Fréttablaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 1
Þór Sigfússon
Efnahagsundrið
engin bóla
Orðskýringin
Hvað eru
uppboðs-
skuldabréf?
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 3. september 2008 – 36. tölublað – 4. árgangur
Ríkisstjórnin lokar
augunum
Leitað verður
lausna
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Þetta eru auðvitað jákvæð tíðindi, en ég bendi á
að kjör lánsins eru óþekkt,“ segir Ásgeir Jónsson,
forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings.
Geir H. Haarde forsætisráðherra tilkynnti í
gær um lántöku upp á að minnsta kosti 250 millj-
ónir evra, eða sem svarar um 30 milljörðum ís-
lenskra króna. „Á kjörum sem eru mun hagstæð-
ari en svokallað skuldatryggingarálag á ríkissjóð
gefur til kynna,“ sagði Geir í ræðu á Alþingi.
Ekki kom fram í ræðu Geirs hver veitir lánið.
Geir sagði að forðinn nemi nú um 500 milljörð-
um króna.
Eftir því sem Markaðurinn kemst næst er
skuldatryggingarálag á ríkið nú töluvert yfir 200
punktum, en einnig hefur verið sagt við Markað-
inn að í sumar hafi ríkinu boðist öllu verri kjör.
Ásgeir Jónsson segir að lántakan geti sent tví-
þætt skilaboð til markaðsaðila. Ríkinu bjóðist
betri kjör en sem nemur álaginu og að litið verði
á þetta sem áfanga í ferli.
Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykja-
vík, segir að hluti af þeim vanda sem Íslendingar
glími við sé að skort hafi traust á íslenskum efna-
hag og viðskiptalífi. „Frá því að gerðir voru gjald-
miðlaskiptasamningar við norræna seðlabanka
hafa ekki verið stigin mikilvæg skref í þessum
efnum. Þessi aðgerð er jákvæð í sjálfu sér, en
veldur ekki straumhvörfum.“
„Þetta er jákvætt, en um leið er þetta klár-
lega aðeins eitt skref af mörgum sem þarf að
stíga,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Hann
segir að þótt lánið sé ekki stórt og fjárhæðin hafi
ekki mikil áhrif á stöðu gjaldeyrisforðans í heild,
þá sýni þetta að hægt sé að sækja fé á góðum
kjörum.
Þórólfur Matthíasson, prófessor við Háskóla
Íslands, bendir á að hvorki hafi komið fram hver
veitti lánið, né til hversu langs tíma það sé. Hvort
tveggja skipti máli. „Annars kemur þetta ekki að
öllu leyti á óvart,“ segir Þórólfur, og minnist lán-
töku sveitarfélaga fyrr á árinu, sem voru „á kjör-
um sem voru langt undir öllum skuldatrygging-
arálögum“.
Viðmælandi Markaðarins bendir á að þótt kjör-
in á láninu séu fín, hljóti þau að vera öllu verri en
á meðan allt lék í lyndi.
Lán ríkisins er einn
áfangi á langri leið
Forsætisráðherra hefur tilkynnt um evrulán á mun betri
kjörum en sem nemur skuldatryggingarálagi ríkisins.
Prófessor segir þetta ekki koma að öllu leyti á óvart.
Dregur úr neyslu Heldur dró
úr neyslu bandarísks almenn-
ings í júlí þegar áhrif skattend-
urgreiðslna tóku að fjara út og
verðbólga jókst. Bandaríska við-
skiptaráðuneytið segir verðlag
ekki hafa hækkað jafn mikið í
sautján ár.
Fasteignaverð hrynur Fast-
eignaverð í Bretlandi hefur fall-
ið að meðaltali um 10,5 prósent
frá áramótum. Verðlækkun sem
þessi hefur ekki sést í ríki Elísa-
betar Englandsdrottningar í átján
ár, samkvæmt úttekt breska fast-
eignalánaveitandans Nationwide.
Dagarnir taldir Útgáfu danska
dagblaðsins Nyhedsavisen var
hætt á sunnudag. Dótturfélag
Dagsbrúnar stofnaði blaðið fyrir
um tveimur árum og gjörbreytti
dönskum auglýsingamarkaði.
Þrátt fyrir taprekstur var það
mest lesna dagblað landsins.
Minni verðbólga Tólf mánaða
verðbólga mælist 3,8 prósent á
evrusvæðinu, samkvæmt áætlun
frá Eurostat, hagstofu Evrópu-
sambandins. Þetta er undir svart-
sýnispám.
Beðið hærri vaxta Þegar næst
verður hreyft við stýrivöxtum
í Bandaríkjunum þá verða þeir
hækkaðir. Þetta kemur fram í
minnispunktum af síðasta vaxta-
ákvörðunarfundi bandaríska
seðlabankans í síðasta mánuði.
Reiknað er með óbreyttum vöxt-
um fram í nóvember.
Vonir standa til þess að endur-
fjármögnun á XL Leisure Group
takist í þessari viku, að því er
fram kemur í breskum fjölmiðl-
um. Óttast hafði verið að tafir
yrðu á slíku samkomulagi, en
Barclays og Straumur Burða-
rás, sem eru helstu lánadrottn-
ar XL, hafa tekið þátt í samn-
ingafundum síðustu daga.
XL Leisure er þriðja stærsta
fyrirtæki í Bretlandi á sviði
ferðaþjónustu. Fyrirtækið tap-
aði tæplega fjórum milljörð-
um króna á síðasta rekstrarári,
samfara því að skuldir félags-
ins jukust stórlega.
Greiningardeild Landsbank-
ans bendir á að Eimskip hafi
selt félagið í október 2006 til
stjórnenda þess og hóps fjár-
festa fyrir um 38 milljarða
króna. Við söluna gekk Eim-
skip í ábyrgð fyrir láni að upp-
hæð 280 milljónir Bandaríkja-
dala, sem er enn í gildi. Sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
eru litlar líkur taldar á því að
Eimskip losni við þá ábyrgð á
næstunni og geti jafnvel þurft
að afskrifa hana að hluta eða
öllu leyti. - bih
XL í endur-
fjármögnun
Sala á vörum Bakkavarar mun aukast um 166% á
næstu fjórum árum. Þetta kemur fram í viðtali Fin-
ancial Times við Ágúst Guðmundsson forstjóra í
gær. Hann segir hraðan vöxt í Kína.
Í greininni er sagt frá Bakkavör og vexti þess, sem
byggður er að mestu á yfirtökum, ekki síst í Bret-
landi. Ágúst segir fyrirtækið stefna á frekari vöxt
og óttist ekki að kaupa fyrirtæki sem sé stærra en
það sjálft. Vitnað er til kaupanna á fyrirtækjunum
Katsouris Fresh Foods og Geest en það fyrrnefnda
var fimm sinnum stærra en Bakkavör þegar það var
keypt 2001. Þá er nefnt að Bakkavör hafi fest sér
tæpan 11% hlut í írska samlokufyrirtækinu Green-
core sem geti bent til yfirtöku á næstu misserum.
Ágúst segir kaupin óheppileg. Gengi bréfa í félag-
inu hafi fallið hratt og Bakkavör tapað 46,2 milljón-
um punda á þeim fyrri hluta árs. Hann sé hins vegar
viss um að gengið muni jafna sig á endanum. - jab
Spáir Bakkavör örum vexti
Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, í stórviðtali við Financial Times.
64-5
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Vistvænn
kostur!