Fréttablaðið - 15.10.2008, Side 1
Agnar Hansson
Frelsi, val og
greiðslumiðlun
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Vill óbreytt
þjóðfélagskerfi
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 15. október 2008 – 42. tölublað – 4. árgangur
Útlönd
Hruninu
lokið?
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Horfur batna | Vextir á milli-
bankamarkaði í heimnum fara
lækkandi til marks um áhrif sam-
átaks vestrænna ríkja til að létta
þrýstingi af fjármálamörkuðum.
Á þetta bendir CNNMoney.com,
en í gær var fyrsti viðskiptadag-
ur fjármálamarkaða í Bandaríkj-
unum eftir aðgerðirnar.
Tryggja innstæður | Innstæður
banka í Hong Kong verða tryggð-
ar að fullu fram til 2010 sam-
kvæmt yfirlýsingu sem John
Tsang, fjármálaráðherra þar, gaf
út í gær. Þá verður settur upp
neyðarsjóður fyrir fjármálakerf-
ið þar, sem Tsang segir þó vera
stöðugt, þrátt fyrir ólgu á al-
þjóðavísu, að því er AFP grein-
ir frá.
BNA fjárfestir | Bandarísk
stjórnvöld boðuðu í gær innspýt-
ingu upp á 250 milljónir Banda-
ríkjadala í bankakerfi landsins.
Henry M. Poulson, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, segir pen-
ingana hugsaða til að aðstoða
banka í nauðum við endurfjár-
mögnun.
Viðræðuhökt | Viðræður flug-
vélaframleiðandans Boeing við
samtök vélvirkja vegna verk-
falls þeirra og krafna um aukið
atvinnuöryggi sem hófust um
helgina runnu út í sandinn í gær.
Bloomberg segir daglegt tekju-
tap Boeing vegna verkfallsins
nema 100 milljónum dala á dag.
Fækkun hjá PepsiCo | PepsiCo
hefur boðað stórfelldan niður-
skurð í mannahaldi. Samkvæmt
Bloomberg munu allt að 3.300
manns missa vinnuna. Bréf fé-
lagsins féllu í kjölfarið um 14
prósent.
Fleiri tala við IMF | Tyrkir eiga
í viðræðum við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn (IMF) um að koma á
svokölluðu viðbúnaðarsamkomu-
lagi, án þess þó að niðurstaða sé í
höfn. Þá á Serbía einnig í viðræð-
um við sjóðinn.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
„Ég er ánægður með að hlutabréfamarkaður hélt
þokkalega velli. En þetta eru blendnar tilfinning-
ar,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphall-
arinnar.
Viðskipti með hlutabréf hófust í Kauphöllinni í
gær eftir að hafa legið niðri í þrjá daga. Þegar við-
skipti á hlutabréfamarkaði voru sett í salt á fimmtu-
dag í síðustu viku stóð Úrvalsvísitalan í 2.991 stigi.
Við upphaf viðskipta í gær lækkaði gengi hlutabréfa
lítillega áður en fór að gefa í. Tæplega 39 prósenta
fall Bakkavarar og rúmlega sautján prósenta fall
Alfesca yfir daginn varð til þess að Úrvalsvísital-
an féll um 5,84 prósent og endaði hún í 678 stigum.
Þetta jafngildir 77 prósenta falli á tæpri viku.
Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan í
byrjun apríl árið 1996.
Viðskipti með hlutabréf voru afar lítil, 165 talsins
og nam heildarveltan tæpum 187 milljónum króna.
Hafa ber í huga að engin viðskipti voru með hluta-
bréf viðskiptabankanna þriggja, sem ríkið tók yfir í
síðustu viku og núllstillti á markaði í gær. Í ofanálag
hefur Nýi Landsbankinn óskað eftir afskráningu. Þá
hafa enn engin viðskipti verið hafin á ný með hluta-
bréf Existu, Straums og Spron. Fjármálafyrirtækin
voru langumsvifamest í Kauphöllinni áður en Fjár-
málaeftirlitið stöðvaði viðskipti með bréfin. Mark-
aðsverðmæti bankanna nam 80 prósentum af heild-
arverðmæti skráðra félaga í Úrvalsvísitölunni og
munar því verulega um brotthvarf þeirra. „Það er
mikilvægt að viðskipti með hlutabréf þeirra hefjist
sem allra fyrst,“ segir Þórður.
Helst hefði hann viljað halda hlutabréfamarkaði
opnum þrátt fyrir hremmingar síðustu daga. Mikið
þurfi til að loka honum í jafn langan tíma og raun-
in var. Hafi slíkt varla gerst erlendis nema vegna
mikilla hamfara. Hlutabréfamarkaði í Bandaríkjun-
um var lokað í viku eftir hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum 11. september árið 2001. Bresku kauphöllinni
var lokað í byrjun síðasta mánaðar í heilan dag af
tæknilegum ástæðum þegar kauphallarkerfið réð
ekki við of mikla veltu með hlutabréf í mikilli upp-
sveiflu í kjölfar þjóðnýtingar bandarísku fasteigna-
lánasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac.
