Fréttablaðið - 08.10.2008, Page 1
Stiglitz
Vandinn
blasti við
6
Orðskýring
Hvað er
viðskiptavild?
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 9. janúar 2008 – 1. tölublað – 4. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
Endurskoða spá | Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn (IMF) varar við
því að tap vegna lélegra veða
í Bandaríkjunum gæti farið yfir
1.400 milljarða dala (yfir 137 þús-
und milljarðar króna). Fyrri áætl-
un gerði ráð fyrir 945 milljörðum
dala. Hvatt er til samhæfðra að-
gerða þjóða.
Vinnuhorfur Evrópu | Atvinnu-
leysi innan Evrópusambandsins
mælist 7,5 prósent í nýjustu tölum
Eurostat, hagstofu ESB, sem er
0,5 prósentustiga aukning frá ára-
mótum. Eurostat áréttar þó að
atvinnuleysi innan sambandsins
hafi aldrei verið minna en um ára-
mótin.
Vilja breytingar | Þýsk stjórn-
völd kunna að skilyrða aðstoð
við banka í örðugleikum við að
breytingar verði gerðar í stjórn-
endahópi þeirra. Krafan yrði til
að vernda hag skattgreiðenda og
forða frekari áföllum.
CDS markaður | CME Group og
Citadel Investment Group boða
innan mánaðar stofnun rafræns
markaðar með skuldatrygging-
arálag (CDS, eða Credit Default
Swap) sem rekinn yrði í samstarfi
við miðlæga greiðslujöfnunar- eða
uppgjörsstöð. Félögin bjóða til
sölu hlutabréf í markaðnum.
Andfætlingar lækka | Seðla-
banki Ástralíu hefur lækkað stýri-
vexti úr 7,0 prósentustigum í 6,0
prósentustig. Lækkunin er mun
skarpari en búist var við. Bank-
inn segir hagvaxtarhorfur rétt-
læta hana, þótt verðbólga sé enn
yfir markmiði.
Óbreytt í Japan | Tuttugasta
mánuðinn í röð hefur Seðlabanki
Japana ákveðið að halda stýri-
vöxtum þar í landi óbreyttum í 0,5
prósentustigum. Bankinn reyn-
ir að ýta undir með hagkerfinu
sem orðið hefur fyrir neikvæð-
um áhrifum frá Bandaríkjunum
og Japan.
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
FORSÆTISRÁÐHERRA Geir H.
Haarde segir forsætisráðuneytið ekki
taka fram fyrir hendur bankastjórnar
Seðlabankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Seðlabankinn er sjálfstæð stofn-
un og vinnur samkvæmt lögum.
Við gerum engar breytingar á
bankastjórninni,“ segir Geir H.
Haarde forsætisráðherra að-
spurður hvort breyting sé fyrir-
huguð á bankastjórn eða stýri-
vextir lækkaðir á næstunni vegna
aðstæðna í efnahagslífinu.
Seðlabankinn heyrir undir for-
sætisráðuneyti en hefur sætt
harðri gagnrýni síðustu vikur.
Geir sagði Seðlabankann vinna
í samræmi við lög um bankann
en ríkisstjórnin sinni eigin starfi.
Hann, sem forsætisráðherra, geti
ekki tekið fram fyrir hendurnar
á bankanum. Slíkt sé í trássi við
lög. - jab
Bankastjórnin
situr óhögguð
Er prentverkið
Svansmerkt?
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Skortsölur í fjármálafyrirtækj-
um skráðum í íslensku kauphöll-
ina hafa verið bannaðar. Und-
anþága er hafi seljandi bréfin
„í sinni vörslu þegar sölutilboð
er lagt fram, enda tilkynni við-
komandi án tafar um viðskiptin
til Fjármálaeftirlitsins“ eins og
fram kemur í tilkynningu FME.
Ákvörðunin tók gildi í gær
og gildir fram til 16. janúar á
næsta ári. Fyrirtækin sem um
ræðir eru Kaupþing, Landsbank-
inn, Glitnir, Exista, Straumur og
Spron. - hhs
Skrúfað fyrir
skortsölur
Samson
Sex ára
siglingu lokið
4-5
„Þessi nýjustu tíðindi setja þetta mál í uppnám
og við höfum ekki séð fram úr því,“ segir Sindri
Sindrason, stjórnarformaður Eimskips, um kröfu á
félagið vegna gjaldþrots XL Leisure.
Björgólfsfeðgar höfðu gefið yfirlýsingu um að
þeir ábyrgðust kröfuna, en nú hafa forsendur
breyst með yfirtöku ríkisins á Landsbanka og ósk
Samsonar um greiðslustöðvun.
Fram kemur í tilkynningu frá Eimskipafélaginu
að „óvissa“ ríki um kaup á kröfunni. Í ljósi þess
að Samson eignarhaldsfélag, félag Björgólfsfeðga,
sem átti ríflega 40 prósent í Landsbankanum, hafi
farið fram á greiðslustöðvun, sé óvíst að þeir geti
tekið kröfuna.
