Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN 17. DESEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR S K O Ð U N 6 Sögurnar... tölurnar... fólkið... O R Ð S K Ý R I N G I N ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson RITSTJÓRN: Ingimar Karl Helgason, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu á heim ili á höf uðborg ar svæð inu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands byggðinni. Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. bjorn.ingi@markadurinn.is l ingimar@markadurinn.is l jonab@markadurinn.is l olikr@markadurinn.is Miklu máli skiptir að geta verið í friði með sitt. Maður vill gjarnan geta rætt við lækninn sinn í trúnaði, sálfræðinginn eða lögfræðing- inn. Nú og auðvitað bankann sinn. Trúnaður milli banka og viðskiptavinar er af mörgum talinn vera einn grundvöllur bankastarfsemi; bankaleyndinni á að fylgja traust milli bankans og viðskiptamannsins. Nú er traustinu ógnað segja menn um hrunið bankakerfið. Fréttastofur vilja komast í gögn gömlu bankanna og birta almenn- ingi hvað átti sér stað þar innan veggja í góðærinu, í aðdraganda hrunsins og nú í sjálfu hruninu. Hverjir fengu lán og gegn hvernig veðum? Á hvaða kjörum? Í hvaða til- gangi? Hvað varð svo um allt saman? Af hverju missi ég vinnuna mína og af hverju hækka skattarnir mínir og lánin mín? Hvar eru skýringarnar ef ekki þar? Í Markaðnum var nýverið farið yfir nokkur dæmi um að bankaleynd hafi verið aflétt. Til stendur að rannsóknar- nefnd sem skipuð er samkvæmt lögum, fari framhjá henni. Hæstiréttur hefur dæmt að skatturinn geti fengið upplýs- ingar sem alla jafna bankaleynd hvíl- ir yfir. Ríkisskattstjóri benti á það við réttarhöld að þetta traust, bankaleynd, megi ekki verða til þess að menn kom- ist upp með að svíkja samborgara sína; stinga undan skatti. Bankaleyndin geti ekki verið skálkaskjól. Sama sagði við- skiptaráðherra. Í lögum um fjármálafyrirtæki er að finna skilgreiningu á bankaleynd, sem birt var í úttekt Markaðarins á dögun- um. Þar var rætt um þagnarskyldu um hvaðeina sem starfsmaður fjármálafyrirtækis verður áskynja í starfi sínu. Í greinargerð með frumvarpi til þeirra laga, er bankaleyndin ekki skilgreind sérstak- lega, eða flutt fyrir henni rök. Hún þykir svo sjálfsögð að rætt er um „almenn“ ákvæði um bankaleynd. Bankaleyndin virðist vera einhvers konar óskoruð grunnregla. Forsenda sem ekki þurfi að rökstyðja. Þrátt fyrir þetta virðist hún víkja, þegar almannahagsmunir krefj- ast. Hagsmunir eins viðskiptavinar geta raunar verið hagsmunir þeirra allra, en sumir viðskiptavinir eru líka eigendur. Þá eru almannahagsmunir ekki alltaf taldir liggja í þagnarsambandi bankans við viðskiptamann sinn. Ríki á meginlandi Evrópu berjast gegn skattaparadísum og krefjast upplýsinga. Þýsk yfirvöld borguðu stórfé fyrir skrá um viðskiptavini banka í Liechtenstein. Sama gerðu önnur ríki. Yfirvöld hér sóttust eftir upplýsingum úr skránni, til að fullvissa sig um hvort Íslendingur hefði átt reikning í bankanum. En svo er annar flötur. Bankaleyndin virðist nefnilega hætta að eiga við um leið og einhver lendir í vanskilum. Þá er í lagi, ekki einungis að birta fjárhagsupplýsingar einstaklinga, heldur að selja þær. Og það með opinberu leyfi. Það er svo merkilegt að um leið og einhver lendir í vanskilum, þá hættir bankaleyndin að vera grundvallarmál og verð- ur í staðinn praktískt úrlausnarefni þess sem þarf að innheimta. Svo hugsar maður til saksóknara og afnáms bankaleyndar. Er það lögbrot að lenda í vanskilum? Stjórnvaldið sem veitir söluleyfið segist raun- ar ekki líta á fjárhagsupplýsingar sem viðkvæmar persónuupplýsing- ar og þannig eru lögin. Hversu viðkvæmt var góðærið, aðdragandinn að hruninu og loks sjálft hrunið? Einhver gæti orðað það svo að það sé í lagi að sparka í þann sem liggur, í vanskilum kannske, en bannað að líta í áttina að öðrum? Enn síður benda … Er grundvallarmál alltaf grundvallarmál? Er bannað að benda? Ingimar Karl Helgason Bankaleyndin virðist nefnilega hætta að eiga við um leið og ein- hver lendir í van- skilum. Þá er í lagi, ekki einung- is að birta fjár- hagsupplýsingar einstaklinga, heldur að selja þær. Og það með opinberu leyfi. Nokkuð virðist til í því að sagan snúi alltaf aftur. Árið 1921 sigldi þjóðarskútan inn í þvílíkan brim- skafl í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar að gríðar- legur hallarekstur blasti við í ríkisbúskapnum og þrot fyrir bönkunum, Landsbanka og þáverandi Ís- landsbanka. Brugðið var á ýmis ráð, svo sem inn- flutningshöft á óþarfa glysvarning. Í ofanálag var slegið á risalán upp á hálfa milljón sterlingspunda hjá Hambros-banka í Lundúnum, viðskiptabanka Íslendinga á erlendri grund á þeim tíma. Bankinn tók veð í tollum landsins á móti. Í sögubókum kall- ast þetta enska lánið þótt mörg íslensk fyrirtæki hafi átt í viðskiptum við bankann. Nafn Hambros-banka kom upp stöku sinnum næstu áratugi eftir þetta. Eftirminnilegasta skipt- ið var þegar í ljós kom að Sambandið sáluga skuld- aði bankanum 1,3 milljarða króna árið 1990 en virtist ekki hafa burði til að standa við skuldbind- inguna. Eins og Morgunblaðið segir söguna var það mat Landsbankans að lánstraust Íslendinga erlendis kynni að verða í uppnámi myndi Ham- bros og aðrir viðskiptabankar segja upp viðskipt- um sínum við Sambandið. Landsbankinn tók Sam- bandið yfir í kjölfarið en Hambros er nú deild innan franska bankans Société Générale. Söguna um nýleg afdrif Íslandsbanka (sem að nafn- inu einu tengist Glitni) og Landsbankans ættu flestir að þekkja. Enska lánið Kauphöll er spegill efnahagslífs- ins. Þegar vel gengur leita kaup- hallarvísitölur upp en þegar blik- ur eru á lofti leita þær niður – og þegar virkilega á bjátar falla þær eins og steinar. Bankahrunið hér á landi hefur svo sannarlega birst í NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi. Þannig er Úrvalsvísital- an nú 375 stig samanborið við um og yfir 4000 fyrir bankakreppu eftir því hvaða tími er valinn til viðmiðunar. Engin dæmi eru til um svona mikla lækkun meðal þróaðra þjóða í seinni tíð. Speg- illinn sýnir því ekki fagra mynd um þessar mundir. Kreppan í efnahagslífinu nú er líka dýpri en um langt skeið. Það þarf að fara aftur til síldar- kreppunnar 1967/1969 til að finna áþekkar tölur um samdrátt. Þá dróst landsframleiðslan saman um 8% og þjóðartekjur um 12% borið saman við spár Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka um 10% samdrátt á næstu tveim- ur árum. Þeir sem muna síldar- kreppuna, tala ekki um þeir sem tengdust sjávarútvegi, muna að hún var mjög erfið. En við náðum okkur fljótt á strik aftur. SVÖRIN Í FRAMTÍÐARSÝNINNI Það er engin ástæða til að ætla að samdráttarskeiðið að þessu sinni verði langvinnt, þótt það verði djúpt og sárt. Íslendingum hefur að jafnaði gengið vel að vinna sig út úr áföllum. Því er hins vegar ekki að leyna að gera verður marga hluti rétt og á réttum tíma til þess að hagkerfið hrökkvi í gang og við fáum þessa hefð- bundnu v-laga hagsveiflu. Þetta á auðvitað sérstaklega við um hag- stjórnina, gengismál og nýmark- aðsvæðinguna. Hvað getur Kauphöllin gert? Hvert verður hlutverk hennar í endurreisn efnahagslífsins? Á hvað á að leggja áherslu á næstu mánuðum og misserum? Hvernig verður traust á hlutabréfamark- aði endurreist? Hvað getur Kaup- höllin gert í því efni og hvaða úrbætur þarf á umhverfi eftir- lits og löggjafar? Hvernig gerum við mest gagn í því uppbygg- ingarstarfi sem er fram undan? Þessum spurningum höfum við í Kauphöllinni mikið velt fyrir okkur að undanförnu. Svörin birtast að hluta í þeirri framtíðarsýn sem við vinnum með um þessar mundir. Þar er gengið út frá djúpri en skamm- vinnri efnahagslægð í þá veru sem að framan greinir. Að baki liggur að fylgt verði skynsam- legri efnahagsstefnu og hratt