Tíminn - 09.04.1983, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1983
3
fréttir
Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðh. um hringorminn í saltfiskinum í Portúgal
„ERU HROÐALEGAR FRÉTTIR -
VERÐUM AÐ BÆTA EFTIRLITIД
■ „Þetta eru hroðalegar fréttir, og
maður hlýtur náttúrlega að spyrja sjálfan
sig af hverju við höfum flutt út saltfisk
áratugum saman fullan af hríngormi,“
sagði Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra þegar Tíminn spurði
hann álits á þeim tíðindum sem bárust
frá Portúgal að 1200 tonn af saltfiski
héðan hefðu ekki staðist gæðaeftirlit þar
í landi, sökum hringorms og því veríð
ákveðið að endursenda fiskinn hingað til
lands, og Framleiðslueftirlit sjávar-
afurða og Sölusamband íslenskra flsk-
framlciðenda tóku í framhaldi af því þá
ákvörðun að héðan í frá yrði allur
saltfiskur sem fluttur verður úr landi
gegnumlýstur, sem kostar ógrynni fjár.
„Við erum eiginlega hálfpartinn teknir
í rúminu,“ sagði Steingrímur, „því
Portúgalirnir hafa ekki kvartað áður.
Þetta er náttúrlega mjög alvarlegt mál,
og svona hreinsun kostar tugi milljóna.
Þetta hlýtur að vekja til umhugsunar,
hvað gera skuli í sambandi við selveiðar,
því þótt það sé hliðarmál, þá tengist það
þessu óneitanlega. Stækkun selastofns-
ins er mjög ör, og ég get reyndar getið
þess hér að ég er búinn að láta semja
frumvarp til laga um selveiðar, en það
eru engin slík lög til. Samkvæmt því
frumvarpi mun sjávarútvegsráðuneytið
hafa yfirumsjón með selveiðum, ef frum-
varpið verður að lögum, og ákveða hve
mikið af sel megi drepa á ári hverju, og
ákveða jafnframt hvaða reglur skuli
gilda t.d. um meðferð á kjötinu eða
hræjunum, og einnig er heimild til þess
að veita ákveðnum mönnum leyfi til þess
að fækka sel og svo framvegis, og þetta
er tvímælalaust frumvarp sem þarf að
verða að lögum, því það verður að vera
jafnvægi í náttúrunni, þessi ormavanda-
mál minna okkur rækilega á þá stað-
reynd.“
Steingrímur sagði að í framhaldi af
þessari endursendingu frá Portúgal, þá
væri náttúrlega ekkert um annað að
ræða, en að hefja hreinsun á orminum,
og hann væri hlynntur þeirri tilskipun
SÍF og Framleiðslueftirlitsins sem gefin
hefði verið út til allra stöðva að þéssa
yrði gætt. „Þetta kostar auðvitað tals-
verða fjárfestingu í Ijósaborðum, auk
þess sem meiri mannskapur þarf að
starfa við þetta, og hleypir þar með
kostnaðnum enn frekar upp. Þetta er
einfaldlega það sem verður að gera, og
því verður ekki breytt," sagði Steingrím-
ur.
„Hins vegar, vil ég segja það almennt
um gæðaeftirlitið," sagði Steingrímur,
„að því miður þá er það brotalöm. Um
leið og ég segi það, þá viðurkenni ég að
það er erfiðara í að komast, en um að
tala - því það er mikill fiskur sem berst
á land. Það hefur verið unnið mjög
mikið starf á vegum ráðuneytisins, í
þessu sambandi, þó það hafi ekki farið
hátt, og það er orðin veruleg vakning í
þessum málum. SÍF er t.d. búið að ráða
sjö eftirlitsmenn á eigin vegum og er að
taka upp það kerfi sem frystisamtökin
hafa haft, þ.e. að hafa eigið eftirlit, og
ég er þeirrar skoðunar að gæðamat, á
framleiðslunni eigi í vaxandi mæli að
vera í höndum framleiðenda sjálfra og
útflytjenda og þeir verða þá jafnvel
sviptir leyfi ef þeir bregðast í því.
