Tíminn - 23.10.1981, Síða 5

Tíminn - 23.10.1981, Síða 5
■ Forseti islands leggur blómsveig að minnisvarða um fallna Norðmenn I seinni heims styrjoldinni. Tímamynd: ESE „Hefur verid mér ógleymanleg siund” — sagði Vigdís Finnbogadótiir, forseti íslands, eftir að hafa tekið á móii naerri fimm hundruð íslendingum á Grand Hótel í gær Frá FRI og ESE blaða- mönnum Timans i Osló: Fjölmörg skólabörn með is- lenska fánann tóku á móti Vigdisi I Finnbogadóttur, forseta tslands, og ólafi Noregskonungi með húrrahrópum þegar þau komu ásamt fylgdarliði að Vikinga- skipasafninu i Osló. Heimsóknin i safnið var einn liðurinn i opin- berri heimsókn forsetans til Nor- egs, en þvi næst skoðuðu hinir tignu gestir Heini-Onstad lista- safnið. Safnið er reist fyrir tilstuðlan hinnar frægu norsku skutadrottn- ingar Sonie Heine og eiginmanns hennar. Svo skemmtilega vill til að islenskir listamenn sýna i kjallara þess um þessar mundir, ogræddi forsetinn litillega við þá. Erforsetinnhafði skoðað safnið var snæddur hádegisverður i ráð- húsinu i Osló i boði borgarstjórn- ar Osló. Eftir málsverðinn stigu börn Haralds krónprins norskan þjóðdans iklædd þjóðbúningum, og vakti þetta atriði mikla lukku meðal viðstaddra. Siðdegis i gær hafði forsetinn móttöku á Hótel Grand fyrir þá fjölmörgu íslendinga sem búsett- ir eru i Osló og nágrenni. Mæting var mjög góð og troðfylltust sal- irnir tveir á hótelinu sem fengnir höfðu verið að láni til móttökunn- ar. Voru þar mættir á fimmta hundruð landar. Voru Vigdisi færðar nokkrar gjafir við þetta tækifæri. Mats Tennessen frá Norsk-islenska vináttufélaginu færði henni fork- unnafagra bronsstyttu af móður með barn sitt, eftir norska lista- manninn Odd Hylt. A eftir honum tók til máls Else Mundal sem færði forsetanum að gjöf Kon- ungasögurnar á norsku. Þriðji i röðinni var prófessor Hallvart Mageöy sem færði Vigdisi hátið- arútgáfu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar, i tilefni af 800 ára ártiðar hans. Að lokum tók Sig- urjón Jóhannsson, formaður Is- lendingafélagsins i Osló, til máls ogfærði forsetanum þrjú bindi af norskri nútimasögu eftir Ingvar Utstvelt. Eftir að gestir höfðu lokið sér af með ræður og gjafir tók Vigis Finnbogadóttir til máls og sagði m.a.: „Þetta hefur verið mér ógleymanleg stund.” Kom hún viða við i ávarpi sinu, en sagði svo að lokum: „Min stærsta og dýr- mætasta ósk fyrir okkur Islend- inga er að við megum ganga i spor Jóns Sigurðssonar á erlendri grund.” öðrum degi hinnar opinberu heimsóknar til Noregs lauk siöan með þvi að forsetinn og fylgdarlið þáðu kvöldverð i boði norsku rik- isstjórnarinnar i Akershús-kast- ala. Vigdis Finnbogadóttir hélt stutta tölu yfir borðum við máls- verðinn, og sagði m.a.: „Norsku og islensku þjóðinni má likja við eldri hjón sem svo lengi hafa búið saman að hvort um sig er fyrir löngu búið að gleyma þvi hafi eitthvað einhvern tima farið úrskeiðis á hjúskapar- árunum. Eldrihjón verða iðulega ástfangin hvort af öðru upp á nýtt. Vér Norðmenn og Islend- ingar búum nú við þennan kær- leika hvorir til annarra. Um stund