Fréttablaðið - 01.10.2008, Page 2
MARKAÐURINN 1. OKTÓBER 2008 MIÐVIKUDAGUR2
H A U S
G E N G I S Þ R Ó U N
Verðbólga mældist 4,7 pró-
sent innan aðildarríkja Efna-
hags- og framfarastofnunarinn-
ar (OECD) í ágúst. Þetta er 0,1
prósentustigs lækkun frá í júlí.
Miklu munar um orkuverð,
sem lækkaði um 1,6 prósent
milli mánaða. Það er engu að
síður 20,9 prósentum hærra en
á sama tíma í fyrra. Þá hefur
matvöruverð sömuleiðis lækk-
að um 0,1 prósent. Það er 7,1
prósenti hærra en í fyrra. Séu
þessir tveir þættir undanskild-
ir nam verðbólgan 2,3 prósent-
um innan aðildarríkja OECD
í ágúst.
Verðbólgan var langhæst hér
á landi í mánuðinum, 14,5 pró-
sent, en minnst í Sviss, eða 2,9
prósent. - jab
KEYPT Í MATINN Mesta verðbólgan
innan aðildarríkja OECD mældist hér á
landi í ágúst. MARKAÐURINN/VALLI
Mesta verðbólgan hér
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
Latcharter, dótturfélag Icelandair Group í Lett-
landi, hefur tekið upp nýtt nafn. Það var kynnt af
þeim Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair
Group, og Garðari Forberg, framkvæmdastjóra
Latcharter, við athöfn í Ríga í Lettlandi í síðustu
viku um leið og haldið var upp á fimmtán ára
starfsafmæli félagsins að viðstöddu fjölmenni úr
lettnesku og íslensku viðskiptalífi.
Garðar Forberg segir rétt að breyta nú um nafn
og útlit flugfélagsins. „Staða okkar innan fluggeir-
ans hefur gjörbreyst á síðustu tveimur árum með
miklum vexti og breyttum áherslum,“ segir hann
og bætir við: „Við vildum auðkenna okkur með
nýjum hætti á markaði þannig að það endurspegl-
aði okkur betur sem fyrirtæki og þá menningu
sem hér ríkir. Við erum nú alþjóðlegt fyrirtæki í
fjölþættum rekstri.“
Björgólfur Jóhannsson kvaðst ánægður með
breytinguna og þróunina í rekstri félagsins á síð-
ustu árum. „Við erum jafnt og þétt að styrkja
starfsemi okkar í þessum heimshluta og fögn-
um áfanga á þeirri leið í dag. Þetta nýja nafn og
yfirbragð rímar vel við aðra starfsemi innan Ice-
landair Group, en í Tékklandi starfar einmitt
SmartWings innan okkar raða,“ segir hann.
SmartLynx í Lettlandi, sem er annað stærsta
flugfélag landsins með veltu upp á tíu milljarða
króna á ári, er að fullu í eigu Icelandair Group.
Í flota félagsins eru tíu vélar. Tvær Boeing 767-
300ER breiðþotur og átta Airbus 320-200 vélar.
Starfsmenn eru 260 talsins.
Félagið starfar á alþjóðlegum leigumarkaði og
er í verkefnum vítt og breitt um heiminn. Félag-
ið er til dæmis með vélar í verkefnum í Afríku,
Mið-Austurlöndum og Evrópu. Meðal annars eru
tvær breiðþotur í verkefnum fyrir Virgin Niger-
ia, en sjálfur Sir Richard Branson, stofnandi og
eigandi Virgin, sendi afmælishófinu ávarp sem
sýnt var á risatjaldi og talaði hann þar sérstaklega
til Garðars Forbergs. Alls sóttu um fimm hundr-
uð manns afmælisfagnaðinn. Meðal gesta var
flugmálastjóri Letta, sendiherrar Bandaríkjanna,
Frakklands, Þýskalands og Bretlands, framámenn
úr viðskiptalífi landsins og fjöldi aðila úr alþjóð-
lega fluggeiranum.
Heiðursgestur var Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Bryndís
Schram eiginkona hans, en Jón Baldvin er þekkt-
ur þar í landi fyrir framgöngu sína og frumkvæði
í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna, þegar Ís-
lendingar lýstu yfir sjálfstæði Eistlands, Lettlands
og Litháen fyrstir þjóða.
