Tíminn - 07.12.1982, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
16
fþróttir
enska knattspyrnan
UVERPOOL MATTI ÞOU TAP
FYRIR BOTNLKNNU NORWICH
Er enn f efsta sætinu í 1. deild. Man. Utd. lagdi Watford á útivelli og er f 2. sæti
■ Langóvæntustu úrslitin í 1. deildinni
ensku urðu í viðureign Norwich og
Liverpooi á heimavelli Norwich á
laugardag. Liverpool sem voru í efsta
sæti fyrir leikinn (og eru það reyndar
enn) lutu þar í lægra haldi fyrir liði
Norwich, sem fvrir leikinn hafði aðeins
14 stig og var í botnsæti deildarinnar.
Stuðningsmenn Norwich hafa því rika
ástæðu til að fagna og hver veit nema
að þessi leikur geti orðið upphaf betri
tíma hjá liðinu.
Það var aðalmarkaskorari Norwich,
John Deehan sem skoraði eina mark
ieiksins. Þrátt fyrir þetta tap hefur
Liverpool enn þriggja stiga forystu á
Manchester United og Aston Villa, sem
eru í 2. og 3. sæti deildarinnar.
Watford tapaði
á heimavelli
Táningurinn í liði Manchester United
Norman Whiteside skoraði eina mark
leiks er þeir mættu Watford á leikvelli
Watford í London. Markið skoraði hann
. eftir mistök Pat Rice bakvarðar
Watford. Annars átti Watford mikið
meira í leiknum framan af, en það dugði
þeim skammt að þessu sinni.
Manchester City eru alltaf sterkir á
heimavelli og á laugardag fengu þeir
Arsenal í heimsókn. Eitthvað hafa
byssurnar verið púðurlitlar hjá „Vopna-
búrinu" og máttu leikmenn Lundúnar-
liðsins snúa til baka með 2-1 tap á
bakinu. Það var Tommy Caton sem
skoraði bæði mörk Manchester City, hið
síðara aðeins tveimur mínútum fyrir
leikslok. Bæði voru þau skallamörk, en
Brian McDermott skoraði eina mark
Arsenal.
Brazil með tvö mörk
Alan Brazil, sem nú er á sölulista hjá
Ipswich skoraði tvö þriggja marka
Ipswich á útivelli í Sunderland. Ian
Atkin skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
heintaliðið, en Eric Gates jafnaði. Mörk
Brazil komu sitt í hvorum hálfleik, en
annað mark Sunderland skoraði Frank
Worthington, sem lék sinn fyrsta leik
með liðinu.
Everton og Birmingham gerðu
markalaust jafntefli á Goodison Park.
■ Bob Latchford.
County sigraði
í „Nottingham-derbýinu“
Notts County sigruðu Forest í viður-
eign liðanna. Þar með stöðvuðu þeir
sigurgöngu Forest, en liðið hefur leikið
vel að undanförnu. Iain McCulloch,
Pauk Hooks og Trevor Christie náðu
allir forystunni fyrir County, en Ian
Wallace og Willie Young náðu að jafna
tvívegis. En mark Christie skipti sköpum
fyrir Notts County í þessum leik. Iain
McCulloch var vísað af leikvelli.
Einn rekinn útaf
í Southampton
Paul Bracewell var rekinn útaf í leik
Southampton og Stoke, en Bracewell
leikur með Stoke. Það var heimaliðið
sem sigraði í þeim leik með einu marki
gegn engu. Var það Danny Wallace sem
sá um að skora markið.
David Mills skoraði aðeins innan við
mínútu eftir að hann leysti Peter Eastoe
af hólmi í liði W.B.A. er liðið lék gegn
Tottenham á White Hart Lane. Félagi
hans John Wile skoraði svvo sjálfsmark
Celtic hlaut
deildabikarinn
■ Fimmtíu og sjö þúsund áhorfend-
ur fylgdust með viðureign risanna í
skoskri kanttspyrnu Glasgow
Celtic og Rangers. Leikurinn fór
fram á Hampden Park í Glasgow og
var þetta drslitaleikurinn í deildar-
bikarkeppninni. Celtic sigraði í
leiknum með tveimur mörkum gegn
einu.
Það var Charlie Nicholas sem
skoraði fyrsta mark leiksins á 23.
mínútu fyrir Celtic eftir góða send-
ingu fyrir markið frá David Provan. '
Murdo McLeod bætti síðan öðru
marki við á 31. mínútu fyrri hálfleiks.
í þeim síðari minnkaði Jim Bett síðan
muninn fyrir Rangers. En Rangers
átti aldrei möguleika á sigri, því
leikmenn Celtic léku mjög vel og
hlutu deildarbikarinn að þessu sinni.
Þá fóru fram þrír leikir í úrvals-
deildinni. Kilmarnock og St. Mirren
gerðu jafntefli 2-2. Sama var upp á
teningnum hjá Morton og Hibernian,
en þar skoraði hvorugt liðið. Aberde-
en sigraði hins vegar lið Jóhannesar
Eðvaldssonar Motherwell með
tveimur mörkum gegn engu.