Hins vegar held ég að það sé einnig
mikið ábótavant í ferskfiskmatinu. A
sumum stöðum er það í lagi, á öðrum
stöðum ekki. Það kemur greinilega í
Ijós, samkvæmt úttekt sem ég hef látið
gera, að það er ekki samræmi á því á
■ Steingrímur Hermannsson
milli staða. Sums staðar er t.d. línuftsk-
ur, sem samkvæmt reglugerð er ekki
hæfur til vinnslu ef hann er yfir sólar-
hringsgamall og ekki ísaður og slægður,
tekinn í vinnslu. Það á náttúrlega ekki
að eiga sér stað að svona fisk sé sleppt í
gegn, en því miður þá gerist það, en a
öðrum stöðum er eftirlitið það strangt,
að slíkt kemur ekki til greina. Þetta
verður náttúrlega allt að laga, og við
erum að undirbúa ráðningu manns hér á
vegum ráðuneytisins, sem á að koma
óboðinn á hina ýmsu vinnslustaði og
fylgjast með hvernig þetta er gert.
Þá held ég að einnig sé töluverð brögð
að því að framleiðendur taki fisk sem
hefur verið metinn í þriðja flokk, eða
jafnvel sem úrkast, og vinna hann í salt
eða skreið, og slíkt má náttúrlega alls
ekki gerast. Ég tel það mikla spurningu
hvort ekki eigi að taka upp einhverja þá
meðferð á slíkum fiski að hann verði
ekki unninn, s.s. eins og það að lita hann,
- eða eitthvað til þess að hindra slík
vinnubrögð."
Steingrímur sagði að lokum, er hann
ræddi þessi gæðamatsmál og hring-
ormsvandamálið: „Saltfisksframleið-
endur geta ekki eingöngu gert kröfur á
hendur matinu og ríkinu, þeir verða að
gera kröfur á eigin hendur, þeir verða að
passa sig betur á því að framlciða ekki
saltfisk, nema úr úrvalsfiski."
-AB
■ Á myndinni sést Ólafur Jóhannesson ræða við starfsfólk á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins í Hraunbergi 7.
(Ljósm. Ámi Sæberg)
Framsóknarflokkurinn í Reykjavlk: ,
Hefur opnað kosninga
skrifstof u í Breiðholti
■ Um síðustu helgi opnaði Framsókn-
arflokkurinn í Reykjavík kosningaskrif-
stofu í Hraunbergi 7, en frá þeirri
skrifstofu verður kosningastarfi fyrir
Breiðholtshverfin stjórnað. Verður
skrifstofan opin alla daga frá klukkan
10-19.
í fyrradag heimsótti Ólafur Jóhannes-
son, utanríkisráðherra, efsti maður á
lista framsóknarmanna í Reykjavík,
hina nýju skrifstofu og spjallaði þar við
starfsfólk um væntanlegar kosningar.
Að sögn Péturs Sturlusonar, sem
stjórnar kosningaskrifstofunni fyrir
Breiðholtshverfi, er mikill hugur í fram-
sóknarmönnum í Breiðholti um að ná
sem glæsilegustum árangri í væntan-
legum kosningum, og sagði hann, að
Ólafur Jóhannesson og aðrir frambjóð-
endur B-listans fengju góðan hljóm-
grunn hjá fólki. Sagðist hann vilja hvetja
framsóknarfólk að hafa samband við
skrifstofuna hið fyrsta og 'kvaðst vilja
minna á, að alltaf væri heitt kaffi á
könnunni.
-AM
Frá menntamálaráðuneytinu:
Ný rannsóknarstof nun
á sviði uppeldismála
■ Nýlega hefur verið sett á stofn rann-
sónarstofnun uppeldismála skv. lögum
nr. 38/1971 um Kennaraháskóla íslands
og reglugerð frá 1974.
Rannsóknarstofnunin starfar á vegum
Kennaraháskóla íslands, Háskóla ís-
lands og menntamálaráðuneytisins.
