Tíminn - 31.12.1981, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 31. desember 1981
útvarp og sjónvarp um áramótin
*f*AÍS
Svipmynd úr Tromp á hendi.
Áramótamyndir sjónvarpsins:
Tromp á hendi
og Tom Jones
■ Tvær kvikmyndir verða á dag-
skrá sjónvarpsins laugardags-
kvöldið 2. jan. en það eru mynd-
irnar A Big Hand For the Little
Lady (Tromp á hendi) og Tom
Jones.
Tromp á hendi er bandarisk
gerð af Fielder Cook 1966 og f jall-
ar um hjón á leið til Texas þar
sem þau ætla að festa sér jörð
fyrir aleiguna. A leiðinni koma
þau við i bæ einum þar sem æðis-
gengið fjárhættuspil er i gangi en
eiginmaöurinn er ástriðufullur
fjárhættuspilari og brátt hefur
hann lagt aleiguna undir i spilinu.
Mikill fjöldi góðra leikara prýð-
irþessa mynd þeirra á meöal eru
Henry Fonda, Joanne Woodward
og Jason Robarts.
Myndin Tom Jones er gerð af
einum besta leikstjóra Breta
Tony Richardson en sumir muna
ef til vill eftir mynd hans Josep
Andrews sem sýnd var hér i
Tónabiófyrirekki löngusiðan.
Tom Jones eins og Josep Andrews
byggir á einni af sögum Henry
Fielding og fjallar um strákinn
Tom Jones sem elst upp á virðu-
legu ensku sveitasetri hjá fólki af
góðum ættum. Hann verður brátt
myndarpiltur sem gengur mjög i
augun á kvenfólkinu og eignast af
þeim sökum marga öfundar-
menn.
Um ættir hans sjálfs og upp-
runa er allt á huldu og i sambandi
kemur margt athyglisvert upp á
yfirborðið.
Með helstu hlutverk i þessari
mynd fara Albert Finney og Sus-
annah York.
— FRl
Alfreð Clausen ásamt hljómsveit Aage Lorange.
Útvarp á gamlársdagsnóttina:
„Þá vantaði ekki fjörið”
— þáttur um dægurtónlistina á árunum 1950-’55
■ „Þetta er svona lausleg upp-
rifjun á dægurtónlist á árunum
1950-55,, en þá vantaði ekki fjörið
— og ég bregð á fóninn plötum
meðþeimsem voruhelstu dægur-
lagasöngvarar okkar á þeim
tima”, sagði Arnbjörg örnólfs-
dóttir isamtali viðTimann en hún
hefur umsjón með stuttum tón-
íistarþætti i útvarpinu á nýárs-
nótt og hefst hann kl. 01.40.
Arnbjörg er vel kunnug þessu
timabili i dægurtónlist hérlendis
þar sem hún söng sjálf á þessum
árum.kom fyrstfram 1953 i Aust-
urbæjarbiómeð KK sveitinni góð-
kunnu.
„Stærstunöfniná þessumárum
voru Haukur Morthens, Alfreð
Clausen, Sigrún Jónsdóttir, Ellý
Vilhjálms svo eitthvaö sé nefnt.
Auk þess að leika tónlist þess-
ara ára ætla ég aðeins að rifja
upp skemmtanalifiðá þessum ár-
um, danshúsin og fleira, en það er
óhætt að segja að fjörið hefi veriö
mikiö á þessum árum, sveiflan i
fullum gangi.”
—FRI
„Kampa
víns-
tón-
list”
■ „Ætlunin er að tóna mann-
skapinn aðeins niöur fyrir ára-
mótaávörpin”, sagöi Jón öm
Marinósson tónlistarstjóri Út-
varpsins i samtali við Timann en
hann hefur umsjón með stuttum
tónlistarþætti kl. 11 á Gamlárs-
kvöld og hefur þátturinn hlotiö
nafnið Brennumúsik.
