Fréttablaðið - 03.09.2008, Blaðsíða 2
MARKAÐURINN 3. SEPTEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
„Sektin verður borguð,“ segir
Lárentsínus Kristjánsson, lög-
maður og stjórnarformaður
Gnúps fjárfestingafélags.
Fjármálaeftirlitið hefur ákveð-
ið að sekta Gnúp um tvær millj-
ónir króna fyrir að brjóta gegn
flöggunarskyldu. Málið varðar
viðskipti með töluvert hlutafé í
FL Group í janúar síðastliðnum.
Þá fór hlutur Gnúps úr rúmum
ellefu prósentum og niður í 8,54
prósent. Fyrirtækjum er skylt að
flagga ef atkvæðisréttur nær, fer
yfir eða lækkar niður fyrir 5 pró-
sent, 10 prósent og önnur fimm
prósenta bil.
Lárentsínus segir að þetta mál
hafi komið upp fyrir mistök, og
fyrir sína tíð hjá félaginu. Þótt
ekki fari mikið fyrir Gnúpi um
þessar mundir þá séu svona mál
gerð upp.
Um gengi félagsins að öðru
leyti segir Lárentsínus að það
fari „eins og vindar blása“.
Gnúpur var í eigu Kristins
Björnssonar sem eitt sinn var for-
stjóri Skeljungs, Þórðar Más Jó-
hannessonar sem stýrði Straumi
hér áður fyrr og Magnúsar Krist-
inssonar, útgerðarmanns í Vest-
mannaeyjum og eiganda Toyota-
umboðsins hér á landi. Félagið
tapaði stórfé á hruni FL Group.
- ikh
Gnúpur sektaður
Samningar náðust um helgina um
kaup hins þýska Commerzbank
á Dresdner-banka. Kaupverð
nemur 9,8 milljörðum evra, jafn-
virði 1.200 milljörðum íslenskra
króna. Seljandi er tryggingaris-
inn Allianz.
Blekið var varla orðið þurrt á
samningum þegar niðurskurðar-
hnífurinn fór á loft en níu þúsund
starfsmönnum verður sagt upp.
Allianz þykir hafa stórtapað á
viðskiptunum. Fyrirtækið keypti
Dresdner-banka fyrir sjö árum
og pungaði út einum 28 milljörð-
um evra. Bankinn hefur komið
illa undan lausafjárkreppunni og
neyðst til að afskrifa fimm millj-
arða evra úr bókum sínum fram
til þessa, að sögn breska dag-
blaðsins Times. - jab
Allianz tapar á bankasölu
Alfesca hagnaðist um 3,5 milljónir evra,
jafnvirði 429 milljóna íslenskra króna,
á öðrum ársfjórðungi, sem er sá fjórði í
bókum félagsins. Þetta er svo til óbreytt
staða frá því fyrir ári. Hagnaðurinn á
árinu öllu nam 28,6 milljónum evra sem
er 27,6 prósenta aukning á milli ára.
Uppgjörið er yfir væntingum enda sam-
dráttur á neytendamörkuðum í Evrópu
líkt og sölutölur Alfesca benda til. en þær
drógust saman um 5,4 prósent. Greining-
ardeild Glitnis bendir á að jákvæð skattfærsla
upp á 3,5 milljónir evra hífi afkomuna upp auk
þess að páskar féllu á fjórða ársfjórðung.
Xavier Govare forstjóri er ánægður með af-
komuna. Hann segir stjórnendur ekki
hafa órað fyrir þeim verðhækkunum sem
skollið hafi á og gert umhverfið afar
krefjandi. Reiknað er með svipuðu ár-
ferði í nokkurn tíma.
Greint var frá því í júní að Sheikh Mo-
hamed bin Khalifa Al-Thani, bróðir em-
írsins í Katar, ætli að kaupa 12,6 prósenta
hlut í Alfesca.
Af því hefur enn ekki orðið en líkur eru
á að af því verði fyrir ársfund félagsins
í næsta mánuði. Þá verður sömuleiðis lagt til að
greiddur verði út arður í fyrsta sinn, jafnvirði um
1,5 milljarða íslenskra króna. - jab
XAVIER GOVARE
Alfesca skilar góðu uppgjöri
Fjárfestirinn frá Katar kemur líklega inn í hluthafahópinn í næsta mánuði.
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Í fjármálageiranum er beðið niðurstöðu um hvert
Byr sparisjóður stefnir í samrunaáætlunum. Sam-
kvæmt heimildum Markaðarins verða aðrar þreif-
ingar tæpast nema óformlegar þangað til.
„Ég held að það dyljist engum sem fylgist með mark-
aðnum að allir boltar eru á lofti,“ sagði Agnar Hans-
son, bankastjóri Icebank, í nýlegu viðtali við Mark-
aðinn, en greint hefur verið frá óformlegum við-
ræðum Icebank, VBS fjárfestingarbanka og Saga
Capital um mögulegan samruna. Heimildir Markað-
arins herma þó að þær séu tæpast á því stigi að geta
kallast þríhliða viðræður.