■ Jim Bett.
með skalla er hann reyndi að hindra að
skot Tony Galvin færi í netið.
Aston Villa í 3. sætið
Með 1-0 sigri á West Ham komst
Aston Villa í 3. sætið. Hefur liðinu
gengið mjög vel að undanförnu eftir
slaka byrjun. En nú er allt á fullri ferð
og ekkert virðist geta stöðvað Evrópu-
meistarana. Það var Gordan Cowans
sem skoraði eina mark leiksins gegn
West Ham á laugardag.
Swansea hafa löngum þótt erfiðir
heim að sækja á Vetch Field í Swansea
og sú var einnig raunin á laugardaginn.
Þá var það lið Luton sem mátti þola tap
og skoruðu þeir Alan Curtis og Bob
Latchford mörk heimaliðsins. Þraut-
seigja Latchford er mikil og hefur hann
skorað mörg mikilvæg mörk fyrir Swan-
sea í vetur.
Clive Allen skoraði eina mark leiksins
á Ellan Road fyrir Q.P.R. Þar með
héldu leikmenn Lundúnarliðsins sér í
efsta sæti 2. deildar.
Danski landsliðsmaðurinn Allan Sim-
onsen lék að nýju með Charlton eftir
meiðsli og skoraði hann annað tveggja
marka Charlton gegn Newcastle. Charl-
ton sigraði 2-0.
Sheffield Wednesday gerði jafntefli
gegn Oldham, Blackburn og Barnsley
gerðu einnig jafntefli og í báðum
■ Norman Whiteside.
Swansea-Luton 2-0
Tottenham-W.B.A. 1-1
Watford-Man. Utd. 0-1
Og í 2. deild
Blackburn-Barnsley 1-1
Cambridge-Bolton 0-0
Carlisle-Shrewsbury 2-3
Charlton-Newcastle 2-0
Chelsea-Bumley 2-1
Derby-Rotherham 3-0
Grimsby-Crystal Palace 4-1
Leeds-Q.P.R. 0-1
Leicester-Fulham 2-0
Sheff. Wed.-Oldham 1-1
Wolves-Middlesbro 4-1
tilvikum var markatalan 1 mark gegn
einu. Þá má að lokum geta þess, að
Wolves sigraði Middlesbro 4-0.
Úrslit leikja í 1. deild urðu sem hér
segir:
Aston Villa-West Ham 1-0
Coventry-Brighton 2-0
Everton-Birmingham 0-0
Man. City-Arsenal 2-1
Norwich-Liverpool 1-0
Notts County-Nott. For. 3-2
Southampton-Stoke 1-0
Sunderland-Ipswich 2-3
Stadan
1. deild
Liverpool 17 10 4 3 33 14 34
Man. United 17 9 4 4 24 14 31
Aston Villa 17 10 1 6 27 18 31
Watford 19 9 3 5 34 13 30
Nottingham For 17 9 2 6 30 24 29-
West Ham 17 9 1 7 31 24 28
Ipswich 16 7 6 5 31 20 27
West Bronwich 17 3 3 6 27 24 27
Manchester City 17 3 3 6 21 22 27
Coventry -18 7 4 7 20 24 25
Tottenham 17 7 3 7 23 24 24
Notts County 17 7 3 7 23 28 24
Stoke 17 6 3 3 30 29 21
Swansea 17 6 3 8 25 28 21
Everton 17 5 5 7 25 26 20
Arsenal 17 5 5 7 19 22 20
Southhampton 17 5 4 8 18 31 19
Brighton 17 5 3 9 15 36 18
Luton 17 3 8 6 33 37 17
Norwich 17 4 5 8 20 29 17
Birmingham 17 3 3 6 11 25 17
Sunderland 17 3 5 9 21 34 14
2. deild
QPR 18 11 4 3 27 13 37
Fulham 17 10 3 4 37 23 33
Wolves 17 10 3 4 31 18 33
Sheff. Wed 17 9 4 4 31 19 31
Grimsby 17 8 3 6 27 25 27
Shrewsbury 17 8 3 6 23 23 27
Oldham 17 6 8 3 28 22 26
Leeds 17 6 7 4 21 17 25
Bamsley 17 6 7 4 23 20 25
Leicester 17 7 2 8 20 20 23
Newcastle 17 6 4 7 25 26 22
Blackburn 17 6 4 7 28 30 22
Rotherham 17 5 7 5 22 26 22
Chelsea 17 5 6 6 20 19 21
Carlisle 17 6 3 8 33 35 21
C. Palace 17 5 6 6 20 22 21
Charlton 17 6 3 8 24 33 21
Middlesbro. 17 4 6 7 19 36 18
Burnlcy 17 4 3 10 23 31 15
Cambridge 18 3 5 10 19 30 14
Derby 17 2 8 7 16 27 14
Bolton 17 3 5 9 14 25 14