var það „karlinn”, konung- urinn á bænum, sem öllu réði i sambúð vorri, en nú rikir jafn- ræði.” KAS heimsmeistaraeinvígid í skák 8. skákin Jafnteflisleg biðsiaða Mikil spenna rikti er þeir Karpov og Korsnoj tóku til við 8. einvigisskákina i Meranó i gær. Margir veltu þvi fyrir sér, hvort sovéska sérfræðingaliðið hefði fundið einhverja endurbót á tafl- mennsku Karpovs i 6. skákinni. En sennilega hafa Rússarnir ann- aöhvort ekki verið komnir að niðurstöðu, ellegar þeir hafa hreinlega ekki talið sig þurfa þess, nóg væri i vopnabúrinu. Og heimsmeistarinn kom andstæö- ingi sinum á óvart i byrjun, beitti eldgömlu afbrigði italska leiks- ins, sem að visu veldur svörtum litlum erfiðleikum, en gefur hon- um ekki heldur mikil tækifæri til þess að flækja taflið. A margan hátt var þetta hyggileg ráðstöfun hjá Karpov. Hann hefur tvo vinn- inga yfir og gæti sem best gert jafntefli i 29 skákum til viöbótar ef þvl væri að skipta. Hvltt: A. Karpov Svart: V. Kortsnoj ltalski leikurinn 1. e4 - e5 2. Rf3 5 Rc6 3. Bc4 (Italski leikurinn. Karpov hefur sjaldan teflt þessa byrjun, sem þykir róleg og ekki gefa hvitum mikið i aðra hönd. En hann tekur ekki heldur mikla áhættu. Þetta geta menn svo túlkað sem sál- rænan sigur Kortsnoj eða hygg- indi af hálfu Karpovs, hver eftir sinni lund). 3. - - Bc5 4. R3 - Rf6 5. d3 (A undanförnum tveim árum hafa sovéskir meistarar af yngri kynslóðinni, þ.á.m. Beljavsky beitt þessari uppbyggingu með allgóðum árangri. Þessi leikmáti er svo hægfara, að hann gengur undir nafninu Giucco pianissimo. Kortsnoj á i litlum erfiðleikum með að tefla gegn þessu. Hvass- ara var 5. d4.). 5. - - d6 6. Rbd2 - a6 7. 0-0 - 0-0 8. Bb3 - Ba7 9. h3 - Be6 10. Bc2. (Karpov hugsar fyrst og fremst um öryggið. Eftir 10; Bxe6 - fxe6 hefði svartur sterkt peöamiðborð og réði hálfopinni f-linunni. Til samans vægi þetta tvennt upp tvi- peöið og vel það. Hvitur gat auð- vitað ekki unniö peö með 10. Bxe6 -fxe6, 11. Db3 vegna 11. — Db7, og ef nú 12. Dxb7?? þá 12. —Hfb8, 13. Dxa6 — Bxf2 + og drottningin fellur). 10. - - d5 (Nú hefur svart náð að jafna taflið). 11. Hel (Svörtum stóð engin ógn af 11. exd5 - Rxd5,12. Hel-Rf4 o.sv.frv.) 11. - - dxe4 12. dxe4 -Dxdl (Upphafiö að miklum uppskipt- um. 13. — De7 kom einnig vel til greina). 14. Hxdl - Had8 15. Be3 - f6 16. Bxa - Rxa7 17. Re3 - Rf4 18. h4 - Bf7 19. Rel - Rc8 20. f3 - Re6 21. Rd3 - Hd7 22. Bb3 (Þegar hér var komið sögu tók Kortsnoj sér langan umhugs- unartima og þegar hann loks lék átti hann aöeins 18 minútur eftir á 18 leiki). 22. - Re7 23. Rd5 - Rc6 24. Ba4 - b5 25. Bc2 - llfd8 26. a4 - Kf8 27. g3 - Hd6 28. b4 (Hvitur reynir að ná frumkvæði á drottningarvæng, en svarta stað- an er traust). 28. - - Re7 29. Re3 - Hc6 30. Ha3 - Rc8 31. axb5 -axb5 (Og nú átti Kortsnoj einar eitt nundrað sekúndur á 9 leiki!). 32. Kf2 - Rb6 33. Rb2 - Hxdl 34. Bxdl - Hd6 35. Be2 - Be8 36. Ha5 - Hd8 32- Kel - c6 38. Ha6 - Hb8 39. Bdl - Rc8 40. Rd3 - Rc7 41. Ha5 1 þessari stöðu fór skákin i bið og lék Kortsnoj biðleik. Jón Þ. Þór.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.