Latcharter í Ríga
verður SmartLynx
Fimmtán ára afmæli dótturfélags Icelandair í Lettlandi
fagnað með nýju nafni. Gjörbreytt staða á flugmarkaði.
„Fjármálakreppan ágerist með
hverjum degi, útlit versnar á al-
þjóðlegum mörkuðum, gengi krón-
unnar hefur fallið og allt þetta
eykur auðvitað áhyggjur manna
af Íslandi, sem endurspeglast í
þessum tölum,“ segir Jón Bjarki
Bentsson, hjá greiningu Glitnis.
Skuldatryggingarálag íslensku
bankanna hefur aldrei verið
hærra, en það hefur rokið upp
síðan í byrjun síðustu viku, eins og
sést af meðfylgjandi mynd. Enn er
ekki hægt að merkja áhrif þjóð-
nýtingar Glitnis.
Alþjóðlegir lánsfjármarkaðir
hafa þornað enn frekar upp í kjöl-
far þess að Bandaríkjaþing hafn-
aði björgunarfrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar, en Libor-vextir, það
er þeir vextir sem bankar greiða
fyrir að taka næturlöng lán hjá
hver öðrum, komust í 6,88 pró-
sent í gær, og hafa aldrei mælst
hærri.
Hærri millibankavextir eru
til marks um að bankastofnanir
treysta ekki hver annarri, en sér-
fræðingar sem Bloomberg ræðir
við segja að peningamarkaðir hafi
einfaldlega hrunið og einu bank-
arnir sem treysti sér til að lána
peninga eins og nú er ástatt séu
seðlabankar. - msh
Skuldatryggingarálagið rýkur upp
Landsbanki Kaupþing Glitnir
SKULDATRYGGINGARÁLAG ÍSLENSKU BANKANNA
1500
1200
900
600
300
0
júl. 2007 des. 2007 mar. 2008 jún. 2008 sept. 2008
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
lækkaði lánshæfismatseinkunnir
Kaupþings, Landsbankans, Glitn-
is og Straums í gær. Ákvörðun-
in kemur í beinu framhaldi af
ákvörðun ríkisins frá í fyrradag
um að kaupa 75 prósenta hlut í
Glitni fyrir 600 milljónir evra.
Fitch segir að þótt ríkið ætli
ekki að sitja á eign sinni í bank-
anum lengi þá sé svo mikill
óróleiki á fjármálamörkuðum að
harla ólíklegt sé að hægt verði
fyrir ríkið að selja hann í allra
nánustu framtíð.
Lánshæfismatseinkunn vegna
langtímaskuldbindinga Kaup-
þings var lækkuð úr A- í BBB.
Þá fer Landsbankinn úr A í
BBB, Glitnir fer úr A- í BBB- og
Straumur úr BBB- í BB+.
Þá setur Fitch lánshæfismats-
einkunnir bankanna á athugun-
arlista með neikvæðum vísbend-
ingum. Ekki náðist í bankastjóra
bankanna né aðra tengdum þeim
vegna málsins áður en Markað-
urinn fór í prentun í gær. - jab
Fitch lækkar ein-
kunnir bankanna
TILKYNNT UM KAUPIN Kaup ríkisins á
75 prósenta hlut í Glitni urðu til þess að
matsfyrirtækið Fitch lækkaði lánshæfisein-
kunnir bankanna. MARKAÐURINN/GVA
FORSTJÓRI FAGNAR NAFNABREYTINGU Garðar Forberg, for-
stjóri SmartLynx, fær blómvönd í tilefni af afmæli lettnesk/íslenska
flugfélagsins og nafnbreytingunni.
Vika Frá ára mót um
Alfesca -5,6% -8,1%
Atorka -13,4% -53,7%
Bakkavör -12,3% -63,6%
Exista -14,8% -69,6%
Glitnir -69,6% -79,3%
Eimskipafélagið -7,4% -88,5%
Icelandair -7,2% -32,4%
Kaupþing -6,1% -21,4%
Landsbankinn -10,5% -42,5%
Marel -3,7% -13,6%
SPRON -18,1% -71,3%
Straumur -4,4% -44,7%
Össur -1,8% --4,8%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.