Sindri segir að krafan hafi ekki verið sett fram
gagnvart félaginu og minnir á að til hafi staðið að
breyta henni í víkjandi lán. Þau mál séu ókláruð.
Unnið sé að sölu eigna Eimskipafélagsins.
Þar á meðal er kanadíska fyrirtækið Versacold,
en með því losnaði félagið við stóran hluta skulda
sinna. Hins vegar mun salan ekki vera langt komin.
Falli ábyrgðin á Eimskipafélagið, en hún nemur
yfir 200 milljónum evra, eða 26 milljörðum króna
miðað við fast gengi Seðlabankans, gæti það haft
mjög alvarleg áhrif á félagið.
Sindri segir að flutningastarfsemi félagsins sé í
góðum rekstri og dagleg starfsemi sé tryggð. Hann
kveðst vera bjartsýnn á framhaldið. - ikh
Eimskipafélagið í uppnámi
Björgólfsfeðgar ráða ekki við kröfu á Eimskip vegna gjaldþrots XL Leisure.
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
Forsvarsmenn Landsbankans leituðu á
náðir Seðlabanka Íslands fyrir helgi og
óskuðu eftir fyrirgreiðslu um lán í end-
urhverfum viðskiptum að upphæð 500
milljónir evra, eða um 70 milljarða króna.
Lögð voru fram veð fyrir láninu að upp-
hæð 2,8 milljarða evra, en Seðlabankinn
synjaði erindinu eftir yfirferð um helg-
ina og tilkynnti Landsbankamönnum að-
faranótt mánudags. Í gær tók Fjármála-
eftirlitið svo ákvörðun um að taka yfir
stjórn Landsbankans og leysa bankaráð
hans frá störfum.
Markaðurinn hefur heimildir fyrir því
að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem
Landsbankinn óskaði eftir láni til þrauta-
vara frá Seðlabankanum í samræmi
við hlutverk hans sem banki bankanna.
Beiðnin hafi verið sett fram fyrir helgi
í kjölfar á veðköllum erlendra lánastofn-
ana vegna lækkunar á lánshæfismati
íslensku bankanna og ríkisins í fram-
haldi af þjóðnýtingu Glitnis. Björgólf-
ur Thor Björgólfsson, stærsti eigandi Landsbank-
ans, fundaði um málið ásamt Davíð Oddssyni, for-
manni bankastjórnar Seðlabankans, á laugardag og
töldu forsvarsmenn Landsbankans fram eftir þeim
degi og á sunnudag að vel yrði tekið í lánsbeiðn-
ina. Skyndilega hafi svo verið komið annað hljóð í
strokkinn og beiðninni hafnað, skýringalaust og án
nokkurrar greinargerðar. Seðlabank-
inn hafi neitað ítrekuðum óskum um
frekari skýringar eða fundi um stöðu
mála. Af þeim sökum hafi ekki verið
um annað að ræða á mánudag en leita
til Fjármálaeftirlitsins í ljósi lausa-
fjárstöðu bankans í erlendri mynt.
Markaðurinn hefur heimildir fyrir
því að veðtryggingar sem lagðar
voru fram til grundvallar lánsbeiðn-
inni hafi numið 2,8 milljörðum evra.
Í þeim pakka hafi meðal annars falist
500 milljarða króna skuldabréf hjá
íslenskum lífeyrissjóðum, 800 millj-
arðar króna í skuldabréfum sem Evr-
ópski seðlabankinn hefur metið veð-
hæf, íslensk íbúðalán og skuldabréf
hjá erlendum fjármálastofnunum
með góðri lánshæfiseinkunn, annað-
hvort AAA eða AA.
Viðmælendur blaðsins innan Lands-
bankans sögðu að viðbrögð Seðla-
bankans hefðu komið mjög á óvart,
ekki síst neitun án nokkurra skýr-
inga. Algjör skortur á gegnsæi við
svo mikilvæga ákvarðanatöku minni
á gagnrýni stjórnenda Glitnis á ákvörðun um þjóð-
nýtingu bankans og steininn hafi tekið úr þegar
Seðlabankinn hafi ákveðið að veita Kaupþingi sam-
bærilegt lán að sömu upphæð og það gegn veðum í
hlutabréfum í danskri fjármálastofnun. Vandséð sé
að jafnræði hafi verið gætt þegar þessi tvö mál séu
borin saman.
Landsbanka synjað
um þrautavaralán
Lögðu fram veð upp á 2,8 milljarða evra fyrir 500 milljóna
evra láni. Fyrst jákvæð viðbrögð, en svo kom synjun.
Viðbrögð Seðlabankans eru sögð hafa komið á óvart.
FYRIR STARFSMANNA-
FUND Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbanka Íslands,
rétt fyrir starfsmannafund sem
haldinn var í höfuðstöðvum
bankans í Austurstræti í gær.
MARKAÐURINN/GVA