Tíminn - 03.03.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.03.1983, Blaðsíða 2
2______ fréttir I FIMMTUDAGUR 3. MARS 1983 „MENN REYNI AÐ NA SAMAN EFTIR SKYNSAMLEGUM LEIÐUM” — segir Steingrímur Hermannsson, sem stydur tillögu sjálfstæðismanna um að sett verði á laggirnar ný álviðræðunefnd ■ „Mér sýnist að þessi tillaga sé efnis- lega mjög svipuð tillögu minni, sem ég bar upp í ríkisstjórn," sagði Steingrímur Hcrmannssun, samgönguráðherra er Tíminn spurði hann í gær álits á tillög- unni frá atvinnumálanefnd. „Það cr auðvitað mjög slæmt í hvaða farveg þetta mál cr komið,“ sagði Stein- grímur, „og ef svona málsmeðferð gæti orðið til þess að hægt væri að ná sáttum, þá væri það mjög gotl. Hins vegar er búið að fjalla þannig um þetta mál í Þjóðviljanum og rægja mig með þeim hætti, að égstend ekki gegn því að menn rcyni að ná saman eftir skynsamlegum leiðum." Aðspurður unt það hvort þessi tillaga væri ekki beinlínis sett fram til þess að taka málið úr höndum iðnaðarráðherra sagði Steingrímur: „I raun og veru er það svo, því ríkisstjórninni er falið að skipa þessa nefnd, samkvæmt tillögunni, cn það cr ekki hægt að orða það þannig að tillögunni sé stefnt gcgn Hjörleifi - það er bara vcrið að reyna að koma máli sem er í algjörri sjálfhcldu afstaðá nýjan leik.“ „Það er greinilegt að Framsóknar- flokkurinn, sem hefur þarna forystuhlut- verk í þcssu bandalagi, hann cr aðganga þarna beint til liðs við stjórnarand- stöðuhluta íhaldsins," sagði Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra er Tím- inn spurði hann í gær, hvað hann vildi segjá um þessa tillögu atvinnumála- nefndar. „Hér er auðvitað um mjög alvarleg mál að ræða, alveg sérstaklega miðað við hagsmuni Islands," sagði Hjörleifur, „því mér sýnist að þessir aðilar ætli að breyta íslandi í þá mús, í þessum leik, við köttinn Alusuisse, sem auðhringurinn væntir og stefnir auðvitað að. Með þessu myndu þeir glutra niður þessu máli, ef þessi tillaga yrði samþykkt hér á Alþingi. Slík samþykkt væri ekki lítil tíðindi, og einhver alvarlegustu feilspor sem stigin hefðu verið hér um langt skeið.“ Hjörleifur sagði að þessi tíðindi þyrftu kannski ekki að koma á óvart, miðað við þá ógætni sem formaður Framsóknar- flokksins, Steingrímur Hermannsson hefði löngum sýnt í samskiptum sínum við Alusuisse og vitnaði Hjörleifur í því sambandi til sérstöðu Steingríms í Fram- sóknarflokknum 1966 þegar hann hefði staðið að álsamningunum gegn vilja meirihluta Framsóknarflokksins. Hjörleifur var spurður hvort sam- þykkt þessarar tillögu á Alþingi myndi hafa það i för með sér að ráðhcrra Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn færu úr ríkisstjórn: „Við alþýðubandalagsmenn metum þessa stöðu eins og hún blasir við okkur, frá degi til dags, og höfum gert það í þessu máli. Ég gef ekkert upp á þessari stundu hver verður okkar af- staða, en það þarf engum að segja það, að við hljótum að vega það og meta í Ijósi alvörunnar sem hér er á ferðinni." Friðrik Sóphusson, sagði í samtali við Tímann í gær, fyrir fundinn í atvinnu- málanefnd, er hann var spurður hvort þessari tiliögu væri ekki beinlínis stefnt gegn Hjörleifi Guttormssyni: „Ja, þaðer ekki ennþá Ijóst hvort öll nefndin standi að þessari tillögu, því Garðar Sigurðs- son, fulltrúi Alþýðubandalagsins í at- vinnumálanefnd, fór fram á það á fundi nefndarinnar í gær, að fá að athuga málið í sínum þingflokki, í því skyni, eins og hann orðaði það sjálfur, að kanna hvort að það væri einhver leið að sameinast um tillögur. Ef Alþýðubanda- lagið stendur með okkur að þessari tillögu, þá tel ég alls ckki að henni sé stefnt gegn Hjörleifi, því þá er hér aðcins um samkomulagsmá! að ræða." -AB Hafís í rúmu meðallagi nú ■ Þeir Lárus Blöndal og Jónas Eggertsson, bóksalar, hafa verið helstu forv igismenn bókamarkaðarins um árabil. Jafnan er eitthvað „nýtt“ og forvitnilegt að finna á bókamarkaðinum og er við litum þarna við í gær sögðust þeir m.a. vera með bækur sem ekki hafa sést á inarkaöinuin í 40 ár. (Tíinamynd G.E.) Bókamarkaðurinn hafinn í 24. sinn — um 7000 titlar á boðstólum ■ Hafís í Grænlandssundi jókst allmik- ið í febrúar og er útbreiðsla hans norðut af Vcstfjörðum og Norðurlandi nú í rúmu meðallagi miðað við árstíma. Kortið sýnir útbreiðslu og þéttleika um þessar mundir. ísjaðarinn varákvarðað- ur við ískönnun Landhelgisgæslunnar 2S. febrúar og ískönnun danskra ís- könnunarmanna frá Narssarssuaq scm flugu um vcsturhluta svæðisins daginn áður. Fjarlægö frá nokkrum stöðum hinn 28/2 var um það bil sem hér scgir: 37 sjómílur norðvestur af