og örugglega verði horfið frá haftastefnu og ríkisafskiptum af atvinnulífi. Markaðsbúskapur verði að nýju einkennandi fyrir efnahagslífið áður en langt um líður. Þannig gerum við ráð fyrir að hagvöxtur glæðist þegar líða tekur á árið 2010 og þegar 2011 verði vöxturinn orðinn jafn með- alvexti til lengri tíma. Kauphöllin samanstendur í að- alatriðum af skuldabréfamarkaði og hlutabréfamarkaði. Að öllum líkindum verður markaðurinn með skuldabréf fljótur að ná sér. Reyndar hafa þegar birst skýr batamerki á þessum markaði. Góður upptaktur er í veltunni og við reiknum með að skulda- bréfamarkaðurinn nái fullum bata þegar á næsta ári. Mikil þörf verður fyrir nýjar útgáfur skuldabréfa og markaðurinn hér á landi er bæði öflugur og skil- virkur, meðal annars er óvíða sem viðskipti parast með rafræn- um hætti í jafn ríkum mæli og í íslensku kauphöllinni. NÝMARKAÐSVÆÐING HAFIN Aðra sögu er að segja af hluta- bréfamarkaðnum. Hann er ekki svipur hjá sjón miðað við það sem hann hefur verið undan- farin ár. Til marks um það má nefna að fyrir bankahrunið var samanlagt markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöllinni um 1500 milljarðar króna eða sem sam- varar um 120% af landsfram- leiðslu. Þetta er svipuð stærð á hlutabréfamarkaði miðað við stærð hagkerfis og algengt er í þeim löndum sem fremst standa í efnahagsmálum. Eftir hrun- ið er heildarvirði fyrirtækjanna um 250 milljarðar króna eða rétt um 20% af landsframleiðslu og þar með er Ísland sennilega með minnsta hlutabréfamarkaðinn af þeim löndum sem við höfum talið eðlilegt að bera okkur saman við. Hér er því mikið verk að vinna. Brýnt er að hefja sem fyrst ný- markaðsvæðinguna. Hvergi í þeim löndum sem standa fremst á sviði efnahagsmála gegnir ríkið jafn stóru hlutverki í hagkerfinu og reyndin er orðin á Íslandi. Til að búa í haginn fyrir nýtt hag- vaxtarskeið er nauðsynlegt að endurskipuleggja þjóðarbúskap- inn. Í þessari endurskipulagn- ingu felst meðal annars að færa ríkisfyrirtækin á ný í hendurn- ar á einstaklingum og markaðn- um. Þetta ferli þarf að hefja sem fyrst. Við þurfum nýja mark- aðsvæðingu atvinnulífsins sem byggir á traustum innviðum, gagnsæi og skynsamlegri stjórn efnahags- og peningamála. Kauphöllin er vel í stakk búin til að sinna nýmarkaðsvæðing- unni. Í því sambandi nægir að nefna að hún er hluti af alþjóð- legu fyrirtæki, NASDAQ OMX, sem rekur næst stærstu kaup- höll í heimi. Hún býr að einu full- komnasta og hraðvirkasta við- skiptakerfi sem völ er á í heim- inum og sýnileiki fyrirtækja og aðgengi fjárfesta er líklega það besta sem býðst. Þetta getum við nýtt okkur í því uppbyggingar- starfi sem í hönd fer. BATI Á NÆSTA ÁRI En hvað er raunhæft að upp- byggingarstarfið taki langan tíma? Hér er horft til þess að í lok árs 2010 verði á ný öfl- ugur hlutabréfamarkaður á Ís- landi. Þá er miðað við að saman- lagt virði skráðra félaga verði um 1000 milljarðar króna eða svo − eða sem svarar til um 60- 80% af landsframleiðslu. Hluta- bréfamarkaðurinn yrði þar með svipaður að stærð og í Danmörku og Noregi þegar tillit er tekið til stærðar hagkerfisins. Þetta eru þau markmið sem Kauphöllin hefur sett sér. Í stuttu máli að skuldabréfamark- aðurinn nái sér að fullu á árinu 2009 og að hlutabréfamarkaður- inn verði kominn í ásættanlegt horf fyrir lok árs 2010. Til þess að umrædd markmið náist þarf margt að ganga upp við endur- reisn efnahagslífsins. Þar skipt- ir mestu máli að efnahagslífið rétti úr kútnum í samræmi við þá spá sem lýst var hér á undan og öflugum markaðsbúskap verði aftur komið á. Það eru forsend- ur nýs hagvaxtarskeiðs. Þetta er hægt að gera og myndin af efna- hagslífinu í Kauphöllinni getur litið býsna vel út að tveimur árum liðnum ef vel er á málum haldið. Kauphöllin og endurreisnin Þórður Friðjónsson forstjóri NASDAQ OMX Iceland. O R Ð Í B E L G KAUPHÖLLIN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.