Jón Þórisson, forstjóri VBS, segir að leitað verði
leiða til að finna sameiningargrundvöll, en hafnar
því um leið að slæm staða reki fyrirtækin til samein-
ingar. „En að sjálfsögðu skoðum við öll tækifæri sem
upp kunna að koma.“
Fyrir helgi kom hins vegar fram bæði í máli Ragn-
ars Z. Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra Byrs, og Jóns
Þorsteins Jónssonar stjórnarformanns að hugur
þeirra stæði fremur til sameiningar sem styrkti
sparisjóðinn. Byr hefur engu að síður verið sterklega
orðaður við samruna inn í annaðhvort Landsbankann
eða Glitnir, þar sem stórir hluthafar í báðum fyrir-
tækjunum, kunna að sjá samlegðaráhrif.
Heimildir Markaðarins herma hins vegar að
smærri fjármálafyrirtæki horfi til Byrs sem spari-
sjóðs sem burði hafi til að vera nokkurs konar sam-
einingarafl á þeim markaði og tæki til að búa til
fjórða stóra bankann á markaði hér.
Varðandi óformlegar viðræður annarra fyrir-
tækja segist Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarfor-
maður Byrs, hafa heyrt af einhverjum kaffifundum.
Hann bendir á að Byr eigi hlut bæði í Saga Capital
og Icebank. „Og geri ég ráð fyrir að við komum að
þessu ef mál ná eitthvað lengra.“
Þá má einnig rifja upp að í byrjun þessa árs var
frá því greint að Byr sparisjóður hefði falast eftir
því að kaupa hlut bæði Sparisjóðsins í Keflavík og
Sparisjóðs Mýrasýslu í VBS fjárfestingarbanka.
Í FORSVARI FYRIR BYR Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformað-
ur Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson hafa fremur horft til þess að
styrkja sparisjóðinn í mögulegum samruna, en að hann renni inn í
stærri banka. MARKAÐURINN/PJETUR
Smærri fjármálafyrirtæki
horfa til Byrs sparisjóðs
Óformlegar viðræður eru í gangi um mögulegan samruna
þriggja fjármálafyrirtækja. Beðið er eftir niðurstöðu um stefnu
Byrs í samrunamálum sem ráða muni miklu um framhaldið.
Finnsk og pólsk viðskiptablöð
greina frá því að fjarskiptafyr-
irtækið TeliaSonera sé í viðræð-
um við Novator um kaup á pólska
farsímafyrirtækinu P4. Novator
á 75 prósenta hlut í P4.
Pólska viðskiptablaðið Puls
Biznesu segist hafa heimildir
fyrir því að Novator hafi leit-
að kaupenda að P4 síðan í apríl
og að viðræður við TeliaSonera
séu á forstigi. Talsmaður Novat-
or í Póllandi og talsmaður Teli-
aSonera höfnuðu þessum vanga-
veltum.
„Þetta eru ekkert nema vanga-
veltur á markaði í Póllandi,“ segir
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Novator. „Play er eitt af systurfé-
lögum Nova og það er allt á áætl-
un hjá Play, og rúmlega það.“ Ás-
geir bætti við að Play væri „hálf-
gert Spútnikfyrirtæki“ á pólska
farsímamarkaðnum. - msh
Novator að selja P4?
Heimsmarkaðsverð á hráolíu
lækkaði hratt í gær, fór niður
um tæpa tíu dali á tunnu og stóð
um miðjan dag í rúmum 105
dölum. Viðlíka verð hefur ekki
sést síðan snemma í apríl í vor.
Nokkrir þættir eiga hlut að
máli. Í fyrsta lagi olli fellibylur-
inn Gústav minna tjóni við Mex-
íkóflóa en búist var við.
Í ofanálag eru væntingar um
að þrengingar í stærstu hag-
kerfum heimsins muni leiða til
þess að draga muni úr olíu- og
eldsneytisnotkun og þrýstir það
verðinu neðar, að sögn Bloomb-
erg-fréttastofunnar. Olíuverð-
ið fór í hæstu hæðir í júlí, í
rúma 147 dali á tunnu. Miðað
við verðið um miðjan dag í gær
hefur það lækkað um 28 prósent
síðan þá. Danska dagblaðið Bör-
sen hefur eftir bankamönnum
í gær að olíuverðið geti farið
hratt niður á næstunni, jafn-
vel allt niður fyrir níutíu dali á
tunnu. Næstu árin geti það svo
farið allt upp í 200 dalina. - jab
Olíuverð fellur hratt
Seðlabanki Ástralíu ákvað í gær
að lækka stýrivexti bankans um
0,25 prósentustig, úr 7,25% í
7,0%, líkt og markaðs- og grein-
ingaraðilar höfðu búist við. Er
þetta fyrsta vaxtalækkun bank-
ans í sjö ár.
Erfið skilyrði á fjármálamörk-
uðum ásamt vísbendingum um að
hægja muni á vexti einkaneyslu
og hagvexti í Ástralíu á næstunni
eru meðal helstu skýringa fyrir
lækkuninni nú.
Seðlabankar í Bretlandi, Kan-
ada og Svíþjóð kynna nýjar
vaxtaákvarðanir á næstu dögum,
sem og Seðlabanki Evrópu.
- bih
Ástralir lækkaG E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá ára mót um
Alfesca 2,4% -1,2%
Atorka -2,5% -49,4%
Bakkavör -1,1% -54,4%
Exista -0,4% -61,0%
Glitnir -2,0% -31,4%
Eimskipafélagið 2,5% -58,2%
Icelandair 2,3% -26,8%
Kaupþing 0,7% -19,2%
Landsbankinn 0,4% -32,5%
Marel 0,5% -15,1%
SPRON 1,4% -60,6%
Straumur -2,2% -39,3%
Össur 4,4% -3,6%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.