Henni er ætlað að vinna að fræðilegum
rannsóknum á sviðið sál- og félagsvís-
inda og í lögum segir að þar skuli að
jafnaði tekin fyrir verkefni er teljist hafa
hagnýtt gildi fyrir skólastarf á íslandi.
Einnig skal veita kennara efnum og
háskólastúdentum þjálfun í fræðilegum
rannsóknaraðferðum sál- og félagsvís-
inda.
Stjórn rannsóknarstofnunar uppeldis-
mála er í höndum 6 manna stjórnar-
nefndar sem skipuð er skv. 15 gr.
áðurnefndar laga. Forstjóri er síðan
kjörinn til skiptis úr hópi fastra kennara
í uppeldisskor Kennaraháskólans og
fastra kennara Háskóla íslands í sálar-
fræði, uppeldisfræði og félagsfræði. For-
stjóri stjórnar vísindalegu starfi rann-
sóknarstofnunarinnar og fjárreiðum
hennar. Forstjóri hefur verið kjörinn dr.
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir prófessor við
Kennaraháskóla íslands til næstu þriggja
ára. - ÞB
Bráðabirgðalög
um gjaldskrá orkuveitna:
Hækkanir hád-
ar samþykki
orkurádherra
„Vegna fyrirhugaðra hækkana”
■ Ákveðið hefur vcrið með bráða-
birgðalögum að breytingar á vcrð-
ákvæðum í gjaldskrám orkufyrirtækja
skuli háðar samþykki orkumálaráð-
herra.
I frétt frá iðnaðarráðuneytinu segir að
lög þessi séu m.a. samþykkt vcgna
fyrirhugaðra stórfelldra hækkana á
gjaldskrám orkufyrirtækja þann 1. maí
næstkomandi.
„Við vitum utan að okkur að orkufyr-
irtæki gera ráð fyrir heilmiklum hækkun-
um á gjaldskrám á næstunni. í því
sambandi get ég nefnt að Landsvirkjun
áformaði hækkun upp á 20% 1. maí,
þótt ekki hafi það verið auglýst ennþá,“
sagði Páll Flygering, ráðuneytisstjóri í
iðnaðarráðuneytinu, þegar hann var
spurður hvaða stórfelldar hækkanir væri
átt við í fréttinni.
Páll vildi leggja áherslu á, að um væri
að ræða breytingar á verðákvæðum í
gjaldskrám, og næðu lögin því ekki yfir
Sameiginlegir
framboðs-
fundir í Norð-
urlandskjör-
dæmi vestra
■ Sameiginlegir framboðsfundir verða
haldnir í Norðurlandskjördæmi vestra á
næstunni og hefjast þeir nk. þriðjudag.
Fundirnir eru haldnir á þeim stöðum og
tíma sem hér segir:
Þriðjudaginn 12. apríl á Skagaströnd kl.
20.30
miðvikudaginn 13. apríl á Hvammstanga
kl. 20.30
fimmtudaginn 14. apríl á Blönduósi kl.
20
sunnudaginn 17. apríl í Miðgarði kl. 15
mánudaginn 18. apríl á Siglufirði kl.
20.30
þriðjudaginn 19. apríl á Hofsósi kl. 20.30
fimmtudaginn 21. apríl á Sauðárkróki
kl. 20 Frambjóðendur
orkuverð til ÍSAL, Grundartangaverk-
smiðjunnar og Áburðarverksmiðjunnar
í Gufuncsi, sem kaupa orku samkvæmt
sérstökum samningum. - Sjó
Guðmund
ur Sveins-
son sjö-
tugur ídag
■ Guðmundur Sveinsson, netagerð-
armeistari á ísafirði verður 70 ára í dag.
í tilefni dagsins tekur Guðmundur á
móti vinum sínum og kunningjum m.a.
úr sjómannastéttinni og bæjarstjórninni
í Netagerðinni milli klukkan 16.00 og
18.00 í dag. Tíminn óskar Guðmundir til
hamingju með daginn, þakkar honum
fréttaritarastörf í þágu blaðsins um
langt árabil og vonast til að eiga hann að
sem lengst.