,,Ég er ekki alveg klár á af-
hverju þetta nafn er notað á þátt-
inn, segja má að þetta veröi eins-
konar „kampavinstónlist” eða
eitthvaö i þeim dúr.
Það verður mest tónlist eftir
Strauss og Offenbach sem spiluð
verður i þættinum.”
Áramótaskaup útvarpsins:
„Frjálst” útvarp
■ Höfundar áramótaskaupsins
fara mjög huldu höfði þessa dag-
ana og ómögulegt er að fá uppgef-
ið hjá stofnuninni hverjir þeir eru
en eftir því sem Timinn kemst
næst eru það innanbúðarmenn
sem veg og vanda hafa af skaup-
inu.
Flestir þeirra sverja hins vegar
af sér að hafa lagt hönd á plóginn
en i skaupinu verður plægður ak-
ur helstu merkis,,viðburða” árs-
íns.
Eftir þvi sem við höfum komist
næst þá mun skaupið veröa
„frjálst” útvarp sem starfsmenn
stcrfnunarinnar hafa enga stjórn
á, og er alls ekki á ábyrgð stofn-
unarinnar.
Áheyrendur fá væntanlega aö
kynnastþessu „frjálsa” útvarpi i
kvöld og ef að likum lætur ætti
það að vera meinfyndiö.
Áramótaskaup
sjónvarpsins:
■ Tónlistarmaður ársins I viðtali við Friöil Friðleifsson I skaupi sjón-
varpsins. Eins og sjá má þá prýöirýmislegt tónlistarmanninn, exi i höfö-
inu, skæri i öxlinni og ef að likum lætur spjót I bakinu. Sem sagt ósköp
venjulegur pönkari.
innan
■ „Við höfundarnir notum okkur
•það að við erum með þennan mið-
ilí höndunum, þ.e. sjónvarpið, og
vinnum prógrammið út frá þvi.
Við búum til sjónvarpsdagskrá
með öllu tilheyrandi, fréttum,
veðurfregnum, auglýsingum, i-
þróttum, söngva- og spurninga-
keppnum o.s.frv. þannig að þetta
verður nokkurs konar dagskrá
innan dagskrárinnar”, sagði Gisli
Rúnar Jónsson leikstjóri og einn
af höfundum áramótaskaups
sjónvarpsins i ár i samtali við
Timann.
„Skaupið gengur sem sagt fyrir
sig eins og sjónvarpsdagskrá, að
visu ekki „strang-lógiskt” en með
öll þessi minni sem fólk hefur af
sjónvarpinu.
Sem tengiliði efnis notum við
svo „andlit” sjónvarpsins sem
flestum ættu að vera góðkunn, að
visu ekki frumútgáfurnar heldur
paródiur af þessu fólki.”
Alls eru 60 atriði i skaupinu og
ef þau eru öll i stil við það sem á-
horfendur sáu i dagskrárkynn-
ingu sjónvarpsins fyrir skömmu
ætti engum að leiðast yfir skaup-
inu.
Höfundar efnis auk Gisla eru
Randver Þorláksson og Sigurður
Sigurjónsson.
Aðrir þátttakendur i skaupinu
eru m.a. Bessi Bjarnason, Edda
Björgvinsdóttir, Guðmundur
Klemenzson, Þórhallur Sigurðs-
son og fl. en hljómsveit skaupsins
eru Galdrakarlar undir stjórn
Vilhjálms Guðjónssonar.
— FRI
Hraðfrystihús Kaupfélags Héraðsbúa
Reyðarfirði og Borgarfirði eystri
óskar starfsfólki og viðskiptaviiium
farsœldar á komandi ári
l>akkar gott samstarf og viðskipti á árinu. seni er að liða
Hraðfrystihús Kaupfélags Héraðsbúa
Reyðarfirði og Borgarfirði eystri
Gleðilegt nýtt ár
Þökkum starfsfólki og viðskiptavinum ánægjulegt samstarf
og viðskipti á árinu, sem er að líða.
Hraðfrystihús
Kaupfélags Austur-Skaftfellinga
HOFN. HORNAFIRÐI