Þórður segir erfitt að spá fyrir um þróun hluta-
bréfamarkaðar hér í kjölfar þess sem á undan er
gengið. Markaðurinn muni nýta næstu daga til að
endurmeta stöðuna. Félög sem eigi í miklum er-
lendum viðskiptum og með góða fjárhagsstöðu ættu
að koma vel undan óveðrinu. „Þegar menn fá bylm-
ingshögg þurfa þeir tíma til að ranka við sér,“ segir
Þórður.
Tólf ár þurrkuð úr
Kauphöll Íslands
Úrvalsvísitalan fór niður fyrir sjö hundruð stig í gær. Staðan
er svipuð og á vordögum 1996. Forstjóri Kauphallarinnar
segir fjárfesta þurfa að jafna sig líkt og eftir bylmingshögg.
„Það eru tækifæri á mörkuðum
til innri vaxtar. Því ákváðum við
í fyrradag að fara í útboð,“ segir
Hörður Arnar-
son, forstjóri
Marel Food
Systems.
Stjórn fyrir-
tækisins nýtti
heimild fyrir
hlutafjárhækk-
un frá í vor og
blés til lokaðs
hlutafjárút-
boðs fyrir stofnanafjárfesta og
bjóða tuttugu milljón hluti til
sölu á genginu 70 til 72 krónur
á hlut.
Meðalgengi bréfa í Marel Food
Systems var 71,5 krónur á hlut í
gær. Opnað var fyrir áskriftir í
útboðinu klukkan ellefu í gær-
morgun og stendur það til klukk-
an fjögur á morgun.
Hörður segir útboðið styrkja
við fjárhag Marel Food Systems
og auka viðskipti með hlutabréf
þess. Fjárhagurinn er sterkur
fyrir. Eiginfjárhlutfall nemur 32
prósentum og verður 34-35 pró-
sent að útboði loknu. „Í ástand-
inu í dag er gott að hafa góðan
aðgang að lausafé í rekstrinum,“
segir Hörður. - jab
HÖRÐUR
ARNARSON.
Marel blæs
til útboðs
Er prentverkið
Svansmerkt?
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Tjón vegna falls bankanna nemur að minnsta kosti
10 milljónum króna á hvern einasta landsmann,
segir Ólafur Ísleifsson hagfræðingur í grein sem
hann skrifar í Markaðinn. Hann segir tjón á mann
líklega mun meira.
„Ætla má að beint tjón Íslendinga af þeim við-
burðum sem hér hafa verið raktir hlaupi á þúsund-
um milljarða króna. Verðmæti hlutafjár bankanna
nam um 800 milljörðum króna. Þar liggur þó aðeins
hluti tjónsins,“ segir hann.
Ólafur leitast við að svara spurningunni um
hvort hægt hefði verið að forða falli bankanna, en
segir því tæpast verða svarað með vissu. „En lík-
indi má telja til þess að önnur afgreiðsla á máli
Glitnis hefði gefið bönkunum svigrúm til að mæta
lausafjárþurrðinni, hugsanlega nógu lengi til að
komast í það skjól sem vænta má af samræmdum
alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings fjármálakerf-
inu,“ segir hann í greininni. „Kannski var þetta
spurning um tvær eða þrjár vikur. Við því fæst
ekki svar héðan af. Afgreiðslan á erindi Glitnis
tæmdi stundaglasið.“
Þá segir hann ekki þurfa að fara í neinar grafgöt-
ur um að staða Kaupþings, sem framan af voru ekki
öll sund lokuð, hafi „breyst til hins verra að kvöldi
þriðjudagsins 7. október þegar bankastjóri Seðla-
bankans lét í viðtali falla ummæli sem Richard
Portes, prófessor við London Business School, segir
hafa verið túlkuð svo að ríkissjóður myndi ekki
efna skuldbindingar sínar gagnvart breskum spari-
fjáreigendum. Auk þess var ítrekað tekið fram
að fyrirgreiðsla Seðlabankans við Kaupþing væri
til mjög skamms tíma og þannig gefið til kynna
að bankinn stæði afar tæpt. Daginn eftir lækkaði
Moody‘s lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um þrjú þrep,
heilan flokk.“ - óká / Sjá síðu 5
Stundaglasið tæmdist með Glitni
Líkur eru á að önnur afgreiðsla stjórnvalda á máli Glitnis en að leysa til sín
75 prósenta hlut hefðu veitt bönkunum svigrúm til að komast í skjól.
Starfsemi SPRON verður óbreytt
og unnið að endurskipulagningu
og eflingu rekstursins með tilliti
til langtímahagsmuna félagsins
og gjörbreytts umhverfis fjár-
málafyrirtækja, að því er fram
kemur í tilkynningu SPRON.
Þar segir jafnframt að for-
sendur fyrir sameiningu SPRON
og Kaupþings séu brostnar eftir
yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á
Kaupþingi. - óká
SPRON starfar
óbreytt áfram
4 5 6