Tíminn - 23.10.1981, Side 17
Föstudagur 23. október 1981
íþróttir
Fimm stiga tap
fyrir Hollandi
— fslenska unglingalandslidið tapadi 61-66 í síöasta
leiknum gegn Hollandi f körfuknattleik
■ Viöari Vignissyni hefur mistekist körfuskot og Hellendingarnir ná frákastinu. Tfmamynd Róbert
Hólm-
bert
til
KR?
■ „Við erum farnir að þreifa fyrir
okkur með þjálfara fyrir komandi
keppnistimabil en ekkert er af-
ráðið í þvi sambandi,” sagði
Guðjón Guðmundsson formaður
knattspyrnudeildar KR, er Tim-
inn ræddi við hann i gær.
Okkur hefur borist það til eyrna
að KR-ingar hafi mikinn áhuga á
að fá Hólmbert Friðjónsson til
liðs við sig sem þjálfara, en hann
hefurþjálfaðFram undanfarin ár
og við spurðum Guðjón hvort eitt-
hvað væri til i þvi.
„Ég get hvorki svarað þvi ját-
andi né neitandi” sagði Guðjón.
■ Islenska unglinga-
landsliðinu i körfuknatt-
leik tókst ekki að leggja
hollenska liðið að velli i
siðasta leiknum sem
háður var i Laugardals-
höllinni i gærkvöldi.
Leikurinn endaði 66-61
fyrir Hollandi eftir að
staðan i hálfleik hafði
verið 32-28 einnig fyrir
Hollendinga.
Það var aðeins i upphafi leiks-
ins sem islenska liðið hafði for-
ystu 2:0 og aftur 4:2 en siðan kom
afleitur kafli hjá liðinu og
Hollendingar tóku forystuna sem
þeir héldu út til enda leiksins.
Það munaði miklu i leiknum að
þeir Valur Ingimundarson og
Axel Nikulásson sem verið hafa
burðarásar i liðinu náðu sér
aldrei á strik i leiknum. Þeir
skoruðu aðeins 8 stig, Valur sex
og Axel 2 og það i seinni hálfleik
og rétt eftir að Axel hafði gert sin
stig, þá þurfti hann að yfirgefa
völlinn með 5 villur.
Það mæddi þvi mikið á Pálmari
Sigurðssyni i leiknum og stóð
hann vel fyrir sinu. Hann var
langbesti maður liðsins og skor-
aði 22 stig eða nær helming stiga
liðsins. Sóknarleikur islenska
liðsins var framur lélegur, en
strákarnir bættu það upp með
stórgóðri vörn. Þrátt fyrir það
Island er með svo til nýtt lið og
reynslulitið.
Þjóöirnar léku fjóra leiki. Hol-
land sigraði i þremur, en fsland i
einum og tapleikirnir töpuðust
ekki með miklum mun. Þrátt
fyrir allt er þetta mun betri
árangur en margir bjuggust við.
Eins og áður sagði skoraði
Pálmar 22 stig en Leifur Gústafs-
son kom næstur með 13 stig.
Fyrirliðinn Peter van Noord
var besti maöur Hollendinga
skoraði einnig mest 16 stig en
þessi kappi var valinn einn besti
körfuknattleiksmaður Hollands i
fyrra.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti og
Sigurður Valur og gerðu vel.
röp-.
var aldrei stórmunur á þjóðunum
hvað stigum viðkemur, oftast
munaði ekki nema fjórum til sex
stigum, en þeim brást bogalistinn
er þeir höfðu tækifæri á að
minnka muninn. Þrátt fyrir þetta
þarf landsliðið ekki að skammast
sin fyrir frammistöðu sina.
Hollendingar hafa á að skipa einu
besta unglingaliði i Evrópu, en
„Árangurinn betri
en ég bjóst við”
Bollason landsliðsþjálfari
■ Einar Bollason, landsliösþjálfari og Jón Sigurösson, aöstoöarþjálf-
ari gera athugasemdir viö timann. Timamynd Róbert.
■ „Það var margtgott i
þessum leik, varnarleik-
urinn hjá strákunum var
frábær en sóknin ekki
eins góð”, sagði Einar
Bollason, þjálfari ungl-
ingalandsliðsins er Tim-
inn ræddi við hann eftir
leikinn.
„Þetta hefur verið erfitt fyrir
strákana þeir hafa leikið fjóra
leikiá jafnmörgum dögum og lið-
ið er svo til nýtt og reynslulitið.
Enda kom það vel fram i þess-
um leik hvað strákarnir eru
þreyttir.Sástþaðbestá Val Ingi-.
mundarsyni, en það hefur mikið
mættá honum i þessum leikjum.
Þrátt fyrir að viö höfum tapað
þremur leikjum og unnið einn, þá
er þessi árangur miklu betri en ég
bjóst við. Þetta hollenska liö er
eitt hið besta i Evrópu og þeir
hafa leikið lengi saman og þeir
eru með stóra leikmenn. Við höf-
um sýnt með þessum leikjum, að
körfuknattleikurinn hérhjá okkur
er i sókn. Þá var ég mjög ánægð-
ur meö leik Pálmars i kvöld hann
er leikmaður sem sækir sig með
hverjum leik.
Þetta iiö heldur eftir tvær vikur
til Luxemborgar þar sem ieiknir
verða tveir landsleikir og ég er
bjartsýnn á þá leiki”. röp—.