælum: Halbrigð sál I hraustum likama. 3. NU eru öll lönd sem framleiða hráefni til matvælaiðnaðar i mik- illi hættu fyrir hinni nýju stefnu hinna stóru, alþjóðlegu matvæla- fyrirtækja. Þótt þessi stóru mat- vælafyrirtæki séu enn upptekin á sviði landbúnaðarvörufram- leiðshi og leggi undir sig lönd sem framleiða korn, ávexti, kjöt og aðrar landbúnaðarvörur, eru þau samt sem áður farin að renna augunum til þeirra landa sem liggja vel við framleiðslu á sjávarútvegsmatvælum. Sjávarútvegsland eins og ísland gætikomist ihættuzóninn á næstu árum. Ef taka ætti dæmi um lönd þar sem þessi stórfyrirtæki eru nU upptekinaf þ.e. landbúnaðarlönd, mætti benda á Haiti og Filipps- eyjarnar. Þaö er ekki hægt aö fara ná- kvæmlega út i allar aðfarir sem notaðar eru. Fátækum bónda á Haiti var ráðlagt að kaupa ýmsar ódýrar landbúnaðarvörur frá ■ „iTimanum frá i vor mátti lesa eftirfarandi: á hverriminútu á degi hverjum deyja 28 manns úr hungri og vannæringu”. Bandarfkjunum. Það myndi launa sig fyrir hann að vinna dá- lltið með landbúnaðinum og kaupa svo mjög ódýrar vörur. Hann átti að geta til dæmis fengið 30egg fyrireirm dollara. Bóndinn beit á agn áróöursins. Hann keypti tómata, korn og svo þessi egg, fyrir einn dollara 30 stykki. Þetta leitvel út i fyrstu. En þegar þessi bóndi hafði minnkað eigin framleiðslu og fdr að vinna dálitiö márafyrirutan sina fátæku jörð, fara vörurnar að hækka. Hann þarf að fá lán sem leiðir til þess aö hann tapar jöröinni. Hann flosnar upp og fer til fátækra- hverfisins i höfuðborginni. Hann fær ekki lengur 30 egg fyrir einn dollara. Aðeins 10 egg. Auðhring- arnir höfðu notfært sér ólæsi þessa bónda og rænt hann öllu sem hann átti. I höfúðborginni Port-au Prince eru verkalýðs- félög bönnuö. Sérfræöingar frá auðhringunum hafa skipulagt kringum 200nýja trúarsöfnuði til að draga athyglina frá hinum raunverulegu kringumstæðum á Haiti. Þaö þykja mjög góö laun i verksmiðjum að fá 18 dollara i mánaðarlaun fyrir fullvaxna manneskju. Einn priöji ibúa Haiti menningarmál Lóf ót og kjarnorkuumræðan The Satellite State in the 17 th and 18th Centuries. Edited by Stale Dyrvik, Knut Mykland, Jan Old- ervoll. Universitetsforlaget 1979. 199 bls. ■ Þetta er fjölritað rit og fjallar um riki, sem áttu það sameigin- legt á 17. ogl8. öld aö vera i rikja- sambandi viö önnur og voldugri riki. Löndin, sem fjallað er um eru: Island, Noregur, Finnland, Skotland, Irland og Wales. Sagn- fræðingar frá öllum þessum lönd- um rita I bókina ritgerðir um efnahagsstööu landa sinna á þessum öldum, þjóðfélagsgerö og menningu. Ein greiner um lsland I bókinni, Helgi Þorláksson ritar um einokunarverslun.Dana hér á landi. Ritgeröirnari bókinni eru allar aögengilegar og vel samdar og bókin fróðleg fyrir þá, sem vilja bera saman kjör fólks, sem varð að lúta stjórn voldugra nágranna. Grethe Værno: ATOM- VAPENFRI SONE. Blindgate eller vej til varigfred? Universitetsforlaget 1981. 90 bls. A undanförnum vikum og mánuöum hefur mikið veriö um það rætt hvort Norðurlöidin eigi að veröa kjarnorkulaust svæði og sýnist þar sjtthverjum. 1 þessari

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.