Straumncsi, 24 sjómílur norður af Straumnesi, 40 sjó- mílur norður af Horni og 75 sjómílur norður af Skagatá. Miðvikudaginn 2. rnars hafði ísraninn í grcnnd við Kol- beinsey færst austur. samkvæmt athugun frá skipi. ■ Hinn árlegi bókamarkaður Félags islenskra bókaútgefcnda er nú hafinn í 24. sinn. Bókamarkaðurinn stendur frá 3. ntars til 12. mars og er hann til húsa í hinum rúmgóða sýningarsal Húsgagna- hallarinnar, Bíldshöfða 20. Ártúns- höfða. Bókatitlar eru 7000, og hafa aldrei verið fleiri. „Að vanda cru á markaðinum bækur um flest áhugamál ntanna og bcr mest á íslenskum og þýddum erlendum skáld- sögum, æviminningum, þjóðlegum fróð- leik af ýmsu tagi, landafræði og ferða- sögum, ritum um trúmál og dulræn efni og barna- og unglingabókum. Einnig er á markaðinum að finna fágætar bækur," segir í frétt frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Lögfræð- inga- málið til saksóknara ■ Mál lögfræðinganna tvcggja sem ákærðir voru fyrir skjalafals og brot á okurlöggjöf í síðasta mánuði verður sent embætti saksóknara ríkisins ein- hvcrn næstu daga að sögn Hallvarðs Einvarðssonar rannsóknarlögrcgiu- stjóra ríkisins. Rannsókn málsins hefur staðið i nokkrar vikur og sátu báðir hinna ákærðu í gæsluvarðhaldi um hríð. Játaði annar þeirra á sig meginatriði kæranna, en hinn játaði engar sakar- giftir. Halli á rekstri Búnaðar- félagsins ■ Verulegur halli var á rekstri Bún- aðaríélags Islands á síöasta ári, eða um 840 þús. kr. að því er kom frani á fundi Bunaðarþings í gær, þar sem búnaðarmálastjóri Jónas Jónsson gerði grein fyrir reikningum félagsins. Fjögur ný mál voru lögð frani á Búnaðarþingi í gær. Hafa þá alls 62 mál verið lögð fýrir Búnaöarþing að þessu sinni, scm vísað hefur verið til nefnda. -HEI Fjármálaráðherra mælti fyrir lánsfjárlagafrumvarpinu í gær: Landsvirkjun skorin niður um helming og kísilmálmverksmiðja fær ekki neitt B Ragnar Arnalds fjármálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til lánsfjárlaga og sagði hann að upphæðir væru hafðar eins knappar og unnt væri, enda við það miðað að erlend lán aukist ekki að raungildi á þessu ári. Kaupmáttur dregst saman í hlutfalli við þjóðartekjur, sagði fjármálaráðherra og leitast er við að fjárfestingar dragist saman um svipað hlutfall. Horfur eru á að samdrátturinn í heild nemi 6-7% og heildarfjárfesting um 7%. Ragnar hefur áður bent á að dráttur varð á framlagningu frumvarpsins vegna stórra óvissu þátta. T.d. hafi þingflokk- unum verið sent bréf sem ætlast var til að svarað yrði fyrri hluta febrúarmánað- ar um afstöðu til byggingar kísilmálm- verksmiðjunar á Reyðarfirði. En svörin létu á sér standa og ekki hægt að bíða lengur. Verður því lánsfjáráætlunin af- greidd án þess að tillit sé tekið tii framkvæmda við verksmiðjuna. Þess má geta að í fylgisskjölunum með ' frumvarpinu er kísilmálmvinnslan á núlli, en getið er neðanmáls að lántöku- heimild til vedcsmiðjunnar sé í lög- unt frá síðastaJiri. en notkun heimild- arinnar er háð sérstöku sam- þykki Alþingis. Verður flutt sérstök þingsályktunartillaga um það mál, en iðnaðarráðherra hefur lagt til að varið verði 110 millj. kr. til framkvæmda við kísilmálmverksmiðjuna á þessu ári. En það eru Oeiri málaflokkar sem heyra undiriðnaðarráðherra, sem skornir' eru niður í frumvarpi fjármálaráðherra.' ' Ragnar Amalds sagði í framsöguræðu sinni, að Landsvirkjun hafi farið fram á að fá. tæpar 1.600 millj. kr. til framkvæmda og starfsemi. En upphæðin var skorin niður í 880 millj. kr, sem er rúmur helmingur af því sem beðið var um. Fjármálaráð- herra sagðist hyggja að Landsvirkjun væri ekki sátt við þessa niðurstöðu. Undirbúningur væri hafin að fram- kvæmdum og jafnvel búið að bjóða verk út, sem augljóst er að ekki verður hægt að framkvæma í ár. En Alþingi verður að ákvarða hverjar endanlegu fjárhæðirnar verða, en fjár- málaráðherra sagðist vona að þær verði hækkaðar sem allra minnst í meðförum þingsins, og helst engar hækkanir. „Tel enda ekki þörf á,“ sagði fjármála- ráðherra. Matthías Á Matthíesen kvað ekki mundu standa á stjórnarandstöðunni að afgreiða málið fljótlega, og hefðu fjár- hags- og viðskiptanefndir beggja deilda þegar farið að funda um það. En síðan reif hann niður frumvarpið og sagðist ekki skilja hvemig menn gætu látið frá sér fara því líkt plagg og væru í því tölur sem ekki stæðust innbyrðis. Því til sönnunar fór hann með langt og mikið talnaflóð og prósentutal. Hann kvaðst sakna að fjárfestingar og lánsfjáráætlun væri ekki lögð fram samtímis frumvarp- inu. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.